Morgunblaðið - 22.11.1987, Qupperneq 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
Æ s k u 1 ý ð s starf og frístundir unglinga á landsbyggðinni
Segnlbandið, frískir hljómsveitarstrákar á Sauðárkróki: Fjölnir Ásbjömsson, söngur. Kristinn Kristjáns-
son, bassi, Kristján Kristjánsson, trommur, Óskar Öm Óskarsson, gitar, Ambjöm Ólafsson, hljómborð,
Björgvin Reynisson, gitar.
Morgunblaðið/Bjöm Bjðmsson
Skátamir Ema Matthíasdóttir og Helga Hrönn Þorbjörasdóttir i
félagsaðstöðunni i Gúttó.
„Héma er meira að
segja (iraugag-angu r ‘ ‘
- spjallað við unglinga á Sauðárkróki
Sauðárkróki.
UNGLINGAR á Sauðárkróki hafa margt fyrir stafni þessa dagana,
þegar tóm gefst frá skólagöngu og öðrum þeim störfum sem til
falla. Fréttaritari Morgunblaðsins kom að máli við nokkra unglinga
og fékk fréttir af þvi, sem framundan er hjá þeim.
Hestamennska
í hávegxim
Júlíus Jóhannsson er nemandi f
7. bekk grunnskólans. Hann sagði
að mestan hluta ársins færu allar
sínar tómstundir í hestamennsku
og snúninga við hross. Að vísu
væru hrossin núna í hagagöngu
fram undir áramót og því gæfist í
haust góður tími til að vera í körfu-
bolta, en í janúar yrði jámað og
þá færi allur frítími í útreiðar og
tamningu. Júlfus á einn 6 vetra
hest, sem hann kvað ekki fulltaminn
ennþá en ætlunin væri að ljúka
tamningu f vor og keppa svo á hon-
um næsta sumar.
Júlfus er ekki óvanur keppni.
Hann hefur síðastliðin þrjú sumur
tekið þátt í hestariiannamótum víðs
vegar um landið og náð ágætum
árangri. Meðal annars sigraði hann
í yngri flokki unghnga á Hestamóti
Skagfirðinga á Vindheimamelum
sumarið ’86 og sfðastliðið sumar lék
hann sama leikinn í sama flokki á
Fjórðungsmóti norðlenskra hesta-
manna á Melgerðismelum.
„En nú verður þetta allt erfiðara,
þegar komið er upp í eldri flokkinn
næsta sumar,“ saði Júlíus en bætti
þvf við að krakkamir sem væru í
hestamennskunni fengju mikla að-
stoð og hvatningu frá þeim full-
orðnu og sérstaklega þegar komið
væri út í keppni. „Eg hef verið
mjög heppinn. Ég hef alltaf getað
verið með Ingimar Pálssyni og feng-
ið að keppa á hestum sem hann á,“
sagði Júlfus, en Ingimar hefur rek-
ið reiðskóla og hestaleigu á
Sauðárkróki undanfarin ár. Júlíus
sagði allof fáa krakka og unglinga
stunda hestamennsku, þó væru all-
margir sem ættu og væru með hesta
að staðaldri. „En þau ættu að vera
miklu fleiri, hestamennskan er al-
veg meiriháttar," sagði Júlfus að
lokum.
Skátar í elsta
samkomuhúsinu
Næst voru heimsóttar í „Gúttó"
þær Helga Hrönn Þorbjömsdóttir
og Ema Matthíasdóttir, en þær eru
báðar dróttskátar og Ema flokks-
foringi f Skátafélaginu Eilffsbúar.
„Héma í Gúttó er okkar aðset-
ur,“ sögðu þær Ema og Helga.
„Þetta er elsta samkomuhúsið hér
í bænum. Hér er allt eins og við
viljum hafa það. Héma er meira
að segja draugagangur."
Ekki vildu þær ræða frekar um
þennan draugagang en sögðu að
hann hressti heilmikið upp á tilver-
una.
Þetta gamla samkomuhús Góð-
templara á Sauðárkróki sem um
langan aldur var eina samkomuhús
staðarins, þjónar nú skátum. Hafa
þeir lagt mikið í að lagfæra og
bæta húsið sem var í hinni mestu
niðumíðslu, og einnig hefur bærinn
komið þar til aðstoðar.
„Þetta er að verða gott, hætt að
leka og kominn góður hiti svo að
héma emm við og héma viljum við
vera," sögðu þær stöllur. „Að vísu
vantar ýmislegt til þess að allt sé
eins og það verður best á kosið, en
það gerir ekkert til.“
Skátafélagið Eilífsbúar var
stofnað árið 1929, og núna em um
það bil 100 skátar starfandi í félag-
inu. Starfið skiptist í tvo megin-
þætti, fundi og almennt flokksstarf
yfir veturinn en útilegur og mót á
sumrin. í vetur verður eins og und-
anfarin ár unnið með léskátum, sem
em yngstu krakkamir, og unnið
að undirbúningi áfanga sem kallast
„vörður" í skátastarfinu. Ljúka þarf
ákveðnum Qölda gmnnámsverk-
efria og síðan starfsverkefria til
þess að ná „vörðunni" og þegar
flokkurinn lýkur sameiginlegum
verkefiium vinnst „flokksvarðan".
Annars sögðu þær Helga og Ema
að nú þegar væri hafinn undirbún-
ingur fyrir stórt skátamót sem
haldið verður í Koge f Danmörku
næsta sumar, en Koge er vinabær
Sauðárkróks og heldur á næsta ári
upp á 700 ára afmæli sitt. Stefnt
er að því að frá Sauðárkróki fari á
mót þetta 20—25 skátar, og hafa
þeir sem að undirbúningi standa
hafið ýmiss konar íjársöfnun til
þess að standa straum af kostnaðin-
um sem fylgir ferðalögum sem
þessum.
Frá starfínu síðastliðið sumar
sögðu þær Ema og Helga eftir-
minnilegast ágætt mót í Vagla-
skógi, svo og norrænt skátamót sem
haldið var í Setnesmoen í Ándals-
nes í Noregi þar sem hittust skátar
frá Noregi, Danmörku og íslandi.
Bæði þessi mót voru mjög
skemmtileg og til fyrirmyndar um
allt skipulag og undirbúning. Þá
var einnig ágætt foringjanámskeið
í haust að Löngumýri þar sem sam-
Júlíus Jóhannsson með hluta af
verðlaunagripum sfnum.
an komu skátar frá Blönduósi og
Sauðárkróki.
Að lokum sögðu Ema og Helga
að ekki mætti gleyma félagsmóti
Eilífsbúa, sem alltaf er haldið í
Lambárbotnum, í vesturhlíðum
Tindastóls, en það mót er alltaf vel
sótt og skemmtilegt.
Þar koma allir, allt frá yngstu
léskátunum og upp til þeirra elstu,
sem jafiivel eru hættir reglulegu
skátastarfí. „Það þarf ekki að taka
það fram að þetta er skemmtilegt,
annars væmm við ekki að þessu,"
sögðu Ema og Helga hinar hress-
ustu um leið og þær kvöddu.
Samhentir liðsmenn
í Segulbandinu
Loks var heimsótt ein af mörgum
bílskúrshljómsveitum Sauðárkróks
sem nefriist Segulbandið, og tveir
meðlimir hennar, þeir Kristinn
Kristjánsson og Björgvin Reynis-
son, teknir tali.
Þeir Björgvin og Kristinn sögðu
nánast allan sólarhringinn ásetinn
og nóg að gera. Þeir em báðir starf-
andi f Ungmennafélaginu Tindastól
og léku með 4. flokki í knattspymu
síðastliðið sumar. Að vísu sögðu
þeir að íslandsmótið hefði mátt
ganga betur en þeir hefðu fengið
nýjan þjálfara f sumar, Þórarin
Thorlacius, sem væri hreint frábær
þannig að þetta væri allt á uppleið
fyrir næsta sumar.
En núna er það körfuboltinn sem
tekinn er við og framundan miklar
æfingar, og síðan íslandsmót í 4.
flokki síðar í vetur. Því næst barst
talið að Segulbandinu en þessi
hljómsveit hefur starfað nú um
nokkurra mánaða skeið og manna-
breytingar verið litlar að sögn
þeirra félaga, enda hópurinn sam-
hentur og leggur gjörva hönd á
ýmislegt annað en að spila á hljóð-
færi. Til dæmis stofnuðu þeir
félagamir kvikmyndafyrirtækið
Króksfilm sem ráðist hefur í all-
mörg verkefni. Festu þeir þemaviku
skólans á filmu vorið '86 og einnig
gerðu þeir heimildamynd um Sauð-
árkrók, en sú mynd hefur ekki enn
verið sýnd utan 8. beklq'ar og á ef
til vill ekkert erindi lengra, að
minnsta kosti enn sem komið er,
sögðu þeir Kristinn og Björgvin.
Nýjasta verkefnið er að vinna að
og taka upp enskukennsluþátt sem
unninn er með samþykki ensku-
kennara bekkjarins.
Auk svo tímafrekra hljómsveitar-
æfinga stundar Kristinn útreiðar
og hestamennsku, og segist hafa
gert fjölmargar tilraunir til að
kenna Björgvin að meta þetta göf-
uga sport með því að teyma undir
honum langtímum saman, en þetta
hafí ekki orðið til annars en að
kenna Björgvin notkun ístaða, enda
hafí hann aldrei dottið af baki svo
vitað sé. Með það voru þeir félagar
þotnir og teknir til við tónlistina.
Ýmislegt annað starf
Ýmislegt fleira er á döfinni til
tómstundaiðkunar fyrir ungt fólk á
Sauðárkróki. Hjálmar Jónsson upp-
lýsti að unglingastarf á vegum
kirkjunnar, sem hófst í október,
byggðist að mestu á fermingarböm-
um svo og góðum kjama úr 8. og
9. bekk grunnskólans sem alltaf
tekur virkan þátt í kirkju- og safn-
aðarstarfi. Æskulýðsfundir verða
vikulega þar sem skiptist á fræðsla
og skemmtun. Þá verður fræðslu-
mót haldið að Löngumýri í septem-
ber en það mót er sérstaklega ætlað
fermingarbömum. Sú nýlunda
verður í vetur í unglingastarfi kirkj-
unnar að fenginn hefur verið
sérstakur umsjónarmaður með
starfinu og er það Bryndís Símonar-
dóttir.
Fjöldi unglinga og fullorðinna
eyðir sínum tómstundum við tónlist-
amám og em nú um það bil 160
nemendur í Tónlistarskóla Sauðár-
króks að sögn Evu Snæbjamardótt-
ur, skólastjóra. Kennt er á flest
hljóðfæri og í tengslum við skólann
em starfræktar bæði blásara- og
strengjasveitir. Sagði Eva að marg-
ir nemendur leggðu mikla vinnu í
þetta tómstundastarf sitt.
Páll Ragnarsson er formaður
Ungmennafélagsins Tindastóls sem
26. október varð 80 ára og í tilefni
þessara tímamóta ákveðið að þetta
ár yrði ár yngri flokka og unglinga-
starfs. Þannig var í sumar haldið
pollamót í knattspymu, þar sem
hópar frá Borgamesi, Ólafsfírði,
Dalvík og Siglufirði kepptu við
heimamenn. Þá vom einnig fjöl-
menn mót í fijárlsum íþróttum og
sundi. Síðar í vetur em svo fyrir-
huguð stór mót í körfubolta fyrir
yngri flokkana.
Páll sagði að í UMF Tindastóli
væm nú um það bil 500 virkir félag-
ar og þróttmikil starfsemi í öllum
deildum.
Af framansögðu er ljóst að nóg
er við að vera hjá unglingum á
Sauðárkróki þrátt fyrir að dag
stytti nú óðum og fyrsta norðan-
áhlaupið hafí gengið yfir fyrir
nokkm með fönn og ófærð.
- BB
Neskaupstaður:
115 unglingar
stunda blakið
Mikil skíðamennska seinni hluta vetrar
Neskaupstað.
TÖLUVERT æskulýðsstarf fer fram hér á vetuma og er það
að miklu leyti á vegum íþróttafélagsins Þróttar þó önnur félög
svo og bæjarfélagið séu einnig með slíkt starf. A vegum Þrótt-
ar er aðallega um að ræða íþróttir og ber þar blakið hæst en
um 115 manns, aðallega unglingar, stunda það yfir vetrartí-
mann. Skíðaíþróttin er svo og mikið stunduð seinnipart vetrar.
Innanhússknattspyrna og handknattleikur era líka á dagskrá
vetrarstarfsins hjá félaginu.
Skátar halda hér uppi starfsemi
svo sem námskeiðahaldi og funda
öðm hvom. Einnig efndu þeir til
bíóferðar á Eskifjörð fyrir skömmu
þar sem ekkert kvikmyndahús er
starfrækt hér sem stendur.
Innan Gerpis, björgunarsveitar
Slysavamafélagsins, starfar ung-
liðasveit, starf hennar er aðallega
fólgið í ferðalögum bæði á sjó og
landi sem ætlaðar em sem æfínga-
ferðir en verða þá um leið
skemmtiferðir. í Félagsmiðstöð-
inni sem rekin er af bæjarfélaginu
og opin er fjögur kvöld í viku er
allfjölbreytt starfsemi og má þar
nefiia diskótek, myndbandasýn-
ingar, leikinn er borðtennis, spilað
á allskonar spil, hlustað á tónlist
og ýmislegt fleira. Félagsmiðstöð-
in er sæmilega sótt.