Morgunblaðið - 08.09.1987, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
53
Stefán Jónsson námsbrautarstjórí í iðnrekstrarfræðum:
Mikils virði að fáþetta
nám til Akureyrar
í nám á iðnrekstrarbraut eru
skráðir 35 nemendur. Nám þetta
skiptist í 2 svið, markaðssvið en
þar hefja 18 nemendur nám og
framleiðslusvið en nemendur þess
eru 11. Auk þess eru 2 nemendur
sem áður hafa lokið námi frá
Tækniskóla íslands, annar í bygg-
ingariðnfræði og hinn í útgerðar-
tækni og munu þeir taka tilskilinn
hluta iðnrekstrarfræðinnar til að
ljúka því námi. Að lokum eru svo
4 nemendur sem eru innritaðir í
nokkrar af þeim greinum sem í
boði eru.
Auk mín, sem kenni stærð-
fræðina og hluta tölvufræðinnar,
munu eftirfarandi stundakennar-
ar kenna við iðnrekstrarbrautina
nú á haustönn: Smári Sigurðsson
mun kenna vinnurannsóknir og
verksmiðjuskipulag, Magnús Ól-
afsson og Valdimar Brynjólfsson
öryggis- og vinnuvistfræði, Þór-
hallur Bragason og Sverrir Páll
Erlendsson íslensku, Níels Karls-
son og Ragnheiður Sigurðardóttir
tölvufræði, Ingi Bjömsson mark-
aðsstjóm, Rafn Kjartansson og
Ema Gunnarsdóttir ensku og
Gunnar Karlsson og Lilja Stein-
þórsdóttir reiknishald.
Auk þessara kennara verður
leitast við að fá fyrirlesara í ein-
staka fyrirlestra, sem mætti
hugsa sér að væru þá stundum
opnir almenningi. Undanfamar
vikur hefur verið unnið að því að
afla nauðsynlegs búnaðar til
kennslu og munar þar mest um
vandaðan tölvubúnað frá IBM en
skólinn hefur fest kaup á 18 PC-
tölvum af einvalagerð og einni
system/36 tölvu af minni gerð-
inni. Búnaður þessi er samtengdur
og gerir mögulegt að bjóða upp á
fullkomna tölvukennslu.
Nám í iðnrekstrarfræðum er í
samræmi við námsskrá Tækni-
skóla íslands og vil ég nota
tækifærið og þakka Bjama Krist-
jánssyni rektor og Aage Steinsson
deildarstjóra rekstrardeildar fyrir
velvilja og aðstoð. Reiknað er með
að námið taki 3 annir og að þeim
loknum útskrifist menn sem iðn-
rekstrarfræðingar. Talað hefur
verið um þann möguleika að vænt-
anlegt nám í rekstrarhagfræði hér
við skólann tengist iðnrekstrar-
fræðunum þannig að nemendur
gætu haldið áfram námi í rekstr-
arhagfræði annaðhvort beint eftir
próf eða þá síðar eftir nokkurra
ára þátttöku í atvinnulífinu. Væri
það í samræmi við kröfur tímans
um símenntun.
Nokkrir þeirra Akureyringa
sem nú eru innritaðir í iðnrekstr-
arfræði hafa nefnt það að þeir
hefðu varla átt þess kost að fara
suður til náms. Fyrir þetta fólk
og fyrir Akureyri sem iðnaðarbæ
ætti það að vera mjög mikils virði
að fá nám eins og þetta í bæinn.
Ég er þess fullviss að gott sam-
starf mun verða á milli Háskólans
og fyrirtækja hér í bænum og
nágrenninu þegar kemur að
vinnustaðaheimsóknum og loka-
verkefnum nemenda þannig að
báðir aðilar hafi gagn af. Vona
ég að nemendur héðan muni svo
hasla sér völl í atvinnulífí lands-
byggðarinnar á næstu árum.
Ingvar Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra:
Fagnað áfanga í mík-
ilvægu framfaramáli
Menntamálaráðherra.
Ágæta samkoma.
Ég þakka forstöðumanni þess-
arar nýju menntastofnunar,
Haraldi Bessasyni, þann sóma að
bjóða mér að vera gestur við þessa
merku setningarathöfn og mega
taka hér til máls. Þótt gaman
hefði verið að geta flutt langa
ræðu og komið víða við, gefst
ekki tími til þess. Því verður ræða
mín stutt.
Ég hef lengi talið að Akureyri
eigi að setja sér það mark að
vera stærri og meiri en aðrir
bæir á íslandi. Ég tel einnig að
Akureyri hafí mikla vaxtarmögu-
leika og eigi að stefna að því að
vaxa sem örast. Akureyri þolir
öran vöxt af því að undirstöður
bæjarins eru traustar.
En Akureyri getur því aðeins
vaxið svo að um muni að hún
eflist alhliða, verði aukin á öllum
sviðum. Akureyri á að stefna að
því að verða borg.
Einn liður í því að ná slíku
marki er að efla Akureyri sem
miðstöð mennta og menningar.
Mikilvægt atriði þess að Akureyri
geti talist slík miðstöð menning-
arlífs er öflugt og vaxandi skóla-
starf, m.a. háskólastarfsemi. En
margt fleira kemur reyndar til
og þarf langa ræðu til að greina
ítarlega frá því. Slíkar ræður hef
ég haldið oft og einatt, en geri
það ekki við þetta tækifæri.
Erindi mitt í ræðustól að þessu
sinni er eingöngu að lýsa fögnuði
mínum yfir þeim áfanga sem náð
hefur verið í mikilvægu fram-
faramáli sem ég hef lengi látið
mér annt um. Öll stórmál af þessu
tagi greinast reyndar í áfanga.
Þótt þau tímamót sem nú eru í
sögu háskólamálsins á Akureyri
séu einstök og verði ekki endur-
tekin þá er það einlæg von mín,
og reyndar bæn hér í guðshúsi,
að háskólinn á Akureyri eigi eftir
að lifa mörg tímamót, að saga
hans haldi áfram að vera áfanga-
saga, saga framfara, saga
þróunar og vaxtar og saga hollra
áhrifa á nemendur skólans, um-
hverfi hans og þjóðlíf allt.
Betri óskir get ég ekki fært
þessari nýju menntastofnun.
Ég óska forstöðumanni, Har-
aldi Bessasyni, og samstarfsfólki
hans og nemendum allra heilla.
Ég veit að vel hefur tekist til um
val á hinum fyrsta stjómanda
skólans, og að sú stund kemur
að hann verður nefndur háskóla-
Ingvar Gíslason
rektor án nokkurs afdráttar. Ekki
efa ég að samstarfsfólk hans er
fært til góðra verka og að nem-
endur muni öðlast hér menntun
sem kemur þeim og þjóðfélaginu
að góðu gagni.
Eg endurtek þakkir mínar fyrir
þá vinsemd sem mér hefur verið
sýnd hér í dag og óska stofnun-
inni og starfsmönnum hennar enn
á ný allra heilla.
UOSASTILLINGA-
VERKSTÆÐI
rii.'Möt'iiIfjykliRl.iHi
i
Sundaborg 13, sími 688588.
SANDVIK
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
HANPVERKFÆRI
Fást í öllum helstu
byggingavöruverslunum
um allt land
OSRAM
bílperur
WAGNER
Ijósa samlokur
Eigum fyrirliggjandi
Ijósastillingatæki
BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI 6724 44
BV
Hand
lyfti-
vognor
í* i« Eigum ávallt fyrirliggjandi
|l hina velþekktu BV-hand-
lyftivagna með 2500
og 1500 kílóa lyftigetu.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
R O Y A L
SKYNDIBUÐINGARNIR N'
ÁVALLT FREMSTIR
ENGIN SUÐA
Tilbúinn eftir
fimm mínútur
5 bragötegundir