Morgunblaðið - 22.11.1987, Page 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
Æskulýðsstarf og frístundir unglinga á landsby g g ð i n n i
Morgunblaðið/Ragnhildur Jónasdóttir
Stúlkumar að koma af dansæfingu, Halldóra er önnur frá hægri á myndinni.
„Löbbiim um bæinn eða
Benedikt Páll Jónsson orgelleikari Bíldudalshljómsveitarinnar Flipp.
siljum inni á hóteli“
- segir Halldóra Skúladóttir á Bíldudal
Bfldudai
Á BÍLDUDAL em viðfangsefni unglinga misjöfn eftir árstíma. Á
sumrin era allir í vinnu, flestir í fiski og sumir í unglingavinnunni
eða við bamapössun. í frístundum er margt hægt að gera, stunda
íþróttir og útivist og auðveldlega hægt að komast til næstu kaupt-
úna. Á vetuma horfir öðmvísi við. Þá er oft ófært vegna snjóa og
ekki hægt að komast milli staða nema með flugi. 'Sólin hverfur í 3
mánuði og skammdegið verður þyngra en ella. Þess vegna er aug-
\jóst hve mikilvægt er að unglingamir á Bíldudal hafi nóg við að vera
i fristundum sínum á veturaa.
Fréttaritari Morgunblaðsins á
Bfldudal leit við uppi í skóla dag
einn í vetrarbyijun. Þar voru nokkr-
ar stelpur í 7. og 8. bekk að byija
að æfa dans og tók fréttaritari eina
þeirra tali, Halldóru Skúladóttur.
Hvað gerir þú i tómstundum
þínum?
„Eftir skólann fer ég og læri,
síðan hitti ég krakkana oftast niðri
í bæ og á kvöldin hittumst við aft-
ur, löbbum um bæinn eða sitjum
inni á hóteli og spjöllum. Oft erum
við líka inni hjá einhveiju okkar að
horfa á video eða eitthvað svoleið-
is.“
Er eitthvert skipulegt tóm-
stundastarf fyrir ykkur ungling-
ana hér á Bildudai?
„Já, annan hvem föstudag skipt-
ast á videokvöld, diskótek eða
skemmtikvöld hér í skólanum og
höfum við til dæmis haft furðufata-
ball og náttfataball. í fyrravetur
var hér opin félagsmiðstöð á vegum
æskulýðsnefndar á hveiju fímmtu-
dagskvöldi. Þá var spilað og við
vorum í ýmsum boltaleikjum og
höfðum spumingakeppni og fleira.
Þetta verður aftur í vetur og
kannski eitthvað meira. Svo héldum
við sameiginleg böll með unglingum
frá Patreksfírði, Tálknafírði, Barða-
strönd og Örlygshöfn. Böllin vom
haldin til skiptis á stöðunum og var
farið á milli í rútu og það var æðis-
lega gaman.“
Er eitthvað nýtt sem þið ætlið
að gera í vetur?
„Já, við emm héma nokkrar
stelpur byijaðar með danshóp og
ætlum að æfa í vetur og kannski
sýna á árshátíðinni og jafnvel fá
danskennara til að koma og æfa
okkur svolítið. í skólanum er svo
nýbúið að stofna kór og svo verður
líka taflkennsla í vetur."
Benedikt Páll Jónsson er í 8.
bekk Bfldudalsskóla. Fréttaritari
Morgunblaðsins hitti hann líka uppi
í skóla þennan dag.
Hvað geturðu sagt mér um
hljómsveitina ykkar?
„Það byijaði nú fyrir 2 ámm að
við nokkrir félagar í skólanum
stofnuðum hljómsveit. Við kunnum
lítið og áttum lítið af græjum svo
þetta gekk ekkert vel í byijun. En
þó spiluðum við á árshátíð skólans
í fyrra. En í sumar stofnuðum við
hljómsveitina Flipp og það gekk
bara mjög vel.“
Hvað geturðu sagt okkur
meira um hljómsveitina Flipp?
„Ifyrst spiluðum við á 17. júní-
hátíðahöldunum hér á Bfldudal. Það
var alveg rosalega gaman. Svo datt
okkur í hug að fara í hljómsveitar-
keppni og drifum okkur á Skeljavík
’87 um verslunarmannahelgina
síðustu."
Hvemig gekk það?
„Við lentum í 2. sæti í keppninni
í Skeljavík og þar var rosaleg
stemmning, margir Bflddælingar á
staðnum sem hvöttu okkur. Svo
héldum við líka tónleika í samkomu-
húsinu hér.“
Svo framtíðin er björt?
„Nei, ekki í vetur. Ég er einn
eftir hér á Bfldudal, hinir fóru burt
í skóla. Hér er bara hægt að vera
upp í 8. bekk en við höldum áfram
á fiillu næsta sumar. Þá koma þeir
aftur. Ég æfí mig að spila á hljóm-
borðið í vetur og kannsi reyni ég
að semja eitthvað."
- RJ
Við sem vinnum verkin
Bækur
Sigurður Haukur Guðjónsson
Texti: Anne Civardi.
Myndir: Stephen Cartwright.
Þýðing: Bjami Fr. Karlsson.
Prentverk unnið f Englandi.
Útgefandi: Forlagið.
Sú var tíð, að böm fylgdu foreldr-
um sínum til vinnu, lærðu af þeim
handtök úr reynslusjóði kynslóð-
anna. Umhverfí sitt þekktu þau líka
betur, vissu hvað Pétur eða Páll
voru að bjástra við, fengu að sjá,
þreifa á og læra. Sérhæfing nútím-
ans leyfir þetta ekki lengur. Böm
kunna jafnvel engin skil á störfum
foreldra sinna, milli bams og vinnu
er reistur múr, því hærri og meiri
sem þéttbýlið kringum bamið er.
Úr þessu er myndabókinni ætlað
að bæta.
Sviðið er Borghólmur og okkur
er boðið inn til 15 fyrirtækja, fáum
að kynnast amstri og önn fólksins
þar. Texti er stuttur, en hnitmiðað-
ur, studdur bráðsnjöllum myndum,
því ætti bókin að vera spurulu bami
kærkomið umræðuefni í fangi
pabba eða mömmu, afa eða ömmu,
eða þá við kennara í skólastofu.
Það telst bókinni líka til gildis, að
mjmdskýringar eru með skrifletri,
frábærlega vel gerðu, æfir því böm
í lestri bæði prentaðs og skrifaðs
máls.
Þýðing gerir ekki kröfu til mik-
illa átaka, en er mjög vel unnin,
og ekki get ég annað en dáðst að
nafngiftum þeirra er bókin segir
frá, þær vöktu mér margsinnis hlát-
ur. Líknveig Spítalín er læknir,
Logi Reykdal slökkviliðsstjóri og
Fluggeir Loftsson er flugstjóri, svo
að dæmi séu nefnd. Lítið kann ég
í brauðgerð, en kann samt illa við
að hleifar og bollur lyfti sér, vildi
heldur sjá deig hefa sig, veit þó að
orðin þýða hið sama og man vel
eftir lyftidufti f búri konunnar. Próf-
örk er ekki nógu vel lesin, villur
em á síðum 17, 18 og 28, auk þess
að ekki er gætt samræmis í ritun
happdrættis á síðu 37. Ég get held-
ur aldrei fellt mig við skiptingu
orða milli lína hjá blessuðum tölvun-
um, allra sízt í bamabók, gróð-
ursetur (9) stingur illa í augu. En
þetta er líka undantekning í bók-
inni, sem betur fer.
PTentverk vel unnið.
Hafí Forlagið þökk fyrir góða bók
handa ungum, spurulum bömum.
Fjörið verður
á skimini!
Við hjá Sjónvarpinu ætlum að sjá til þess að brúnin lyftist á landsmönnum
í vetur - tveir nýir þættir eru nú farnir af stað:
Skemmtiþættir Hemma Gunn annan hvern miðvikudag, spjallþættir þar
sem Hemmi fer á kostum og tekur á móti gestum með tilheyrandi
skemmtiatriðum.
Ómar Ragnarsson fer víðs vegar um landið í nýjum spurningaþætti, Hvað
heldurðu! Þessir þættir eru alia sunnudaga og þar keppa fulltrúar hinna
ýmsu byggðarlagá.
Semsagt: skemmtun á landsvísu, fyrir alla aldurshópa.