Morgunblaðið - 10.11.1987, Side 49
Galakvöld í Staðarskála
Ingvar Guðmundsson matreiðslumeistan og Eyjólfur Guðmundsson
frá Bálkastöðum sem stjórnaði samkomunni af mikilli röggsemi.
Morgunblaðið/Bjarni
Eigandi Gleymmérei, Sigríður Þorvaldsdóttir, til hægri, og Kolbrún
Ólafsdóttir, afgreiðsiustúlka.
Brauðstofan Gleymmérei
^ Blönduósi.
Á ANNAÐ hundrað manns komu
á kynningar- og skemmtikvöld í
Staðarskála laugardaginn 31.
október. Tilefnið var lokapunkt-
ur á kynningu á lambakjöti sem
staðið hefur yfir i Staðarskála í
Hrútafirði nú i haust.
Þeir Staðarmenn kusu að kalla
þessa skemmtun Galakvöld og þar
sem þetta var kynning á lamba-
kjöti var að sjálfsögðu fram borinn
lambakjötsréttur. Höfundur þessa
matseðils og matreiðslumeistari í
Staðarskála, Ingvar Guðmundsson,
útbjó fyrir matargesti konunglegt
lambakjötsseyði og pálmalamb með
kartöflum að hætti malarakonunn-
ar og í eftirrétt var ávaxtaterta.
Ekki bar á öðru en gestir gerðu sér
þessa rétti að góðu og varð einum
á orði að uppgangur væri í lamba-
kjötinu en niðurgangur í öðru kjöti.
í tengslum við þessa kynningu
var spumingakeppni sem matar-
gestir sem komu við í Staðarskála
dagana 25. september til 9. október
tóku þátt í. Alls tóku 1.351 þátt í
Magnús Gislason eigandi Staðar-
skála.
þessari spumingakeppni en svör
bárust frá 1.209 manns. Vinningar
í þessari keppni vom m.a. ferð til
Amsterdam sem ferðaskrifstofan
Ferðabær gaf. Sá sem ferðina
hreppti heitir Helgi Ingason og er
frá Siglufírði.
Einnig gaf hinn þjóðfrægi kjöt-
framleiðandi, Jón Jónsson frá
Skarfhóli, 30 kg af nýslátmðu
lambakjöti í vinning og sú sem kjöt-
ið hreppti var Elísabet Lilja Stefáns-
dóttir úr Reykjavík.
Þessari samkomu stjómaði Ey-
jólfur Gunnarsson frá Bálkastöðum
af mikilli röggsemi og tók ýmsa
tali og varpaði samtölunum með
þráðlausum hljóðnema til veislu-
gesta. Hvort það var tilviljun eður
ei þá kom Sverrir Hermannsson við
í Staðarskála og skemmti fólki með
léttum sögum eins og honum einum
er lagið og var gerður góður rómur
að máli hans. I lokin var stiginn
dans við undirleik hljómsveitarinnar
Upplyftingar.
— Jón Sig.
NÝ smurbrauðsstofa hefur verið
opnuð í Nóatúni 17 í Reykjavík
og nefnist hún Brauðstofan
Gleymmérei.
Forstöðukona og eigandi er
Sigríður Þorvaldsdóttir, en hún hef-
ur kynnt sér slíkan rekstur og
fengið viðurkenningu frá Idu
Davidsen, danskri smurbrauðs-
dömu.
Lögð er áhersla á fjölbreytni í
brauðvali; smurt brauð, snittur,
pinnamatur og brauðtertur. Af-
grcitt verður eftir pöntunum en^
einnig er hægt að koma á staðinn ^
og neyta veitinganna þar.
Opnunartími smurbrauðsstof-
unnar er frá kl. 10.00 til 20.00
mánudaga til laugardaga.
U HONDA
Leiðandi í hönnun og tækninýjungum.
A C C O R D
Aerodeck 1988 EXS-i
Enn einn einstakur frá HONDA.
Bjóðum þennan frábæra bíl með öllum fáanlegum
aukahlutum.
Vél: 122 hestöfl m/beinni innspýtingu (PGMFi)
Viðbragð: O-10O km./k: 8,9 sek.
ALB bremsukerfi (ANTILOCK BRAKE) tölvustýrt.
Rafdrifnar rúður - ra fdrifin sóllúga - rafstýrðir spegl-
ar - rafdrifið loftnet - útvarp/segulband, 4 hátalarar
- vökvastýri ásamt mörgu öðru.
VERÐ AÐEINS KR. 8 55.000.-
HONDA GÆÐi - HONDA KJÖR - AÐEINS 25% ÚT
H O N D A
HONDAPRELUDE
2.0ÍDOHC 16v
Bjóðum örfáa PRELUDE 2.0EXSÍ - 16várgerð 1987.
Vél: 137 hestöfl, bein innspýting (PGMFI)
Viðbragð: O-10O km/k: 7,9 sek.
Vökvastýri — rafdrifin sóllúga - rafdrifnar rúður-
rafdrifið loftnet — álfelgur — útvarp/segulband — 4
hátalarar -ALB bremsukerfi (ANTI-L OCK-BRA KE)
tölvustýrt ásamt mörgu öðru.
VERÐ AÐEINS KR. 900.000.-
HONDA GÆÐI - HONDA KJÖR - AÐEINS 25% ÚT
(H) HONDA
Honda á íslandi, Vatnagörðum 24 s. 689900.