Morgunblaðið - 05.01.1988, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988
Stjörnu
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjömuspekingur!
Þann 18. nóvember birtist
grein þar sem borin eru sam-
an tvö merki, með tilliti til
hreinskilni, eða merki Bog-
manns og Sporðdreka. Sjálf
er ég Sporðdreki en á bróur
sem er Bogmaður. Mér þótti
þessi grein mjög rétt Þó ég
beri sjálf virðingu fyrir hrein-
slrilni öllum stundum þá verð
ég samt að viðurkenna að
stundum getur það komið sér
betur að hafa þennan hæfí-
. leika að leiða það neikvæða
hreinlega hjá sér.“ (Bréfritari
er hér að vfsa til hæfileika
Bogmannsins að sjá einungis
hið jákvæða í tilverunni og
þarfar Sporðdrekans fyrir að
vera hreinskilinn hvað sem á
dynur.)
Tilviljanir
„Ég hef áður skrifað þér og
fékk þetta líka góða svar sem
átti svo ágætlega við mig.
Þegar aftur á móti vinur
minn, sem hefur ansi Utla trú
a'stjömuspeki, las það sagði
hann það tilviljun eina hversu
vel það átti við. Nú langar
mig til að sýna honum fram
á gildi stjömuspekinnar með
því að biðja þig vinsamlegast
um að rýna i stjömukortið
hans. Hann er fæddur
5.12.64 kl. 3.45 í Reykjavík.“
Svar:
Það er alltaf jafn gaman að
heyra rök þeirra sem hafa
litla trú á stjömuspeki. Ef
eitthvað passar þá er það til-
viljun. Eða ættum við
kannski að segja röð tilvilj-
ana i gegnum nokkur þúsund
ár. Ég verð að segja eins og
er að margar þykja mér þess-
ar tilviljanir þá orðnar.
Annars ætla ég ekki að Qalia
um það hér. Ég þakka bréfið
þitt og nota tækifærið til að
geta þess hér að greinilega
gieymist við lýsingu á merkj-
unum að Sporðdrekar eru
allra merkja pennaglaðastir.
Vinur
Hvað varðar beiðni þína þá
hefur vinur þinn Sól og Tungi
i Bogmanni, Vog Risandi,
Merkúr í Steingeit, Venus i
Sporðdreka, Mars í Meyju og
Ljón á Miðhimni.
. JákvceÖur og hress
Ég myndi segja hann já-
kvæðan, hressan og í grunn-
atriðum og hvað varðar
tilfinningar iéttan persónu-
leika. Hann er eirðariaus og
þarf mikið að vera á ferðinni
og fást við margvísleg mál.
Einn helsti veikleiki hans er
sá að hann fær dellur sem
síðan ganga fljótt yfir.
Kurteis og skapstór
f framkomu er hann að öllu
jöfnu kurteis og þægilegur.
Hann leggur t.d. áherslu á
að vera yfirvegaður. Þrátt
fyrir það er hann skapstór,
kappsfullur og sjálfstæður.
•Hann hefur t.d. stundum
ánægju af því að vera á önd-
verðum meiði við aðra. Hvort
Vogarframkoman leyfi að
hann segi hug sinn við alla
er svo aftur á móti annað
mál. Vinur þinn vill fara eig-
in leiðir, er illa við öll bönd
og að aðrir segi honum fyrir
verkum, bæði hvað varðar
vinnu, skoðanir og almenna
hegðun.
JarÖbundin hugsun
f hugsun er vinur þinn raun-
sær, jarðbundinn og skipu-
lagður, en á til að vera stífur
og þver. Hann er eins og
segir að framan að öllu jöfnu
opinn og iéttur, en Venus í
Sporðdreka táknar að hann
er eigi að síður dulur og var-
kár þegar ást er annars
vegar. Að lokum má segja
að vinur þinn sé stoltur mað-
ur og líti stórt á sjálfan sig.
GARPUR
GRETTIR
UÓSKA
SMÁFÓLK
Maður smellir saman
fingrunum þegar maður
viU sýnast kaldur ...
Maður gengur svona,
sjáðu, og smellir saman
fingrunum ...
Þetta er erfitt þegar mað-
ur skríður.
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Eftir fyrstu tvo slagina þóttist
vestur nokkuð viss um staðsetn-
ingu háspila sagnhafa, og sá að
þörf var róttækra aðgerða. Hann
skipti yfir í réttan lit, en gleymdi
að setja punktinn yfir i-ið.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ K854
♦ D4
♦ KDG106
♦ DIO
Vestur Austur
♦ Á5 ♦ G972
♦ G1098 111 ♦ 765
♦ 842 ♦ 953
♦ KG74 Suður ♦ D103 VÁK32 ♦ Á7 ♦ 9653 ♦ Á82
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 lauf
Pass 1 tigull Pass 1 hjarta
Pass 1 spaði Pass 1 grand
Pass Pass Sgrönd Pass Pass
Sagnir suðurs sýndu jafna
skiptingu og 12—15 punkta.
Vestur hóf vömina með því að
spila út hjartagosa, sem sagn-
hafi drap á drottningu blinds og
spilaði strax spaða á drottning-
una.
Vestur drap á ásinn og staldr-
aði við. Það sannaðist í fyrsta
slag að suður var ÁK í hjarta.
Og sú staðreynd að hann valdi
að sækja spaðann, fremur en
tígulinn, benti eindregið til að
hann ætti tígulásinn. Með spaða-
kóngnum var hann því kominn
með níu rennandi slagi.
Sem sagt, tími til róttækra
aðgerða, og vestur spilaði laufi,
sannfæiður um að félagi ætti
ásinn.
Það reyndist rétt, en laufnía
suðurs var nægiiega sterk til að
stöðva framrás litarins, svo
vömin fékk aðeins þijá slagi á
lauf til viðbótar við spaðaásinn.
Vestur var á réttri leið, en
hann hefði átt að taka þennan
möguleika með í reikninginn.
Það gat hann gert með því að
spila laufkóngnum fyrst. Austur
verður auðvitað að láta áttuna
undir til að koma í veg fyrir að
liturinn stíflist!
Umsjón Margeir
Pétursson
Á úrtökumóti fyrir næsta Skák-
þing Sovétríkjanna kom þessi
staða upp í skák meistaranna
Shabalov, sem hafði hvítt og átti
ieik, og Naumkin.
28. Hxh6! (Mikiu sterkara en 28.
Rxh6? - Hf6!) gxh6, 29. Rxh6
og svartur gafst upp, því hann
er óveijandi mát.