Morgunblaðið - 08.09.1987, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
29
ing á allri starfsemi flokksins.
Starfsvið forustumanna og starfs-
manna Sjálfstæðisflokksins þarf að
endurskoða með sérstakri áherslu
á hvemig áróðursmálum hans verði
best háttað. Beita verður nýjum
aðfgerðum s.s. skoðanakönnunum
til þess að kanna stöðu og ímynd
Sjálfstæðisflokksins meðal kjós-
enda og hagnýta þær til þess að
koma sjálfstæðisstefnunni sem best
á framfæri." segir síðan í ályktun-
inni.
Skilaboð í
10 liðum
Með stjómmálaályktuninni voru
samþykkt skilaboð í 10 liðum sem
ungir sjálfstæðismenn vildu senda
forustumönnum flokksins. Þar á
meðal að verðbólgu verði komið
niður á hliðstætt stig og í helstu
viðskiptalöndum okkar. Mótmælt
er harðlega öllum nýjum sköttum
og sagt að við myndun núverandi
ríkisstjómar hafí verið gengið allt
of langt í skattahækkunum. Þá em
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
hvattir til að taka fomstu um sölu
ríkisfyrirtækja, hvatt til að íjár-
hagslegt og stjómunarlegt sjálf-
stæði skóla verði aukið og
einkarekstri í skólakerfi veitt aukið
svigrúm. Krafist er að framtíð
Lánasjóðs ísl. námsmanna verði
tryggð, gert verði stórátak í vega-
málum, öflugt atvinnulif á lands-
byggðinni verði skapað, bent á að
rýmka þurfí reglur um gjaldeyri-
sviðskipti, lög verði sett um hringa-
myndun og gegn einokun, og að
lokum að frelsi nýju útvarpsstöðv-
anna verði tryggt, og Rás 2 verði
boðin út.
Heimild til nýtingar
á hvölum tryggð
Sérstök ályktun um einkavæð-
ingu var samþykkt á þinginu og á
.þessu þingi var ályktað í fyrsta
skipti sérstaklega um umhverfísmál
þar sem lögð er áhersla á aukið
mikilvægi umhverfísmála í nútíma
þjóðfélagi. í ályktun um atvinnumál
var sérstaklega tekið til hvalveiða
við ísland og hvatt til að Islending-
um verði tryggð heimild til áfram-
haldandi nýtingar á hvalastofnum
við landið um leið og hótanir Banda-
ríkjamanna sem og annara þjóða
og öfgahópa vegna hvalveiða ís-
lendinga voru fordæmdar.
Þá var í ályktun um utanríkismál
ma. hafnað að lýsa Norðurlöndin
einhliða kjarnorkuvopnalaus enda
sé slíkt ekki raunhæft nema sem
hluti af víðtækara samkomulagi um
að draga úr vígbúnaði og spennu í
Evrópu. Að auki var sérstök ályktun
samþykkt þar sem lýst var yfír
stuðningi við Káre Willock í emb-
ætti framkvæmdastjóra NATO.
Þinginu lauk með kosningu í
stóm SUS. Frá Reykjavík náðu
þessi kjöri í röð eftir atkvæðafjölda:
Hreinn Loftsson, Sigurður M.
Magnússon, Rósa Guðbjartsdóttir,
Sveinn Andri Sveinsson, Lýður
Friðjónsson, Belinda Theriault,
Amar Hákonarson, Eva Georgs-
dóttir og Eiríkur Ingólfsson.
Frá Reykjanesi náðu kjöri: Sigr-
ún Traustadóttir, Svanlaug Jóns-
dóttir, Haraldur Kristjánsson, Ámi
M. Mathiesen, Hlynur Guðjónsson.
Frá Suðurlandi náðu kjöri Þór
Kristjánsson og Ólafur Bjamason
og frá Vestfjörðum náði kjöri Hall-
dór Jónsson.
I öðmm kjördæmum var sjálfkjö-
rið í stjóm. Fyrir Austurland var
kjörin Bóthildur Sveinsdóttir, fyrir
Vesturland Guðlaugur Þórðarson,
fyrir Norðurland eystra Davíð Stef-
ánsson og Sigurður Aðils og fyrir
Norðurland vestra Júlíus Guðni
Antonsson.
Morgunblaðið/Theodór Þórðarson
Sigurbjörn Magnússon óskar Árna Sigfússyni til hamingju eftir að úrslit í formannskjöri SUS voru ljós.
Við mumim byggja
þetta samband upp
- segir Árni Sigfússon, nýkjörinn formaður SUS
„ÉG vona að við höfum hér á
þinginu sýnt í málefnalegri vinnu
nokkuð breiðari mynd en oft
hefur verið áður, þrátt fyrir að
þingið hafi einkennst af form-
annskjörinu. Á næstunni munum
við byggja upp þetta samband
og kynna fyrir þjóðinni hvað við
höfum verið að gera hér og hver
okkar markmið eru,“ sagði Árni
Sigfússon borgarfulltrúi i sam-
tali við Morgunblaðið eftir að
hann hafði verið kjörinn formað-
ur Sambands ungra sjálfstæðis-
manna.
Ami sagði aðspurður að kosn-
ingabaráttan hefði að vissu leyti
verið óvægin en greinilegur vilji
væri fyrir að sú barátta væri frá.
„Nú standa Sjálfstæðismenn sam-
einaðir og mér þykir mjög vænt um
orð Sigurbjöms þegar úrslitin vom
ljós þar sem hann hvatti sína stuðn-
ingsmenn til að fylkja sér um nýja
formanninn. Ég met hann mjög
mikils og vil gera mitt til þess að
virkja hæfíleika hans í þágu flokks-
ins og þjóðarinna. Og mitt verkefni
er að byggja upp hreyfínguna og
samband manna innan hennar og
það verður hluti af verkefninu að
jafna ágreining ef eitthvað slíkt
hefur komið upp f þessari kosninga-
baráttu," sagði Ámi Sigfússon.
Ámi vildi að lokum öllum þeim
sem lögðu sitt lóð á vogarskálimar
tl að ná þessum úrslitum fram.
m vmmmiDmmimmj
i
r
ÍMJLBSANJ HÁTT
Haustnámskeiðin hefjast 14. september. - Fjömgar hópæfingar (og núna sérstakir hjónatímar)
fyrir hresstfólk á öllum aldri, morgun, kvölds og um miðjan dag.
Minnum á leikhornið okkarog einnig ergæsluvöllur við Gullteig,opinn kl. 9:30-12 og 13:30-17.
Innritun er hafin í símum 687801 og 687701 frá kl. 10-19 alla daga nema sunnudaga.
í/ <m
SÓLEYJAR
Nýjung
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar
í Dansstúdíói Sóleyjar.
Samkvæmisdansar: Suöuramerískir
dansar, standard dansar, barnadansar
og gömlu, góöu gömludansarnir.
Innritun í símum 641111,40020 og 46776.