Morgunblaðið - 08.09.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
31
Fangaskípti í
Suður-Afríku
Maputo, Reuter.
EITT hundrað þrjátíu og þrír
angólskir stríðsfangar voru í
gær fluttir með suður-afrískri
flugvél til Maputo, höfuðborgar
Mósambíkur. Voru þeir og tveir
Evrópumenn látnir lausir i skipt-
um fyrir einn Suður-Afríku-
mann, sem verið hefur í angólsku
fangelsi sl. tvö ár.
Fangaskiptin voru ákveðin í
leynilegum viðræðum, sem staðið
hafa í nokkrar vikur, og er það von
suður-afrískra yfírvalda, að þau
geti orðið til að bæta nokkuð ímynd
landsins út á við. Auk angólsku
stríðsfanganna voru látnir lausir
tveir Evrópumenn, annar franskur
og hinn hollenskur. Frakkinn, Pi-
erre-Andrei Albertini, hefur setið í
fangelsi í Ciskei, einu heimaríkja
blökkumanna, fyrir að neita að bera
vitni við réttarhöld yfir hryðju-
verkamönnum en Hollendingurinn,
Klaas de Jonge, hefur haldið til í
hollenska sendiráðinu í Pretoríu í
tvö ár. Leitaði hann hælis þar á
flótta undan suður-afrísku lögregl-
unni. í skiptum fyrir þessa 135
menn fá Suður-Afríkumenn her-
deildarforingjann Wynand du Toil
en hann var handtekinn í Angóla
og hefur verið í fangelsi í Luanda.
Þótt Suður-Afríkumenn fái að-
eins einn mann í skiptunum hafa
þeir lagt mikla áherslu á á koma
þeim um kring. Þeir vilja gera sér
far um að sýnast mannúðlegri í
augum umheimsins og fangelsun
Albertinis hefur valdið þeim erfið-
leikum í samskiptunum við Frakka.
Persaflói:
Hollensk her-
skip á vettvang
Haag, Reuter.
HOLLENDINGAR hyggjast
senda tvo tundurduf laslæðara til
Persaflóa að sögn hollenska
vamarmálaráðherrans Wilm van
Eekelen. Skipin munu geta reitt
sig á loftvarnir breska flotans á
staðnum. Stjórn Kuwait ákvað á
laugardag að vísa fimm írönsk-
um sendiráðsstarfsmönnum úr
landi í kjölfar þriggja eldflauga-
árása írans á Kuwait.
Hollendingar eru fímmta vest-
ræna þjóðin sem ákveður að senda
herskip á vettvang. Bandaríkin,
Frakkland og Bretland eiga herskip
á Persaflóa og ítalir ákváðu á föstu-
dag að slást í hópinn. Búist er við
að hollensku skipin láti úr höfn í
næstu viku.
Áætlað var að japönsk olíuskip
yfirgæfu Persaflóa í gær sam-
kvæmt banni Japana á siglingar
japanskra skipa á flóanum.
Silkworm-eldflaugin, búin til í
Kína, sem lenti á landsvæði Kuw-
ait á föstudag og talin er koma frá
írönum, markaði að því leyti þátta-
skil í Persaflóastríðinu að þetta var
ótvíræðasta ógnunin við Kuwait,
sem styður írak, til þessa.
Að sögn vestrænna og arabískra
stjórnarerindreka er ólíklegt að ír-
anir hlýti friðarkalli Sameinuðu
þjóðanna. Þeir munu eigi að síður
ekki hindra sáttaumleitanir Perez
de Cuellar, aðalritara samtakanna.
BrUssel, Reuter.
BELGÍSKIR fangar efndu til
uppþota í tveimur fangelsum
landsins í gær og fyrradag. Til-
efnið var sjónvarpskvikmynd
sem sýndi þann góða aðbúnað
sem 26 knattspyrnuaðdáendur
frá Englandi munu njóta er þeir
afplána dóm vegna óeirðanna á
leik Roma og Liverpool í úrslit-
um Evrópubikarkeppninnar árið
1985.
13 fangar sluppu úr haldi í Saint
Gilles-fangelsinu í Briissel í gær
eftir að 500 fangar gerðu uppreisn.
Lögreglu tókst að handsama tvo
Reuter
Hollendingurinn Klaas de Jonge, sem leitaði hælis í hollenska sendi-
ráðinu í Pretoríu fyrir tveimur árum. Hann er nú á leið til síns heima.
Sovétríkin:
Andófsmenn
gyðinga
fá að flytj-
ast úr landi
Tel Aviv, Reuter.
TVEIMUR sovéskum andófs-
mönnum af gyðingaættum var i
gær tilkynnt að þeim yrði innan
skamms leyfilegt að flytjast úr
landi. Mönnunum, þeim Iosif
Begun og Viktor Brailovsky; var
skýrt frá þessu á vegabréfaskrif-
stofu Sovétstjórnarinnar, en
Begun sagði frá þessu í símtali
við samtök í ísrael, sem beijast
fyrir frelsi sovéskra gyðinga.
Þeir sögðust þó ekki vita hvenær
þeir fengju vegabréfsáritunina.
Begun, sem beðið hefur leyfís
fyrir því að flytja úr landi í 16 ár,
var fyrr í ár sleppt úr fangelsi sam-
kvæmt náðun, sem barst frá Kreml.
Begun er 54 ára gamall og er
þekktasti andófsmaður gyðinga,
sem leyft er að flytjast úr landi, frá
því að Natan Scharansky var leyft
að flytjast til ísrael.
Brailovsky sótti um leyfi til þess
að flytjast úr landi ári síðar en
Begun og hefur líkt og hann mátt
þola margskonar harðræði og of-
sóknir.
í ár hefur tala gyðinga, sem leyft
er að flytjast úr landi aukist mjög.
í lok síðasta mánaðar höfðu 4.681
gyðingur fengið fararleyfi, saman-
borið við 985 manns allt síðasta ár.
Ítalía:
Komið upp um mikið
vopnasmygl til Irans
Belgía:
Uppþot í fangelsum
þeirra aftur og gerð var árás á
þann hluta fangelsisins_ sem fangar
höfðu á sínu valdi. Á sunnudag
hafði einnig komið til átaka í For-
est-fangelsinu í nágrenninu.
Búist er við ensku knattspymu-
aðdáendunum á næstu dögum til
Belgíu og sjónvarpið sýndi mynd
af tveggja herbergja vel útbúnum
klefum sem bíða þeirra. Belgískum
föngum fannst súrt í brotið að
„Englendingamir, sem hafa 39
mannslíf á samviskunni, skuli fá
slíkar móttökur“.
32 í gæsluvarðhaldi
Rómaborg, Reuter.
AUGUSTO Lama, rannsóknar-
dómari á Ítalíu sem rannsakar
nú stórfellt vopna- og eiturlyfja-
smygl þar í landi, segir að einn
helsti vopnaframleiðandi Ítalíu,
Ferdinando Borletti, hafi skipu-
lagt gífurlegt vopnasmygl til
íran. Auk hans hafa 31 aðrir
verið handteknir. Borletti þessi
er forstjóri vopnaverksmiðjunn-
ar Valsella Meccanotechnica, en
hún er m.a. tengd FIAT-verk-
smiðjunum og er Borletti jafn-
framt stjórnarmaður í FIAT.
Meðal hinna 32, sem handteknir
vom, vom ijórir framkvæmdastjór-
ar þess og sonur Borlettis. Lögregl-
an leitar enn 13 annarra, sem
handtökuskipun var gefín út um.
Úrskurðurinn um handtökumar var
felldur í síðustu vikur eftir að létt
vopn af ýmsu tagi og eiturlyf fund-
ust um borð í skipi frá Líbanon, sem
fært hafði verið til hafnar vegna
gmns um vopnasmygl.
Að sögn talsmanna saksóknara
hefur verið fylgst með fyrirtækinu
og athöfnum Borlettis um nokkra
hríð, en fram að þessu hefur skort-
ur á sönnunargögnum hamlað
lögreglunni að grípa til frekari að-
gerða. Gmnur leikur á að a.m.k.
sjö skip hafí verið í ferðum fyrir
smyglarana, en talið er að þeir hafí
flutt vopn til Sýrlands, sem síðan
hafí verið flutt landleiðina til írans.
Á heimleiðinni var hins vegar siglt
með eiturlyf fyrir Mafíuna og vopn
og annan búnað til arabískra
hryðjuverkamanna í Evrópu. Ýmis-
legt bendir til þess að Borletti og
félagar hans hafi stundað smygl
þetta allt frá árinu 1981 og jafnvel
lengur. Óvíst er hversu mikið af
vopnum hefur verið smyglað á þess-
um tíma, en ljóst er af umfangi
málsins að um gífurlegt magn er
að ræða.
FIAT á 50% hlutabréfa í Valsella
Meccanotechnica og sitja tveir full-
trúar FIAT í stjóm fyrirtækisins.
Talsmaður FLAT ítrekaði þó að
FLAT hefði hvergi komið nærri
rekstri Valsella Meccanotechnica,
þrátt fyrir hlutinn.
Lama saksóknari sagði að þrátt
fyrir mikinn undirbúning væri rann-
sókn málsins enn á fmmstigi og
spáði hann því að ýmislegt fleira
óhreint ætti eftir að fínnast í poka-
homi Borlettis.
Færeyjar:
Spennandi kosning
Fœreyjum, frá Snorra Halldórssyni fréttaritara Morgunblaðsins.
ALLT bendir til spennandi kosn-
inga þegar Færeyingar ganga að
kjörborðinu i dag og velja þá tvo
flokka sem verða fulltrúar lands-
ins á danska Þjóðþinginu næstu
fjögur árin. Allt bendir nefnilega
til að mjótt verði á mununum milli
hinna fjögurra stóru flokka.
Kosningabaráttan í Færeyjum
byijaði stuttu eftir að kosningadagur-
inn var ákveðinn fyrir fjórum vikum
og hefur verið lífleg allt til gærdags-
ins þegar um það bil 32 þúsund
kjósendur í Færeyjum fengu tóm til
að gera upp við sig hvaða flokkur fær
atkvæði þeirra. Einkum í flokksblöð-
unum og einnig í útvarpi og sjónvarpi
hafa flokkamir gert grein fyrir stef-
numiðum sínum og þeim vandamál-
um sem leysa þarf næstu fjögur árin.
Stjórnarandstaðan .hefur . að sjálf-
sögðu lýst óánægju sinni með stefnu
stjómarflokksins og gert kosningam-
ar að nokkurs konar skoðanakönnun
fyrir kosningar til færeyska lögþings-
ins að ári.
í síðustu kosningum hlutu Pauli
Ellefsen frá Sambandsflokknum og
Óli Breckmann frá Fólkaflokknum
kosningu og afrek hins síðamefnda
á Þjóðþinginu hafa einkum verið
rædd í kosningabaráttunni. Vinstri
flokkamir hafa gert mikið úr því að
Breckmann hafí skipt sér af dönskum
innanríkismálum þrátt fyrir yfirlýs-
ingar sínar árið 1984 fyrir síðustu
kosningar þess efnis að hann eða
flokkur hans myndu á engan hátt
skipta sér af slíkum málum. Breck-
mann bjargaði dönsku stjóminni í
fyrra með því að greiða, hinum svo-
kallaða páskapakka, sem jók álögur
á danskan almenning, atkvæði sitt.
Sex af sjö flokkum á lögþinginu
bjóða fram til danska Þjóðþingsins.
En slagurinn stendur einkum milli
fjögurra stærstu flokkanna: Sam-
bandsflokksins, Fólkaflokksins,
Javnaðarflokksins og Tjóðveldis-
flokksins. Javnaðarflokkurinn hefur
gert allt sem í hans valdi stendur til
að koma Jákup Lindenskov aftur á
Þjóðþingið en Breckmann leysti hann
af hólmi í síðustu kosningum. Sam-
kvæmt skoðanakönnun sem gerð var
í síðustu viku vex fylgi Sambands-
flokksins og Fólkaflokksins, sem eru
í minnihluta á Lögþinginu, á kostnað
hinna flokkanna. Því má búast við
að þeir Pauli Ellefsen og Óli Breck-
mann verði áfram fulltrúar Færey-
inga á danska Þjóðþinginu en það
eru kjósendur sem eigasíðastaorðið..
Reuter
Mótmælasigling
MIKIL bátafjöld var á Stóra sýki í Feneyjum í gær. Rúmlega
300 gondólaræðarar mótmæltu mikilli umferð og litlum mengun-
arvörnum og hunsuðu einnig hina árlegu róðrarkeppni borgar-
innar.