Morgunblaðið - 05.01.1988, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988
53
Minning:
Guðmunda Pálína
Guðmundsdóttir
Fædd8.júlí 1908
Dáin 24. desember 1987
í dag kveðjum við móðursystur
okkar Guðmundu Pálínu Guðmunds-
dóttur sem andaðist á gjörgæsludeild
Landakotsspítala þann 24. desember
síðastliðinn.
Hún var fædd 8. júlí 1908 í Nýjabæ
í Þykkvabæ, dóttir hjónanna Pálínu
Jónsdóttur frá Nýjabæ í Þykkvabæ
og Guðmundar Einarssonar frá Bjólu
í Rangárvallasýslu. Tveggja ára göm-
ul fluttist hún með foreldrum sínum
að Ytra-Hóli í Vestur-Landeyjum og
12 ára gömul flytur hún ásamt foreld-
rum sínum og systkinum til Vest-
mannaeyja og bjó íjölskyldan í Viðey
í Vestmannaeyjum alla tíð síðan með-
an báðir foreldrar lifðu.
Starfaði Guðmundur sem útvegs-
bóndi í Vestmannaeyjum. Pálína bar
nafn beggja foreldra sinna.
Hún fer að engum óð
er öllum mönnum góð
og vinnur verk sín hljóð.
Davíð St.
Ekkert lýsir henni betur en þess-
ar ljóðlínur. Þegar Pálína var 16
ára gömul fór hún til föðurbróður
síns, Óskars Einarssonar, læknis
að Laugarási í Biskupstungum, og
ári síðar að Flateyri við Önundar-
§örð þar sem Óskar var héraðs-
læknir og vann hún að hjúkrunar-
störfum hjá honum næstu 3 árin.
Á Flateyri kynntist hún Adolf Holm
sem hún síðar giftist og fluttu þau
til Reykjavíkur. Þau eignuðust 2
syni, þá Sopfus Hennry Holm og
Guðmund Holm. Þau slitu síðar
samvistum.
Alla tíð síðan bjó Pálína í
Reykjavík og hélt heimili með Guð-
mundi syni sínum. Sérstakar þakkir
skulu fluttar hjónunum Sigríði og
Haraldi i Skipasundi 92, Reykjavík,
þar sem hún bjó sl. 30 ár, fyrir
vináttu þeirra og umhyggju alla tíð.
Einnig alúðarþakkir til Sólveigar
og starfsfólksins í Víðihlíð, sem
auðsýnt hafa Guðmundi syni henn-
ar fyrirmyndarumönnun þann tíma
sem Pálína var veik. Bestu þakkir
til starfsfólks Landakotsspítala sem
önnuðust hana af alúð og nærgætni
í veikindum hennar.
Til óskalandsins fljúgum við fijáls og ein,
þar fáum við öllu jauúnesku böli að gleyma.
Davíð St.
Með þessum orðum skáldsins
kveðjum við fyrir hönd fjölskyldu
okkar Guðmundu Pálínu Guð-
mundsdóttur hinstu kveðju. Sonum
hennar vottum við samúð okkar.
Hvfli hún í friði.
Pálína og Elín Óskarsdætur
Ólöf S. Jónsdóttir
Guðlaug St. Sveinbjörnsdóttir
Tollalækkanir og
hagstæð magninnkaup:
15 til 40% verðlækkun á
26 vörutegundum.
TIPP-EX 20% VERÐLÆKKUN
10 stk. í kassa áöur 990,- nú 790,-
cmiK>=
Hallarmúla 2, E 83211
SICUNCASKÓUNN
Námskeið
TIL 30 TONNA
RÉTTINDA
Innritun í síma
68-98-85 og 3-10-92.
Tími:
11. jan. -22.feb.
Tvö kvöld i viku kl. 7-11.
Kennslugjald: kr. 9.000,-
Benedikt Alfonsson, siglingafræðingur:
Siglingafræði, siglingareglur, sjómennska.
KENNSLU
ANNAST:
Guðlaugur Leósson,
skyndihjálparkennari:
Slysa- og skyndihjálp
(skyndihjálparskirteini)
Páll Bergþórsson,
veðurfræöingur:
Veður og veðurspár.
Greiðslukortaþjónusta.
Frekari upplýsingar í síma 68-98-85 og 5-10-92.
SICLINGASKÓLINN
- medlimur í Alþjóðasambandi siglingaskóla, ISSA.
Kr.
:.... I M^ertþú 6
i 450 MtllJ
METBÓK
BUNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI