Morgunblaðið - 22.11.1987, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
Ráðhús Reykjavíkur
verður að vera
í gamla miðbænum
Morg-unblaðið/ÓI.K.M.
Líkan af væntanlegri ráðhúsbyggingu
við Tjörnina.
HVAÐA RÖK LÁGU AÐ BAKI,
ÞEGAR ÁKVEÐIÐ VAR AÐ
FRESTA BYQQINGU RÁDHÚSS
ÁRK> 1970?
SNEMMA á árinu 1964 sam-
þykkti borg-arstjóm og bygg-
inganefnd uppdrætti að
ráðhúsi, sem staðsett var í
Tjamarkrikanum milli Iðnó og
Bárulóðarinnar. Hér var um 7
hæða byggingu að ræða og
stærð hússins tæpl. 37 þús.
rúmm., eða um 50% stærra
hús ofanjarðar en nú er fyrir-
hugað.
Síðar kom fram hugmynd
um að sameina leikhúsbygg-
ingu og ráðhús á þessum stað
í norðurenda Tjamarinnar. Við
úrvinnslu á þeirri hugmynd,
sem unnið var að allt fram á
árið 1969, stækkaði byggingin
vemlega, en í lok þess árs
samþykkti borgarráð að gera
um óákveðinn tíma hlé á undir-
búningsstörfum. Eflaust hefur
mönnum ekki hugnast að reisa
svo stóra byggingu á þessum
stað. Og það segir sína sögu,
að ekki þarf sífellt að byggja
yfír stjómsýsluna stærri og
stærri hús, að nú tæplega 20
áram síðar, þegar bæði borg-
arbúum og borgarstarfsmönn-
um hefur flölgað veralega,
vilja menn byggja helmingi
minna hús, sem bætir upp
umhverfí sitt, en lætur því
ekki blæða.
KOMA GAGNRÝNISRADDIR,
SEM NÚ HEYRAST, ÞÉR Á
ÓVART7
Á ÞAÐ verður að líta, að inn-
an borgarstjómar er ekki
samstaða um byggingu ráð-
hússins. Alþýðubandalagið,
Alþýðuflokkurinn og Kvenna-
listinn era mótfallin byggingu
ráðhússins.
Andófíð nú er tvímælalaust
að hluta til af pólitískum toga
og kemur ekki á óvart. Áróður-
inn gegn ráðhúsinu snertir
viðkvæma strengi í hjörtum
Reykvíkinga og ég skil vel, að
þeir láti sig varða umhverfí
Tjamarinnar. Þessa miklu vel-
vild reyna pólitískir andstæð-
ingar að notfæra sér. Þeir
gefa til kynna að ganga eigi
stórlega á tjamarsvæðið —
segja jafnvel í þingsálykt-
unartiliögu að þurrka eigi
Ijömina að veralegu leyti upp.
Læða inn efasemdum um, að
fuglalíf fái þrifíst. En þegar
menn fá tóm til að kynnast
tillögunni og sjá, að blekking-
um hefur verið haldið að þeim,
snúast flestir til stuðnings við
bygginguna og fagna þessum
fegurðarauka á tjamarsvæð-
inu.
SVO VIRÐIST SEM ÓTTIVIÐ AÐ
BYGGJA Á VIÐKVÆMUM STAÐ
UGGIMEÐAL ANNARS AÐ BAKI
MÓTMÆLUNUM. ERT ÞÚ
SANNFÆROUR UM, AÐ ÞARNA
SÉ RÉTT HÚS Á RÉTTUM STAÐ?
ÉG er sannfærður um að svo
sé. Ráðhúsið er ávöxtur af
samkeppni, þar sem þátt tóku
m.a. nær helmingur af starf-
andi arkitektum landsins. 38
tillögur bárast, eða fleiri en í
nokkurri annarri samkeppni,
sem haldin hefur verið. Þátt-
takan ein er vissulega vísbend-
ing um, að fagmenn hafa talið
staðinn góðan. Úrslitin vora
afdráttarlaus og ótvíræð. Ráð-
húsið verður borginni til sóma
og byggingin er svo samofín
Tjöminni, að hvoragt verður
frá hinu aðskilið. í almenningi
neðstu hæðar verður hátt til
lofts og vítt til veggja og borg-
arbúar munu þar njóta Tjam-
arinnar og ráðhúss síns á
nýjan og ferskan máta.
Húsið hefur vakið upp um-
ræðu í þekktum erlendum
tímaritum um húsagerðarlist
og hlotið mjög jákvæð um-
mæli.
ÞVÍ ER HALDIÐ FRAM, AD
FLAU8TURSLEQA SE STAÐIÐ
AÐ VERKIOG EKKIHUGSAÐ UM
AFLEIÐINQARNAR.
ÖÐRU nær. Menn hafa verið
að huga að og undirbúa ráð-
húsbyggingu þama í áratugi.
Eins og áður er sagt var
vel vandað til samkeppni um
ráðhúsbyggingu og þátttaka í
henni mikil.
Hönnun hússins og önnur
undirbúningsvinna er í fullum
gangi og sérstök verkefnis-
stjóm hefur verið skipuð til
að hafa yfíramsjón með hönn-
un og annast alla samnings-
gerð um framkvæmdir. í
samþykkt borgarstjómar um
ráðhúsbyggingu var tekið
fram, að þar sem byggingin
er staðsett á viðkvæmum stað
skuli hraða framkvæmdum
eins og frekast er kostur til
að stytta þann tíma sem allra
mest, sem byggingarfram-
kvæmdir skapa erfíðleika á
þessu homi miðbæjarins.
ER BÚK> AD SAMÞYKKJA
VÆNTANLEQA RÁÐHÚSBYGG-
INGU í ÖLLUM RÁÐUM OG
NEFNDUM BORQARINNAR?
BORGARSTJÓRN hefur sam-
þykkt ráðhúsbygginguna eins
og kunnugt er, en væntanlega
verður fyrsta kynning í bygg-
ingamefnd á næsta frindi
hennar, og er sú tímasetning
eðlileg miðað við það, hvenær
áætlað er að framkvæmdir
hefjist.
HVENÆR ERÁÆTLAÐ AÐ
HÖNNUN HÚSSINS UÚKI?
ÁÆTLAÐ er, að byggingar-
nefndarteikningar verði
endanlega fullbúnar næsta
haust, en jarðvinna getur farið
fram af fullum krafti samtímis
þessari hönnun, svo og upp-
steypa á bílageymslum, en
teikningar af þeim hluta verða
fullbúnar vorið 1988. Þetta er
í samræmi við það sem gerist
með stærri byggingar.
HAFA FRAMKVÆMDIR VERIÐ
TÍMASETTAR?
ÞEGAR hafa verið gerðar
tímaáætlanir fyrir hönnun á
öllu verkinu og allar verklegar
framkvæmdir, en meðan unnið
er að undirbúningi og hönnun
verða þessar tímaáætlanir í
sífelldri endurskoðun. Tíma-
áætlanir framkvæmda allt
næsta ár era samt þegar nokk-
uð haldbærar og fyrstu
verksamningar í undirbúningi.
ER TÍMASETNINGIN MIÐUÐ VK>
BORGARSTJÓRNARKOSNING-
AR1990?
NEI. Á hinn bóginn er eðli-
legt, að sá meirihluti sem að
byggingunni stendur, sem er
2/s hluti borgarstjómarinnar,
komi málinu í höfn, en ætli
ekki nýjum aðilum það verk.
Það er talað um mikinn bygg-
ingarhraða. Satt best að segja
sárnar mér, að hraðinn skuli
ekki geta verið meiri. Menn
byggðu Alþingishúsið á einu
ári fyrir rúmum 100 áram og
Skúli Magnússon byggði veg-
legasta hús landsins úti í Viðey
á tveimur áram. Þá var tækn-
in engin, fátækt mikil og
byggingarefni af skomum
skammti. Nútímamenn með
allri sinni tækni og sfnum góðu
efnum era ótrúlega lengi að
byggja.
HVERS VEGNA VARÐ ÞESSILÓÐ
VK> TJÖRNINA FYRIR VALINU?
KOMA EKKIÖNNUR OQ EKKI
EINS VKHCVÆM SVÆÐIFYRIR
FJÖLDA FÓLKS TIL QREINA?
T.D. í GRENND VK> HÓFÐA, í
LAUQARNESIEÐA VK> KJAR-
VALSSTAÐI?
EÐLI máls samkvæmt er að-
setur æðstu stjómar jafnan
staðsett sem næst hjarta borg-
arinnar og þar sem hún er
fegurst. í okkar tilfelli erum
við svo hamingjusöm að geta
sameinað þetta tvennt.
Tengslin við tjamarsvæðið
gefa húsinu rýmd, sem ekki
næst annars staðar f mið-
bænum án mikillar röskunar
og um leið staðsetningu í
hjarta borgarinnar, nærri þeim
stað, þar sem Ingólfur Amar-
son reisti bæ sinn fyrir rúmum
1100 árum. Niðurstaða sam-
keppninnar sýndi einnig svo