Morgunblaðið - 11.09.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1987
3
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Hátíðarsamkoma
til heiðurs Jqni
Þórarinssyni tónskáldi
Hvalamergð
tefur loðnuveið-
ar Færeyinga
er um hrefnu á víð og dreif norð-
ur af landinu, og hafa veiðar
loðnuskipanna tafist af þessum
sökum. Eiðfinnur Jacobsen, skip-
stjóri á færeyska loðnuskipinu
Havlot, staðfesti þetta í samtaii
við Morgunblaðið, en skip hans
kom nýverið inn til Siglufjarðar
vegna nótaskemmda og bilunar
í tækjabúnaði.
MIKIL hvalamergð hefur verið
á loðnumiðunum norður af
landinu, þar sem færeysk loðnu-
skip hafa haldið sig að undanf-
örnu. Er þar einkum um að ræða
hnúfubak, auk þess sem mikið
FSH og viðsemj-
endur:
Morgunblaðið/Júlíus
Nú er verið að rífa Völundarhúsið vegna fyrirhugaðrar byggðar samkvæmt Skúlagötuskipulaginu.
ar hafi hljómsveitarstarf að mestu
legið niðri hér á landi. Hann barð-
ist fyrir stofnun sinfóníuhljómsveit-
ar ásamt öðrum, skrifaði greina-
gerðir og samdi drög að frumvarpi
sem lagt var fram á þingi árið 1948.
Ríkisútvarpið ákvað að leggja
fram fjárrnagn til stofnunar hljóm-
sveitarinnar árið 1950. Jón varð
fyrsti formaður stjómar hennar.
Þegar hljómsveitinni var breytt í
sjálfstætt fyrirtæki gerðist hann
framkvæmdastjóri. Þau fímm ár
sem hann gegndi því starfí óx tón-
leikahald og ferðir um landsbyggð-
ina voru hafnar, segir í fréttinni.
Jón hefur stjómað kómm, hljóm-
sveitum og kennt við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík og víðar um árabil.
Af tónsmíðum hans má nefna
hljómsveitarverkin „Völuspá" og
„Minni Ingólfs" sem frumflutt var
á 200 ára afmæli höfuðborgarinn-
ar. Em þá ótalin flölmörg sönglög,
kammer- og kórverk.
Við athöfnina flytur Ólöf Kolbrún
Harðardóttir lög Jóns við ljóð eftir
Stein Steinarr, þjóðvísuna „Fuglinn
í gömnni" og ljóð Halldórs Laxness
„íslenskt vögguljóð á hörpu." Þá
syngur Kristinn Sigmundsson við
undirleik Sinfóníuhljómsveitarinnar
„Of Love and Death." Karlakórinn
Fóstbræður syngur syrpu af lögum
Jón Þórarinsson
Áma Thorsteinssonar í útsetningu
Jóns. Athöfninni lýkur á flutningi
Kórs Langholtskirkju, Karlakórs
Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit-
arinnar á „Minni Ingólfs."
Ávörp flytja Ólafur B. Thors
stjómarformaður hljómsveitarinn-
ar, Birgir ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra og Helgi Sæ-
mundsson ritstjóri.
Samkoman hefst kl. 14.00 á
sunnudag.
Norræni iðnaðarsjóðurinn og Marel hf
Styrkur til rannsókna
á myndgreiningu
MorgunblaðiA/Bjami
Á myndinni eru talið frá vinstri: Hörður Arnarson, starfsmaður
Marels við Danmarks Tekniske Hojskole, Birgitte Rolf Jacobsen,
starfsmaður Norræna iðnaðarsjóðsins og Sigurpáll Jónsson, þróunar-
stjóri Marels.
HÁTÍÐARSAMKOMA til heiðurs
Jóni Þórarinssyni tónskáldi sjö-
tugum verður haldin í Þjóðleik-
húsinu sunnudaginn 13.
september næstkomandi af Sin-
fóníuhljómsveit íslands. Jón var
einn af frumkvöðlum hljómsveit-
arinnar þegar hún var stofnuð
árið 1950.
í fréttatilkynningu hljómsveitar-
innar segir að þegar Jón sneri heim
frá námi við lok siðari heimstyijald-
NORRÆNI iðnaðarsjóðurinn
hefur veitt íslenska rafeindafyr-
irtækinu Marel hf. styrk til
rannsókna vegna þróunarverk-
efnis í myndgreiningu í fiskiðn-
aði. Starfsmaður Marels, Hörður
Amarson rafmagnsverkfræð-
ingur, hefur unnið að þessu
verkefni á rannsóknastofu Dan-
marks Tekniske Hejskole frá þvi
í janúar síðast liðnum en áætlað
er að verkefninu verði lokið
sumarið 1989.
Myndgreining er ný af nálinni í
skynjunartækni. Hægt er að skoða
hluti á hreyfíngu með myndgrein-
ingu en hún byggist á því að tölva
vinnur á stafrænan hátt úr myndum
teknum af viðkomandi hlut, til
dæmis físki á færibandi. Þessi
tækni býður upp á mikla möguleika
í framtíðinni, svo sem að fínna orma
og bein í físki, mæla stærð hans
og þyngd og jafnvel að greina físk-
tegundir.
Norræni iðnaðarsjóðurinn og
Tæknivísindaakademían í Dan-
mörku áttu frumkvæðið að sam-
starfí um rannsóknir og þróunar-
starf á Norðurlöndunum til að auka
tengsl á milli fyrirtækja og háskóla
og flytja þekkingu á milli landanna.
Fyrirtæki og stofnanir geta sótt
um styrk til Norræna iðnaðarsjóðs-
ins, fyrir þá starfsmenn þeirra sem
háskólamenntaðir eru í tæknigrein-
um, til að vinna hjá fyrirtækjum
og stofnunum á öðrum Norðurlönd-
um eða á háskóladeildum þar sem
unnið er að þróunarverkefnum.
Jafnframt geta stofnanir og fyrir-
tæki sótt um styrk til sjóðsins til
að fá menn frá öðrum Norðurlönd-
um til rannsóknarstarfa hjá þeim.
Sjóðurinn greiðir hálf Iaun starfs-
mannsins í allt að tvö ár, þó að
hámarki 300 þúsund danskar krón-
ur, svo og veitir sjóðurinn styrk til
efniskaupa, allt að 200 þúsund dan-
skar krónur.
Starfsmaður Norræna iðnaðar-
sjóðsins, Birgitte Rolf Jacobsen, er
nú stödd hér á landi og hefur undan-
fama daga heimsótt nokkur íslensk
fyrirtæki, sem stunda rannsóknir
og þróunarstörf, til að kynna þeim
þetta samstarf.
Völundarhúsið rifið
Annar samn-
ingafund-
ur í dag
EKKERT markvert gerðist á
samningafundi Félags starfs-
fólks í húsgagnaiðnaði með
viðsemjendum hjá ríkissátta-
semjara í gær.
Fundurinn varð rúmlega þriggja
tíma langur og hefur verið boðað
til nýs fundar í dag klukkan 16.
Félag starfsfólks í húsgagnaiðnaði
hefur boðað verkfall frá og með
þriðjudeginum 15. september.
Eiðfínnur sagði að góð veiði hefði
verið á loðnumiðunum að undanf-
örnu, en færeysku skipin halda sig
einkum Grænlandsmegin við gráa
svæðið svokallaða út af Scores-
bysundi. Hann sagði að mikið hefði
verið um hval þar og iðulega hefðu
þeir orðið að bíða með að kasta á
meðan hvalir færu í gegn um loðnu-
torfumar.
Aðspurður kvaðst Eiðfínnur ekki
vilja tjá sig um loðnverð í Færeyj-
um, en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins mun það vera 30
aurar danskir á kílóið auk 15 aura
í ríkisstyrk, en það gerir um það
bil 2.500 krónur íslenskar fyrir ton-
nið.
BYRJAÐ er rífa Völundarhúsið
við Skúlagötu. Borgaryfirvöld
keyptu húsið fyrr á þessu ári af
Völundi sem verið hafði með
starfsemi sina þar síðan 1905.
Byííípngameistari hússins var
Jens Eyjólfsson. Húsið var í notk-
un fram á síðasta dag en starf-
semi Völundar var formlega flutt
þaðan að Skeifunni 19 14. júlí sl.
Húsið verður nú að vílga vegna
fyrirhugaðrar byggðar sam-
kvæmt Skúlagötuskipulaginu.
Að sögn Sveins K. Sveinssonar,
framkvæmdastjóra Völundar, hafa
elstu vélamar í húsinu verið gefnar
Byggðasafni Reykjavíkur. Þær hafa
verið í notkun allt frá 1904.
Völundarhúsið samanstendur af
aðalbyggingu sem í var gamli vélar-
salurinn. Þegar fyrirtækið hóf
starfsemi sína vom vélamar drifnar
með gufuafli og lá öxull gegnum
endilangt húsið. Þegar fram liðu
tímar leystu rafmótórar gufuvél-
amar af hólmi en skorsteinninn
stóri, sem í em um 23.000 múr-
steinar,_ er enn til minnis um þann
tíma. Árið 1954 var síðan reist
nýbygging úr steini austan við aðal-
húsið og starfrækt þar trésmiðja.
1965 er svo hafíst handa við
byggingu stórhýsis að Skeifunni 19
en þangað hefíir nú öll starfsemi
Völundar, bæði trésmiðja og timb-
ursala, verið flutt.