Morgunblaðið - 08.09.1987, Síða 30

Morgunblaðið - 08.09.1987, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987 Þingkosningar í Argentínu: Breytt stjórnarstefna eftir signr Peronista Buenos Aires, Reuter. FLOKKUR Peronista fór með sigur af hólmi í kosningum til neðri deildar þings Argentínu um helgina. Úrslit kosninganna eru talin áfall fyrir Raul Al- fonsín forseta landsins og eru stjórnmálaskýrendur sammála um að búast megi við breytingum á stefnu stjórnar hans. Þegar 82,5 prósent atkvæða höfðu verið talin höfðu Peronistar hlotið 41,5 prósent þeirra en Rót- tæki flokkurinn, flokkur Alfonsíns forseta, 37, 2 prósent. Kosið var um helming þeirra 254 fulltrúa sem sitja í neðri deild þingsins. Róttæki flokkurinn hafði 129 menn í þing- deildinni en búist er við að hann haf; 114 eftir kosningarnar. Gert er ráð fyrir að Peronistar vinni fjög- ur sæti og hafi 115 menn í deildinni. Þá voru einnig kjömir fylkisstjór- ar í 22 héruðum landsins og unnu Peronistar sigur í þeim flestum þar á meðal í Buenos Aires-héraði þar sem þriðjungur þjóðarinnar býr. Juan Casella, frambjóðandi Rót- tæka flokksins í Buenos Aires játaði í gær ósigur sinn og óskaði An- tonio Cafiero, frambjóðenda Peron- ista, til hamingju með sigurinn. Peronistar hafa lofað að knýja fram breytingar á efnahagsstefnu stjómar Alfonsíns og em niðurstöð- urt kosninganna túlkaðar á þann veg að almenningur hafi gefið þeim umboð til þess. Peronistar hafa sterk tengsl við hin ýmsu verkalýðs- félög landsins og hafa þeir heitið að auka útgjöld til félagsmála og uppbyggingu iðnaðar í landinu. Þetta em þriðju kosningamar sem fram fara í landinu frá því lýð- ræði var endurvakið árið 1983 eftir átta ára herstjóm. Er þetta fyrsti kosningasigur Peronista frá því að leiðtogi þeirra, Juan Peron, lést árið 1974. Gleði flokksmanna var mikil og söfnuðust þúsundir stuðn- ingsmanna saman úi höfuðstöðvum hans í Buenos Aires í gær. Bumbur vom barðar, fánar vom á lofti og fólkið hrópaði nafn Perons, sem stofnaði flokkinn á fímmta áratugn- um. Dulsálarfræði: Svíndl í rannsóknum? St. Andrew’s, frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins MIKIL deila er hafin milli tveggja sálfræðinga vegna rannsókna í dulsálarfræði og staðhæfinga um að rannsóknamiðurstöður séu ekki fengnar samkvæmt réttum reglum. Dr. Susan Blackmore, sem starfar við háskólann í Bristol, hefur ásakað dr. Carl Sargent við háskólann í Cambridge, sem telst vera einn af virðulegri mönnum i þessari grein, um að gæta ekki ýtrastu nákvæmni við rannsóknir á dulskynjun, sem virtust sýna fram á tilvist henar. Þessi deila kom í ljós í nýjasta hefti Journal of The Society for Psyc- hial Reasearch. Dr. Sargent hafði gert tilraunir, sem virtust sýna fram á tilvist dulskynjunar. Dr. Blackmore endurtók tilraunina en fékk ekki sömu niðurstöður. Hún fékk því að vera viðstödd tilraunir Sargents og taldi sig þá komast að raun um að ekki væri gætt fyllstu nákvæmni. Tilraunin fór þannig fram að fólk- ið sem í henni tók þátt lá á dýnu inn í gluggalausu herbergi , þar sem aðeins var rautt ljós. Bómull var sett yfír augu fólksins og komið var í veg fyrir að það heyrði utanaðkomandi hljóð. Hugmyndin var sú að auðvelda dulskynjun með því að útiloka aðra skynjun. Hver þátttakandi átti síðan að lýsa því sem kæmi í hugann, og á sama tíma var annar maður að skoða mynd í annarri byggingu. Síðan átti að bera lýsinguna saman við myndina eftir fyrirfram ákveðnum reglum. Myndirnar voru faldar í lokuðum umslögum til að koma í veg fyrir að sá sem stjómaði tilrauninni gæti vitað hvaða myndir væru valdar til skoðun- ar og í hvaða röð. Dr. Sargent taldi sig fá samsvörun á lýsingum „tilraunadýranna" og myndanna, sem gæti ekki verið tilvilj- un. Þegar dr. Blackmore fékk ekki sömu niðurstöður tók hún þátt í til- raununum í Cambridge. Hún telur að Carl Sargent hafí getað vitað hvaða myndir ætti að skoða og hafí beint lýsingu „tilraunadýrsins" í ákveðinn farveg, sem hæfði mynd- inni. Dulsálfræðifélagið (Parapsycho- logical Association), sem er alþjóðlegt félag sem fylgist með rannsóknum á þessu sviði, hefur veitt dr. Sargent ákúrur fyrir að hafa ekki veitt að- gang að upplýsingum varðandi til- raunir sínar. í sama hefti og Blackmore birti grein sína er að finna svar frá dr. Sargent þar sem hann sakar Black- more um fordóma í frásögn sinni og túlkun á atvikum við tilraunir sínar. Hann bætir við: „Ég veit að niður- stöðumar vom raunveralegar af því að ég var þar og reynsla mín segir mér það“. Dulsálarfræði hefur átt erfítt upp- dráttar í vísindaheiminum vegna þess að niðurstöður hennar og kenningar era í andstöðu við viðtekna þekkingu og sífellt er verið að’ fletta ofan af svindluram innan greinarinnar. Þessi deila mun ekki verða til þess að auka hróður hennar. Reuter Raul Alfonsín, forseti Argentínu, greiðir atkvæði er kjörstaðir voru opnaðir á sunnudag. Noregur: Hermönnum fækkar Osló, Reuter. RÁÐAMENN í Noregi hafa nú áhyggjur af því að sífellt fleiri atvinnuhermenn láta af herþjón- ustu fyrir betur launuð borgara- leg störf. Síðustu tölur sýna að 900 hermenn hafa sagt sig úr hernum á siðastliðnu ári, sem er um það bil helmingshækkun að sögn Gullows Gjeseth, talsmanns hersins. „ Við lítum á þetta sem afar alvar- legt vandamál, þar sem þeir sem segja upp eru yfírleitt með mestu reynsluna," sagði Gjeseth. Norð- menn mega illa missa 900 hermenn, um 1% heildarheraflans, þar sem herinn er lítill og hersveitum ann- arra NATO-ríkja hefur ekki verið leyft að setja upp stöðvar í Norgegi. „Fram til þessa hefur þetta ekki skaðað vamir okkar, en ef svona heldur áfram, gæti það skapað okk- ur vandamál í framtíðinnim," sagði Gjeseth. Hann sagði að Norðmenn ætluðu að reyna að hækka laun hermanna, einkum þeirra sem stað- settir eru í norðurhluta landsins nálægt sovésku landamærunum, þar sem aðstæður eru verri en ann- ars staðar. Að meðaltali munu hermennirnir, sem hætta, fá um 300.000 íslenskar krónur á ári hjá einkaaðilum umfram mála sinn hjá hemum. NU BYRJAR BALUÐ HJÁ DANSSKÓLA AUÐAR HARALDS KENNSLUSTAÐIRí Skeifan 17 (Ford húsinu) Gerðuherg Breiðholti KR heimilið v/Frostaskjól n>, BARNADANSAR OG LCIKIR fyrirböm 3—5 ára. Nýtt kennslukerfi frá Englandi tekið upp við sam- kvœmisdansa fyrir böm frá 6 ár aldri. Ath. . Innifalið í námskeiðunum jóla- og grímuböll. JAZZDANSAR - LÉTT SPOR Beint frá Pine-apple í London. Fyrir yngst 7 ára. P&Ó/SlA ROCK'N'ROLL - ELDHRESSIR TÍMAR Samkvœmisdahsar og gömlu damamir fyrir fólk á öllum aldri. Gestakennari skólam í vetur verður Anthony Timms frá Englandi sem naut mikilla vimælda hér í jýna. HAFNARFJÖRDUR: íþróttahús Hafnarfjarðar við Strandgötu KEFLAVÍK: Ilafnargata >31. DANSS ÁUÐA R H A R A L DS Innritun í símum 656522 og 31360 frá kl. 13—19 alla virka daga. Kennsla hefst mánudaginn 21. sept. Fjölskylduafsláttur F.Í.D.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.