Morgunblaðið - 15.01.1988, Síða 14

Morgunblaðið - 15.01.1988, Síða 14
Silvana Dussmann, hin kornunga stjarna Austurrikis í sópransðng, syngnr einsöng. MorSunb|a*®/J,orkell Peter Guth stjómar Sinfóniuhljómsveit íslands á Vínartónleikunum og leikur um leið á fiðluna. Vínartónleikar Sinf óníuhlj ómsveitar Islands: Tónlist allra tíma — flutt ásamt kórum frá Akranesi og einsöngvara frá Austurríki eftir Rafn Jónsson Árlegir Vínartónleikar Sinfóníu- hljómsveitar íslands verða haldnir í íþróttahúsinu á Akranesi í kvöld klukkan hálf níu og endurteknir í Háskólabíói á morgun, laugardag, klukkan 17.00. Auk hljómsveitarinn- ar koma fram kirkjukór Akraness og Kór Fjölbrautaskólans á Akra- nesi og austurríska sópransöng- konan Silvana Dussmann. Stjóm- andi er austurríski fiðlusnillingurinn Peter Guth. Kórstjóri er Jón Olafur Sigurðsson. I stuttu hléi á æfíngu með hljóm- sveitinni, þar sem Peter Guth ekki einungis stjómar á hefðbundinn hátt, heldur leikur einnig á fíðluna, ræddi ég stuttlega við þau Silvana Dussmann. Peter Guth er löngu vel þekktur í heimi klassískrar tónlistar og þá ekki síður í röðum unnenda nútímatónlistar. Hann á að baki glæsilegan feril; var um þriggja ára skeíð nemandi Davíðs Oistrach í Moskvu og er nú konsertmeistari Útvarpshljómsveitarinnar í Vín. Hann hefur komið víða við, hlúð sérstaklega að Vínartónlist, þeirri músík, sem hljómsveitin flytur I dag og á morgun, og einnig náð langt í túlkun nútímatónlistar. Þá hefur hann einnig stundað nokkuð kennslu og kynnt nýja fiðlutækni. sópransöngkonan í Evrópu? Ég hóf söngnám í Vín 1979 hjá Streich og lauk þar námi 1984. Á námsárunum vann ég fyrir mér með söng í Ríkisóperunni í Vín, þar sem ég fékk ómetanleg tækifæri til að hlýða á heimsþekkta söngvara, sem vom mér stöðug hvatning í nám- inu. Ég missti þannig aldrei sjónar á takmarkinu; að verða sópransöng- kona. Ég lærði einnig hjá Gerhard Kahry þá söngtækni, sem ég beiti í dag við að túlka Vínartónlistina, sem ég mun syngja fyrir ykkur. Sem Vínarbúi legg ég mikið upp úr því að flytja Vínartónlist og ég er mjög ánægð að fá tækifæri hér til að flytja hana með Peter Guth." „En hvenær hófst einsöngsferill- inn?“ „Hann hófst með því, að ég vann tvisvar fyrstu verðlaun í einsöngv- arakeppni 1986, meðal annars í Robert Stolz-keppninni. Ég söng því næst við Wiener Volks-óperuna óg komst á samning hjá þeim í september i fyrra, sem lauk nýlega. Ég hef einnig sungið í Salzburg og Innsbruck. Þá hef ég komið fram í Þýskalandi og í næsta mánuði verða tvennir tónleikar í Dan- mörku." „Silvana er ungur söngvari," sagði Peter Guth, „sem hefur vakið óvenjumikla athygli af svo ungri söngkonu að vera. Hún söng í októ- ber stöastliðnum með Nicolai Gedda. Áhorfendur veltu því fyrir sér, hver þessi unga söngkona væri og hún hlaut þannig mikla athygli og mjög góða krítikk, enda hefur hún meira raddsvið en flestar söng- konur á hennar aldri. Þetta er einnig ástæðan fyrir því að hún er hér nú, því ég heyrði hana fyrst syngja á þessum tónleikum og hreifst af,“ sagði Peter og Silvana greip frammí: „Og ég vona, að við eigum eftir að vinna mikið saman í framtíðinni." „Það gerist ekki mjög oft,“ sagði Peter, „að svona ungir söngvarar séu „uppgötvaðir". Við eigum marga unga og efnilega söngvara í Austurríki, en enginn þeirra hefur náð jafn langt á jafn skömmum tíma og Silvana.“ En hversu gömul er Silvana? „Maður spyr ekki söng- konur — og reyndar ekki aðrar konur heldur um aldur," sagði Pet- er. „Silvana er ung miðað við það sem hún hefur afrekað; hún er að gera hluti, sem aðrar söngkonur geta stundum ekki gert fyrr en um fertugt, eftir margra ára þrotlausa þjálfun! Mörg óperuhlutverk eru skrifuð fyrir ungar konur, en þau eru þannig að ungar konur geta ekki sungið þau. Silvana getur sungið þessi hlutverk!" „Þetta er ekki einungis spurningin um söng- inn,“ segir Siivana, „heldur ekki síður um það að geta hreyft sig á sviðinu meðan maður syngur." Vínartónlistin „Hvers vegna er Vínartónlist allt- af svo vinsæl?" „Fyrir því liggja margar ástæð- ur,“ segir Peter. „Jóhann Strauss feðgamir, sem eru höfundar tónlist- arinnar, sem flutt verður á þessum tónleikum, voru frábær tónskáld og höfðu þar að auki mikið vjðskipta- vit og voru snillingar í að koma tónlist sinni á framfæri. Þetta á sérstaklega við um Jóhann Strauss yngri. Þeir tileinkuðu tónlist sína til dæmis einhveijum þjóðhöfðingja, og tryggðu þannig flutning hennar. Þannig varð tónlistin töm fólki í öllum stéttum í Evrópu og Ameríku. Rannsóknir hafa sýnt, að Jóhann Strauss yngri er þekktasti Aust- urríkismaður allra tíma að undan- skildum Mozart. Tónlistin mun alltaf lifa, þvi hún er mjög taktviss og laglínumar skemmtilegar, sem fólk á auðvelt með að læra. Strauss hafði þennan einstæða hæfileika að skrifa tónlist, sem var svona aðgengileg. Annar Austurríkismað- ur, sem hafði þennan hæfileika á okkar tímum var Robert Stolz. Hann samdi yfír 2.000 lög og 50 óperettur og einnig tónlist við fjölda kvikmynda. Flest þessara verka eru þannig að þau urðu mjög vinsæl. í Bandaríkjunum eru nokkur svona tónskáld, t.d. Gershwin og Andrew Lloyd Webber." „Þótt Vínartónlist sé auðveld áheymar, er ekki auðvelt að leika hana frekar en margt nútímaverk- ið,“ sagði Peter. „Og hreint ekki auðveldara að syngja hana,“ bætti Silvana við. Stjórnandinn leikur áfiðlu Peter Guth viðheldur gamalli hefð við flutning á Vínartónlistinni, með því að leika á hljóðfæri um leið og hann stjómar hljómsveit- inni. Hann segir, að þessi hefð eigi rætur að rekja til þeirra tíma, er þessi tónlist var flutt í veitingahús- um og á dansleikjum. Strauss lék á fíðlu og stjómaði jafnframt hljóm- sveitinni. Þessi háttur var nýlega tekinn upp aftur við stjóm stórra hljómsveita og hefur hlotið nokkrar vinsældir. „Ég hef stjómað um 50 hljóm- sveitum á þennan hátt,“ segir Peter. „Sem hljóðfæraleikari þekki ég vel þarfír þeirra og ég hef á þeim fímm árum, sem ég hef stjómað, tileinkað mér ákveðna tækni til að kenna hljómsveitum að fylgja stjómanda, sem einnig leikur á hljóðfæri. Þetta er skemmtilegt; þetta verður frekar eins og kammertónlist, þar sem hljóðfæraleikaramir í hljómsveit- inni fylgja fiðluleikaranum. Sin- fóníuhljómsveitinni héma tekst vel að vinna með þessum hætti," sagði Peter Guth að lokum. Höfundur er blaðafulltrúi Sin- fóníuhljómsveitar íslands. Skautupp á stjörnuhimíninn En í þessu stutta spjalli, vaknaði fyrst spumingin: Hver er Silvana Dussmann, sem komung er að skapa sér sess sem ein efnilegasta í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖOINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGi Brids Arnór Ragnarsson Bridshátíð 1988 Bridssambandið minnir á að frestur til að sækja um þátttöku í tvímenningskeppni á Bridshátíð rennur út fimmtudaginn 5. febrúar og í sveitakeppni (Flugleiðamótið) í vikunni á eftir. Öllum er fijáls þátttaka I báðum flokkum en stiga-. hæstu pörin (með vissum undan- tekningum) sitja fyrir um þátttöku í tvímenningskeppni á Bridshátíð. Spilað verður á Loftleiðum dagana 12.—15. febrúar, tvímenningurinn tvo fyrri dagana og Flugleiðamótið tvo síðari dagana. Spilað er um gullstig í báðum flokkum og sérstök athygli er vakin á þeirri ákvörðun stjómar BSÍ, að spilarar 25 ára og ynggi fá helmingsafslátt af keppnis- gjaldi í Flugleiðamótinu. Bridsfélag kvenna Eftir fjórar umferðir (2 kvöld) í aðalsveitakeppni félgsins, er staða efstu sveita þessi: Sigrún Pétursdóttir 89 Þorgerður Þórarinsdóttir 71 Gunnþórunri Erlingsdóttir 68 Anna Lúðvíksdóttir 68 Alda Hansen 65 Aldís Schram 60 Bridsfélag Suðurnesja Meistaramót Suðumesja í tvímenningi er hafíð með þátttöku 18 para. Búið er að spila 5' um- ferðir af 17 og er staða efstu para þessi: Jóhannes Ellertsson — Eiríkur Ellertsson 32 Grethe íversen — Sigríður Eyjólfsdóttir 22 Heiðar Agnarsson — Hafsteinn Ögmundsson 22 Haraldur Brynjólfsson — Gunnar Siguijónsson 17 Gísli ísleifsson — Kjartan Ólafsson 13 GIsli Torfason — Birkir Jónsson 13 Næstu sex umferðir verða spilað- ar á mánudagskvöldið og hefst keppnin um kl. 20. Spilað er I Golf- skálanum I Leiru. Bridsfélag Akureyrar Eftir 10 umferðir (af 13) í aðal- sveitakeppni félagsins er staða efstu sveita þessi: Sveit Hellusteypunnar 190 Kristján Guðjónsson 186 Stefán Vilhjálmsson 180 Grettir Frímannsson 180 Gunnlaugur Guðmundsson 157 Sveit Sporthússins 150 Sveinbjöm Jónsson 148 Gylfí Pálsson 145 GunnarBerg 144 Zarioh Hamadi 144 í næstu umferð eigast við m.a. sveitir Hellusteypunnar og Gunn- laugs Guðmundssonar, nv. Akur- eyrarmeistarar I sveitakeppni. Nú um helgina fer fram á Akur- eyrí svæðamót Norðurlands eystra, til vals á þátttakendum I íslands- móti I sveitakeppni. Einnig standa yfir leikir I Bikarkeppni Norður- lands en annarri umferð I þeirri keppni á að vera iokið fyrir mánaða- mótin. Bridsfélag Breiðholts Sl. þriðjudag hófst aðalsveita- keppni félagsins með þátttöku 14 sveita. Eftir 2 umferðir er staða efstu sveita þessi: Sveit Stefáns Oddssonar 43 Margrétar Þórðardóttur 41 KristjánsJónssonar 41 Guðjóns L. Sigurðssonar 40 Baldurs Bjartmarssonar 40 Næsta þriðjudag heldur keppnin áfram.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.