Morgunblaðið - 08.09.1987, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
43
Sambandsþing UMFÍ á Egilsstöðum:
Akvörðun tekin um
útdeilingu lottófjár
Egilsstöðum.
35. Sambandsþing UMFÍ var
haldið á Egilsstððum 29.—30.
ágúst. Á þinginu var kjörin ný
stjóm til næstu tveggja ára og í
henni em Pálmi Gislason for-
maður, Þórir Jónsson, Dóra
Gunnarsdóttir, Kristján Yngva-
son, Þórir Haraldsson, Guðmund-
ur H. Sigurðsson og Sigurbjöm
Gunnarsson. Varamenn í stjórn
em Magndis Alexandersdóttir,
Matthías Lýðsson, Sæmundur
Runólfsson og Hafsteinn Pálsson.
Á þinginu var einnig tekin ákvörð-
un um hvemig hafa skuli útdeilingu
lottófjár til sambandsaðila UMFÍ en
eignarhlutur UMFÍ í íslenskri getspá
er 13,33%. Gildir þessi ákvörðun til
1. janúar 1989 og er skiptingin þann-
ig að 10% fara til UMFÍV15% útdeilist
á sambandsaðila UMFÍ. Deilist það
í 20 hálfa hluti og fær hvert héraðs-
sam band 1 hlut en l'A hlutur deilist
á sambandsaðila með beina aðild.
10% útdeilist jafnt á hvert félag enda
skili þau fullnægjandi starfsskýrslu.
15% útdeilist jafnt eftir félagsmanna-
flölda, það er að segja félaga 7 ára
á almanaksárinu og eldri, samkvæmt
nýjustu starfsskýrslum. 20% útdeilist
eftir íbúafjölda á sambandssvæðinu
en þó eru félög í Reykjavík undanskil-
in þessari úthlutun. 20% útdeilist
vegna launa starfsmanna. 8% til ein-
stakra verkefna en úthlutun fer eftir
ákvörðun stjómar UMFÍ eða sam-
kvæmt umsókn sambandsaðila. 2%
fara í Minningarsjóð Aðalsteins Sig-
mundssonar. Gert er ráð fyrir
2.800.000 í innkomu af lottóinu árið
1988. Innan UMFÍ em 129 héraðss-
ambönd og 7 félög með beina aðild.
Alls em 219 félög innan UMFÍ með
um 30.000 félagsmenn.
Af öðmm málum sem tekin vom
fyrir á þinginu má nefna tillögur um
íþróttamál en mikil tregða hefur ver-
ið á að setja nýjar íþróttagreinar inn
á landsmót. Þegar skoðað er iðkenda-
tal yfir allar íþróttagreinar kemur í
ljós ótrúleg breidd margra íþrótta-
greina sem ekki er keppt í á lands-
móti. Var því ákveðið að á næsta
landsmóti UMFÍ árið 1990 skuli einn-
ig keppt í handknattleik karla,
knattspymu kvenna, blaki kvenna og
körfuknattleik kvenna.
Samþykkt var á þinginu að veita
700.000 krónum til gerðar kennslu-
gagna í félagsmálafræðslu á árinu
1988. Samþykkt var að leita til Skóg-
ræktar ríkisins til að fá tijáplöntur
og deila þeim út til ungmennafélag-
anna til gróðureetningar. Þá var
ákveðið að UMFÍ leitaði eftir æfing-
araðstöðu fyrir fijálsíþróttafólk af
landsbyggðinni sem dvelur á höfuð-
borgarevæðinu yfir vetrartímann.
Þar sem UMFÍ er nú 80 ára var
samþykkt að haldin yrði afmælishátíð
UMFI í nóvember nk. og í tengslum
við hana eins dags ráðstefna um
stefnumótun ungmennafélagshreyf-
ingarinnar. Sambandsþing UMFÍ er
haldið á tveggja ára fresti og sóttu
þingið 87 fulltrúar sambanda og fél-
aga innan UMFÍ.
— Maríanna
Ný stjórn UMFÍ, talið frá vinstri: Sigurður Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri, Dóra Gunnarsdóttir, Hafsteinn Pálsson, Guðmundur
H. Sigurðsson, Pálmi Gíslason formaður, Kristján Yngvason, Þórar-
inn Jónsson, Sæmundur Runólfsson, Þórir Haraldsson. Einnig er í
stjórn Magndís Alexandersdóttir.
......................--...........—..........................
Sr. Tómas Guðmundsson sóknarprestur flutti ávarp og kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna
söng við athöfnina.
Miiinisvarði um Arnarbælis
kirkju í Ölfusi afhjúpaður
UM 100 MANNS voru viðstaddir
afhjúpun minnisvarða er reistur
hefur verið á hinum gamla
kirkjugrunni Arnarbæliskirkju í
Olfusi. Skipulagsnefnd kirkju-
garða sá um gerð minnisvarðans
og er hann kostaður af kirkju-
garðasjóði. Á minnisvarðann er
letrað: „Hér stóð Arnarbælis-
kirkja. Kirkju er fyrst getið í
Arnarbæli um 1200, en var lögð
niður 1909.“
Sr. Tómas Guðmundsson sóknai -
prestur flutti ávarp og minntist
sérstaklega sr. Ólafs Magnússonar
sem lengst sat í Amarbæli. Dóttir
sr. Ólafs, Louise, afhjúpaði minnis-
varðann. Louise, sem er á 97.
aldursári, var kirkjuorganisti í yfír
60 ár.
Aðalsteinn Steindórsson umsjón-
armaður kirkjugarða flutti einnig
ávarp og lýsti tildrögum að þeim
framkvæmdum sem þama hafa
verið unnar.
Kirkjukór Hveragerðis- og Kot-
strandarsókna söng við athöfnina.
Að athöfn lokinni var haldið í Kot-
strandarkirkju þar sem sóknar-
prestur flutti hugleiðingu og bæn
og sálmar vom sungnir. Gjaldkeri
kirkjugarðsnefndar, frú Unnur
Benediktsdóttir, ávarpaði kirkju-
gesti og bauð öllum til kaffídrykkju
að Hótel Ljósbrá í Hvergerði.
Louise Ólafsdóttir afhjúpaði
minnisvarðann, en á hann er letr-
að: „Hér stóð Arnarbæliskirkja.
Kirkju er fyrst getið í Arnarbæli
um 1200, en var lögð niður 1909.“
Magnús Þorbjörnsson afhenti
formanni sóknamefndar á Kot-
strönd, Þorláki Gunnarssyni, 25
eintök af bókinni Niðjatal Sigurðar
Þorbjömssonar og Ingigerðar
Bjömsdóttur frá Króki í Ölfusi og
mun Kotstrandarkirkja hafa bæk-
umar til sölu og andvirðið renna í
kirkjusjóð, en nú standa yfír lagfær-
ingar á Kotstrandarkirkju sem
byggð var 1909.
Minnisvarðinn er hannaður af
Bjama Ólafssyni lektor og unninn
í Steinsmiðju Sigurðar Helgasonar.
SIEMENS
Hinar fjölhæfu
SIEMENS
ELDAVÉLAR
sameina tvær þekktar
bökunaraöferöir:
• meö yfir- og undirhita
• meö blæstri
auk orkusparandi glóöar-
steikingar meö umloftun í
lokuöum ofni.
Vönduö og stílhrein
v-þýsk gæöavara, sem
tryggir áratuga.endingu.
Smith & Norland hf.
Nóatúni 4,
sími 28300.
raðauglýsingar, — raðauglýsingar — raðauglýsingar
lögtök 1
Lögtaksúrskurður
Að beiðni forráðamanna Bæjarsjóðs Kópa-
vogs, úrskurðast hér með lögtak fyrir
útsvörum og aðstöðugjaldi til Kópavogs-
kaupstaðar, álögðum 1987 og falla í gjald-
daga samkv. 29. og 39. grein samanber 44.
grein laga nr. 73 1980. Ennfremurfyrir hækk-
un úsvars og aðstöðugjalds ársins 1986 og
eldri gjalda.
Þá úrskurðast lögtak fyrir vatnsskatti samkv.
mæli, gjöldum til bæjarsjóðs Kópavogs
samkv. 9. grein samanber 30. grein laga nr.
54 1978. Gjaldfalliri en ógreidd leyfisgjöld
samvk. grein 9.2. í byggingarreglugerð nr.
292 1979, samanb. reglugerð nr. 164 1982.
Fari lögtak fram að liðnum 8 dögum frá birt-
ingu úrskurðar þessa, til tryggingar ofan-
greindum gjöldum, á kostnað gjaldenda, en
á ábyrgð Bæjarsjóðs Kópavogs nema full
skil hafi verið gerð.
Bæjarfógetinn í Kópavogi,
18. ágúst 1987.
Dráttarvél og
sjálfhleðsluvagn
Til sölu Zetor 4718, dráttarvél með húsi árg.
1974, einnig sjálfhleðsluvagn Fella tveggja
hásinga, og dreyfistýri á heyblásara.
Upplýsingar í síma 99-3149.
Skólar — leikskólar
— fyrirtæki — einstaklingar
Steinleir, jarðleir og gifs
Nú er rétti tíminn að undirbúa fyrir veturinn.
Hafið strax samband við okkur með pantanir
í steinleir, jarðleir, leir sem ekki þarf að
brenna og gifstegundir.
Upplýsingar í síma 685411.
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík.
Hópferðabíll
45 manna hópferðabíll til sölu.
Upplýsingar í símum 666433 og 667217.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vorboði, Hafnarfirði
Laugardaginn 12 september nk. hefur verið ákveðin haustferð til
Þingvalla. Farið verður frá Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu kl. 11
fyrir hádegi.
Skráning og nánari upplýsingar gefa: Elin í síma 54520, Sigríöur
50819, Kristjana.
Félagskonur mætið sem flestar.
Stjórnin.