Morgunblaðið - 11.09.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1987
27
Sýning Hundarækt-
arfélags Islands
Hundaræktarfélag íslands
heldur hundasýningu í Reið-
höllinni í Víðidal, sunnudaginn
13. september. Verður Davíð
Oddsson, borgarstjóri heiðurs-
gestur, en dómari sýningarinn-
ar verður Öivind Asp frá
Noregi, sem er alþjóðlegur
hundadómari með rétt til að
dæma öll hundakyn.
Dagskrá sýningarinnar hefst kl.
09.00 með dómum á íslenska fjár-
hundinum. Síðan verða dæmd
eftirfarandi kyn: Frá kl. 10.40 til
11.40 írskur Setter, 11.40 til kl.
12.00 enskur Cocker Spaniel,
Springer Spaniel, Pug, Malteser
og Greifíngjahundur. Frá kl. 12.00
til 12.15 er afkvæmasýning og
matarhlé frá 12.15 til 13.00. Frá
13.00 til 14.00 Labrador og frá
básum og félagsmenn annast
veitingasölu. Sýnendur hunda eru
vinsamlegast beðnir um að mæta
klukkustund fyrir dóm og verða
sýningamúmer og skrár afhentar
í anddyri hallarinnar.
Leiðrétting
í Morgunblaðinu 1. september
birtist frétt þess efnis að Karl Jó-
hann Lilliendahl hefði opnað
saumastofu að Garðastræti 2. Þar
kom fram að Karl Jóhann væri
klæðskerameistari, hið rétt er að
hann er klæðskeri.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Loðnuverðið:
Eydís Lúðvíksdóttir við verk sín á sýningunni á Kjarvalsstöðum.
Sýnirskál-
ar og vegg-
myndir
EYDÍS Lúðvíksdóttir sýnir um
þessar mundir í vesturforsal
Kjarvalsstaða. Á sýningunni sem
ber heitið „Tilbrigði um tvo liti“
eru 37 verk sem Eydís hefur
unnið á verkstæði sinu í Mos-
fellssveit.
Verkin, skálar og veggmyndir,
eru unnin í postluínsleir með tvejm
litum í kóbalt og koparoxíðum. Öll
verkin á sýningunni eru til sölu.
Sýningin er opin daglega kl.
14.00-22.00 og stendur til 20. sept-
ember.
Það hæsta sem við getuiii boðið
- segir Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda
14.00 til 16.00 Golden Retriever
og 16.00 til 16.30 Poodle hundar.
Sýningaratriði verða kl. 16.30 með
hunda og kl. 17.30 verða úrslit
og mun Davíð Oddson, borgar-
stjóri afhenda verðlaun í úrslita-
keppninni um besta hund
sýningarinnar.
Félagið og sérdeildir þess verða
með kynningu á starfsemi sinni
og einnig verður glæsileg tombóla.
Ifyrirtæki verða með kynningu á
hundavörum og hundafóðri í sölu-
Röng fall-
beyging
í FRÉTT Morgunblaðsins um
frestun forúthlutunarfundar af
hálfu utanrikisráðherra á blað-
síðu tvö í gær, urðu blaðamanni
á þau mistök að fara rangt með
faUbeygingu tveggja orða.
Ennfremur féll fallbeyging nið-
ur í einu orði í frétt um
samstarf ríkisútvarpsins við
Eurovision.
í frétt blaðsins á bls. 2 var sagt:
„...þarfnast svona fundur ákveðinn
undirbúning...". Það er að sjálf-
sögðu rangt. Svona fundur þarfn-
ast ákveðins undirbúnings.
Morgunblaðið biður lesendur sína
afsökunar á þessari villu.
í frétt blaðsins um samtarfið
við Eurovision var sagt: „..innan
Evrópubandalag...". Þar hefur
fallbeygingin fallið niður á síðara
orðinu. Rétt er þetta innan Evr-
ópubandalags.
FJÓRÐI laugardagsflóamarkað-
ur Félags einstæðra foreldra og
sá síðasti að sinni, verður í
Skeljanesi 6 á morgun, laugar-
dag 12.september frá kl. 2-5 e.h.
Á þessum markaði er „tilboð
dagsins" glæsilegar og húðvæn-
ar barnaúlpur, skiðafatnaður og
skór. Einnig verða í boði nyög
athyglisverðir og gamlir tízku-
kjólar, ný herranærföt, nýir og
notaðir skór, auk annars varn-
ings í tonnatali.
Eins og fyrr segir verður þetta
síðasti flóamarkaðurinn í bili. Fyrsti
fundur vetrarins verður 29.sept-
ember í fundarsalnum í Skeljanesi.
Þar mun Guðrún Helgadóttir ræða
einkar athyglisvert efni „Vilja ein-
stæðir foreldrar vera e/mV?“ Á
fundinum verða skipaðir umræðu-
hópar, sem eiga svo að skila
greinargerðum á aðalfundi. Um
miðjan október talar Þorbjöm
Broddason á fundi um „Fjölskyldur
og fjölmiðla" og 5.nóvember verður
aðalfundur félagsins. Jóhanna Kris-
tjónsdóttir, sem hefur verið formað-
„ÉG verð að lýsa furðu minni á
yfirlýsingum Öskars Vigfússon-
ar, fulltrúa sjómanna í yfirnefnd,
að þessi ákvörðun um loðnuverð
þýði að verðið hafi verið gefið
fijálst. Þetta 1.600 krónu verð
er það hæsta sem við getum boð-
ið ,“ sagði Jón Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags islenskra
fiskmjölsframleiðenda, er hann
var inntur álits á loðnuverðs-
ákvörðun og áðurnefndum yfir-
lýsingum fulltrúa sjómanna i
yfirnefnd. Jón sagði að miðað
við þetta verð yrði tap verksmiðj-
anna samt um 5%, en samkvæmt
útreikningum á úrtaki 25 ioðnu-
skipa myndu þau skila um 8%
hagnaði, ef meðframveiði þeirra
væri reiknuð með.
Jón sagði að 1.600 krónu verðið
miðaðist við útreikninga Þjóðhags-
stofnunar, sem byggðir væru á
úrtaki 15 verksmiðrja, er unnu 85%
af þeirri loðnu sem veidd var árið
1986. Samkvæmt framreiknuðum
útreikningum hefði verðið, sem
greitt var á síðustu vertíð, þýtt um
17% tap á verksmiðjunum, eða sem
næmi um 500 milljónum króna.
„Það kom ennfremur ffam í út-
reikningum Þjóðhagsstofnunar að
verksmiðjumar ættu í hæsta lagi
að geta greitt rúmar 1.400 krónur
fyrir tonnið. Við vorum hins vegar
ur FEF í 15 ár, gefur ekki kost á
sér í stjóm.
Væntanleg em á markaðinn áður
en mjög langt um líður jólakort
FEF, sem mikilla vinsælda hafa
notið. Fjögur kort koma út nú, tvær
með bamateikningum og endur-
prentuð em tvö kort eftir Þorbjörgu
Höskuldsdóttur.
Tónleikar í
Gerðubergi
LOKATÓNLEIKAR frá óperu-
og Ijóðanámskeiði Svanhvitar
Egilsdóttur og Wassilis Iwtulas
verður laugardaginn 12. septem-
ber kl. 17.00 í Gerðubergi í
Breiðholti.
Ópem- og ljóðanámskeið hefur
staðið yfír sl. tvær vikur í Tónlist-
arskólanum og em þessir tónleikar
lokaþáttur þess námskeiðs.
tilbúnir til að teygja okkur í 1.600
krónur, með því að fóma hluta af-
skrifta. Miðað við þetta verð og
kostnað verksmiðjanna verður tap
verksmiðjanna samt sem áður rúm-
lega 5%,“ sagði Jón.
Jón kvaðst draga stórlega í efa,
að heimildir Morgunblaðsins, um
að tvær verksmiðjur hefðu lýst sig
reiðubúnar að greiða 2.000 krónur
í lágmarksverð, væm réttar. „Það
kemur ekki heim og saman við þær
upplýsingar sem við höfum frá okk-
ar mönnum. Ég leyfi mér að full-
yrða að það hefur engin verksmiðja
lýst sig reiðubúna til að greiða
2.000 krónur fyrir tonnið af loðnu.
Það er einnig rétt að taka fram í
þessu sambandi að verðtilboð
Krossanesverksmiðjunnar er ekki
upp á 2.000 krónur, heldur upp á
1.650 til 1.850 krónur, eftir fersk-
leika hráefnisins. Auk þess miðast
hærra verðið við nýtt hráefni og
sú loðna sem við komum til með
að vinna og veidd er norður við Jan
Mayen nær aldrei því verði. Krossa-
nesverksmiðjan hefur þar að auki
ákveðna sérstöðu þar sem hún velur
úr einstaka báta, en tekur enga
báta þess á milli, því hún framleið-
ir aðallega þannig mjöl að nýjasta
hráefnið nýtist henni best. Það er
því eðlilegt að hún greiði aðeins
hærra verð.“
Jón kvaðst að lokum vilja benda
á, að samkvæmt úttekt á 25 loðnu-
skipum hefði komið í ljós að þau
stunduðu jafnframt aðrar veiðar en
loðnuveiði, svo sem rækjuveiði.
Ennfremur hefði loðnufrysting fjór-
faldast og frysting hrogna tvöfald-
ast, sem gæfi umtalsverðar
aukatekjur fyrir sjómenn og útgerð.
„Þetta þýðir, samkvæmt okkar út-
reikningum, að þessi loðnuskip eru
rekin með 8% hagnaði á meðan
verksmiðjurnar eru áfram reknar
með tapi. Við erum nú komnir með
verð sem við teljum raunhæft. Við
fórum með bullandi tapi út úr
síðustu vertíð og treystum okkur
ekki í þann slag aftur," sagði Jón
Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra fískmjölsframleiðenda.
Ragnasýnir
í Nýlista-
safninu
RAGNA Hermannsdóttir sýnir
bækur, grafík, málverk og
klippimyndir í Nýlistasafninu
12.-27. september, að báðum dög-
um meðtöldum.
Ragna lauk námi frá Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1983 og
hefur siðan dvalið að mestu erlend-
is, eitt ár í New York og síðustu
þijú árin í Hollandi.
Sýningin í Nýlistasafninu verður
opnuð 11. september kl. 20.00.
Þriðja starfs-
ár Hana nú
að hefjast
ÞRIÐJA starfsár gönguklúbbs
Frístundahópsins Hana nú f
Kópavogi er nú að hefjast.
Klúbburinn stendur fyrir
göngum um götur Kópavogs á
hverjum laugardegi.
Fyrstu laugardagsgöngur
klúbbsins voru famar í júlí 1985
og hefur klúbburinn staðið fyrir
göngum um götur Kópavogs á
hverjum laugardegi sumar og vet-
ur, hvemig sem viðrar. Allar
gönguferðimar hefjast með mola-
kaffí kl. 10.00 á Digranesvegi 12
og rölta göngumenn síðan um bæ-
inn í klukkutíma.
Sundkappinn leiddur á brott.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Æfði sundtökin í Tjöminni
SÓLIN skein glatt á íbúa
Reykjavíkur í gær og í hádeg-
inu ákvað maður nokkur að
kæla sig með sundspretti i
Tjörninni. Hann hefur ef til
vill séð myndir frá heitari lönd-
um, þar sem fólk kælir sig
gjarnan með þvi að hoppa út í
gosbrunna.
Maðurinn rölti niður á Tjamar-
bakkann, fór úr fótunum og óð
út f. Vegfarendur létu lögregluna
vita, sem brá við skjótt og kom á
staðinn. Þá var maðurinn kominn
langt út í Tjöm, en hlýddi þó skip-
un lögreglumanna um að svamla
til lands. Lögreglan hjálpaði hon-
um við að komast á þuirt og var
hann þá orðinn nokkuð þrekaður
af kulda, þó hann hefði yljað sér
á sterkum drykkjum áður en
svamlið hófst. Honum mun ekki
hafa orðið meint af volkinu.
Fjórða laugardags-
fló FEF á morgun
*
fc.