Morgunblaðið - 08.09.1987, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
57
hennar til Reykjavíkur eins og títt
var um ungar stúlkur í þá daga og
þar fór hún að vinna á vöggustofu
við Eiríksgötu um tíma.
í Reykjavík kynnist hún eftirlif-
andi eiginmanni sínum, Jóni Karls-
syni sjómanni, þau eignuðust þijár
dætur, þær Kolbrúnu konu mína,
Hrafnhildi og Eddu Kristínu. Jón
var alla tíð til sjós og kom það því
í hlut Guggu að annast heimilið og
uppeldi dætranna að miklu leyti.
Gugga bar hag dætra sinna mjög
fyrir brjósti og var þeim eins og
vinur, enda leið aldrei sá dagur að
hún hefði ekki samband við ein-
hveija þeirra.
Gugga var fremur dul um sína
hagi, en lét sér því annara um hagi
dætra sinna og barnabama. Þau
hjón bjuggu lengi við Skólavörðu-
stíg og þar voru ömmubörnin alltaf
velkomin, en þau kölluðu hana allt-
af ömmu á Skóló þó hún flytti
þaðan. Gugga var geðprúð og hóg-
vær kona. Allir sem til hennar
þekktu vissu hve myndarleg hús-
móðir hún var og einkar smekkleg
enda bar íbúð þeirra hjóna vott um
það. Gugga var einkar lagin við
sauma og var með ólíkindum hversu
vandað handbragð var á öllu sem
hún fór höndum um. Gilti þar einu
hvort um var að ræða smábarnaföt
á bamabömin eða brúðarkjóla á
dæturnar.
Sárt er að sjá á bak tengdamóð-
ur, sem alltaf hefur reynst mér vel
og það er erfitt að skilja að hún
sem var svo kát í fertugsafmæli
okkar hjóna, sem haldið var í Þórs-
mörk á síðasta ári, skuli ekki vera
lengur meðal okkar. Sjúkdómur sá
sem hún barðist við og hafði sigur
að lokum, átti sér nokkum aðdrag-
anda, en Gugga var ekki sú
manngerð, sem íþyngdi öðrum með
eigin sjúkleika. En þar kom að hún
fékk því ekki lengur leynt og sfðustu
sex mánuðina dvaldist hún sam-
fleytt í Landakotsspítala þar sem
hún fékk frábæra umönnun læknis
síns, Sigurðar Bjömssonar, og
starfsfólksins alls, sem stunduðu
hana af alúð. Fyrir hönd fjölskyldu
minnar kann ég þeim bestu þakkir.
Það er huggun harmi gegn, að
vita að Gugga varð hvíldinni fegin.
Eiginmaður, dætur, tengdasynir og
bamaböm munu sárt sakna þessar-
ar góðu konu, en minningin um
hana mun ætíð lifa. Hvíli hún í friði.
Guðberg Kristinsson
Skammt sunnan við strönd Land-
eyja eru Vestmannaeyjar, þar
fæddist Guðríður Sigjónsdóttir,
þann 26. febrúar 1924. Hún var
dóttir hjónanna Sigrúnar Runólfs-
dóttur og Sigjóns Halldórssonar.
Gugga, en svo var Guðríður ætíð
kölluð, var ein af 12 systkinum.
Faðir hennar lést þegar hún var
mjög ung. 4 ára var hún tekin í
fóstur af hjónunum Kristínu Þórð-
ardóttur og Guðmundi Guðlaugs-
syni, þau bjuggu þá í Hallgeirsey í
Austur-Landeyjum. Þar ólst Gugga
upp. Hún gekk í barnaskóla á
Krossi, en þar var kirkjustaður og
skólahús var þar gott. Farskóli var
í sveitinni og fengu bömin í nyrstu
byggð sveitarinnar að njóta kennslu
á Krossi um tíma fyrir lokapróf úr
bamaskóla. Þá var vor á ævi okk-
ar. Þegar við krakkamir úr norður-
sveitinni nálguðumst ströndina
komu á móti okkur nokkur börn
úr Krossskólanum. Öll vomm við
feimin. Ein stúlkan tók sig þá útúr
hópnum, kom til mín, tók í höndina
á mér og sagði brosandi: „Á ég
ekki að leiða þig?“ Það var Gugga.
Svo leiddi hún mig upp túnið og inn
í skólann. Þannig hófust kynni okk-
ar. Guggu gekk námið vel, lauk
prófi með ágætiseinkunn.
í Krosskirkju gengum við til und-
irbúnings fermingar og fermdumst
saman. Einkunnarorð okkar vom,
vertu trúr og guð mun gefa þér
lífsins kórónu. Gugga var fórnfús
og trú alla sína ævi. 16 ára fór
Gugga í Húsmæðraskólann á Stað-
arfelli í Dölum. Þar gekk henni
námið vel og var allra yndi. Síðan
tóku við ár vinnu á vöggustofu í
Reykjavík.
9. mars 1945 giftist hún Jóni
Karlssyni, sjómanni, þau eignuðust
3 dætur, fallegar og vel gefnar. Þær
em Kolbrún, verslunarstjóri, gift
Guðbergi Kristinssyni, rafeinda-
virkja, Hrafnhildur, húsmóðir, gift
Georg Árnasyni, vélfræðing, Edda
Kristín, sjúkraliðanemi, gift Sverri
Jónssyni, símsmið. Bamabörnin em
5.
Sjómannskonur þurfa að vera
vitrar og sterkar, það var Gugga,
hún var líka listræn og gerði heim-
ili þeirra hjóna fagurt hvar sem það
var. Þó var það fegurst á Skóla-
vörðustíg 41, þar bjuggu þau
lengst. Þar var gott að koma á
köldum vetrardögum, frúin fljót að
hella á könnuna og alltaf eitthvað
skemmtilegt rætt, því Gugga kunni
ekki að rógbera náungann, hún vildi
öllum vel og vandaði sitt mál.
Gugga hafði hagleikshendur, það
var sama hvort hún saumaði, pijón-
aði eða matreiddi, allt sem hún
gerði var vel gert. Eftir að dæturn-
ar stálpuðust vann Gugga lengi við
matreiðslu á Fæðingarheimili
Reykjavíkurborgar. Þar líkaði henni
vel. Veikindi sín bar Gugga eins
og annað með stillingu og reisn.
Maður hennar, dætur og fjölskyldur
þeirra léttu henni veikindin, svo sem
unnt var, umvöfðu hana kærleika.
Votta ég þeim öllum mína dýpstu
samúð.
Nú, þegar ég kveð mína góðu
vinkonu með þakklæti og hryggð í
huga, verður mér hugsað til þess
að gaman væri á vori næsta lífs,
að hún kæmi á móti mér, og leiddi
mig inn í skólann á „strönd hinnar
miklu móðu“.
Ingibjörg Björgvinsdóttir
t
Útför móður minnar,
STEFANÍU EIRÍKSDÓTTUR,
Lindarbraut 16,
sem lóst 28. agúst, fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn
9. september kl. 15.00.
Stefanía Pitts.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug
og vináttu við andlát og útför
GUÐMUNDARÁ. INGÓLFSSONAR
framkvæmdastjóra,
Keflavík.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Helga Margrét Guðmundsdóttir, Theodór Magnússon,
Inga Lóa Guðmundsdóttir, Skúli Þ. Skúlason,
Bryndís Björg Guðmundsdóttir, Arnar Þór Sigurjónsson,
Guðrún Brrna Guðmundsdóttir, Sveinn Ævarsson,
Guðbjörg Friða Guðmundsdóttirpinar Guðmundsson
og barnabörn,
Ingólfur Þorsteinsson, Helga I. Guðmundsdóttir.
t
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns og föður okkar,
MAGNÚSAR BRYNJÓLFSSONAR
bókbandsmeistara.
Svanfríður Jóhannsdóttir, Brynjólfur Magnússon.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför,
HARÐAR GUÐMUNDSSONAR,
Hólmagrund 9,
Sauðárkróki.
Sólborg Valdimarsdóttir,
Hólmfrfður Jónasdóttir, Ingibjörg Harðardóttir,
Brynja Harðardóttir, Kristinn Guðjónsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
jarðarför
EINARS SVEINSSONAR,
Melteig 19, Keflavík.
Þorbjörn Einarsson,
Hulda Einarsdóttir Nigrelli,
Rósa Einarsdóttir,
Guðjón Einarsson,
Ester Einarsdóttir,
Ásta Einarsdóttir,
Einarína Einarsdóttir,
barnabörn og
Ana Marie Einarsson,
R.M. Nigrelli,
Sigurður Erlendsson,
Sólveig Thorsteinsen,
Guðmundur Lúðviksson,
Magnús Þórarinsson,
Skafti Þórisson,
barnabarnabörn.
Lokað
vegna jarðarfarar GUÐRÍÐAR SIGJÓNSDÓTTUR, í dag,
þriðjudag kl. 14.30-16.30.
K. Einarsson & Björnsson,
Laugavegi25.