Morgunblaðið - 22.11.1987, Page 10

Morgunblaðið - 22.11.1987, Page 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987 h '+ ANDLITSLYFTING hjartasjúkdómarH Ef það hypjar sig ekki, brenna þeir ofanaf því Klukkan fimm á sunnudags- morgni í september vaknaði fólk í fátækrahverfínu Chang Shin Dong í Seoul við hvellina í táragas- sprengjunum, sem var skotið inn á heimili þess. Greip um sig mikil skelfing og flýðu mæðumar út úr húsunum með bömin sín í fanginu. Þegar út var komið hlupu þær í fangið á 200 kraftakörlum, málalið- um lögreglunnar og 500 lögreglu- mönnum. Margar kvennanna voru barðar illa og 40 hús vom jöfnuð við jörðu. Þeir, sem urðu fyrir barðinu á lögreglunni að þessu sinni, höfðu verið sérstaklega valdir úr þeim 600 Qölskyldum, sem ákafast höfðu mótmælt áætlunum stjómarinnar um „andlitslyftingu" borgarinnar og útrýmingu fátæktarhverfanna. Komið hafði verið í veg fyrir, að eiginmenn kvennanna kæmust heim til sín. Þessi aðgerð er dæmigerð fyrir mddaskap borgaryfirvalda í Seoul, en vegna Ólympíuleikanna á næsta ári vilja þau koma íbúum fátækra- hverfanna sem Iengst burt úr augsýn. Þetta gerist líka á því ári, sem Sameinuðu þjóðimar hafa helgað heimilislausu fólki. „Ég var sofandi og bömin mín hjá mér. Maðurinn minn hafði ekki komið heim vegna hótana, sem hann ha* fengið. Allt í einu var táragasspi iu skotið inn í her- bergið, en . fyrstu vissi ég ekki hvað þetta var,“ sagði ein mæðr- anna, Cho Kum Sang. „Þegar ég kom bömunum út ríkti þar alls- herjarringulreið og skelfing. Það var úrhellisrigning og lögreglumenn á hveiju strái. A þessum morgni var allt eyðilagt. Húsið okkar var brotið niður og einn vina okkar meiddist á hrygg við barsmíðamar. Við vildum þó bara fá að vera kyrr. Við vomm ekki fyrir neinum." Opinberlega gerðist að sjálfsögðu ekki neitt. í ríkisflölmiðlunum kom ekkert um þennan atburð. Afleiðing endurbyggingarstefnunnar er sú, að fátækrahverfín, sem vissulega em þröngbýl en hafa þó bæði vatn og rafmagn, em rifin í stómm stíl og í staðinn byggð háhýsi fyrir millistéttarfólkið, sem fjölgar óðum. Gífurleg útþensla borgarinnar á tíu ámm, þar búa nú rúmlega 10 millj- ónir manna, hefur einnig valdið því, að lóðaverð hefur margfaldast. Borgarbúar virðast allir vera vissir um, að einhvers staðar séu einhveijir að maka krókinn en það er erfítt að benda á þá. Hugsanlegt er að íjölskylda Chun Doo-Hwans forseta sé þar innstur koppur í búri og sumir segja, að auðsöfnunin sé svo mikil, að Ferdinand Marcos, fyrrum Filippseyjaforseti, sé hrein- asti fátæklingur í þeim samanburði. Vitað er þó, að sum fyrirtæki hafa greitt stórar upphæðir í Ólympíusjóðinn fyrir að fá lóða- samningana. Þeir, sem harðast gagnrýna „andlitslyftinguna", benda einnig á þátt embættismanna og lögregl- unnar, sem hafa augljóslega tekið höndum saman við byggingarfyrir- tækin um „að koma fólkinu burt“. • 0. ' J" * -V ' s; ; ; Bölvaldur Bretans er blóð- fitan EFTIR HEIMSÓKNINA — „Við vorum ekki fyrir neinum." Fjölskyldumar 600 í Chang Shin Dong neituðu að láta undan þótt reynt væri að koma þeim burt með hótunum, mútum og öðrum að- ferðum, til dæmis með því að loka fyrir vatn og rafmagn. Margir vissu, að þeir höfðu lagalegan rétt til að vera um kyrrt og sáu enga ástæðu til að fara. Húsnæðið, sem stjómvöld buðu í staðinn, var annað hvort of dýrt eða allt of langt í burtu frá vinnustaðnum. Yfirgangurinn gagnvart fólkinu hefur valdið því, að fólkið í fátækra- hverfunum hefur misst alla trú á yfirvöld almennt. Áður fyrr höfðu konfúsíanskar hefðir ræktað með því þolinmæði og undirgefni en nú er það farið að leita vemdar hjá hinni kristnu kirkju. Kirkjan hefur gengist fyrir stofn- un hverfasamtaka og hjálpað fólk- inu til að beijast gegn nauðungar- flutningunum og hefur það óhjákvæmilega leitt til beinna árekstra milli kirkju og ríkis. Margir Suður-Kóreumenn em búnir að fá sig fullsadda á stjóm, sem sækir vald sitt í óréttlæti, grimmd, kúgun og njósnir. Þeim er orðið sama þótt þeir séu stimpl- aðir njósnarar Norður-Kóreumanna fyrir það eitt að andmæla yfirvöld- unum og þeir trúa því, að yfirlýsing Sameinuðu þjóðanna, um að allir eigi rétt á þaki yfir höfuðið, eigi einnig við um þá. - PAUL REDFERN FILIPPSEYJAR Frétta- mönnum hótað lífláti Héraðsráð kommúnistahreyf- ingarinnar NPA á Filipps- eyjum hefur sent út aðvömn til tveggja fréttamanna, Melindu Lui, sem starfar fyrir Newsweek, og Albert Garica, sér um fréttir fyrir Reuter og hefur bækistöð í Manila. Segir þar að ráðgert sé að beita ýmsa fjölmiðlamenn refs- iaðgerðum svo og ýmsa ónefnda bandaríska embættismenn. Hátt- settur embættismaður kommúni- staflokksins í Manila sagði þó fyrir skömmu, að líklega myndu morðsveitir NPA ekki ráðast gegn erlendum fréttamönnum. Til- gangurinn með þessari viðvömn væri hins vegar sá, að leggja áherzlu á að styijaldarástand ríkti í landinu og menn þyrftu að fara varlega. Eftir að Marcosi forseta var steypt af stóli í febrúar á síðast- liðnu ári vom ritskoðarar og dauðasveitir, sem sett höfðu mark sitt á þjóðfélagið, skyndilega úr sögunni. Mikill Qörkippur hljóp þá sem vænta mátti í starfsemi fjölmiðla. Tuttugu ogþijú dagblöð EINN af mörgum — Aðgát skal höfð í nærveru byssu. hófu göngu sína og hundmð út- varpsstöðva dældu jöfnum höndum út fréttum og kviksögum til að tryggja stöðu sína á markað- inum. Þótt mikið hafi gengið á í landinu síðustu 19 mánuði hafa bæði erlendir og innlendir frétta- menn haft vinnufrið og frelsi enda er talið að prentfrelsi sé óvíða meira en á Filippseyjum. En á síðustu vikum hefur rit- skoðun verið komið á aftur og er það mikið tilfinninga- og hitamál. Á valdatímum Marcosar vom að minnsta kosti 20 blaðamenn pyndaðir og drepnir vegna skrifa sinna og allir fréttamenn sem dirfðust að ögra stjómvöldum áttu von á einhvers konar ofbeldisað- gerðum. Þessir tímar em enda síður en svo gleymdir meðal fjöl- miðlafólks á þessum slóðum. Og nú er sem sé verið að reyna að koma ritskoðun á „óvini al- þýðunnar" með ógnunum um ofbeldisaðgerðir vinstri sinna og stjóm Aquino ætlar fyrir sitt leyti að hefta skoðanafrelsi „óvina ríkisins" og beita til þess lögum sem heimila meðal annars lokun „óþjóðhollra“ útvarpsstöðva. I síðasta mánuði birtist yfirlýs- ing frá blaðamannafélagi Filipps- eyja, þar sem lýst er áhyggjum blaðamanna yfir því að þeir verði enn á ný hafðir að skotspæni jafnt í bókstaflegri merkingu sem laga- legri. Reuters-fréttastofan hefur staðfest að starfsmanni hennar hafi verið ógnað, en segir að ekki sé nein rökrétt skýring á þessum hótunum, að því er séð verði. Fréttastjóri á Filippseyjum var spurður að því hvaða áhrif hann teldi að fyrmefndar ógnanir kommúnista mundu hafa. Hann svaraði: „Þessar ógnanir em kannski langsóttar og bjóða naumast hættunni heim í bráð, en þær munu hins vegar valda því að blaðamenn hugsa sig tvi- svar um áður en þeir stinga niður penna og gagnrýna. En ef fólk vill fá góða umfjöllun í blöðum þegar til lengri tíma er litið er öllu gáfulegra að bjóða blaðamönnum upp á glas eða út að borða, heldur en að skjóta þá. - LOUISE WILLIAMS Ffyrir skömmu var haldin ráð- stefna í London, þar sem fram kom að Bretar hafa almennt mjög mikla blóðfitu. Tveir af hveijum þremur, sem komnir eru á fullorð- insár, eiga á hættu að veikjast af hjartasjúkdómi vegna þessa. Barry Lewis, prófessor við St. Thomas- sjúkrahúsið í London, sagði að fjórðungur þessara manna hefði nægilega mikið kólesterólmagn í blóði til þes að tvöfalda hættuna á því að þeir létust af hjartaáfalli eða slagi, en hjá einum af hveijum 20 væri hættan fjórföld. Þessar upplýsingar skýra hvers vegna meira er um hjartasjúkdóma í Bretlandi en í nokkru öðru vest- rænu ríki, en þar látast árlega meira en 160.000 manns af völdum hjartasjúkdóma. Hæsta dánartala af völdum hjartasjúkdóma er á Norður-ír- landi, þvínæst í Skotlandi og þá í Englandi, en Wales er í fimmta sæti. Tveir Bretar af hveijum þremur hafa blóðfitumagn, sem er yfir hættumörkum. Samt er lítið gert til þess að hvetja fólk til að fylgj- ast með blóðfítu sinni og reyna að hemja hana. Ríkisstjómin hefur efnt til herferðar gegn hjartasjúk- dómum og til hennar hefur verið varið um 120 miiljónum króna, en sú herferð virðist lítið skeyta um blóðfituna og fáir heimilislæknar bjóða fólki að taka blóðsýni. í Bandaríkjunum er blóðfítu- magnið snöggtum lægra en í Bretlandi og að sama skapi deyja hlutfallslega færri af völdum hjartasjúkdóma. Þar hafa samtök lækna hmndið af stað herferð, þar sem fólk er hvatt til þess að kynna sér hversu mikið blóðfitumagn það hefur. Dr. James Cleeman, sem starfar á vegum bandarísku heilbrigðis- þjónustunnar, hefur samræmt ýmsa þætti í þessari herferð. Hann segir: „Fólk á að biðja heimilislækna sína að kanna blóðfitumagn sitt. Ef það er of mikið er nauðsynlegt að grípa til viðeigandi ráðstafana." í langflestum tilvikum felst lækn- ingin í breyttu mataræði, svo sem í takmarkaðri neyslu mettaðrar fitu. Þeim sjúklingum, sem eru í mestri hættu, hafa þó verið gefín sérstök Iyf til að draga úr fítumagninu. Dr. Cleeman er ekki í vafa um að þessi herferð hafí borið árangur. Hann segir að hún hafí sannað „svo að ekki verður um villst“, að tengsl séu á milli blóðfitu og hjartasjúk- dóma. ANDREW VEITCH SÖLUMENN DAUÐANS Braska með hel- sprengjuna Alþjóðlegir smyglarar og sölu- menn hafa komið upp svörtum markaði með plútoníum og endur- unnið úran, sem eru undirstöðuefn- in í kjamorkusprengjur. Er þetta haft eftir sölumönnum og fyrrum leyniþjónustumönnum. í nýlegum, breskum sjónvarps- þætti var því haldið fram, að verslun með þessi kjamakljúfu efni ætti sér meðal annars stað í Miðausturlönd- um, Argenínu og Suður-Afríku og frá því skýrt, að í ágúst síðastliðn- um hefði verið gengið frá slíkum sölusamningi í Khartoum, höfuð- borg Súdans. Sjálfstætt sjónvarps- fyrirtæki, „20—20 Vision", hefur upplýst að frá 1980 hafi sex send- ingar af þessu tagi farið um Súdan. Meðal þeirra eru: — Tólf kíló af plútóníum sem suð- ur-afrískir sérfræðingar höfðu prófað og sent til íraks.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.