Morgunblaðið - 08.09.1987, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
Suðurnes:
Ný aðferð
við vinnshi
á beitukóngi
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Þorbjörn Daníelsson og Sólmundur Einarsson fiskifræðingur um borð í rannsóknarskipinu Mími RE í
Njarðvíkurhöfn. A borðinu fyrir framan þá er ein gildran sem notuð er við veiðarnar og hluti af aflanum.
Keflavik.
TILRAUN AVINNSLA á beitu-
kóngi hefur staðið yfir í Keflavík
og Vogum undanfama 6 mán-
uði. Arangurinn lofar góðu að
sögn þeirra Eiríks H. Sigurgeirs-
sonar og Þorbjöras Daníelssonar
sem fundið hafa upp aðferð við
að ná fiskinum úr kuðungnum
án þess að sjóða hann eins og
gert er erlendis. Þeir vildu ekki
upplýsa aðferðina og sögðu hana
atvinnuleyndarmál.
Sólmundur Einarsson, fiskifræð-
ingur, sem stundað hefur rannsókn-
ir á beitukóng undan ströndum
íslands undanfarin 4 ár, sagði að
þeir Eiríkur og Þorbjörn hefðu unn-
ið þrekvirki með þessum árangri
að ná fískinum hráum úr kuðungn-
um. Sólmundur telur að þessi
veiðiskapur geti átt mikla framtíð
fyrir sér, sé rétt haldið á málum.
Beitukóngurinn er fangaður í
gildrur með agni í og er nýtingin
15—16%. Gildrumar eru staðsettar
útaf Vogastapa og hefur afli verið
ágætur. „Við byijuðum með 20
gildrur, en höfum að undanfömu
verið með 50 gildrur, þar af 10
fyrir krabba," sagði Eiríkur. Þeir
ætla nú að fjölga gildmnum um
helming.
„Mest höfum við fengið 260 kíló
eftir nóttina, en að jafnaði hefur
aflinn verið um 150 kíló. Aflinn
gæti ef til vill verið betri, því við
höfum verið með hluta af gildrunum
á flakki í leit að nýjum slóðum og
fáum stundum lítið í þær. Bestur
virðist árangurinn ef gildmnar em
hafðar á sama stað í nokkum tíma,
því það er eins og beitukóngurinn
renni á lyktina af agninu sem í
þeim er.“
„Mistökin sem við höfum gert
hafa verið mörg en við teljum okk-
ur vera komna með dýrmæta
reynslu," sagði Þorbjörn. „í upp-
hafi notuðum við sömu aðferð og
tíðkast erlendis við vinnsluna. Þar
er beitukóngurinn soðinn í 10
mínútur og við það losnar fiskurinn
úr kuðungnum. Okkur fannst fisk-
urinn verða of seigur með þessari
aðferð og ákváðum að reyna að ná
honum úr hráum og það hefur nú
tekist."
Þorbjöm sagði að þeir hefðu haft
mikla samvinnu við Rúnar Marvins-
son matsvein og þeim hefði þótt
útkoman best að skera beitukóng-
inn í sneiðar og snöggsteikja hann.
„Þannig hafa veitingahús matreitt
hann að undanfömu sem forrétt og
hefur líkað vel.“
Nokkrir aðilar hafa haft samband
við þá félaga og viljað kynna hrá-
efnið erlendis. En þeir segjast ætla
að fara hægt í sakirnar og ekki
flana að neinu. Þeir hafa að undan-
fömu haft samvinnu við Rannsókn-
arstofnun fiskiðnaðarins og væm
staðráðnir í að senda ekkert frá sér
nema hráefni í hæsta gæðaflokki.
Eiríkur og Þorsteinn hafa stund-
að vinnsluna á beitukóngi sem
aukagrein. Eiríkur er kennari og
Þorsteinn aðstoðarflugumferðar-
stjóri í Reykjavík. Þeir hafa lagt
út talsverðan kostnað við tilrauna-
vinnsluna og hafa m.a. verið að
verka saltfisk til að létta undir.
Aðstöðu hafa þeir fengið hjá
feðgunum Margeiri Jónssyni og
Margeiri Margeirssyni í Röst. Þeir
vom með útgerð og fiskverkun, en
em nú hættir. Eiríkur sagði að þeir
feðgar hefðu verið sérlega hjálp-
samir og áhugasamir um gang
mála.
Um síðustu helgi lauk hálfsmán-
aðar leiðangri á vegum Hafrann-
sóknarstofnunar í Faxaflóa undir
stjóm Sólmundar Einarssonar fiski-
fræðings. Kannað var svæði undan
ströndinni frá Borgamesi að Leiru
og fengust beitukóngur og krabbi
á öllu svæðinu. Sólmundur sagði tvö
afbrigði vera af beitukóng í Faxa-
flóa, en þau væm fleiri umhverfis
landið.
- BB
Viðskiptaráðuneytið:
Viðræðurum sölu hlutabréfa
ríkisins í Utvegsbanka Islands
Viðskiptaráðuneytið sendi frá
sér fréttatilkynningu þegar Ijóst
var að tilboðsgjafar í hlutafé
ríkisins í Iðnaðarbankanum hf.
hefðu samþykkt að taka upp við-
ræður til að kanna hvort unnt
sé að ná samkomulagi þeirra á
milli um kaupin á hlutafénu.
Þessi tilkynning fer hér á eftir.
Að undanfömu hefur Jón Sig-
urðsson, viðskiptaráðherra, rætt við
fulltrúa þeirra aðila, sem gert hafa
tilboð í meirihuta hlutaíjár Útvegs-
banka íslands hf. Þar em annars
vegar Samband íslenskra sam-
vinnufélaga og samstarfsfyrirtæki
þess en hins vegar 33 fyrirtæki og
einstaklingar. Auk þess hefur við-
skiptaráðherra átt viðræður við
aðra, sem lýst hafa áhuga á hluta-
bréfakaupum í bankanum. I
framhaldi af þessum samtökum
hefur viðskiptaráðherra skrifað
Sambandi íslenskra samvinnufé-
laga og hópi 33 tilboðsgjafa í
hlutabréf ríkisins í Útvegsbankan-
um bréf, þar sem fram kemur, að
tilboð þeirra verði áfram til athug-
unar í viðskiptaráðuneytinu meðan
þeir kanni hvort unnt sé, að ná
samkomulagi þeirra á milli í þessu
máli. Báðir aðilar hafa nú svarað,
að þeir vilji taka þátt í slíkum við-
ræðum.
Gert er ráð fyrir að fulltrúar
annarra aðila geti síðar komið inn
í þessar viðræður. Er þar einkum
átt við fulltrúa sparisjóða. Viðræð-
umar munu einnig snúast um
endurskipulagningu bankakerfísins
með fækkun og stækkun lánastofn-
ana að leiðarljósi á grundvelli
yfirlýstra áforma Sambands
íslenskra samvinnufélaga og sam-
starfsfyrirtækja þess og frá hópi
33 tilboðsgjafa um samruna Út-
vegsbanka íslands hf. við aðrar
lánastofnanir. Gert er ráð fyrir að
viðræðum þessum Ijúki fyrir lok
september.
Nái væntanlegir kaupendur
hlutafjárins samkomulagi, sem
jafnframt tryggir hagsmuni ríkis-
sjóðs að mati viðskiptaráðherra,
verður gengið frá sölu hlutabréf-
anna svo fljótt sem kostur er.
Æskilegt er, að fyrir liggi gleggri
upplýsingar en nú um efnahag og
rekstur bankans áður en gengið
verður endanlega frá sölu hluta-
bréfanna. Meðan þessar viðræður
standa yfir verða hlutabréf ríkisins
í Útvegsbanka íslands hf. ekki seld
öðrum, en viðskiptaráðuneytið mun
skrá þá, sem áhuga hafa á kaupum,
án skuldbindingar.
Eins og kunnugt er, samþykkti
Alþingi í mars sl. lög um stofnun
hlutafélags um Útvegsbanka fs-
lands. í lögunum var gert ráð fyrir
að ríkissjóður gæti fyrst um sinn
átt meirihluta hlutafjár í bankanum,
en stefnt skyldi að því að selja al-
menningi og fyrirtækjum eignar-
hluta ríkisins. Hlutaféð skyldi verða
1.000 milljónir króna að nafnverði
á stofndegi. Stofnfundur Útvegs-
banka íslands hf. var haldinn í
Bílstjórafélög á Suðurlandi og
Alþýðusamband Suðurlands vísa
því á bug að uppsögn á gildandi
aðalkjarasamningi sé ólögleg, en
því var haldið fram af Vinnuveit-
endasambandi íslands og Vinnu-
málasambandi samvinnufélaga.
Þetta kemur fram í frétt frá
Alþýðusambandinu.
Nú hefur slitnað upp úr samning-
arviðræðum vegna fastlaunasamn-
ings fyrir sunnlenska bílstjóra við
byijun apríl. Undirbúningur að sölu
hlutabréfa ríkissjóðs í bankanum
hófst í viðskiptaráðuneytinu þegar
í mars sl. Um miðjan júní sendi
ráðuneytið frá sér auglýsingu um
söluverð bréfanna og lánskjör sem
í boði væru við kaup. í bæklingi
um söluna, sem vísað var til í aug-
lýsingunni og væntanlegir kaup-
endur gátu aflað sér hjá söluaðilum,
var að finna frekari upplýsingar um
sölu hlutabréfanna. Þar kom meðal
annars fram, að samþykki við-
skiptaráðherra þyrfti áður en af
sölu á hlutabréfum að andvirði 50
milljónir króna eða meira að nafn-
verði til eins eða skyldra aðila gæti
orðið.
Um miðjan ágúst sl. höfðu kaup-
endur aðeins skráð sig með þessu
móti fyrir hlutaféð innan við 40
milljóniri króna að nafnverði, en
föstudaginn 14. ágúst gerði Sam-
band íslenskra samvinnufélaga
ásamt þremur samstarfsfyrirtækj-
um sínum tilboð í 67% af öllu
hlutafé bankans, samtals að nafn-
verði um 670 milljónir króna á
vinnuveitendasamtökn. Samninga-
nefnd Alþýðusambands Suðurlands,
sem fer með umboð fyrir Bílstjóra-
deild Víkings í Vík, Bílstjórafélag
Rangæinga og Okuþór á Selfossi
hefur afhent vinnuveitendum upp-
sögn félaganna á gildandi aðal-
kjarasamningi frá 6. desember sl.
og vísað málinu einhliða til ríkis-
sáttasemjara. Þessu mótmæltu
vinnuveitendur sem ólöglegu, vegna
þess að hluti samninganefndar
verðlagi í maí sl. Tilboðinu fylgdi
yfirlýsing um fyrirhugaðan samr-
una Samvinnubankans hf. við
Útvegsbankann og getið var um
áhuga tilboðsgjafa á því að innláns-
deildir kaupfélaganna og Alþýðu-
bankinn hf. tækju einnig þátt í
þeirri sameiningu ef af kaupum
yrði.
Tilboðið var tekið til athugunar
af hálfu viðskiptaráðherra, en
mánudaginn 17. ágúst gerðu full-
trúar 33 aðila annað tilboð í allt
óselt hlutafé ríkisins í Útvegsbank-
anum, samtals að nafnverði um 760
milljónir króna í maí sl. Meðal þeirra
voru Iðnaðarbankinn hf. og Versl-
unarbankinn hf. og fylgdi tilboðinu
yfirlýsing frá Iðnaðarbankanum um
áhuga á samruna við Útvegsbank-
ann og frá Verslunarbankanum um
áhuga á samstarfi, sem kynni síðar
að leiða til samruna. Þetta tilboð
var einnig tekið til nánari athugun-
ar í viðskiptaráðuneytinu.
Hinn 26. ágúst staðfestu síðan
Samband íslenskra samvinnufélaga
og samstarfsfyrirtæki þess, að þau
VMSÍ hefur skrifað upp á fast-
launasamning fyrir bílstjóra.
í frétt frá Alþýðusambandi Suð-
urlands segir: „Félögin á Suðurlandi
og Alþýðusamband Suðurlands vísa
þessum mótmælum á bug m.a.
vegna þess að síðasta samninga-
fundi aðila og sem leiddi til undirrit-
únar var haldið leyndum fyrir
sunnlensku fulltrúunum úr samn-
inganefnd VMSÍ og komu þeir þar
af leiðandi hvergi nærri samninga-
hefðu hug á að kaupa öll óseld
hlutabréf ríkisins í bankanum.
Tveimur dögum síðar komu fulltrú-
ar nokkurra starfsmanna og við-
skiptavina bankans á fund
viðskiptaráðherra og lýstu áhuga á
hlutafjárkaupum í bankanum. Auk
þess hafa fulltrúar sparisjóða ný-
lega lýst áhuga sínum á hugsanleg-
um kaupum á hlutafé í Útvegs-
bankanum.
Ekki þarf að orðlengja að ágrein-
ingur hefur verið um það síðustu
tvær vikurnar, hvernig bregðast
skuli við þessum tilboðum af hálfu
ríkisins. Afstaða viðskiptaráðuneyt-
isins mótast af þeirri stefnu, sem
ríkisstjórnin markaði sér í banka-
málum með stefnuyfirlýsingu sinni:
í fyrsta lagi að létta íjárskuldbind-
ingum vegna Útvegsbankans af
ríkissjóði og þar með af skattgreið-
endum. í öðru lagi að stuðla að
samruna smærri banka og spari-
sjóða í stærri og öflugri banka, sem
veitt geta viðskiptavinum sínum
alhliða þjónustu á hagkvæman hátt.
I þriðja lagi að draga úr ábyrgð
ríkisins á rekstri banka þannig að
stjómendur þeirra séu fyrst og
fremst ábyrgir gagnvart eigendum
hlutafjár í bönkunum. f fjórða lagi
að dreifa eignarhaldi á hlutafé í
bönkum eftir föngum. Loks hefur
viðskiptaráðuneytið leitað lausnar,
sem sæmilegur friður gæti orðið
um, jafnt á sviði viðskipta sem
stjórnmála.
Stefnt er að því, að með framan-
greindum viðræðum muni fínnast
farsæl lausn á þessu máli.
gerðinni. Fulltrúi Verkamannasam-
bandsins eða einstakir aðrir
nefndarmenn sem leynifund þennan
sátu kvöldið 27. ágúst sl. höfðu
ekkert umboð frá sunnlensku
bílstjórafélögunum til slíkrar samn-
ingagerðar. Fulltrúi VMSÍ mun
hafa skrifað undir með fyrirvara
um samþykki einstakra aðildarfé-
laga. Þess má og geta að Ökuþór
er ekki aðili að VMSÍ. Málið er nú
í höndum ríkissáttasemjara."
Bílsljórar á Suðurlandi:
Telja uppsögn samnings löglega