Morgunblaðið - 08.09.1987, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
HRAÐLESTRAR-
NÁMSKEIÐ
Fyrsta hraðlestrarnámskeið vetrarins er fullbókað.
Næsta námskeið hefst þriðjudaginn 22. september nk.
og enn eru nokkur sæti laus.
Viljir þú margfalda lestrarhraða þinn og læra árang-
ursríkar aðferðir í námstækni, skaltu skrá þig á næsta
námskeið.
Skráning öll kvöld kl. 20.00 - 22.00 í síma 611096.
HRAÐLESTRARSKÓLINN.
Hebaheldur
vióheilsunni
Haustnámskeid
eru hafin
í HEBU geta allar konur á öllum
aldri fundið eitthvað við sitt
hæfi.
„Hebu-kerfið“ er hannað af
íþróttakennurum og býður upp
á 5 flokka:
Rólegt,
2. Almennt,
3. Framhald,
4. Of þungar „engin hopp“.
5. Nýtt: Tímar fyrir konur
eftir barnsburð.
Nuddtímar — ljós — sauna
Morgun- dag- og kvöldtimar,
tvisvar, þrisvar og Qiram sinnum
í viku.
íþróttakennarar kenna.
Innritun og upplýsingar um
flokka í simum 42360og 41309.
Heilsurœktin Heba
Auöbrekku 14. Kópavogi
Bladburöarfólk
óskast!
AUSTURBÆR VESTURBÆR
>
Ingólfsstræti
Skúlagata
Skipholt
Lindargata frá 39-63
Laugavegurfrá 32-80
Meðalholt
Þingholtsstræti
Sóleyjargata
Grettisgata 37-63
KÓPAVOGUR
Víðihvammur
Hrauntunga 31-117
Ægissíða
frá 44-78
Aragata
Einarsnes
Nýlendugata
ÚTHVERFI
Básendi
Austurgerði
Gnoðarvogur 14-42
Síðumúli
Austurbrún 8-
Brottganga formanna ellefu verkalýðsfélaga af formanna
Frá formannafundi Verkamannasambandsins á sunnudag. Morgunblaðið/KGA
Mun reyna eins og
hægt er að ná sáttum
— segir Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verka-
mannasambands Islands
„ÉG MUN reyna eins og hægt er að ná sáttum milli þessara aðila.
Ég harma að þessi tvístringur skuli hafa orðið og vona að menn
snúi sér að samningum og atvinnurekendum og hætti að lemja hver
á öðrum,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verka-
mannasambands íslands, um brottgöngu ellefu formanna verkalýðs-
félaga af formannafundi sambandsins á sunnudag, þar sem
kröfugerð i komandi samningum var samþykkt.
Kröfugerðin felur í sér að byrjun-
arlaun verði 32.400 krónur og
launaflokkamir fjórir með 3% bili á
milli flokka. Aldursþrep verði fimm
með allt að 20% álag á laun eftir
níu ára starf eða lengra. Fisk-
v'nnslufólki verði skipað í 3. flokk
og sérhæfðu fiskvinnslufólki í flokk
3a. Námskeiðsálag í fiskvinnslu
verði tvöfaldað, en það er nú 1.574
krónur á viku.
Þessi kröfugerð var samþykkt
með atkvæðum formanna, sem
höfðu 16.900 félagsmenn á bak við
sig, en alls eru 27 þúsund félagar
í VMSÍ. Fulltrúar 1.300 félags-
manna greiddu atkvæði á móti og
fulltrúar 750 félagsmanna sátu hjá.
Fulltrúar ellefu félaga greiddu ekki
atkvæði og fóm af fundi, þar sem
þessi aðferð var höfð við atkvæða-
greiðsluna, en ekki sú aðferð að
hvert félag hefði eitt atkvæði óháð
stærð sinni. Þá voru formenn nok-
kurra félaga ekki viðstaddir fund-
inn.
Guðmundur sagði að hann teldi
brottgönguna af fundinum veikja
stöðuna í komandi samningum.
Fulltrúar tveggja verkalýðsfélaga,
Árvakurs á Eskifirði og Jökuls á
Höfn í Homafirði hefðu tekið það
fram við sig að Verkamannasam-
bandið hefði ekki samningsumboð
fyrir hönd þeirra félaga, en hann
vissi ekki fyrir víst um afstöðu full-
trúa annarra félaga sem gengu út.
Á eftir að veikja samn-
ingsstöðuna verulega
- segir Karl Steinar Guðnason, varaformaður Verka-
mannasambandsins
„ÉG ÓTTAST að þessi útganga eigi eftir að veikja samningsstöðuna
mjög verulega. Þetta frumhlaup er engum til góðs nema atvinnurek-
endum. Ég tel ástæðu til að menn reyni að ná saman. Það er enginn
vandi að gera kröfur, en það er meiri vandi að ná þeim fram og það
er það sem við ætlum okkur í Verkamannasambandinu, að ná fram
verulegum kjarabótum til handa fiskverkafólki. Það tekst ekki nema
með algerri samstöðu, en ekki hurðarskellum, stóryrðum og brott-
hlaupi af fundum,“ sagði Karl Steinar Guðnason, varaformaður
Verkamannasambands íslands, aðspurður um útgöngu fulltrúa ellefu
verkalýðsfélaga af formannafundi Verkamannasambandsins á
sunnudag, en Karl Steinar flutti
greiðsla yrði viðhöfð á fundinum
„Við erum að móta kröfur fyrir
næstu kjarasamninga. Við teljum
að fískvinnslufólk hafí orðið undir
í því launaskriði, sem átt hefur sér
stað. Það var einhugur manna, að
minnsta kosti mín megin, að setja
málefni fískvinnslufólks í öndvegi.
Við vorum búnir að leggja þó
nokkra vinnu í kröfugerðina og
náðum samkomulagi í undirbún-
ingsnefnd um hvernig að kröfu-
gerðinni skyldi staðið. Það var
algjör eining í nefndinni í lokin.
Örfáum mínútum fyrir atkvæða-
greiðslu um kröfugerðina á for-
mannafundinum kemur einn þeirra
sem hafði staðið að mótun hennar
og samþykkt hana með handaupp-
réttingu með aðra tillögu. Þetta
tillögu um að allslierjaratkvæða-
um kröfugerðina.
fínnst mér óheiðarleg vinnubrögð.
Því vildi ég sýna skýrt fram á það
með allsheijaratkvæðagreiðslu
hversu minnihlutinn væri lítill,"
sagði Karl Steinar ennfremur.
Hann sagði að ákvæðið um alls-
heijaratkvæðagreiðslu væri nýtt í
lögum VMSÍ, en það hefði verið
samþykkt á síðasta þingi sam-
bandsins. Þetta væri oft tíðkað á
þingum Alþýðusambandsins og auk
þess væri þetta ákvæði til þess að
koma í veg fyrir að minnihlutinn
réði yfír meirihlutanum. „Það er
alveg sama hvor aðferðin við at-
kvæðagreiðslu hefði verið notuð,
sjónarmið samkomulagsins í nefnd-
inni hefði orðið ofan á. Ég spyr, á
félag með 30 félagsmenn að ráða
jafnmiklu og félag með 3 þúsund
félagsmenn eða tvö 30 manna félög
að ráða yfír einu þijú þúsund manna
félagi? Hverslags vinnubrögð eru
það að ganga út af fundi vegna
ágreinings um form á atkvæða-
greiðslu. Eru málefni fískvinnslu-
fólks svo lítils virði fyrir þetta fólk.
Þessi vinnubrögð eru reyndar ein-
göngu til þess fallin að skemmta
atvinnurekendunum í Garðastræti
og veikja stöðu fískverkafólks,"
sagði Karl ennfremur
Hann sagði að á fundum stjórnar
Verkamannasambandsins með að-
ildarfélögunum hefði komið fram
lítill áhugi á stofnun sérsambands
fískvinnslufólks og það væri sín
skoðun að það kæmi engum verr
en verkafólkinu sjálfu að tæta
verkalýðssamtökin í sundur með
innbyrðis deilum.
Karl Steinar verður ekki í fram-
boði til varaformanns Verkamanna-
sambandsins á þingi sambandsins
í haust. Hann sagðist fyrir löngu
hafa tekið þessa ákvörðun og látið
menn í framkvæmdastjórninni vita
um hana. Hún væri í engum tengsl-
um við þetta mál.