Morgunblaðið - 05.01.1988, Síða 45

Morgunblaðið - 05.01.1988, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988 „íslenzku gestim- ir eru jákvæðir og fróðleiksfúsir“ Spjallað við gríska ferðamála- frömuðinn Basil Nakos FERÐIR til Grikklands hafa lengi haft mikið aðdráttarafl fyrir íslendinga og þótt þangað hafi aldrei orðið þvílíkur fjöldaflaumur og til Spánar, er líklega óhœtt að segja, að þeir gestir sem leita þangað fari ekki sízt þeirra erinda að kynna sér gamla og nýja menningu Grikklands, skoða sögustaði og kynnast mannlífi, í flestu ólikt okkar. Undanfarin ár hefur Farandi efnt til sérstakra menningarreisa til Grikklands í bytjun júní. Nokkrum dögum fyrir jól var hér Basil Nakos frá KM-ferðaskrifstofunni í Aþenu, en sú forðaskrifstofa hefur annazt móttöku og fyrir- greiðslu þegar til Grikklands er komið. Basil Nakos sagði, að ferðin á næsta vori yrði með svipuðu sniði og hinar fyrri, enda augljóst, að sú áætlun hefði fengið góðar und- irtektir. Farið er um sögustaði og út á eyjar þrjár. Einnig er ferð yfir til Kusadasi í Tyrklandi og þaðan til Efesus. Basil Nakos sagði að það væri sér persónulega mikil ánægja, hversu vel hefði tekizt til í þessum ferðum. Islenzku gestimir væru jákvæðir og fróðleiksfúsir, af- slappaðir og kátir og auðfundið væri að flestir hefðu lesið sér tölu- vert til fyrir ferðina. Margt væri óneitanlega, sem kæmi gestum á óvart. Kannski mannlífið þó mest og fjölbreytni þess. Og svo hversu eyjalífið væri gerólíkt því sem gerðist upp á meginlandinu. Hann sagði, að ferðamanna- fjöldi til Grikklands í fyrra hefði verið um sjö milljónir. Fyrir nokkrum ámm dró úr komum ferðamanna, vegna þess að upp komu sögusagnir um að Hellen- ikon flugvöllurinn við Aþenu væri ekki ömggur og skæmliðar og Basil Nakos Ljósmynd Mbl. Júllus hryðjuverkamenn ættu greiða leið þar í gegn. Nú hefði allt verið endurskipulagt og flugvöllurinn þætti einhver sá traustasti í þess- um heimshluta. Ekki sakaði heldur að benda á að Olympic Airways þætti með ömggari flug- félögum og óhappatíðni mjög lág. „Mér hefur fallið ákaflega vel við íslendinga frá því ég hóf að hafa samskipti við þá,“ sagði Nakos. „Eg hef sagt það áður og get endurtekið það að mér finnst margt líkt með Grikkjum og ís- lendingum, þótt það liggi kannski ekki í augum uppi strax. Við hjá minni ferðaskrifstofu höfum lagt metnap okkar í að taka vel á móti íslendingunum og munum gera það áfram. Þeir em góðir og þekkilegir gestir. Brosmildir og hlýir. Ekki veit ég hvaðan þið hafið þá hugmynd um ykkur, sem ég sé stundum setta fram, að ís- lendingar séu lokaðir og heldur kuldalegir." j.k. Frá höfmnni í Stykkishólmi. Morgunbladið/Ámi Helgason Friðsæl jól í Stykkihólmi Stykkishólmi. JÓLIN hér i Iiólminum voru afar friðsæl eins og ætíð áður. Jóla- messur með hefðbundnum hætti. Á aðfangadag í kirkjunni okkar þar sem sóknarpresturinn, Gísli Kolbeins, þjónaði og okkar ágæti kirkjukór, undir stjóm Jóhönnu Guðmundsdóttur, hafði með söng að gera. Þá var miðnæturmessa í kaþólsku kirkjunni. Þar þjónar séra Jan Habets. Ekki er fréttaritara kunnugt um nokkur óhöpp eða slys, svo er ham- ingjunni fyrir að þakka. Og eins mun vera í nágrenninu. Allt mjög hátíðlegt og gott. Leikfélagið Grímnir hafði tvær sýningar á Jámhausnum um jólin við góðar undirtektir. Fólk heimsótti hvert annað eins og vanalega og enginn fór framhjá blessaðri hátíðinni. Eins og víðar voru jólin fremur rauð, en það bætti að sjá snjóinn í fjöllunum og kring og setti það sína stemmningu á allt. Hjá Hvítasunnumönnum var einnig jólasamkoma, svo það var mikið af andans efni og kristilegu um þessi jól. Aldrei minnist fréttaritari þess að hafi verið eins mikið um skreyt- ingar í bænum eins og um þessi jól og kirkjugarðurinn var eitt ljóshaf, dýrlegt að horfa þar yfir. — Árni 45. Kennsla hefst á fimmtudaginn 7. janúar. Nemendur mæti á sömu tímum og og áður. Innritun nýrra nem- enda og allar upplýsingar í síma 611459. LETT Royal Academy ofDancing BALLETTSKÓLI Guðbjargar Björgvins íþróttahúsinu Seltjarnarnesi. ~1 Félag ísl. listdansara. januar | Brtu byrjandi? Brtu i góðu formi? Þarftu að fara i megru Viltu fjör, púl og svita? Viltu rólegaSrtima?" ~ JSB er l'**> 1. KERFImm......... , , — LÍKAMSRÆKT OG MEGRUN Fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum. FRAMHALDSFLÖKKAR Lokaöir flokkar. Þýngri timar. Aöeins fyrir vanar. [ ROLEGIR TIMAR Fyrir eldri konur, eða þær sem þurfa að fara varlega. 4. KERFI MEGRUNARFLOKKAR Fjórum sinnum í viku fyrir þær sem þurfa og vilja míssa aukakílóin. KERFI FYRIR UNGAR OG HRESSAR Teygju - þrek - Jazz. Eldfjörugir tímar með léttri Jazz sveiflu. ttmLBgruríöllum ssyiíit ávallt ífararbroddi Morgun-, dag- og kvöldtímar Suðurverí, sími 83750 Hraunbergi, sími 79988 A

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.