Morgunblaðið - 08.09.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
23
greiðslukerfí með skömmtun og
ráðsmennsku sem hamlar þar gegn
almennum framforum. Það verður
að frelsa landsbyggðina úr höndum
Framsóknarflokksins.
Ég vona að SUS haldi alltaf uppi
merkinu fyrir minni ríkisumsvifum
og lægri sköttum. íslendingar eiga
þvi láni að fagna að hafa ekki lent
á villigötum í skattheimtu og út-
þenslu ríkisbáknsins eins og margar
nágrannaþjóðir okkar.
Þessa stöðu landsins verður að
varðveita og finna leiðir til þess að
sameina velferð allra landsmanna
og hóflega skattheimtu.
Ég vona að SUS verði alltaf önd-
vert gegn skuldasöfnun erlendis
sem er skattur á lífskjör unga fólks-
ins í framtíðinni.
Ég vona að SUS gleymi því aldr-
ei á öld umbúðanna, ásýndarinnar
og markaðssetningarinnar hvaða
stefnu og hvaða hugsjónum er ver-
ið að afla fylgis.
Sjálfstæðisstefnan er lifandi
steftia sem þarf að vera í sífelldri
mótun. Hún hvílir á grunni fijáls-
hyggju, íhaldsstefnu og ftjálsljmdis-
stefnu og jafnframt byggir hún á
kristinni trú og siðgæðisvitund.
Þessar rætur má ekki skera af,
heldur verður að sjá til þess að sjálf-
stæðisstefnan fái að þróast upp frá
þeim og verða jafn leiðandi fyrir
þjóðina í leit að betra lífi.
Sjálfstæðisstefnan
fyrir alla
Við höfum á þessu þingi valið
okkur kjörorðið „sjálfstaeðisstefnan
fyrir alla“. Með því viljum við leggja
áherslu á að Sjálfstæðisflokkurinn
er flokkur allra stétta og athafna-
frelsi er undirstaða framfara og
velmegunar. Frelsisskerðing leiðir
tii stöðnunar og hnignandi lífskjara.
Frelsið er því frumforsenda velferð-
ar í landinu jafnt sem mannlegrar
hamingju.
Við viljum líka leggja áherslu á
að þeim sé hjálpað sem á aðstoð
þurfa að halda vegna fötlunar, sjúk-
leika eða elli. Ungir sjálfstæðis-
menn vilja efla velferð þessa fólks
og leita leiða til þess að það sé
hægt án þess að gera almenning
að þrælum skattpíningar. Ofskött-
un dregur úr verðmætasköpun
atvinnulífsins og þá er stutt í að
velferðin minnki.
Ungir sjálfstæðismenh hafa þá
trú að allar stéttir eigi samleið með
Sjálfstæðisflokknum. Við viljum sjá
ísland sem land tækifæranna þar
sem ungt fólk getur lagt hart að
sér og komist í álnir. Við viljum sjá
efhað fólk sem stendur á eigin fót-
um og hjálpar þeim sem minna
mega sín á grundvelli kristins sið-
gæðis.
Við skulum Iíka hafa þetta kjör-
orð fyrir okkur sjálf á þessu þingi.
Hér verður háð hörð kosningabar-
átta um formennsku í samtökunum.
En við skulum muna að sjálfstæðis-
stefnan er fyrir alla og það er pláss
fyrir alla unga sjálfstæðismenn inn-
an Sambands ungra sjálfstæðis-
manna.
Flöldi árekstra í Reyjavík
Stofnfundur
Borgaraflokks-
ins í Austur-
Skaftafells-
sýslu
STOFNFUNDUR Félags Borg-
araflokksins í Austur-Skafta-
fellssýslu og syðstu hreppum
Suður-Múlasýslu var lialdinn á
Höfn í Hornafirði laugardaginn
29. ágúst sl.
Alþingismennimir Hreggviður
Jónsson úr Reykjaneskjördæmi og
Óli Þ. Guðbjartsson úr Suðurlands-
kjördæmi mættu á fundinn og
ræddu stjómmálaviðhorfíð.
Fyrsta stjóm félagsins var kjörin:
Einar J. Þórólfsson formaður, Elma
Þórarinsdóttir, Skúli ísleifsson,
Sigríður Birgisdóttir og Sigríður
Jóhannesdóttir. í varastjóm vom
kjörin: Tryggvi Ámason, Bjöm
Jónsson. Hafsteinn E. Stefánsson,
Reynir Ólason, Hjörtur Guðjónsson.
MARGIR árekstrar urðu í
Reykjavík á föstudag. Á tæplega
hálfum sólarhring, frá klukkan
6 um morguninn til kl. 17, urðu
hvorki fleiri né færri en 28
árekstrar. Siys urðu ekki á fólki,
utan einum ökumanni, sem lenti
í árekstri á Höfðabakka.
Svo virðist sem ástandið í um-
ferðinni sé ívið verra í ár en í fyrra.
Hjá slysarannsóknardeild lögregl-
unnar fengust þær upplýsingar að
í ágústmánuði síðastliðnum hefði
deildin þurft að hafa afskipti af 305
óhöppum. í sama mánuði í fyrra
vora óhöppin 203. Mun fleiri slösuð-
ust í síðasta mánuði en i ágúst í
fyrra, eða 24 á móti 19.
Þar sem umnferðaróhöppum fer
sífellt íjölgandi hefur verið ákveðið
að umferðardeild lögreglunnar sjái
ekki lengur ein um slík mál, heldur
munu allir lögreglumenn á vakt
reyna að stemma stigu við árekstr-
um og slysum. Lögreglan hefur
þegar hafið herferð sína og eiga
gálausir ökumenn öragglega eftir
að verða varir við það.
IBM REISIR BRU
MILU FORTlÐAR
OG FRAMTÍÐAR
Samstarfsaðilar IBM eru:
ALMENNA KERFISFRÆÐISTOFAN,
REYKJAVÍKURVEGl 66, HE S. 651077.
FORRITUN SF, HAMRABORG 12, KÓP. S 641750.
FRUM HF. SUNDABORG 1, RVK. S. 681888.
GÍSLI J. JOHNSEN SF, NÝBÝLAVEGI 16, KÓP.
S. 641222.
HAGRITUN, GRÁNUFÉLAGSGÖTU 4, AKUREYRI.
S. 96-27322.
HUGBÚNADARHÚSIÐ, SÍDUMÚLA 21, RVK.
S. 688811.
HUGSJÓN, AUSTURVF.GI 1. ÍSAF. S. 94-4544.
HUGUR HF, HAMRABORG 12, KÓP. S. 641230.
HUGVIRKI, HÖFÐABAKKA 9c, RVK. S 671822.
KERFI HF, HÖFÐABAKKA 9, RVK. S. 671920.'
MIÐVERK, SKÚLAGOTU 51, RVK.S. 19920.
RF.KSTRARIVFKNI HF, SÍÐUMÚLA 37, RVK. S. 685311.
SKRIFSTOFUVÉLAR HF, HVERFISGÖTU 33, RVK.
.S. 623737
TÖLVER, ÁRMÚLA 40, RVK. S. 681288.
TÖLVUBANKINN, SÍÐUMÚLA 21, RVK. S. 681780.
Komdu gömlu tölvunni
i verð í skiptum fyrir IBM
System/36 eða /38
Fram til 30, september tökum við upp þá ný-
breytni að kaupa notaðan vélbúnað af fyrir-
tækjum sem skipta yfir í ÍBM SYSTEM/36 eða
/38. Þannig getur þitt fyrirtæki í senn eignast
afar fullkominn tölvubúnað og komið gömlu
tölvunni í verð.
Þær fjölnotendavélar sem við kaupum eru m.a.:
WANG,HP, VAX, PDP, BURROUGHS, ND,TI,
QUANTEL, DG, KIENZLE, SAGE, TELEVIDEO,
NORTH STAR, LUXOR OG SUPERBRAIN
Kostir þess að velja IBM eru yfirgnæfandi:
1. Gott verð. 2. Góður og gangviss vélbúnaður.
3. Margbreytilegur hugbúnaður. 4. Einstök
þjónusta.
Vert er að gefa sérstakan gaum að rekstraröryggi
SYSTEM/36 og /38. Það byggist á:
1. Þaulreyndum búnaði. 2. Óbrigðulli varahluta-
þjónustu. 3. Hæfni tæknimanna. 4. Fullkomnum
búnaði til að leita uppi bilanir (stöðugu sambandi
við gagnabanka IBM erlendis).
Það orkar ekki tvímælis að nú er rétti tíminn til
að skipta yfir í fullkomnari og öruggari tölvu-
búnað. Þú getur kvatt fortíðina með goðri
samvisku!
Hafðu samband sem fyrst við söludeild okkar
eða einhvern af samstarfsaðilum IBM.
VANWIRKNI í HVÍVETNA____________
Skaftahlið 24 105 Reykjavik Simi 27700
APGUS/SIA