Morgunblaðið - 08.09.1987, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
9
/ /
MUSIKLEIKFIMIN
HEFST MÁNUDAGINN 21. SEPT.
Styrkjandi og liökandi œfingar fyrir konur á öllum
aldri. Byrjenda- og framhaldstímar. Kennsla fer fram
i Melaskóla.
Kennari: Gígja Hermannsdóttir.
Uppl. og innritun í síma 13022 um helgar. Virka
daga eftir kl. 5.
_______________________________________________>
r
GATES
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRDI, SÍMI 651000.
Cherokee 1985
Rauöur, 5 dyra, 4 gíra, ekinn 65 þ.km. 4
cyl. (2.5). Mjög gott útlit. Verö 840 þús.
Ford Escort 1300 L 1985
Blár, ekinn 43 þ.km. Verð 360 þús.
Volvo 740 GL 1985
Rauðsans., 5 gíra, ekinn 49 þ.km. Litað gler
o.fl. Úrvalsbíll. Verð 720 þús.
MMC Galant GLS 2000 '86
25 þ.km. Mikið af aukahl. V. 570 þ.
Saab 900 GLS 1982
Blásans., ekinn 80 þ.km. sjálfsk. m/aflstýri.
Fallegur bíll í toppstandi. Verö 370 þús.
M. Benz 280 E ’78
Sjálfsk. m/sóllúgu. Gott eintak . V. 440 þ.
Nissan Sunny GLX ’87
28 þ.km. Sjálfsk. m/aflstýri. V. 460 þ.
Daihatsu Runabout '83
44 þ.km. Sjálfsk. V. 210 þ.
Fiat 127 Panorama '85
16 þ.km. Gott eintak. V. 195 þ.
Peugot 505 station '87
50 þ.km. 7 manna V. 690 þ.
Honda Civic DX '85
32 þ.km. (1300 vél). V. 385 þ.
Honda Accord EX '87
7 þ.km. Sem nýr. V. 760 þ. (skipti ód.)
Volvo 240 station '87
17 þ.km. Blásans. beinsk.
Range Rover 4ra dyra '83
65 þ.km. V. 950 þ.
Nissan Patrol (langur) diesil '85
Aöeins 25 þ.km. Uþphækkaöur o.fl V. 920 þ.
Ford Sierra 1600 L m/sóllúgu '87
20 þ.km. Sportfelgur, rafm. í rúöum. V. 530 þ.
Toyota Carina II '86
10 þ.km., m/aflstýri o.fl. V. 495 þ.
Toyota Celcia ST '84
Fallegur sportbill. V. 470 þ.
Renault II turbo '85
27 þ.km. Sprækur sportbíll. V. 540 þ.
Toyota Tercel 4x4 '86
15 þ.km. V. 540 þ.
Saab 99 GL '84
41 þ.km. 5 gira. Toppbill. V. 400 þ.
Volvo Lapplander yfirb. '80
53 þ.km. m/aflstýri, 10 manna. V. 390 þ.
Toyota Corolla 1.6 DX '85
20 þ.km. (Sedan typa) V. 390 þ.
Volvo 240 GL '86
15 þ.km. Sjálfsk. V. 650 þ.
Mazda 323 Saloon 1.3 '86
29 þ.km. 5 gira. V. 360 þ.
M. Benz 230 E 86
14 þ.km. Einn m/öllu. V. 1480 þ.
Friður kringum Ólaf?
Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður, tilkynnti á laugardag,
að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér til formennsku í Al-
þýðubandalaginu. Er nú enginn, sem er í sviðsljósinu til þess
að verða eftirmaður Svavars Gestssonar nema Ólafur R.
Grímsson. Hefur Ólafur látið þess getið af alkunnri hógværð,
að hann njóti stuðnings manna um allt land. Af yfirlýsingum
hans má ráða, að aðeins vanti herslumuninn á að hann verði
kjörinn formaður eftir tvo mánuði. Kannski bara brot úr pró-
senti eins og hann taldi á einhverju stigi baráttunnar í kosningun-
um í vor að vantaði upp á, að hann kæmist á þing (og yrði
utanríkisráðherra)? í Staksteinum í dag er því velt fyrir sér,
hvort friður verði kringum Ólaf R. Grímsson og framboð hans.
Vonbrigði
Steingríms
Af yfirlýsingu
Steingríms J. Sigfússon-
ar um að hann gefi ekki
kost á sér til formennsku
í Alþýðubandalaginu má
auðveldlega ráða, að
hann hefur orðið fyrir
vonbrigðum með það
hlutskipti að þykja ekki
gjaldgengur til starfans.
Hann segir á einum stað:
„Mér er meðal annars
fundið það til foráttu af
ákveðnum hópi að ég
hafi verið alltof náinn
samstarfsmaður og
stuðningsmaður for-
manns flokksins, Svavars
Gestssonar. Þó það sé
sérkennileg lífsreynsla
fyrir einn flokksmann að
það skuli vera talinn Ijóð-
ur á ráði hans að hafa
ekki legið i hælunum á
formaimi sínum er þetta
engu að síður . stað-
reynd.“
I þessum orðum likir
Steingrimur ákveðnum
hópi samflokksmanna
sinna við hælbíta, það er
rógbera, er hafi sótt að
Svavari Gestssyni. Telur
Steingrimur það helstu
hindrunina á leið sinni til
formannssætisins, að
hann hafi ekki rægt
Svavar Gestsson, og gef-
ur jafnframt til kynna,
að slík iðja sé það, sem
best dugi um þessar
mundir til frama í Al-
þýðubandalaginu. Þetta
er ófögur lýsing.
Steingrimur lýsir yfir
stuðningi við nýtt fólk,
sem ekki „ber með sér i
æðstu embætti ör frá
undangengnum deilum"
og geti skilið „óvinafagn-
að átaka og illinda" eftir
þar sem slíkt er best
geymt.
Ólafur R. Grimsson
verður ekki talinn til
„nýs fólks“ f Alþýðu-
bandalaginu og hann ber
með sér „ör frá undan-
gengnum deilum",
þannig að hann nýtur
greinilega ekki stuðnings
Steingríms J. Sigfússon-
ar. Er líklegt, að fleiri
þingmenn Alþýðubanda-
lagsins séu á sama máli
og Steingrímur. Og Ólaf-
ur R. Grfmsson njóti
þannig meiri stuðnings
þingmanna utan land-
steina en innan; eins og
menn muna gegnir Ólaf-
ur hlutverki i þágu
heimsfriðar á alþjóða-
vettvangi í nafni samtaka
þingmanna úr mörgum
löndum.
Viðhorf Ólafs
Eftir að yfirlýsing
Steingríms J. Sigfússon-
ar lá fyrir, sagði Ólafur
R. Grimsson f samtali við
Morgunblaðið:
„Siðan ég kom til
landsins hafa mjög
margir úr öllum lands-
hlutum haft samband við
mig og hvatt mig ein-
dregið til þess að gefa
kost á mér og takast á
við það mikla verkefni
að gera Alþýðubandalag-
ið að nýju að sterkum,
breiðum og öflugum
flokki, en ég hef ekki
tekið ákvörðun þar að
lútandi á þessu stigi.“
Ólafur R. Grfmsson er
ekkert að velta þvi fyrir
sér, hvort honum sé
fundið það til foráttu að
hafa leynt og (jóst átt f
útistöðum við fráfarandi
flokksformann. Hann
hafnar raunar þeirri
skoðun, að kjósa þurfi
einhvem til formennsku,
sem hafi ekki tekið af-
stöðu f innanflokks-átök-
um alþýðubandalags-
manna. Hann segir
Steingrimi J. Sigfússyni
og skoðanabræðrum
hans strið á hendur.
Innan Alþýðubanda-
lagsins henda menn þvi
nú mjög á loft, að sá
maður f röðum þeirra,
sem tekið hefur á móti
flestum friðarverðlaun-
um, sé helsti ófriðarsegg-
urinn í flokknum. Það er
dæmigert fyrir svör
Ólafs R. Grímssonar und-
anfarin misseri, að hann
skyldi hafa sagt við
Morgunblaðið: „Síðan ég
kom til landsins. . .“ Frá
þvi hann hóf að vinna að
heimsfriði hefur Ólafur
R. Grimsson gefið sér
lítinn tima til að vinna
að friði innan Alþýðu-
bandalagsins. Vissulega
kann það að vera virði
tílraunarinnar miðað við
almenna stöðu Alþýðu-
bandalagsins að sjá
hveraig það gefst að
kjósa formann f flokkn-
um, sem dvelst verulegan
hluta ársins erlendis til
að sjá um heimsfriðinn.
Eiga margir f flokknum
áreiðanlega eftir að velta
þvf fyrir sér, hvort vog-
andi sé að hrófla við
þessari alþjóðlegu friðar-
stoð, ef krafa verður sett
fram um að Ólafur R.
Grímsson hverfi úr for-
ystu þingmannasamtak-
anna f New York til að
bjarga Alþýðubandalag-
inu. Það verður því
lfldega ekki tal um hæl-
bfta, sem heldur aftur af
Ólafi R. Grfmssyni, held-
ur stærri mál og merki-
legri útí f hinum stóra
heimi.
Verðbréfamarkaður Iðnaðaitemkans
kynnir ný skuldabréf Glitnis hf.
ávöxtun umfram verðbólgu
Þúvelur
á milli 13 mismunandi gjalddaga.
Glitnir hf. er stærsta fjármögnunarleigufyrir-
tækið á íslandi. Eigendur Glitnis hf eru Iðn-
aðarbankinn, A/S Nevi í Noregi og Sleipner
Ltd. í London.
Skuldabréf Glitnis bera 11,1% ávöxtun um-
fram verðbólgu. Það jafngildir nú 35% árs-
ávöxtun.
Verðbréfamarkaður Iðnaðarbankans sér um
endursölu skuldabréfa Glitnis hf. ef eigandinn
þarf á peningum sínum að halda fyrir gjald-
daga.
Síminn að Ármúla 7 er 68-10-40. Heiðdís,
Ingibjörg, Sigurður B. eða Vilborg gefa allar
nánari upplýsingar um skuldabréf Glitnis hf.
Verðbréfamarkaður
Iðnaðarbankans hf.