Morgunblaðið - 05.01.1988, Page 17

Morgunblaðið - 05.01.1988, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANUAR 1988 17 Musica nova Tónlist Jón Ásgeirsson Nýi músíkhópurinn stóð fyrir tónleikum í Norræna húsinu 3. janúar á vegum Musica nova og flutti tónverk eftir Hauk Tómas- n, Atla Heimi Sveinsson, Stockhausen og Berio. Frumflutt voru tvö verk eftir Hauk Tómas- son, fyrst einleiksverk fyrir lág- fiðlu er höfundurinn nefnir Birting. Þrátt fyrir að skólabragur sé á þessari lágfiðlustúdíu er hún ágætlega gerð og var feikna vel leikin af Asdísi Valdimarsdóttur. Seinna verk Hauks var Octett og þar var tónmálið í stærra formi og í heild er hér um að ræða feikna vel gert tónverk, tónsmíð þar sem heyra má samfelldan og sterkt ofinn tónvefnað er var ágætlega fluttur undir stjóm Guð- mundar Óla Gunnarssonar. Gamalt verk frá „experimen- tal“ tímabilinu eftir Atla Heimi Sveinsson var þriðja íslenska verkið og ber það nafnið „Toget- her with you“. Þetta er áheyrilega hljómandi en ekki margslungið verk, sem var ágætlega flutt. Erlendu verkin voru Tierkreis eft- ir Stockhausen, lítilfjörlegt tónfikt og Sequenza eftir Berio, einleiks- verk fyrir saxófón, þar sem nokkuð reyndi á tækni einleikar- ans. Sigurður Flosason lék verkið feikna vel en ásamt honum stóðu að þessum tónleikum Kolbeinn Bjamason, Guðni Franzson, Sig- urður Halldórsson, Haukur Tómasson, Emil Friðfinnsson, Snorri Sigfús Bjrgisson, Pétur Grétarsson. auk Ásdísar Valdim- arsdóttur sem fyrr var getið. Þetta vom í heild mjög skemmtilegir tónleikar og hús- fyllir var, sem ætti að vera þeim umhugsunarefni er halda því fram að enginn vilji hlusta á nútímatón- list. Næstu tónleikar Musica nova verða á sunnudaginn kemur (10. janúar) og þá koma fram tónlist- armennimir Þóra Johansen og Martin van der Valk. Síðustu tónleikar ársins 1987 Síðustu tónleikar ársins vom samnorrænir því þar komu fram sænskur píanóleikari og íslensk- ur kontrabassaleikari, er báðir hafa stundað nám í Finnlandi með frábæram árangri. Mona Sandström hóf tónleikana með prelúdíu og fúgu í F-dúr (I. hefti) eftir J.S. Bach. Leikur hennar var hæglátur og yfirveg- aður. Annað verkið var píanósónat- an frá 1924 eftir Stravinsky, þar sem meistarinn er að fást við barokkvinnubrögð og margt því bæði hvað snertir form og tón- skipan í raun tilvitnanir í gamla meistara. Þessa sónötu fmm- flutti Stravinsky á ISCM-hátíð í Feneyjum árið 1925. Margt var sérlega vel leikið hjá Monu Sandström, einkum þó síðasti kaflinn, sem er lífleg „inventi- on“. Síðasta einleiksverkið sem Mona Sandström lék var Etude Tableau op. 39 nr. 9, eftir Rakh- manínov. Þar sýndi Sandström að hún er þegar orðin sleipur píanóleikari. Seinni hluti tónleikanna var einleikur á bassa en Valur Páls- son hefur, eins og Mona Sands- tröm, nýlega lokið námi frá Síbelíusar-akademíunni í Hels- inki. Valur hóf tónleikana á einleiksverki fyrir bassa eftir Zbinden. Þetta verk er einskonar tækniæfíng þar sem dregið er eitt og annað saman af ýmsu þvi sem hægt er að gera á bassa. Valur er snjall bassaleikari og flutti verkið af miklum glæsileik. Annað verkið er sellóverk eftir Beethoven, tilbrigði yfir Makkabeus-stef Hándels. Þama reynir oftar meira á leiktækni píánóleikarans sem Sandström leysti mjög vel af hendi. Síðasta verkið var konsert- þáttur eftir bassasnillinginn Bottesini. Í þvi verki reynir held- ur betur á tækni bassaleikarans þó tóngildmr Bottesinis hljómi eins og sjálfsagður hlutur. Þama mátti heyra að Valur er feikna efiiilegur tónlistarmaður. Hann hyggur nú á framhaldsnám hjá frægum bassasnillingum og þá í raun er ekki hægt að spá neinu öðra en því, að von er þama á frábæmm einleikara. Fyrstu tónleikar ársins Strengjasveitin í Reykjavík (Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík) vakti feikna mikla at- hygli hér um árið, fyrir ágætan leik, undir stjóm Marks Reedman, bæði heima og erlendis og nú á sunnudaginn var, 3. janúar, kom þessi sveit saman í Bústaðakirkju og flutti tónlist eftir Hándel, Bach, Elgar, Albinoni og Britten. Þeir flestir sem skipuðu þessa hljóm- sveit hafa nú um árabil stundað nám erlehdis en notuðu jólaleyfið til að rifja upp gamlar samstarfs- stundir undir stjóm Mark Reedman. Það var sannarlega fallegur hljómur í sveitinni og víst að með svona mannskap væri hægt að bjóða upp á feikna vandaða tón- leika, ef tök væm á að æfa meira en nú var gert. Þeir sem leiddu hljómsveitina og léku einleik vom Auður Hafsteinsdóttir í Conserto grosso nr. 1 úr ópus 6, Sigurlaug Eðvaldsdóttir í Serenöðu eftir Elg- ar, Sigrún Eðvaldsdóttir í íjórða Brandenburgarkonsertinum eftir Bach, Gréta Gunnarsdóttir í Adagio eftir Albinoni. Með þeim léku Bryndís Páls- dóttir, Ólöf Þorvarðardóttir, Ágústa Jónsdóttir, Martin Freyw- er, Bryndís Björgvinsdóttir, Ömólfur Kristjánsson, Hávarður Tryggvason, Ánna Magnúsdótt- ir.Ulrik Ólason og i Branden burgarkonsertinum bættust Áshildur Haraldsdóttir og Bem- ard Wilkinson í hópinn. Víða brá fyrir feikna fallegum leik bæði hjá einleikuram og í. samspili allra en tónleikunum lauk með Simple Symphoni eftir Britt- en. Auk ágæts leiks má nefna að Mark Reedman tekst oft að laða fram sterka tilfinningatúlkun. Þannig gat að heyra meira en fallegan leik eins og t.d.í Elgar- serenöðunni, Adagio eftir Albin- oni og í Saraböndunni eftir Britten. Það fer vel á að unga fólkið hefji starfið á árinu og ef svo heldur fram sem horfír þarf ekki að kvíða neinu um íslenska tónlist. KVIKNA MARMARA- STYTTURNAR TIL LÍFS? Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Jón Egill Bergþórsson: KVÍÐ- BOGI. Ljóð. Tunglið. Bókafélag 1987. í fyrsta ljóði Kvíðboga sem nefiiist nýr dagur segist Jón Egill Bergþórsson vænta þess alltaf að eiga „langþráð en afskaplega óljós stefnumót". Þau em nokkuð óljós stefnumótin í Kvíðboga og maður freistast til þess að nefna orð eins og firringu þegar yrkisefni Jóns Egils em skoðuð. í fyrstu ljóðunum er „leit mín að þér“ og einnig leiðin „burt frá þér“ á dagskrá. Ljóðin spegla ferð, ferðir. Það er í þeim hreyfing, maður og hugsun hans láta ekki staðar numið. Víða er vikið að holdlegum sársauka. í leit bráðna augun og leka niður kinnamar þegar horft er í sólina. í ángist brenna augu innan frá „kalt og svíðandi". Landslag ljóðanna er þurrt, eyðandi og oftast Qandsam- legt: stend við hafið og horfi á skipið sigla burt hvít sól á himni þrengir kraumandi hita gegnum klæði mín ég lit framandi fjöll en minnist þó engra mér nálkomnari skipið horfið ekki lengur viss hvort það var eða geng inní þetta sóllogandi þorp með óskýra lifshljóma í eyrum lykugur baðaður svita þreyttur sólin fallandi risandi myrkur og svo hér inni einn í rökkrinu greini ég þetta ömurlega neðarlega í hallanum visnað tré. Þetta ljóð kallar höfundurinn tré. í anda firringarinnar, aðgerð- arleysisins yrkir höfundurinn um sjálfan sig með þeim hætti að hann virðist stundum áhorfandi sjálfs sín. Ljóðið stefnulaust er dæmigert fyrir þetta. Þar er höf- undurinn fyrst og fremst þolandi eins og línan „rís á fætur og reika stefnulaust um undir alheimi" er til vitnis um. Þegar það gerist á ströndinni sem er umhverfi ljóðs- ins að sá sem reikar einbeitir sér loks að skordýri í sandinum sér hann einnig „risastóran mána nýr- isinn/ úr sæ og ekki betur en í gulri/ kringlunni hálfbogna/ skuggamynd mína“. Þetta ljóð og fleiri tjá þá reynslu að uppgötva sjálfan sig sem hluta af umhverf- inu, kannski ekki sérstaklega lifandi, en að minnsta kosti skuggamynd. Kvíðbogi hefur þann kost að vera samstæð bók og miðla ákveð- inni reynslu. Með orð er farið sparlega líkt og þau séu dýr. Ljóð- in em nokkuð kaldhömmð í byggingu sinni, en það að höfund- urinn beitir sig aga (að vísu með misjöfnum árangri) lofar góðu. í hauskúpubrot er sagt að marm- arastyttumar séu óðum að kvikna til lífs. Við skulum vona að þær öðlist meira líf í ljóðum Jóns Egils Bergþórssonar. -r— VETRARONN Innritun nýrra nemenda hefst í dag og verður daglega fram á laugardag kl. 14.00-18.00 í Bolholti 6, símar 68-74-80 og 68-75-80. prá Js1 000 Kennslugreinar: ★ Barna-og samkvæmisdansar ★ Stepp ★ Jazzballett-Jazzdans ★ Hinn vinsæli Jazzleikskóli Þú f innur örugglega eitt- hvað við þitt hæfi. ns e BOLHOLTI6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.