Morgunblaðið - 22.11.1987, Qupperneq 26
26 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
Nýjungar í heyrnarhjálp:
Rafeindaeyru og „skyn-
ugur“ heyrnarbúnaður
Dr. Simon Parisier og Geneen Parker.
SKÖMMU eftir að George og
Greta Parker komu með eins
árs gamla dóttur sína, Geneen,
heim af spítalanum, þar sem
hún hafði verið til meðferðar
vegna heilahimnubólgu, tóku
þau eftir, að hún sýndi engin
viðbrögð við röddum þeirra eða
neinum öðrum hljóðum. Heila-
himmibólgan hafði valdið
skemmdum á innra eyra henn-
ar og gersamlega eyðilagt
heyrnina.
En íjölskyldan, sem býr í New
Jersey, er þakklát fýrir, hvemig
úr rættist. í ágústmánuði síðast-
liðnum varð Geneen, sem nú er
tveggja og hálfs árs, yngsti sjúkl-
ingur, sem fengið hefur „rafeinda-
eyra“. Fór aðgerðin fram á
Manhattan Eye, Ear and Throat-
spítalanum. Læknamir biðu í sex
vikur með að prófa búnaðinn, sem
þeir höfðu komið fyrir í innra
eyra Geneen litlu, til þess að hún
fengi tækifæri til að jafna sig
eftir aðgerðina. Fyrir fimm vikum
rann stóra stundin upp. Tækni-
maður, sem tengdi búnaðinn,
sagði: „Ba, ba ba“, og Geneen
endurtók þetta nákvæmlega at-
kvæði fyrir atkvæði. Þó að hún
þurfi að fá áralanga þjálfun til
að rafeindaeyrað komi henni að
fullum notum, þá er hún þegar
farin að babla heilmikið og fylgist
miklu betur en fyrir aðgerðina
með því, sem er að gerast í kring-
um hana.
Fýrmefndur búnaður, sem
læknar hafa kallað „cochlear im-
plant" (orðrétt: kuðungsá-
græðslu), stendur forvemm sínum
langtum framar, og ásamt betri
hjálpartækjum á sviði rafeinda-
búnaðar vekur hann vonir um, að
umtalsverðar breytingar séu að
verða á meðferð heymarlausra.
Má í því sambandi nefna hjálpar-
tæki, sem sama og ekkert ber á,
og ör-rafrásabúnað, sem dregur
úr aukahljóðum.
Þörfín fyrir þessi tæki er út-
breidd. Talið er, að u.þ.b. 21
milljón Bandaríkjamanna, þar á
meðal Ronald Reagan forseti, eigi
við heyrnardeyfu að stríða, og
nærri tvær milljónir hafa verulega
skerta heym eða em algerlega
heymarlausir. Er áætlað, að árið
2000 muni um 9,8 milljónir þeirra
35 milljóna manna, sem þá verða
komnir yfír sextugt, þurfa á ein-
hvers konar heymartækjum að
halda.
Um 10% heymarskertra hafa
svokallað „leiðsluheymartap".
Stafar það af spmnginni hljóm-
himnu eða skaða á beinunum í
miðeyranu. Hvort tveggja veldur
því, að hljóð berst ekki á fullnægj-
andi hátt frá umheiminum til
kuðungsins í innra eyranu. Hin
90% (að jafnaði eldra fólk) eiga
við svokallað „taugaheymartap"
að stríða, en það á rætur að rekja
til erfða eða skemmda í kuðungn-
um eða heymartauginni, sem
flytur hljóðmerkin til heilans. Or-
sakir skemmdanna em venjulega
hávaði eða einfaldlega elli.
Oft getur skurðaðgerð hjálpað
fólki með leiðsluheymartap — og
em beinin í miðeyranum þá lag-
færð. Margir heymarskertir (bæði
af leiðsluheymartapi og tauga-
heymartapi) geta haft gagn af
venjulegum heymartækjum, sem
magna hljóðburðinn til eyrans.
Smækkun tækjanna, þ. á m.
magnara, hljóðnema og hátalara,
hefur gert að verkum, að mögu-
legt hefur reynst að koma þeim
fyrir í eymagöngunum á lítt áber-
andi hátt.
Sumir þeirra, sem orðið hafa
fyrir leiðsluheymartapi, em með
varanlega ígerð í eymm; aðrir
hafa gengist undir itrekaðar
skurðaðgerðir eða em fæddir án
heymarganga. Hingað til hafa
einu bjargráð þessa fólks verið
fyrirferðarmikil heymartæki, sem
þiýst hefur verið að stikilsbeininu
með spöng eða komið fyrir í sér-
stökum gleraugnaspöngum. Þessi
tæki nema hljóðöldur og flytja
þær framhjá miðeyranu til kuð-
ungsins. Vonir standa nú til þess,
að nýtt tæki, sem komið er fyrir
með skurðaðgerð, leysi hin eldri
af hólmi. Það heitir Xomed og
hlaut nýlega samþykki Banda-
ríska matvæla- og lyfjaeftirlitsins.
Sérfræðingurinn hefst handa
með klukkustundarlangri aðgerð
á sjúklingnum á göngudeild, þar
sem hann festir lítinn en öflugan
segul á gagnaugabeinið. Eftir að
skurðurinn er gróinn fær sjúkling-
urinn lítinn hljóðgjörva, sem
segull heldur í skorðum utan á
innbyggða seglinum. Hljóðgjör-
vinn nemur hljóð og sendir bylgjur
gegnum húðina til innra eyrans.
Nilsa Yerkovich, 37 ára gömul
kona, sem býr í Chicago, stillti
sjónvarpið venjulega svo hátt, að
nágrannamir vom hræddir um,
að bömin hennar yrðu fyrir heym-
arskemmdum. Eftir að hún fékk
Xomed.getur hún horft á sjón-
varpið í svefnherberginu án þess
að tmfla svefnró eiginmanns síns.
„Skynug" heymartæki er það
sem koma skal. Fyrirtækið Siem-
ens-heymartæki í Piscataway í
New Jersey kynnti nýlega fjar-
stýringu á stærð við bankakort.
Gerir hún notandanum kleift að
stilla hljóðið í heymartæki sínu
og útiloka sum bakgmnnshljóð.
Framtíðarheymartækið verður
með innbyggðum hljóðgjörva og
sér sjálft um hljóðblöndun og still-
ingu.
Fullkomnasti búnaðurinn nú
um stundir er samt sá, sem nefnd-
ur var hér í upphafí, „cochlear
implant“-rafeindaeyrað — handa
þeim, sem em algjörlega heymar-
lausir. Frá því að fyrsta cochlear-
plant-aðgerðin fór fram árið 1970,
hefur næmleiki tækjanna vaxið
stöðugt. Eitt alfullkomnasta raf-
eindaeyrað, sem heitir Nucleus
Mini 22 og er framleitt í Ástralíu,
samanstendur af klasa af örs-
máum rafskautum. Er hvert
rafskaut sérhannað til að bera
ákveðna hluta hljóðsviðsins.
Hljóðgæðunum er stjómað af
hljóðgjörva, sem gengur fyrir litl-
um rafhlöðum og hægt er að hafa
í belti eða axlaól. A tækinu er
sérstakur stillir, sem gerir kleift
að draga niður í bakgmnnsháv-
aða.
Fyrstu árgerðir þessara tækja
vom umdeild, vegna þess að þau
gátu aðeins framleitt frumstæð
brakhljóð, og sumir sérfræðingar
höfðu áhyggjur af því, að það
gæti haft skaðvænleg áhrif á kuð-
unginn og heymartaugina að
verða fyrir stöðugu áreiti frá raf-
magni. Sumir notendur segja, að
jafnvel nýjustu tækin gefí frá sér
hljóð, sem einna helst líkist búk-
hljóðum Andrésar andar. Sam-
kvæmt rannsóknum getur um
helmingur notenda Nucleus Mini
22 skilið kunnuglegar raddir og
ráðið við einföld samtöl í síma
eftir að hafa hlotið þjálfun. Böm-
um gengur betur en fullorðnum
að laga sig að notkun innbyggðu
rafeindaeymanna, að sögn dr.
Simon Parisier, sem starfar á
Manhattan Eye, Ear and Throat-
spítalanum. Fyrir bam er vel
heppnuð aðgerð af þessu tagi
„næstum eins og endurfæðing,"
segir hann.
(Þýtt úr Newsweek)
IHIjóönemi
nemur hljóð
og sendir það til
talgjörva, sem
viðkomandi
hefurívasanum
HI|ó8nr|Í
ii) '
Sendir
Móttökugjörvi
JJltf Heyrnartaug
2Talgjörvinn
breytir hljóðinu1
í stafræn tákn og
síðansérsendirum
aðflytjaþaðtil
móttökugjörva,
sem komið hefur
verið fyririnnan
húðarábakvið
eyrað.
Talgjörvi
3Móttökugjörvinn
breytir stafrænu
táknunum í rafboð.
Rafboðin berast eftir 22
örgrönnum leiðslum og
verkaátaugaendana
íinnraeyranu.
4Taugaendarnir
koma af stað bylgju-
hreygingu, sem heilinn
skynjarsemhljóð.
Nýjasta
rafeindaeyrað
UÓ|oð^SSAR
Bókauppboð
verður haldið sunnudaginn 29. nóvember kl. 17.00
í Templarahöllinni, Eiríksgötu 5. Klausturhólar,
sími 19250.
<r
STÓR
| Volvosalnum Skeifunni.
ídag kl.14.00