Morgunblaðið - 08.09.1987, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
13
hvíti út í skóg og drepi hana og
... e-hem ... skeri úr henni hjar
... Nei, drottningin vonda vill að
veiðimaðurinn drepi Mjallhvíti. Nei,
drottningin vill að veiðimaðurinn
reki Mjallhvíti úr höllinni. Já, þann-
ig er það best. Mjallhvít má ekki
vera lengur í höllinni af því hún er
fallegri en vonda drottningin. Af
hveiju er veiðimaðurinn að reyna
að drepa Mjallhvíti? heyrist þá í litla
áhorfandanum þegar risaaxinn
veiðimaðurinn reiðir hnífinn á loft
albúinn að stinga Mjallhvíti á hol í
næsta atriði.
Það er alkunna að fallegustu
ævintýrin eru stundum líka þau
grimmilegustu. Rauðhetta og úlfur-
inn er t.d. varla heppilegt undir
svefninn með úlfínn rífandi í sig
ömmuna og Rauðhettu. Hans og
Gréta eiga það alltaf yfir höfði sér
að vera étin af kerlingunni í köku-
húsinu en þau brenna hana í lokin.
Og svo tekið sé nýlegt dæmi var
bamamyndin ET bönnuð yngstu
bömunum í Svíþjóð.
Bamasálfræðingurinn frægi,
Bruno Bettelheim, segir að það já-
kvæða við ævintýrin sé að þau geti
dregið úr ótta sumra bama. Hann
segir að það geti róað bömin að
upplifa þætti úr undirmeðvitundinni
með ævintýrunum. „En engu að
síður," segir Bettelheim, „er það
ekki það sama að horfa á ævintýri
á kvikmyndatjaldinu og að lesa það
fyrir bömin, þar sem hin nánu
tengsl og hughreysting foreldranna
við lesturinn er ekki til staðar í bíó.“
Og hann bætir við: „Kvikmynd
gæti verið of sterk upplifun fyrir
lítil böm. Viðbrögð þeirra geta ver-
ið mismunandi en ef foreldrum
stendur ekki á sama um það ættu
þeir ekki að fara með bamið sitt í
bíó.“
Það er kannski ekki algilt að
böm verði óttaslegnari í bíói af því
að þau njóta ekki hughreystingar
og róandi tengsla við foreldra sína.
Yngstu bömin, sem flest fara með
foreldmm sínum í bíó, hafa einmitt
foreldrana til að stappa í þau stál-
inu og reyna að leiða þeim fyrir
sjónir að þetta er bara plat. En það
er satt að það getur verið erfítt að
sannfæra litlu bömin frammi fyrir
stóra tjaldinu. „Þetta er bara bíó-
rnynd," er ekki mikil huggun í
eyrum þriggja ára bams. Því fínnst
ekkert gaman að hræðast.
En hvað sem því líður er
„Mjallhvít" hreinasti gimsteinn,
töfrandi og ómótstæðileg og þótt
litli áhorfandinn áðumefndi hrædd-
ist nomina um tíma vom dvergamir
ekki lengi að bjarga því við og
hrekja óttann í burtu eins og þeir
hrekja nomina fram af klettunum
í lokin.
Fay Weldon
tíl Islands
Breski rithöfundurinn Fay Wel-
don hefur þegið boð um að koma
á Bóknmenntahátíðina 1987 sem
haldin verður í Norræna húsinu
12. - 19. september. Hún kemur
hingað í boði Bókmenntahátíð-
arinnar 1987, British Council og
Forlagsins.
Fyrsta bók Fay Weldon var smá-
sagnasafnið The Fat Woman's Joke
sem kom út árið 1967. í kjölfar
þess gaf hún út skáldsöguna Down
Amongst the Women. Skáldsögurn-
ar Praxis og Ævi og ástir kvendjöf-
uls (The Life and Loves of a
She-Devil) hafa komið út í íslenskri
þýðingu. Síðamefnda sagan verður
endurútgefin í tilefni af komu henn-
ar hingað til lands.
Fay Weldon fæddist í Worchester
á Englandi árið 1933, en ólst upp
á Nýja-Sjálandi. Hún nam við St.
Andrews háskólann í Skotlandi og
starfaði við auglýsingagerð áður en
hún sneri sér að ritstörfum. Hún
hefur fjallað um bókmenntir jafn-
hliða skáldsagnagerðinni. Hún
hefur skrifað bækur tileinkaðar
skáldkonunum Rebekku West og
Jane Austen og handrit fyrir sjón-
varp, þar á meðal eitt eftir skáld-
sögunni Pride and Prejudice eftir
Jane Austen.
(Úr fréttatilkynningu)
MArtline
**Artline gefurltnuna
16 DAGA ÆVINTÝRAFERÐ FRÁ 7. ■ 22. NÓVEMBER
FER8ATILHÖGIN:
Pann 7. nóvember er flogið með þotu Flugleiða sem leið liggur frá Keflavík til Orlando. í Orlando er dvalið á góðu hóteli.
borgin könnuð og skemmtanalífið skoðað til 11. nóvember er sigling hefst. bá er haldið til Miami á Flórída þaðan sem siglt er
af stað með hinu 23.000 tonna glæsiskemmtiferðaskipi NORDIC PRINCE sem e; sannkallað fljótandi ævintýraland.
með næturklúbbum. spilasölum. verslunum. snyrtistofum. sundlaug. íþróttasal og mörgu fleiru. Siglt er á vit ævintýranna og næstu
10 daga er mannlífið og landslagið kannað á hinum rómantísku karabísku eyjum: StThomas. Antigua. Barbados, Martinique og
St. Maarten. Að lokinni ógleymanlegri siglingu er komið í höfn á Miami á Flórida laugardaginn 21. nóvember og flogið heim
til lslands sunnudaginn 22. nóvember.
| íslensk fararstjórn og hægt er að framlengja ferðina að lokinni siglingu ef óskað er.
| Verð frá kr. 89.200,- á mann
4TCf*VTM(
Ferðaskrifstofa, Hallveigarstíg 1. Símar 28388-28580.