Morgunblaðið - 08.09.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
39
Superman TV í
Háskólabíói
Fundur samgönguráðherra
með sveitarstjórnarmönnum í
september og október
HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á fjórðu Superman-mynd-
inni. Með hlutverk Supermans,
eins og i fyrri myndum, fer Crist-
opher Reeve. Einnig eru Gene
Hackman, Margot Kidder og
Jackie Cooper í aðalhlutverkum.
Leikstjóri myndarinnar er Sid-
ney J. Furie.
Enn á ný sleppur aðalandstæð-
ingur Supermans, Lex Luthor, úr
fangelsi. Luthor hefur þegar uppi
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar
eftir að hafa tal 'af þeim sem
urðu vitni að tveimur umferðar-
slysum í höfuðborginni i síðustu
viku.
Fyrra slysið varð á Elliðavogi
miðvikudaginn 2. september um kl.
9 um morguninn. Kona missti stjórn
á bifreið sinni, sem hafnaði á ljósa-
staur á móts við hjólbarðaverkstæð-
ráðagerðir til að hefna sín á Super-
man. Á sama tíma eru miklar
breytingar á dagblaðinu þar sem
Superman vinnur. Ekki eru ráða-
gerðir Luthors af lakara taginu
frekar en fyrri daginn, nú ætlar
hann að leggja heiminn að fótum
sér með því að egna stórveldunum
saman og hefur hann fengið til liðs
við sig kjarnorkumann sem á að
geta gengið frá Superman, segir
m.a. í frétt frá kvikmyndahúsinu.
ið Barðann, norðan Skeiðarvogs.
Síðara slysið varð á föstudag, á
mótum Höfðabakka og Stekkjar-
bakka. Þar skullu saman tvær
bifreiðar og er ökumaður annarrar
nokkuð mikið slasaður.
Ef einhveijir hafa séð þessi óhöpp
eru þeir beðnir um að hafa sam-
band við slysarannsóknardeild
lögreglunnar í Reykjavík.
í SEPTEMBER og fyrri hluta
októbermánaðar hyggst Matt-
hías Á. Mathiesen, samgönguráð-
herra, efna til funda með
sveitarstjórnarmönnum, víðs
vegar um landið varðandi sam-
göngumál. Á fundunum mun
ráðheira flytja framsöguerindi
um samgöngur og framtíð-
arhorfur á því sviði, en síðan er
gert ráð fyrir aimennum umræð-
um, Fulltrúar stofnana er heyra
undir samgönguráðuneytið
verða á fundunum og munu þeir
taka þátt í umræðum, svara fyr-
irspurnum og veita upplýsingar
eftir því sem tilefni gefst til.
Með ráðherra í förinni verða
starfsmenn samgönguráðuneytis,
fulltrúar frá Vita- og hafnarmála-
stofnun, Vegagerð ríkisins, Ferða-
málaráði, Flugmálastjóm og Póst-
og símamálastofnun.
Ráðherra mun nota Lækifærið og
skoða mannvirki og samgöngu-
framkvæmdir. Endanleg skipulagn-
ing liggur á þessu stigi einungis
fyrir hvað varðar Vestfjarðakjör-
dæmi.
Vestfjarðakjördæmi
Fjórðungssamband Vestfirðinga
hélt ársfund sinn dagana 4.-5.
september á Reykjanesi við Isa-
fjarðardjúp. Fundur samgönguráð-
herra var felldur inn í dagskrá
ársfundarins. Skipulag Vest-
fjarðaferðar:
Fimmtudaginn 3. september
1987: Breiðdalsheiði skoðuð undir
leiðsögn vegagerðarmanna með til-
liti til jarðgangnaumræðu. Þá
verður litið á vegaskála í Óshlíð-
inni, farið um hafnarsvæðið í
Bolungarvíkj ratsjárstöð á Stigahlíð
heimsótt og Isafjarðarhöfn skoðuð.
Föstudagur 4. september 1987:
Fundur með sveitarstjórnarmönn-
um.
Suðurlandskjördæmi
Fundir um samgöngumál kjör-
dæmisins verða á Selfossi fimmtu-
daginn 24. september og í
Vestmannaeyjum föstudaginn 25.
september.
Norðurlandskjördæmi eystra
Fundur um samgöngumál kjör-
dæmisins verður á Akureyri þriðju-
daginn 29. september.
Norðurlandskjördæmi vestra
Fundur um samgöngumál kjör-
dæmisins verður á Sauðárkróki
miðvikudaginn 30. september.
Austurlandskjördæmi
Fundir um samgöngumál kjör-
dæmisins verða á Egilsstöðum
þriðjudaginn 6. október og á Homa-
fírði miðvikudaginn 7. október.
Vesturlandskjördæmi
Fundur um samgöngumál kjör-
dæmisins verður í Stykkishólmi 9.
október.
Reykjaneskjördæmi
Fundir um samgöngumál kjör-
dæmisins verða í Keflavík, þriðju-
daginn 13. október og í Kópavogi
fímmtudaginn 15. október.
Reykjavík
Fundur um samgöngumál með
borgaryfírvöldum verður í Reykja-
vík föstudaginn 16. október.
Rartek Höganas
F L í S A R
HÉÐINN
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
Hverjir sáu slysin?
SJÁ L FSA FGREIÐSLA
<
w
CN
<
ð
o
Allan sólarhringinn, - alla daga!
í nœsta Hraðbanka getur þú:
1. Tekið út reiðufé,
allt að tíu þúsund
krónum á dag.
2. Greitt gíróseðla
t.d. orkureikninga
og símareikninga,
með peningum eða
millifærslu af eigin
reikningi.
3. Lagt inn peninga
og millifœrt
af sparireikningi
á tékkareikning
eða öfugt.
4. Fengið upplýsingar
um stöðu
tékkareiknings og
sparireiknings.
Opið allan
sólarhringinn!
M
" " ®eð bankakort í hendi ertu kominn með
lyklavöldin að hvaða afgreiðslustað
Hraðbankans sem er.
Hraðbankinn er sjálfsafgreiðslubanki þar
sem þú sinnir algengustu bankaerindum
þínum á þeim tíma sólarhringsins sem hent-
ar þér best.
Þú borgar ekkert aukalega því nú hefur
færslugjaldið verið fellt niður.
1 1 ' i i ,i ■ ■ '■"1 ■ ■ r r
- þegar þér hentar best!
Afgreiðslustaðir Hraðbankans:
Búnaðarbankinn: Austurstræti, Landspítala, Hlemmi, Kringlunni.
Landsbankinn: Hótel Loftleiðum, Borgarspítala, Breiðholti, Akureyri.
Samvinnubankinn, Háaleitisbraut.
Sparisjóðurinn í Keflavík,
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Skólavörðustíg.
Sparisjóður vélstjóra, Borgartúni.
Útvegsbankinn, Hafnarfírði.