Morgunblaðið - 08.09.1987, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.09.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987 27 Nýr fréttaþáttur á Stöð 2: Hef áhyggjur af öllu sem er sett okkur tíl höfuðs - segir Ingvi Hrafn Jónsson, frétta- stjóri ríkissjónvarpsins „ÞAÐ verður að líta á alla sam- keppni með ákveðinni virðingu og við munum fylgjast vel með þessum hýja fréttaþætti Stöðv- ar 2,“ sagði Ingvi Hrafn Jóns- son, fréttastjóri ríkissjónvarps- ins. Stöð 2 hefur útsendingar 17. september á daglegum frétta- og umfjöllunarþætti, sem ber heitið „19.19“ og verð- ur sjónvarpað frá kl. 19.19 til kl.20.20. í þessum nýja þætti Stöðvar 2 verður blandað saman frétta- mennsku og nánari umfjöllum um þjóðmál sem eru efst á baugi, menningarmál, íþróttir og fleira. FVéttir frá fréttastofu koma inn í þáttinn kl. 19.30, en verða styttri en nú er. „Þetta virðist vera metn- aðarfullt prógramm hjá Stöð 2, en það er þó erfitt að meta slíkt nú,“ sagði Ingvi Hrafn. „Ef þessi þáttur verður einungis blanda af fréttum, Návígi og Eldlínunni þá verða ekki miklar breytingar. Ef þeim tekst hins vegar að gera gott „fréttamagasín" þá sýnist mér Stöð 2 vera með nýja og mjög fýsilega hugmynd. Við höftim sjálfír unnið að svipuðum þætti, en framkvæmdum hefur verið frestað fram yfír áramót, enda kosta fyrirhugaðar útsendingar á fimmtudögum sitt.“ Ingvi Hrafn sagðist vissulega hafa áhyggjur af öllu nýju og öflugu sem væri sett Sjónvarpinu til höfuðs. „Síðari hluti „19.19“ verður sendur út á fréttatíma Sjónvarpsins og þetta staðfestir að það var ólánsskref að flytja fréttir okkar aftur til kl. 20. Ef þeir hafa fé og mannskap til að fara ofan í okkar fréttir þá gæti sá dagur runnið upp að við töpum áhorfendum, jafnvel þó margir telji okkar fréttir betri. Það er greinilegt að Stöð 2 vex mjög ás- megin og ef svo fer sem horfir þá verða þeir með jafn marga áhorfendur og við um áramót. Við munum hins vegar ekki sitja með hendur í skauti, heldur fylgjast vel með þróuninni,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri Sjónvarpsins. Auglýsing um útgáfu 50 KRÓNA MYNTAR í dag þriðjudaginn 8. september 1987 lætur Seðlabankinn í umferð nýja 50 króna mynt. Frá sama tíma mun bankinn hætta að gefa út 50 króna seðla, sem þó verða ekki innkallaðir í bráð og verða um sinn í umferð jafnhliða myntinni. Hin nýja mynt er af svofelldri gerð: Þvermál er 23 mm, þykkt 2,6 mm og þyngd 8,25 g. Myntin er slegin úr gulleitri eirblöndu (70% kopar, 24,5% sink og 5,5% nikkel) og er rönd hennar riffluð. Á framhlið myntarinnar er mynd af landvættunum, eins og á 5 og 10 króna myntinni, verðgildi í bókstöfum, „ísland“ og útgáfuár. Á bakhlið er mynd af bogakrabba og verðgildi í tölustöfum. 'o A\reéJ/Mf\ Leðurfatnaður frá SERGE MIKO í París. w t) 1 Opið ciUci laugardaga 10:00 - 14:00. Greiðslukort - cifborganir. EGGERT feldskeri Efst á Skólavörðustígnuin, sími II121.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.