Morgunblaðið - 22.11.1987, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
B 17
Hið íslenska bók-
menntafélag minnist
200 ára afmælis Rasks
Aðalfundur og kaffísamsæti
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Signrður Líndal prófessor er forseti Hins íslenska bókmenntafé-
lags.
Tvö hundruð ár eru
liðin frá fæðingu
Rasmusar Kristjáns
Rasks sunnudaginn 22.
nóvember og minnist
Hið íslenska
bókmenntaf élag þessara
tímamóta með sérstakri
samkomu á Hótel Borg
í Reykjavík á
afmælisdaginn.
Jaf nframt fer þá fram
aðalfundur félagsins. En
hvers vegna er verið að
minnast Rasks með
þessum hætti? Því
svarar Sigurður Líndal
prófessor en hann er
forseti Hins íslenska
bókmenntafélags:
„Það er vegna þess að Rask
var meðal helstu forgöngumanna
um að vekja íslendinga til bar-
áttu fyrir viðreisn íslenskrar
tungu þegar hann dvaldist hér á
árunum 1813 til 1815, en þá var
málfar manna farið að spillast
vegna ðhóflegra áhrifa frá
dönsku. Hann sá flestum öðrum
betur að nú yrði að snúast til
vamar. Rask var einstakur mað-
ur,“ heldur Sigurður áfram.
„Þegar í menntaskóla byijar
hann að læra íslensku, að mestu
af lestri bóka á eigin spýtur.
Hann býr um leið til málfræðina,
athugar beygingamar og mótar
þannig málfræði- og beygingar-
kerfí. íslenskan verður honum
síðan lykill að frekari rannsókn-
um á indóevrópskum málum en
Rask var afburðamaður á sviði
tungumála og gerði margar
merkar uppgötvanir í saman-
burðarmálfræði."
*
Islenskan að
líða undir lok
„Þegar Rask kom til íslands
árið 1813 virtist honum fleiri
tala dönsku en íslensku í
Reykjavík. Hann áleit að íslensk-
an hlyti að líða undir lok ef
ekkert yrði að gert. Látið hafði
hér verið gefíð út af lesefni á
íslensku og í Reykjavfk gætti
yfírþyrmandi danskra áhrifa.
Þetta átti hins vegar ekki við
um sveitimar. Rask var annt um
íslenskuna og hvatti menn til að
snúast til vamar.
Þijú atriði má nefna sérstak-
lega sem verða til þess að snúa
þessari þróun við og em þau öll
Rask að þakka: Hann opnar
augu manna fyrir því að
Reykjavík eigi að vera íslensk
höfuðborg. Hann vekur menn til
vitundar um viðreisn tungunnar
og hefur forgöngu um að stofna
Hið íslenska bókmenntafélag. í
þriðja lagi ýtir hann undir fræði-
á Hótel Borg
störf meðal íslendinga á íslandi."
Hvemig tóku menn hvatn-
ingu hans?
„Þeim var yfírleitt vel tekið.
Rask átti marga vini meðal
íslenskra ráðamanna og þeir
beittu áhrifum sínum. Allt þetta
verður til þess að viðhorfsbreyt-
ing verður meðal forystumanna
í landinu. Mestu meinsemdina
taldi Rask vera þá að varla væri
til sú menntagrein sem menn
gætu kynnt sér af íslenskum
bókum og því væri vænlegast til
viðnáms að stofna til samtaka
um útgáfu bóka á íslensku um
öll helstu fræði og vísindi. Fyrir
þessu beitti hann sér á árunum
1814-1815 og þegar hann yfírg-
af ísland í ágústmánuði 1815
hafði hann gengið frá stofnun
félags á íslandi í þessu skyni sem
hlaut nafnið Hið íslenska bók-
menntafélag.
Snemma árs 1816 var annað
félag stofnað á lofti Þrenningar-
kirkju í Kaupmannahöfn sem bar
sama nafn og þessi tvö félög
síðan sameinuð í eitt í ágústmán-
uði 1816 og telst Bókmenntafé-
lagið þá formlega stofnað. Það
starfaði í tveimur deildum, í
Reykjavík og Höfn. Ákveðið var
strax að Reykjavíkurdeildin yrði
aðaldeild félagsins en deildin í
Höfn var síðan lögð niður árið
1911 og eignir hennar fluttar til
Reykjavíkur.
Félagið varð strax baráttu-
tæki til varðveislu tungunnar og
þama tókst að opna glugga til
umheimsins með fréttaflutningi
í ritum þess, efla sögulegt sjáif-
straust þjóðarinnar með útgáfu
sagnarita og almenna upplýs-
ingu með öðrum fræðiritum.
Þessu starfí hefur félagið haldið
áfram óslitið frá upphafí. Stofn-
un þess markar tímamót í
þrennum skilningi: Gagngera
viðhorfsbreytingu til íslenskrar
tungu og bókmennta síðari alda,
eins og fyrr er vikið að, til allrar
fræðaiðkunar og menntalífs í
landinu sjálfu og til Reykjavíkur
sem íslensks höfuðstaðar og mið-
stöðvar vísinda og fræða."
Kaffisamsæti
Sem fyrr segir verður efnt til
afmælisfagnaðar á sunnudaginn
á Hótel Borg. Þangað er boðið
öllum félagsmönnum og gestum
þeirra; böm eru einnig velkomin.
Hafa þegar verið send út boð-
skort til félagsmanna og stendur
húsið opið meðan rúm leyfír.
Boðið verður upp á kaffi og
meðlæti, Sigurður flytur stutt
ávarp um Rask og sýnd verða
ýmis gögn sem tengjast stofnun
Hins íslenska bókmenntafélags,
m.a. bréf Rasks, ritað eigin
hendi, þar sem hann boðar til
stofnunar þess. Þetta kaffisam-
sæti stendur milli kl. 15 og 17
en kl. 14 verður haldinn aðal-
fundur félagsins.
Én hvemig er þá staðan í
dag - þurfum við ekki annan
Rask tU að minna okkur á að
gæta tungunnar?
„Jú, og ég tel að það sem
gerðist á árunum 1813 til 1815
þegar Rask dvaldist á íslandi
hafí sérstaka skírskotun til okkar
nú. Aðstaðan er að ýmsu leyti
áþekk, jafnvel háskalegri. Fjöl-
miðlunartækninni fleygir fram
með öllum sínum áhrifum.
Kannski stöndum við þó betur
að vígi nú til að bregðast rétt
við. Mikil rækt hefur verið lögð
við íslenska tungu allt frá stofri-
un Bókmenntafélagsins og
margir hafa þar unnið þarft verk.
Það er þess vegna sérstök
ástæða til að riíja þetta upp nú
- íslendingar voru andvaradausir
þegar Rask kom hingað og ég
held að nú sé ekki minni ástæða
til að ýta duglega við þeim,“
sagði Sigurður Líndal að lokum.
O
xy
SJONVARPIÐ
-Pinn miðill eign okknrallm