Morgunblaðið - 05.01.1988, Side 46

Morgunblaðið - 05.01.1988, Side 46
46 MORGUNBLABIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988 + Ofbeldi Kvikmyndir Sæbjöm Valdimarsson Stjörnubíó: Ishtar ★ ★,/2 Leikstjóm og handrit: Elaine May. Kvikmyndataka: Vittorio Storaro. Búningar: Anthony Pow- ell. Aðalleikendur: Dustin Hoffman, Warren Beatty, Isabelle Adjani, Jack Weston, Charles Grodin, Carol Kane Bandarísk. Columbia 1987. Ca. 108 min. Saga Ishtar er áþekk Heaven’s Gate en hvergi nærri jafn kunn og útblásin. Það er ekki óeðlilegt að maður beri þessa kvikmyndalegu dínósára saman sem hvor um sig kostaði uppundir 200 milljónir og verður samanburðurinn tæpast Ish- tar í hag. Heaven’s Gate bar þó með sér á yfirborðinu að hafa kostað morð flár en eftir sýningu Ishtar klórar maður sér einfaJdlega í kollin- um og spyr, hvert fóru öll þessi auðæfi, (sem hefðu léttilega fram- fleytt 100 — eitthundrað íslenskum myndum!)? Þeir Beatty og Hoffman leika gjörsamlega hæfileikalausa söngv- ara og lagasmiði sem eru svo ægilega lélegir að fólk verður beinlínis hrætt við þá! Enda liggur leið þeirra fyrr en varir til arabarík- is í N-Afríku í leit að áheyrendum. Þegar þangað er komið flækjast þeir félagar upp fyrir höfuð í margsnúið njósnamál, þar sem KGB og CLA bítast um þá. Því fengum við ekki að fylgjast með baráttu skussanna tveggja á þriðja flokks skemmtistöðum New York-borgar til loka myndarinnar í stað þess að flækjast í gjörsamlega misheppnað ferðalag til Afríku? Því Ishtar er ágæt skemmtun meðan aularnir halda sig í Norður-Ameríku. Afríkuplottið er að miklu leyti mis- lukkaður farsi í anda „screwball"- gamanmynda fyrri ára, uppákomu- fyndnismynda þar sem atburðarásin gerðist svo snúin að allt lenti í einum tjúkandi hrærigraut. En hér botnar því miður enginn neitt í neinu. Be- atty er að auki kolómögulegur í hlutverki sem er á skjön við þau sem hann hefur áður leikið. Hofftnan er aftur á móti mun betri gamanleikari og þegar myndin fer útí hreinan lát- bragðsleik, einsog er hann gerist túlkur hjá vopnasölunum, á hann fljúgandi góða kafla. Grodin er einn- ig góður, sem oftast áður. Maðurinn er einn flinkasti gamanleikarí Bandaríkjanna, fasið og tímasetn- ingin með afbrigðum góð. Adjani er sæt. Tónlistin hans Paul Williams, sem semur alla aulasöngvana, er einn besti hluti myndarinnar, en Elaine May skaðar hana mest. Það er engu líkara en álíka sé komið fyrir henni sem handritshöfundi og leikstjóra og kameldýrinu í mynd- inni, sem er blint á báðum. Ishtar er best lýst með frægu orði úr tungu hennar eigin kynþáttar, „schlock". PRENTBORÐAR: VERULEG VERÐLÆKKUN Á ÖLLUM PRENTBORÐUM OG BLEKDUFTI I HP LASER PRENTARA TÖLVUMÖPPUR . KR. 199,- BRÉFABINDI. . . . KR. 149,- ÓDÝR TÖLVUPAPPÍR, GOTT ÚRVAL r LJÓSRITUNARVÉLAR MITA RITVÉLAR SILVER REED REIKNIVÉLAR + PAPPÍRSTÆTARAR VERÐ FRÁ KR. 9.950.- TÖLVUR OG PRENTARAR HVERGI MEIRA ÚRVAL ALLT HUGBÚNAÐUR OG NOTENDA- HUGBÚNAÐUR í GÓÐU ÚRVALI TOLVU HHMSn VDRUR HUGBUNAÐUR SKRIFSTOFUTÆKI SKEIFAN 17 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 91-687175

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.