Morgunblaðið - 11.09.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1987
45
Þessir hringdu
Ófremdarástand
í umferðarmál-
um í Árbæjar-
hverfi
9592-5480 hringdi:
„Mig langar til að vekja at-
hygli á ófremdarástandi því sem
mjmdast hefur í Árbæjarhverfi.
Mjög erfit er orðið að komast út
úr hverfinu vegna mikillar um-
ferðar á Bæjarhálsi. Þetta
vandamál hefur lengi verið til
staðar en eftir að hámarkshraði
á þjóðveginum var aukinn í 90
kilómetra á klukkustund hefur
þetta versnað að mun. Maður er
hreinlega í hættu í hvert sinn sem
maður ekur út úr hverfinu og
getur þurft mikið lag til. Að vísu
er umferðarskilti við Bæjarháls
þar sem tiltekinn er 60 km hám-
arkshraði en fæstir ökumenn
sinna því. Umferðarþunginn er
orðinn mjög mikill á Bæjarhálsi á
morgnana og kvöldin, og á helg-
um myndast oft langar biðraðir.
Þetta ástand kallar á einhverjar
ráðstafanir til að auðelda umferð
út úr Árbæjarhverfínu og þyrfti
að taka á þessu máli sem fyrst."
Óskemmtilegar
sendingar
N. hringdi:
„Ég hef fengið þrjú svokölluð
keðjubréf og þykja mér þetta
heldur óskemmtilegar sendingar.
I þessum bréfum er viðtakanda
hótað öllu illu, jafnvel dauða, ef
hann rýfur keðjuna og endursend-
ir ekki tuttugu bréf til nýrra
fómarlamba. A hinn bóginn er
lofað gulli og grænum skógum,
láti viðkomandi kúgast til að
senda öðrum bréfin. Þetta er
óskemmtilegt fyrirbæri og getur
áreiðanlega farið illa með fólk sem
er veikt fyrir andlega. Bréf af
þessu tagi ætti að uppræta og
hvet ég alla sem þessi bréf fá í
hendur til að hunsa þau svo þessi
ófögunður verði endanlega úr sög-
unni.
Tro Algen -
hvar fæst það?
I.S. hringdi:
„Að undanfömu hafa norsk
blöð fjallað nokkuð um norskt
náttúrulækninga efni sem unnið
er úr þömngum og nefnist Tro
Algen. Er það sagt hafa góð áhrif
á heilsufar, vera got gegn streitu,
meltingartmflunum o. fl. Ég hef
spurst fyrir um þetta efni hér á
landi en það virðist hvergi vera
fáanlegt. Því spyr ég: Hefur ein-
hver þetta efni til sölu hér eða er
í ráði að flytja það inn?“
Stórheimskleg vísindi o g
stórheimsklegar athafnir
Til Velvakanda.
„Heimsmyndin að breytast?",
stóð á einum stað stómm stöfum í
dagblaði og var ástæðan til þess
sú, að sannast hefír nú, að hraðari
hreyfingar eiga sér stað í efni en
flug ljósgeislans. Var þama sagt
að þijú stjömufræðifyrirbæri hafi
þegar fundizt úti í geimi, þar sem
hreyfing sé með tvö-þreföldum
hraða ljóssins, og væri þá breyting
heimsmyndarinnar sú, þ.e. þess
skilnings, sem um skeið hefir verið
ríkjandi varðandi heiminn og tilver-
una, að menn fæm að sjá, að sá
skilningur hafí ekki allskostar verið
samkvæmt því, sem raunvemlega
er.
Það mun hafa verið eftir 1930,
að farið var að halda því fram sem
óyggjandi vísindaniðurstöðu, að
nálega allar sólstjömur væm ein-
stæðingar án fylgihnatta og miðað
við slíkt ásamt því að takmarka
heimsskilning sinn við hraða ljós-
geislans til þessa, að menn snemst
gegn kenningu nokkurri, sem hér
á landi var víst. eitthvað farið að
bera fram fyrir 1914. Var í þeirri
kenningu talað um alheimslíf og
heimssamband lífs, sem tilvemund-
irstöðu lífsins hér á jörðu. Og þar
sem þar var þá að sjálfsögðu gert
ráð fyrir óteljandi sólhverfum
slíkum sem okkar og lífgeislann
ósegjanlega miklu hraðfleygari en
ljósið, þá var ekki nema eðlilegt,
að vegna ríkjandi skilnings næði
þessi kenning ekki fram að ganga.
En þar sem það er nú ekki ein-
ungis úr sögunni, að ætla plánetur
vera algjört fágæti og þar sem það
virðist einnig vera dæmt til að
hrynja, að ljósgeislinn sé hraðfleyg-
astur alls, þá ætti afstaða fræði-
manna gagnvart hinni íslenzku
kenningu að geta farið að verða á
annan veg en til þessa. Og hvort
skyldi þá ekki einhveijum geta far-
ið að þykja dálítið gaman að því
að geta sagt frá því með sanni, að
vegna skilnings síns á réttmæti
hinnar íslenzku kenningar, hafí
honum alltaf verið það ljóst, að tak-
mörkun tilvemskilnings við fágæti
sólhverfa og hraða ljósgeislans,
hafi einungis verið vísindaleg stór-
heimska, og eitthvað á borð við
það, að alheimurinn eigi rót sína
að rekja til sprengingar eins mikils
efniskakkar, sem átt hafi að eiga
sér stað fyrir svo sem 10 milljörðum
ára. Sú takmörkunarhugsun, sem í
slíku kemur fram, hlýtur einnig að
dæmast stórheimskuleg, þegar
horft er út frá því skilingssjónar-
miði, að hveiju einu beri að rekja
uppmna sinn til sambanda við ann-
að, og að fmmorsök alls hljóti því
að vera sú að altilveran sé óendan-
leg í tíma og rúmi.
Því verður naumast mótmælt, að
á þessari öld hafi jafnvel fremur
en á nokkurri öld áður ýmislegt
stórheimskulegt átt sér stað, og ber
þar fyrst að nefna hinar tvær stór-
styijaldir. Það er ekki hægt að
hugsa sér heimskulegri fram-
kvæmdir en styijaldarathafnir, en
því heimskulegri em þær að sjálf-
sögðu sem þær em stærri. En
hversvegna var það, að svo regin-
heimskulegar athafnir skyldu eiga
sér stað? Skyldi það ekki ein-
hvemtíma geta komið í ljós, svo að
öllum megi ljóst vera, að það sem
stendur í vegi fyrir því að réttur
skilningur sigri, standi einnig í vegi
fyrir því, að framkvæmdir verði í
rétta átt? Og hvað var það þá sérs-
taklega í hinni íslenzku kenningu,
sem leitt hefði mannkyni framhjá
hinum stærstu slysum aldarinnar,
ef það aðeins hefði þegið þær, um
leið og þær fyrst vom bomar fram?
Svar við þvf geta menn fengið á
þann hátt að kynna sér þá kenn-
ingu. Til þess að öðlast ljósan og
meiri skilning á heimi og lífi og til
þess að greiða fyrir vorkomu í eig-
in huga, ættu menn að lesa og
hugleiða Nýal dr. Helga Fjeturss.
Ritað 1985, endurritað 1987.
Þorsteinn Jónsson
á Úlfsstöðum
HEILRÆÐI
Okumenn
A tímum hálku og erfiðra akstursskilyrða verður að
gæta ýtrustu varkárni við aksturinn.
Lélegir og slitnir hjólbarðar auka stórlega líkur á óhöpp-
um þar sem ökumaður getur misst stjóm á ökutækinu eða
nær ekki að stöðva þegar skyndilegar hindranir verða á
veginum.
Hafíð ökutækin sem best búin til vetraraksturs.
HVERVILL
taka að sér að hjálpa til á heimili og vera
með 8 ára gömlum dreng utan skólatíma.
Upplýsingar veittar í síma 76233 eftir kl. 5 á
daginn.
B.B. BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.
ywivnuur ■■ d
■ ■ ■
til 18. sept.
DOCUMENT
« ■
I
REM
D0CUMENTS
Hljómplata.
Fullt verðkr. 749.
Tilboðsverð
kr. 599.
Kassetta.
Fulltverðkr. 749.
Tilboðsverð
kr. 599.
REM er ein virtasta og besta rokksveit Bandaríkjanna
um þessar mundir.
Documents er nýjasta framlag REM til rokksins og
hreint útsagt stórkostleg plata.
Meðal laga er t.d. hið ágæta „The One I Love“sem err
komið út á lítilli plötu.
Við bjóðum þér að eignast þessa frábæru plötu á til--
boði vikunnar í verslunum okkar.
Póstkröfuþjónusta
Póstkröfudeild Rauðarárstíg 16, simi 91 -11620.
Póstkröfusímsvari allan sólarhringinn simi 91 -28316.
steinorlif
Austurstræti 22 Rauðarárstíg 16 Glæsibæ Strandgötu 37, Hf
ATH: verslunin i Austurstræti er opin á laugardag kl. 10.00-16.00.