Morgunblaðið - 22.11.1987, Qupperneq 1
3W$ripwM&M§>
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
BLAÐ
Morgunblaðið/Rax
Vel fer á meÖ tjarnarbúum
og Davíö Oddssyni
borgarstjóra.
DAVÍÐ ODDSSON SVARAR SPURNINGUM MORGUNBLAÐSINS
Ráðhús Reykjavíkur
verður að vera
í gamla miðbænum
í tilefni umræðna um byggingu
ráðhúss við Tjörnina I
Reykjavík, hefur Morgunblaðið
beðið Davfð Oddsson
borgarstjóra um að svara
nokkrum spurningum og fara
svör hans hér á eftir.
ER NAUDSYNLEQT AÐ BYQGJA
RÁÐHÚS?
ÞAÐ er metnaðarmál hverrar
borgar — ég tala ekki um höf-
uðborgar — að eiga sér ráðhús.
Fagurt hús í hjarta borgarinn-
ar, sem er eins konar andlit
borgarinnar út á við. Lítum til
frænda okkar á Norðurlönd-
um. Höfuðborgir þeirra hafa
haft reisn til að byggja fagrar
ráðhúsbyggingar, sem íbúar
þeirra líta á sem gersemi og
eru ákaflega stoltir af.
í ráðhúsi Reykvíkinga verð-
ur yfirstjóm þeirri, sem nú er
til húsa í Pósthússtræti 9 og
í leiguhúsnæði í Austurstræti
16 komið fyrir, ásamt fundar-
sölum borgarstjómar og
borgarráðs. Starfsaðstaða
þessara aðila er vægast sagt
ófullnægjandi í dag.
KOMA KAUP Á ELDRA HÚS-
NÆÐIEKKITIL QREINA?
RÁÐHÚS Reykjavíkur verður
að vera í gamla miðbænum.
Ekki verður séð, að þar sé
nokkurt það hús á lausu, sem
hentað gæti þörfum borgar-
innar, eða fullnægt þeim
kröfum um reisn ráðhússins,
sem gera verður. Ráðhúslóðin
er aðeins nokkmm tugum
metra frá þeim stað, sem
mestar líkur benda til, að Ing-
ólfur og Hallveig hafi valið
forðum. Þegar þau ein höfðu
úr landinu öllu að moða, völdu
þau með sinna guða hjálp
Reykjavík. Og innan Reykja-
víkur einmitt þennan stað.
Þetta vom smekkhjón.
SJÁ NÆSTU SÍÐU