Morgunblaðið - 08.09.1987, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
19
Sandkassi
borgarans
eftirArndísi
Jónsdóttur
Undanfarið hafa okkur borist
fréttir af því að Borgaraflokkurinn
sé að frískast. Ég hef fylgst með
þessu af mikilli athygli vegna þess
að ég er spennt að sjá hver málefna-
staða þessa nýja flokks muni vera.
I blaðagrein í sumar fullyrti ég, að
það yrði spennandi fyrir kjósendur
Borgaraflokksins jafnt og og fram-
bjóðendur að komast að því til hvers
flokkurinn væri. Nú er þetta sem
óðast að koma í Ijós.
Þegar þetta er skrifað er búið að
stofna félög í nær öllum kjördæmum
og mörg í sumum. Þá hefst skyndi-
lega fréttaherferð. I útvarpinu á
fimmtudag kom skýrt í ljós, að flokk-
urinn hefði áhyggjur af núverandi
stjómarsamstarfi, og þar var sú
skýring gefin á halla ríkissjóðs að
inni í honum væri kosningavíxill
Sjálfstæðisflokksins og var fyrrver-
andi ijármálaráðherra kallaður til
ábyrgðar. í fréttum Stöðvar tvö kom
svo Albert til samtals og fjallaði þar
fyrst og fremst um meintar persónu-
leikaveilur núverandi forsætisráð-
herra.
Þá er það líka komið í ljós að það
sem ég þóttist vita um þingmann
Borgaraflokksins á Suðurlandi, virð-
ist eiga við um Albert Guðmundsson
og þá líklega flokkinn allan. Þetta
sem ég þóttist vita, er að Borgara-
flokkurinn á ekkert erindi í islenskum
stjómmálum annað en það að hatast
við Þorstein Pálsson og láta vorkenna
sér fyrir það, hvemig hann hafi kom-
ið fram.
Fegin er ég þessum málalokum,
því að þau sýna best að Sjálfstæðis-
flokkurinn er ekki klofinn. Það er
alveg víst að þjóðin fer ekki í það
að vorkenna þeim heilt kjörtímabil
vegur þess eins að Þorsteinn Pálsson
skuli vera til.
Annars bera þeir Borgaraflokks-
menn okkur sjálfstæðismönnum á
brýn að við gefum þeim ekki alvar-
lega gaum. Sjálfstaeðismenn bjugg-
ust við að hitta í Borgaraflokki menn,
sem hægt væri að tala við um mál-
efni. Það hefur ekki reynst svo. Þeir
þurfa ekki að halda að sjálfstæðis-
menn gangi til viðræðna um það,
hver okkar sé mesti skúrkurinn.
Gera þeir sér ekki ljóst, að eins og
hægt er að deila um persónu Þor-
steins Pálssonar, þá hafa afar margir
skoðanir á gáfnafari og siðferði for-
ystumanna Borgaraflokksins?
Höfundur er kennari á Selfossi.
Bolholt
• 36645
Sudurver Hraunberg
• 83730 •79988
Metsölublað á hvetjum degi!
AMOS 12.7
Mælingarstærð 9.9 brt.
Til sölu stálskip. Smíði skipanna hófst í júní
1987, þannig að þau eru mæld eftir gömlu
mælingunni.
Skipin eru sérstaklega vönduð og
fullnægja neðangreindri lýsingu:
Lengd: 12,7 m.
Breidd: 4,50 m.
Djúprista: 2,30 m.
Galvanseraður skrokkur.
Álstýrihús, möstur o.fl.
Glussakrani.
Háþrýstikerfi til þvotta.
Aukalunning uppí 1,70 m, sem fljót-
legt er að fjarlægja.
Scania 11 182 (án túrbínu) til 299
hp (með túrbínu og kæli).
1250 mm skiptiskrúfa.
32 milna radar.
Loran.
Videoplotter.
Sjálfstýring.
Sími.
Litadýptarmælir.
Útvarp — segulband.
Sjónvarp og video.
Rapp netaspil (stærri gerð).
Línuspil með afslítara.
Allar upplýsingar gefur Skipasala Hraunhamars
Skipasala Hraunhamars,
Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði,
sími 54511.
8542