Morgunblaðið - 22.11.1987, Síða 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
Það var mikil stemmning í leikhúsinu Aicane í 11. hverfi í París,
þegar sýning hófst þar á Galdra Lofti eftir Jóhann Sigurjónsson
undir nafninu „Le Voeu“, Óskin, föstudagskvöldið 13. nóv. sl. Tvær
islenskar stúlkur, Ragnheiður (Raka) Ásgeirsdóttir og Sigriður Erla
Gunnarsdóttir höfðu afrekað það að koma á eigin spýtur upp sýn-
ingu á þessu leikriti, sem áformað er að sýna 18 sinnum, á hveiju
kvöldi fram i desember nema fimmtudögum. Leikhúsið er lítið, tek-
ur 60 manns í sæti á þijá vegu við sviðið. Á frumsýningu var eðlilega
mikið af íslenskum boðsgestum, þar á meðal sendiherra íslands
Haraldur Kröyer og frú Unnur Kröyer. Og í tilefni þessa viðburðar
höfðu foreldrar Sigríðar, Gunnar Bjarnason og Rósa Tómasdóttir,
komið til Parísar, svo og Oddný móðir Ragnheiðar, sem er dóttir
Ásgeirs Hjartarssonar, leiklistargagnrýnanda um árabil, en bróðir
hennar Halldór Ásgeirsson listmálari, hafði komið upp sýningu á
málverkum tengdum efni Galdra Lofts i anddyri leikhússins. Þótt
ekki hafi margir komist að á frumsýningunni utan boðsgesta, hefur
leikritið þegar fengið góða kynningu fyrirfram í „7 á Paris“, sem
tíundar það helsta sem er að gerast í Paris þessa vikuna, þar sem
efni leikritsins er rakið og þess getið á 3 stöðum. Svo það fer ekki
fram hjá þeim sem fylgjast með. En í ofgnótt alls í París er afrek út
af fyrir sig að ná til gesta, hvað þá blaða eða gagnrýnenda með
óþekkt efni.
og í galdra og uppvakningarsen-
unni. Þetta er nútímatónlist, sem
er mögnuð í flutningi.
Raunar verður meira um tónlist-
arflutning í sambandi við sýning-
amar, því 20. og 21. nóv. verður
efnt til tónleika í anddyri leikhúss-
ins. Verður Lárus þar með elektr-
ónísk verk. Á tónleikunum flytja
Guðni Fransson, klarinettleikari og
Þorsteinn Gauti Sigurðsson, píanó-
leikari íslenska nútímatónlist. Þá
mun þýðandinn Gerard Lemarquis
flytja íslensk ljóð í eigin þýðingu á
eftir sýningunni 29. nóvember. En
á sunnudögum eru síðdegissýning-
ar.
Galdra Loftur í
París 1920
Fyrir þessa uppfærslu vann Ger-
ard Lemarquis nýja franska þýð-
ingu á Galdra Lofti. En Galdra
Loftur er ekki í fyrsta sinn á sviði
í Parísarborg. 1920 var leikrit Jó-
hanns Siguijónssonar sett upp í
„Comedie des Champs Elysées“
undir nafninu „Le Desir" eða Þráin
og þá óstytt. Þýðandi var Ragna
Guldahl, sem sennilega hefur þýtt
úr dönsku eða norsku. Albert
Durec, sem lék Loft, segir í viðtali
að hann hafí lesið og orðið hrifínn
af tveimur leikritum Jóhanns Sigur-
jónssonar, Fjalla Eyvindi og Galdra
Lofti, er hann var á ferð á Norður-
löndum og varð svo hrifínn að hann
gekk í að fá það þýtt og sett upp
í einu af stærstu leikhúsum París-
ar. Gréta Prozer lék Steinunni og
Magdaleine Daniloff Dísu. Fékk
sýningin mikla umfjöllun í blöðum
Parísar. Fá leikarar góða dóma í
þeim nær tveimur tugum blaða-
dóma sem ég hefí séð, en leikritið
sjálft hefur ekki að sama skapi náð
til leikhúsgesta, hveiju sem um má
kenna. Dramatískt efni leikritsins
er þar rakið og höfundur og leikrit
vel kynnt. En kuklið og átökin við
hið óþekkta virðist ekki hafa haft
skírskotun, enda ekki eins mikil
nýjung þama sem á Norðurlöndum
og nefndur skyldleiki við Faust-
Goetes, Hamlet Sheakspears og
jafnvel Pétur Gaut Ibsens. Heim-
speki Jóhanns fellur heldur ekki svo
í kramið. En það er einmitt þetta
sem þær Ragnheiður og Sigríður
leggja, að því er virðist réttilega,
minni áherslu á nú. Jóhann Sigur-
jónsson var nýlátinn 1920 og
sýningin í París var mikil kynning
á verkum hans.
Sú staðreynd að til var frönsk
þýðing á leikritinu varð í rauninni
kveikjan að því að Galdra Loftur
kom fýrst í hugann þegar hópur
íslensks námsfólks og áhugafólks í
Frakklandi fór að hugleiða mikla
og fjölbreytta kynningu á íslenskri
menningu. En þegar til kom var
að sögn Ragnheiðar ekki leituð
uppi sú þýðing, enda var hún aldrei
gefín út. Var leiksýningin unnin upp
á nýtt og í nýju formi og þýdd sem
slík. Kvaðst Ragnheiður hafa hrifíst
af lestri leikritsins og skildi Loft
þá frekar sem mann með of stórar
hugmyndir fyrir þröngt umhverfí.
Þegar menningarkynningin dróst á
langinn, beið hún ekki boðanna.
Hún komst í samband við konu sem
í 4 ár hefur rekið Arcana-leikhúsið,
sem er það sem stundum er kallað
„kjallaraleikhús". Leikhússtjórinn
las leikritið og ákvað að veðja á
það, og ákvað 18 sýningar. Síðast-
liðið vor fór fram samlestur og í
haust hefur verið æft stíft í sex
vikur. Þetta hefur verið harðsótt
hjá leikhópnum, sem hefur orðið
að vinna alit sjálfur, smátt og stórt.
Ekki þó hjálparlaust, þær Ragn-
heiður og Sigríður leggja áherslu á
það að margir íslendingar í París
hafí komið til hjálpar og lagt fram
ómælda sjálfboðavinnu. Er þar sér-
staklega til nefnd „hægri hönd“
þeirra, Guðrún Bima Eiríksdóttir.
Einnig vildu þær þakka öllum
þeim aðilum á íslandi, sem studdu
sýninguna á einhvem hátt og þeir
voru margir, borg og ríki, fyrirtæki
og einstaklingar, sem þakkað er í
leikskrá, þar sem Einar Már Jóns-
son skrifar um Jóhann Siguijóns-
son, Gerard Lemarquis um leikritið
og listgagnrýnandinn Adelin Brut-
ara um málverk Halldórs Ásgeirs-
sonar í anddyrinu.
Undirritaður blaðamaður fór úr
borginni degi síðar og hefur ekki
haft spumir af undirtektum.
Ragnheiður Ásgeirs-
dóttir, sem lauk í fyrra
4ra ára námi í leikhús-
fræðum við Sorbonne
háskóla, hefur ekki
valið Galdra Lofti hefðbundinn bún-
ing í uppsetningunni í París. Þar
hefur öll áhersla verið lögð á sam-
skipti aðalpersónanna flögurra í
þröngu umhverfí, þar sem hver er
ofan í öðrum með ástríður sínar og
þrár. Og þarmeð fært það nær nútí-
manum, á kostnað dulmagnaða
þáttarins og heimspeki Jóhanns. í
raun hafa allir aðrir en aðalpersón-
umar — Loftur, Steinunn, Dísa og
Ólafur verið þurrkaðir út í leikgerð
Ragnheiðar. Fyrstu senumar í 1.
og 2. þætti horfnar, og þar með 8
persónur, heimilisfólkið á bænum.
Eftir stendur Loftur, sem leikinn
er af Christophe Pinon, Steinunn
leikin af Sigríði Gunnarsdóttur,
Dísa í meðforum Clarisse Lemout
og Ólafur, sem Gilles Nicolas leik-
ur. Öll frönsk nema Sigríður, sem
hefur í nokkur ár verið við nám í
leikhúsfræðum og talar fallega
frönsku. Féll eins og svo margir
íslenskir leikarar fyrir Thalíu er hún
lék í Herranótt Menntaskólans. Pin-
on hefur mjög gott útlit í hlutverk
Lofts og skilar vel þessum mikla,
magnaða texta. Sigríður leikur
Steinunni nokkuð á öðrum nótum
en ýmsir aðrir leikarar hafa gert,
af minni ofsa og skaphita, en frem-
ur sterkri sorg og gerir það sann-
færandi. Nicolas sýnir vel þennan
einlæga og svolítið búralega Ólaf.
Ekki var ég alveg í upphafi sátt
við Dísu í meðförum Clarisse Lemo-
ut, enda erfítt hlutverk í svo mikilli
nálægð við áhorfendur, en hún átti
góða spretti, einkum er á leið.
Með því að losa textann við allar
aukapersónur og svipta sviðið með
þungbúnum skýjahimni í bakgrunni
öllum aðskotahlutum, utan bóka-
hrúgu á gólfi, hefur Ragnheiður
sett þungamiðjuna á þessar fjórar
ungu manneskjur, því „ég Iegg
áherslu á æsku þeirra allra, Loftur
er ungur piltur", segir hún.
„Loftur lifir í of þröngum heimi
sem gefur ekkert svigrúm. Mig
langar til að gefa hugmynd um
þessa víðáttu og tröllauknu náttúm
Islands, þar sem fólkið varð á 19.
öld að þjappa sér saman og lifa í
svo mikilli nálægð. Þama verður á
bænum lítið samfélag, þar sem em
íjórar manneskjur, og gætu allt eins
verið 4 nútímamanneskjur sem
verða að lifa og láta í heimi sem
þrengir að þeim af einhveijum öðr-
um ástæðum. Þama er sama temað
Leikarar og hluti aðstandenda
sýningarinnar. Efri röð frá
vinstri: GUles Nicolas, Clarisse
Lernout, Sigriður Gunnarsdóttir
og Christopher Pinon. Neðri röð
f.v.: Lárus Grímsson, Guðrún
Birna Eiríksdóttir, Elva María
Káradóttir og Ragnheiður Ás-
geirsdóttir.
sem gengur á hvaða öld sem er.
Við leggjum ekki svo mikla áherslu
á þetta djöfullega í Galdra Lofti,
sem er fjær nútímanum, þótt allt
sé það þama. En Galdra Loftur er
ákaflega vel skrifaður sem leikrit,
ég varð strax hrifín af texta Jó-
hanns Siguijónssonar."
Búningana sá Sigrún Úlfars-
dóttir fatahönnuður um og em þeir
meðvitað þannig að þeir em tíma-
lausir, en viss skírskotun til
nútímans. Loftur í rauðum skóm
keyptum í búð og Dísa alhvítklædd
eins og falleg brúða. Sauma önnuð-
ust þær Elva María Káradóttir og
Tóta Jónsdóttir.
Frumsamin tónlist
Tónlistin er mikilvæg og áhrifa-
rík í þessari sýningu á Galdra Lofti
í París. En þær stöllur fengu Láms
Grímsson, tónskáld til að semja tón-
list við verkið, sem vekur hughrif
í upphafi, í lokin, undir draumórum
Lofts og Dísu á fljúgandi teppinu
FRUM-
SÝNDURÍ
ARCANE-
LEIKHÚSINU
13. NÓVEMBER
mm
o o* o