Morgunblaðið - 11.09.1987, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 11.09.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1987 47 KÖRFUKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA „Eigum Dönum grátt að gjalda frá. því í fyrra og erum til í slaginn“ - sagði Einar Bollason landsliðsþjálfari eftir tapið gegn Frökkum í gær „VIÐ áttum aldrei möguleika gegn Frökkum í leiknum í kvöld, enda bjuggust viö aldrei við því,“ sagöi Einar Bollason landsliöþjálfari íkörfuknattleik eftir aö fyrsta leik íslands í C-riðli Evrópukeppninnar lauk i gœrkvöldi. Fyrsti leikur móts- ins var leikur íslands og Frakklands og það er skemmst frá því aö segja að Frakkar burstuðu okkar stráka, skor- uðu 104 stig gegn 63 stigum. að er þó engin ástæða til að örvænta því fyrirfram var ekki búist við miklu af landsliði okkar gegn Frökkum. Til þess eru Frakk- ar allt of góðir. Ætlunin var að vinna Dani og Svisslendinga og komast þar með áfram í Evrópu- keppninni. Það væri mikill og góður árangur ef það tækist. Leikurinn í gær byijaði ekki vel. Frakkar komust í 29:2 og „þá var nú farið að fara aðeins um mig,“ sagði Einar. Staðan í leikhléi 58:31 og lokatölur síðan 104:63. Stigahæstur í liði okkar var Jón Kr. Gíslason sem skoraði 13 stig en þeir Birgir Mikaelsson og Guðni Guðnason, sem nú er allur að ná sér af meiðslunum, skoruðu báðir 10 stig. Pálmar Sigurðsson, Torfi Magnús- son og ívar Webster léku lítið sem ekkert með í þessum leik og var það með vilja gert hjá þeim Einari og Gunnari Þorvarðarsyni lands- liðsþjálfurum. Við leikum í dag gegn Dönum og átti að hvíla okkar sterkustu menn fyrir þá viðureign. Einar sagði að liðið hefði leikið svæðisvöm allan leikinn, eins og þáð gerði á Norðurlandamótinu í fyrra, en „við höfum ekkert æft hana að undanfömu, bara maður á mann vömina og við ætlum að koma Dönum í opna skjöldu með því að leika maður á mann gegn þeim á morgum. Vonandi takst það, en það getur allt gerst hér. Danir og Svisslendingar era með sterk lið og það verður ekkert auð- velt að vinna þá en með góðum leik eigum við að geta það,“ sagði Einar að lokum. Danir og Svisslendingar léku í gær1* og lauk þeim leik með 93:86 sigri Svisslendinga sem vora dálítið óskrifað blað fyrir mótið. Nú er ljóst að þeir era sterkir og munar þar mest um tvo bandaríska bræður, með svissneskan ríkisborgararétt, sem skoraðu saman rúmlega 50 stig í leiknum gegn Dönum í gær. KNATTSPYRNA / 2. DEILD Trausti í klandri Víkingurinn Trausti Ómarsson virðist í einhveiju klandri á þessari mynd. Hvort Víkingar og Trausti verða í klandri á sunnudaginn er þeir mæta Selfyssingum skýrist þá en nú eiga fjögur lið möguleika á að komast í 1. deildina. FRJALSAR IÞROTTIR Fraeknir fijálsíþróttagarpar í byrjun ágúst fóru sex f rœkn- ir öldungartil Finnlands þar sem þeir tóku þátt ' Norður- landamótinu ífrjálsum íþrótt- um í sfnum aldursflokki. Tvenn verðlaun unnust en keppendurnir urðu f 2-6 sœti f sínum greinum. Bestum árangri náði hlaupa- gikkurinn Guðmundur Hall- grímsson frá Fáskrúðsfírði. Hann varð annar í 200 metra hlaupi og þriðrji í 100 metranum. Á meðfylgjandi mynd era Elías Sveinsson, Ólafur Unnsteinsson, Óláfur J. Þórðarson, Þorsteinn Löve, sem nú keppir fyrir Svía og varð þriðji í sleggjukasti, Jón H. Magnússon og Guðmundur Hallgrímsson. Á myndina vantar Trausta Sveinbjömsson, en hann tók myndina. Nú hefur verið ákveðið að Jón H. Magnússon, Ólafur J. Þórðar- son og Bjöm Jóhannsson fari á Kaupmannahafnarleikana 19. september en þar vann Ólafur Unnsteinsson það afrek í fyrra að sigra í kúlu og kringlu í fyrra. Þráttur og Leiftur leika í kvöld á Þróttarvelli FYRSTI leikur 18. og síðustu umferðar 2. deildar í knatt- spyrnu fer fram á Þróttarvelli í kvöld. Heimamenn fá Leiftur frá Ólafsfirði f heimsókn og hefst viðureignin klukkan 18. Bæði liðin eiga möguleika á sæti í 1. deild næsta ár, en Víkingur og Selfoss era einnig í baráttunni. Leiftur er í 2. sæti og tryggir sér sætið eftirsótta með sigri og jafntefli gæti einnig nægt Ólafsfirðingunum. Þróttarar verða hins vegar að sigra til að eiga mögu- leika á að leika í 1. deild næsta keppnistímabil. Síðustu fyórir leikimir fara fram á sunnudaginn og hefjast allir klukk- an 14. í Laugardalnum leika Víkingur og Selfoss. Víkingum nægir jafntefli, en sigri Selfyssing- ar era þeir uppi. Víkingur getur því farið upp með Leiftri eða Þrótti, en Selfoss og Leiftur geta einnig staðið uppi sem sigurvegarar. Það gæti farið svo að fyrstu deildar sætin tvö ráðist á markatölu og eru ár og dagar síðan keppnin í 2. deild hefur verið eins spennandi og jöfn. Ef Þróttarar vinna í kvöld era þeir með 31 stig, einu færra en Víking- ur. Þróttur verður þá að treysta á að Víkingar vinni Selfoss á sunnu- daginn, eða geri jafntefli. Vinni GOLF Sváfnir setti vallarmet Stvkldshólmi. GOLFKLÚBBUR Stykkishólms hélt golfmót í Stykkishólmi laugardaginn 29. ágúst sl. Komu gestir frá Ólafsvík, Bor- garnesi, Reykjavík og Hafnar- firði. Golfklúbbur Stykkishólms star- far af miklum áhuga og krafti og hafa félagar lagt mikið að sér í vallargerð og bæta við völlinn á hveiju ári. Völlurinn se, stendur skamt frá Hóteiinu er orðin hinn skemmtilegasti. 36 kylfingar tóku þátt í mótinu sem lauk með sigri Sváfnis Hreiðarsson- ar úr Keili og setti hann vallarmet. Hótelið hér gaf öll verðlaun. Úrslit urðu annars þessi: Án forgjafar: Sváfnir Hreiðareaon GK 67 högg Sigurður Már Gestsson GB 68 högg Atli Alexandersson GJÓ 73 högg Með forgjöf: Sváfnir Hreiðarsson GK 55 nettó Atli Alexandereson GJÓ 56 nettó Gunnar Gunnarsson GJÓ 66 nettó. — Árnl Selfyssingar hins vegar hafa þeir 32 stig eins og Víkingur og þá verða það Víkingur og Selfoss sem leika í 1. deild að ári. Fari Ólfasfirðingar með sigur af hólmi í kvöld era þeir komnir í 1. deild. Þeir verða þá komnir með 32 stig eins og Víkingur en eru með hagstæðara markahlutfall. Ef Víkingur vinnur á sunnudaginn þá leika Leiftur og Víkingur í 1. deild að ári og sama gildir verði jafn- tefli. Vinni Selfoss hins vegar þá leika þeir ásamt Leiftri í 1. deild. Þá verða Víkingur, Selfoss og Leift- ur öll með 32 stig en Leiftur og Selfoss era bæði með hagstæðari markatölu en Víkingur. Skemmti- lega spennandi - ekki satt?! Verði jafntefli í kvöld verða Selfyss- ingar að vinna Víking ætli þeir sér upp. Þá verða' það Víkingur og Selfoss sem færast upp í 1. deild. Endi leikur þeirra einnig með jafn- tefli kemst Leiftur í 1. deild á hagstæðara markahlutfalli, ásamt Víkingum. ÍBÍ og ÍBV leika á ísafirði og era heimamenn þegar fallnir í 3. deild, KS og ÍR leika á Siglufírði og Ein- heiji og UBK á Vopnafírði. Níu marka munur er á Einheija og KS, þannig Vopnfirðingar era nánast fallnir þó þeir geti náð 22 stigum og það er allt annað en skemmti- legt að falla í 3. deild með svo mörg stig. HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS Lelklr u J T Mörk u J T Mörk Mörk Stig VÍKINGUR 17 6 1 1 17: 10 4 1 4 15: 14 32 : 24 32 LEIFTUR 17 7 2 0 20: 5 1 3 4 10: 16 30: 21 29 SELFOSS 17 7 0 2 19: 10 1 5 2 14: 15 33: 25 29 ÞRÓTTUR 17 5 0 3 17: 14 4 1 4 17: 15 34: 29 28 UBK 17 4 2 3 21 : 11 4 0 4 8: 10 29: 21 26 ÍR 17 4 3 2 16 : 10 3 1 4 14: 18 30: 28 25 ÍBV 17 6 3 1 22: 13 1 2 5 8: 15 30: 28 23 KS 17 4 3 1 16: 12 2 1 6 11 : 17 27: 29 22 EINHERJI 17 5 2 1 10: 9 0 2 7 9 : 21 19: 30 19 ÍBÍ 17 2 0 6 11 : 21 0 0 9 9 : 28 20: 49 6 ^ síma 1 BÓNUSIA GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA ÍSLENSKRA GETRAUNA Hér eru leikirnir! heikir 12. septcnber 1987 1 1 X 2 1 2 X| 2 1 Valur - Völsungur 2 Viðir • KR -3. KA-.ÍA 4 FH - Þór A. 5 Fram - IBK 6 liveroool -OxfordUtd — 7 Luton - Everton 8 Norwich - Derby 9 Nottingham For. - Arsenal 10 Portsmouth - Charlton 11 Sheffield Wed. - Watford 12 Wimbledon - West Ham Hringdu strax! 688-322 föstudaga kl. 9.00-17.00 laugardaga kl. 9.00-13.30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.