Morgunblaðið - 05.01.1988, Síða 35

Morgunblaðið - 05.01.1988, Síða 35
4 35 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988 Sjúkrahús Suðurlands, fyrri áfangi. Sjúkrahús Suðurlands: fratnreiknað á miðju ári 1987 og er það 103,48% af kostnaðaráætl- un. Eignaraðild að sjúkrahúsinu skiptist þannig að hlutur ríkisins er 84,9%, Selfosslæknishéraðs 1,51%, Vestur Skaftafellssýslu 0,35%, Rangárvallasýslu 2,44%, Árnessýslu 5,18% og Selfoss 5,62%. Fýrirhugað er að auka mjög sérfræðiþjónustu sjúkrahússins. Ráðinn verður annar skurðlæknir, kvensjúkdómalæknir fenginn til starfa og þjónusta annarra sér- fræðinga aukin. Þá er fyrirhugað að koma á dagvistun fyrir aldraða við Ljósheima og í athugun er að stofna sjúkrahótel. Bent hefur verið á að nauðsynlegt sé að hraða uppbyggingu sjúkrahússins þar sem nú eru aðeins 66 sjúkrarúm tiltæk fyrir 14 þúsund íbúa. Við afhendingkrathöfnina í sjúkrahúsinu söng kirkjukór Sel- foskirkju og ávörp voru flutt. í lok athafnarinnar var gestum boðið til kaffidrykkju og að skoða húsið Sig. Jóns. Fyrri áfangi form- lega afhentur Undirbúningur annars áfanga hafinn Selfossi. FYRRI áfangi Sjúkrahúss Suð- urlands var formlega afhentur 29. desember, eftir að hafa verið 20 ár í byggingu. Húsið er 3.027 fermetrar alls með 35 sjúkrarúm ásamt stoðdeildum. I tengslum við sjúkrahúsið er rekin öldrunardeild, Ljósheim- ar, við Austurveg. Heilsugæslu- stöð er einnig í sjúkrahúsinu. Undirbúningur er nú hafinn að öðrum áfanga sjúkrahússins og verður hann ívið stærri en hú- sið sem fyrir er. Framkvæmdadeild Innkaupa- stofnunar ríkisins afhenti bygg- inguna formlega við hátíðlega athöfn í sjúkrahúsinu. Lögð var fram undirrituð skýrsla eða skila- mat þar sem einstakir liðir framkvæmdanna eru tilgreindir og kostnaður. Heildarkostnaður byggingar- innar er 226,6 milljónir króna Hafsteinn Þorvaldsson fram- kvæmdastjóri sjúkrahússins býður gesti velkomna. Berserkir í Stykkishólmi: Námskeið í notk- un f lotbúninga Morgunblaðið/Arni Helgason Skipshöfn Þórsness I og leiðbeinandinn, Heimir Kristinsson, við æfingar í notkun flotbúninga. Snorri Ágústsson formaður Berserkja. Evrópumót ungl- inga í skák: Þröstur endaði í 19-22. sæti ÞRÖSTUR Þórhallsson tapaði síðustu skák sinni á Evrópumóti unglinga og endaði í 19.-22. sæti með 6 vinninga. Sovétmaðurinn Boris Gelfand varð Evrópumeist- ari, fékk IIV2 vinning í 13. skákum. ’ Þröstur tapaði fyrir Frakkanum Jean René Koch í síðustu umferð meðan Gelfand tryggði sér titilinn með jafntefli við Gedanski frá Póll- andi. Evrópumeistari síðasta árs, Vassilij Ivantsjuk, varð í 2. sæti með 11 vinninga en næstur kom Hollendingurinn Joris Brennink- meijer með 8V2 vinning. Þröstur tefldi frekar illa á mót- inu, og að sögn aðstoðarmanns hans, Þráins Viggússonar, gætti talsverðar þreytu í taflmennsku Þrastar. Það er ef til vill ekki að undra þar sem Þröstur telfdi 110 kappskákir á árinu 1987. Félag háskóla- menntaðra hjúkr- unarfræðinga: Breyting- um á óbein- um sköttum mótmælt STJÓRN Félags hákólamennt- aðra hjúkrunarfræðinga hefur mótmælt breytingum á óbeinum sköttum vegna þeirra breytinga á vöruverði sem fylgja í kjölfar- ið. í ályktun stjómarinnar segir meðal annars: „Kostnaður við heil- brigðisþjónustu er einn stærsti útgjaldaliður ríkisins. Forvarnir, sem stuðla að heilbrigði þjóðarinn- ar, er árangursríkasta leiðin til að lækka þennan kostnað. Alþekkt er að mataræði hefur bein áhrif á heilbrigði fólks. Ákvörðun ríkis- stjórnarinnar, sem meðal annars felur í sér hækkun á brauði, fiski, nýju grænmeti og nýjum ávöxtum brýtur í bága við íslenska heilbrigð- isáætlun, sem lögð var fram á 109. löggjafarþingi 1986-87. Í þeirri áætlun segir meðal annars: „Það á að ýta með ýmsu móti undir neyslu kommetis, fisks, kjöts sem er mag- urt, kartaflna og grænmetis". Má ætla að umrædd ákvörðun ríkis- stjómarinnar verði síst til að ýta undir neyslu þessara fæðuteg- unda“. Húsavík. ÁRSLOKIN og upphaf hins nýja árs voru eins friðsæl og best verður á kosið sagði lögreglan á Húsavík. Það er að verða hefð að bæjarstjórn Húsavíkur bjóði bæjarbúum til dansleiks á nýárs- nótt og án tillits til þess hvort þeir hafi gert full skil greiðslu bæjargjalda á liðnu ári en alls innheimtumst 91,15% bæjar- gjalda á árinu sem er 3% lakara Stykkishólmi. A VEGUM Slysavarnasveit- arinnar Berserkja voru keyptir flotbúningar í alla báta hér í Stykkishólmi, 220 búningar samtals, og eru menn mjög án- ægðir með þessa framkvæmd og vissir um að framtakið eigi eftir að skila góðum árangri og borga sig í framtíðinni. Á vegum sveitarinnar hefur verið í gangi námskeið fyrir sjómenn í notkun þessara flotbúninga, bæði í verklegum og bóklegum efnum. en innheimta árið áður. Veður var ekki sem best á gaml- árskvöld, norðaustan átt og élja- gangur, en samt logaði glatt í áramótabrennu Kiwanismanna og þrátt fyrir mikil jólainnkaup skutu Húsvíkingar á loft flugeldum fyrir samtals 700 þúsund krónur þó sum- um hafi verið skotið út í hríðarsnær- inginn og sést illa. — Fréttaritari Slysavarnasveitin Berserkir í Stykkishólmi hefur starfað hér í 13 ár og meðlimir sveitarinnar ávallt verið virkir í starfi. Fyrir nokkru eignaðist sveitin miðstöð til að hafa þar alla starfsemi sína. Ýmsir hafa orðið til að styrkja sveitina og hefur hún notið velvild- ar bæjarbúa og fyrirtækja, auk þess sem Stykkishólmsbær hefur sýnt sveitinni velvilja. Heimir Kristinsson félagi Ber- serkja hefur verið leiðbeinandi á námskeiðinu. Heimir hefur kynnt sér þessi mál vel og var ánægður með hversu námskeiðið tókst vel. Fréttaritari ræddi við Snorra Ágústsson formann félagsins sem skýrði honum frá starfi sveitarinn- ar og kvað hann mikið hafa áunnist í björgunarmálum hér. Þeir hafa alltaf verið til taks þeg- ar leitað hefur verið að fólki og eins ef annarrar aðstoðar hefur verið þörf. Sigþór Hallfreðsson hefur verið virkur félagi og sagði að nú þegar hefðu 9 skipshafnir sótt nám- skeiðið og þessu yrðu haldið áfram því fleiri væru bókaðar. Þeir félag- ar sögðu að mikið væri lagt upp úr æfingum í notkun gúmmíbáta og væri það ásamt öðrum leið- beiningum innifalið í námskeiðinu. Það hefði sem komið er tekist í alla staði vel og væru þeir sem að því stæðu og nytu á einu máli um að þetta hefði verið þörf fram- kvæmd. Þessi námskeið hafa verið fyrir skipshafnir stærri bátanna hér, en með vorinu sögðu þeir að skipshafnir smærri báta yrðu þjálfaðir um leið og bátarnir væru sjósettir. — Árni Húsavík: Flugeldum fyrir 700 þúsund krón- ur skotið á loft

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.