Morgunblaðið - 22.11.1987, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
B 33
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
SporÖdrekinn
Ég ætla í dag að fjalla lítillega
um nokkur atriði sem varða
Sporðdrekann (23. okt,—23.
nóv.). Þegar við tölum um
„merkið" okkar þá erum við
fyrst og fremst að tala um
Sólina, eða lífsorkuna, grunn-
eðlið og viljann. Aðrir þættir,
eins og tilfinningar og hugsun
ákvarðast síðan af öðrum plá-
netum i merkjunum. Þegar ég
hef áður skrifað um Sporðdre-
kann hef ég gjaman sagt að
hann þurfi að dvelja í tilfínn-
ingalegu lifandi umhverfí til
að viðhalda lífsorku sinni og
sfðan að hann þurfí annað
slagið að draga sig í hlé til að
endumýja orku sína. Það sem
átt er við þegar talað er um
tilfínningalega lifandi um-
hverfí eru aðstæður sem gefa
kost á nánu tilfínningalegu
samstarfi við annað fólk.
Sporðdrekinn getur ekki unnið
í líflausu og dauðu stálum-
hverfí og hann getur ekki
dvalið við yfirborðslegt skvald-
ur.
Einbeiting
Ég hef einnig tekið eftir þriðja
atriðinu sem skiptir máli. Það
er að drekinn þarf að geta ein-
beitt sér óskipur að einu
ákveðnu starfí eða sérsviði.
Hann á ekki auðvelt með að
fara úr einu í annað og fást
við of fjölbreytileg málefni.
Umhverfí sem er án truflana
og gefur kost á einbeitni er
því mikilvægt fyrir Sporðdre-
kann.
Dulur
Eins og flestir vita er gjaman
sagt að Sporðdrekinn sé dult
merki. Það sem skiptir máli f
þessu sambandi er að gera sér
grein fyrir því að Sporðdrekinn
þarf ekki alltaf að vera dulur
í hegðun eða framkomu. Einn-
ig er til í dæminu að hegðun
hans sé opin, en viðfangfsefnin
falli undir það sem telst vera
dularfullt eða órætt í mann-
legu eðli.
Dularfull
viðfangsefni
Sporðdrekinn á til að vera op-
inn í hegðun þegar Sólin er f
fyrsta húsi eða á Miðhimni eða
þegar Ljón eða Bogmaður em
einnig sterk í korti hans. Þeg-
ar slíkt gerist má fullt eins
búast við þvf að Sporðdrekinn
fari að segja þér frá kynlífi
sínu, eða hann fari að róta upp
f skuggahliðum mannlífsins.
Hið leynda er opinberað.
Rannsóknar-
blaÖamennska
Hin svokallaða rannsóknar-
blaðamennska fellur t.d. undir
Sporðdrekann eða Plútó. Þeg-
ar taka á á kýlum þjóðfélagsins
er Sporðdrekinn oftar en ekki
skammt undan. Við verðum
því að gæta þess að láta útlit-
ið eða ytri hegðun ekki blekkja
okkur (Sporðdreka-Plútó-leg
setning). Hið dulda birtist
nefnilega ýmist f ytri hegðun,
eða sem ekki er sfður algengt,
f áhugamálum, sem Sporð-
drekinn er ekki alltaf að sýna
óinnvfgðum.
Sterkt merki
Við megum aldrei gleyma því
að Sporðdrekinn er eitt af
þessum sterku merkjum. Það
eru því til persónuleikar í drek-
anum sem eru alls ekkert
hlédrægir f framkomu, heldur
þvert á móti, krefjandi, ráðrfk-
ir og stundum magnaðir.
Sporðdrekinn er valdamerki.
Stjóm hans byggist hins vegar
oftar en ekki á þvf, að hann
sér veikleika fólks og spilar á
þá. Hið opna getur því snúið
fram en bakvið stjómar sjónin
á hinn hulda og sálræna vem-
leika.
GARPUR
AIP/& FYRST OG .
ALD/R SÍÐAST. FRA
GRÍ4SKAI.L AKASTALAÁ
KALLA ÉG--/MVA/DI&
HLlD T/L FORTÍ0AR-
/NNAR, HEFí
l'þESSUM SAl!
ÞEGAR kAE> B/RTJST lASRÐUR pO
AÐ FARA UM t*e> ÞEGAR i STAÐ,
ELíA VERÐOR Þöfdötrapur UM
E!L IfP ÍFORTÍÐINNI!,
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
UOSKA
FERDINAND
- , \ J .... [ 17
( -Ní Vs. \
Im. H». u. s r., O*—Al ...... 'ji.
S3 Hts St U..,» ... [«, "\
* „
bMAFOLK
IN FEBRUARV OUR
M0RNIN6 5TAR5 ARE |
MERCURV, VENU5
ANP 5ATURN.
í febrúar eru morgun-
stjömur okkar Merkúr,
Venus og Satúmus_____
Ertu viss?
Ég hélt að ég væri morg-
unstjarnan þín ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Pimm af liðsmönnum banda.-
rísku sveitarinnar sem sigraði á
heimsmeistaramótinu á Jamaika
í haust eru þeir sömu og unnu
mótið fyrir tveimur árum í Sao
Paulo í Brasilfu. Þeir eru Chip
Martel, Lew Stansby, Hugh
Ross, Bob Wolff og Bob Ham-
man. Sjötti liðsmaðurinn nú,
Mike Lawrence, var tekinn inn
í sveitina vegna veikinda spilafé-
laga Ross, Peters Penders.
Lawrence hefur skrifað margar
vinsælar bækur um brids, og
heimsmeistaratitillinn nú var
ekki sá fyrsti í safni hans. I
spili dagsins heldur Lawrence
um stjómvölinn í sex spöðum:
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ G93
V 864
♦ ÁD
+ G10985
2 Austur
D9 ♦ 865
KG9864f K107
K642 ♦ 10752
♦ D73
Suður
♦ ÁKD1074
V ÁG532
♦ 3
♦ Á
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass Pass 1 spaði
3 tíglar 3 spaðar 5 tíglar 6 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur spilaði út smáum tígli
og félagi Lawrence í norður
baðst afsökunnar á því að ctyrk-
ur hans væri mestur í lrt
móthetjanna. Víst hefði það ver-
ið betra að flytja tíguldrottning-
una yfir í hjarta, en þá hefði
spilið líklega aldrei verið skráð
á bók.
Lawrence átti auðvitað lcost á
því að spila austur upp á hjarta-
hjónin, en hann sá aðra leið, sem
hann taldi vænlegri til árangurs.
Hann svinaði tíguldrottningunni
í fyrsta slag — sem var lítil
áhætta eftir sagnir — tók svo
tígulás og henti laufásnum í
heima!! Rúllaði svo laufgosanum
yfir á kóng vesturs. Innkomur
blinds á spaða notaði Lawrence
síðan til að trompsvína fyrir
laufdrottninguna og taka
frislagina á lauf.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
f keppni landsliða Suður-
Ameríku og Kúbu í haust kom
þessi staða upp 1 skák Abarca,
Chile, sem hafði hvftt og átti leik,
og Santa Cruz, Paraguay.
~m—~öu,—rm.—"ts
m,
■ wm \..
igg wm, A wm m
36. Bxc5! - dxc5, 37. Dg6+ -
Kh8, 38. Bf5 - De7
og svartur gafst upp um leið, þar
sem hvftur leikur auðvitað 39. d6!
Kúbumenn sigruðu örugglega á
mótinu sem haldið var í Arg-
entínu. Þeir tryggðu sér þar með
sæti f næstu heimsmeistarakeppni
landsliða sem fram fer f Luzem
árið 1989. Sú keppni var fyrst
haldin 1985. Það stóð til að halda
hana annaðhvert ár á móti
Ólympluskákmótunum og sam-
kvæmt þvf hefðu íslendingar átt
sæti í keppninni í ár. Sú ákvörðun
var hins vegar tekin að hafa
keppnina á fjögurra ára fresti, svo
til að fá sæti á meðal þeirra 10
þjóða sem fá að taka þátt í henni
verður íslenska sveitin á næsta
Ólympíumóti í Grikklandi 1988
að ná einu af sex efstu sætunum.