Morgunblaðið - 15.01.1988, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 15.01.1988, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988 Símar 35408 og 83033 AUSTURBÆR Skipholt 1-38 Skipholt 40-50 Síðumúli Ármúli HLIÐAR Hamrahlíð Stigahlíð 37-97 SELTJNES Fornaströnd VESTURBÆR Nýlendugata Tómasarhagi9-31 Birkimelur Hringbraut 37-77 Hringbraut 74-91 Bárugata SKERJAFJ. Einarsnes Bauganes. MIÐBÆR Lindargata 39-63 o.fl. Hverfisgata 4-62 Laugavegur1-33 Tjarnargata 3-40 Tjarnargata 39- Laugavegur 32-80 o.fl. TÖLVUPRENTARAR Finnland: Flugleiðir fljúga beint til Helsinki Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara FLUGLEIÐIR kynntu í gter, fimmtudag, áætlun sina um beint flug núlli Keflavikur og Helsinki á sumri komanda. Á það að hefj- ast 14. júni nk. en hingað til hafa menn orðið að fara um Stokkhólm eða Kaupmannahöfn til að komast á milli landanna. Beint áætlunarflug á milli land- anna hefur ekki verið síðan seint á sjöunda áratugnum og segir Pétur J. Eiríksson, svæðisstjóri Flugleiða á Norðurlöndum, að áætlunin hafi mælst vel fyrir hjá fínnskum ferða- skrifstofum. Þær hafa þegar lagt inn pantanir fyrir hópa þannig að engin hætta er á, að Flugleiðaþotumar Skákmótið í Wijk aan Zee: Anders- son efstur Á MIÐVIKUDAG var tefld fimmta umferð á skákmótinu í Wijk aan Zee. Andersson og Georgiev sömdu um jafntefli og heldur Svíinn því enn vinn- ingsforskoti á helstu keppina- uta sína. Önnur úrslit urðu þau að Agdestein vann Hansen. Van der Sterren vann Nikolic og Van der Wiel vann Hubner. Jafntefli gerðu Piket og Karpov, Tal og Farago, Sosonko og Ljubojevic. Staðan að loknum fímm um- ferðum er sú að Andersson er efstur með 4 vinninga. Ljubojevic, Van der Wiel, Ge- orgiev og Karpov hafa 3 vinn- inga. í 6.-9. sæti em Agdestein, Tal, Farago og Hiibner með 2V2 vinning. Nikolic, Piket og So- sonko hafa 2 vinninga. Hansen og Van der Sterren reka lestina með IV2 vinning. Morgunblaðsins. þurfi að fljúga tómar. Kvaðst Pétur ekki telja ólíklegt, að tekið yrði upp beint flug milli landanna allan ársins hring ef markaðsþróunin yrði sú, sem vonast er eftir. Flugleiðir kynntu nýju áætlunina á opnunardegi ferðamálasýningar- innar „Matka-Resa ’88“ en hún hófst í Helsinki í gær. Verður flugið milli Keflavíkur og Helsinki á þriðjudögum og stendur frá 14. júní eins og fyrr sagði til 23. ágúst. Áhugi fínnskra ferðamanna á ís- landi hefur vaxið á síðustu ámm en samt þykir landið dálítið afskekkt og síðast en ekki síst mjög dýrt. Með beinu flugi lækkar verðið þó eitthvað og nú stendur Finnum til boða pak- kaferð, sem kostar um 30.000 ísl. kr. f fyrra, þegar flogið var frá Stokk- hólmi eða Kaupmannahöfn, lögðu 3.000 fínnskir ferðamenn leið sína til íslands í pakkaferðum Flugleiða. Reuter Rolling Stone á frönsku Lestrarhestur í París sökkvir sér niður (tímaritið Rolling Stone sem kom út í fyrsta sinn á frönsku fyrir fáeinum dögum. Tímari- tið hefur verið gefið út í Bandaríkjunum í 20 ár. 60% af efni frönsku útgáfunnar mun fjalla um frönsk stjórnmál, tónlist og áhugaefiii Frakka af ýmsu tagi, en 40% munu vera þýðing á efni bandarísku útgáfunnar. Fijálslyndi flokkurinn í Bretlandi: Hitnar undir David Steel í formannssætinu Óvíst að nokkuð verði af sameiningunni við jafnaðarmenn London. Keuter. NOKKUR óvissa ríkir nú um pólitíska framtíð Davids Steels, leiðtoga Fijálslynda flokksins breska, eftir að félagar hans í flokknum snerust öndverðir gegn þeim skilmálum, sem áttu að fylgja sameiningu miðflokkanna, Ftjálslynda flokksins og Jafnað- armannaflokksins. Meirihluti þingmanna Frjálslynda flokksins vísaði á bug samkomulags- drögum að sameiningu flokkanna og fann það að þeim, að þau væru allt of hægrisinnuð. Steel var jafnframt sakaður um að vera utangátta og vita ekki lengur vilja flokksmanna og sjálfur viðurkenndi hann í gær, að hann hefði teygt sig of langt í viðræðunum við jafnaðarmenn. Steel segist ekki hafa hugleitt að segja af sér en stjómmálaskýrendur segja, að líklegt sé, að Alan Beith, varaformaður flokksins, taki fljót- lega við af honum. Beith sagði í útvarpsviðtali í gær, að eins gæti farið, að ekkert yrði af sameining- unni og í kjölfar þeirra ummæla hans var skotið á skyndifundi með leiðtogum flokkanna. Formlegum viðræðum hafði hins vegar verið fre- stað til mánudags. Þingmenn Frjálslynda flokksins voru einkum óánægðir með þau at- riði í samkomulagsdrögunum þar sem kveðið var á um stuðning við Trident-kjamorkukafbátana og óskoraða aðild að Atlantshafsbanda- laginu. Þá vísuðu þeir einnig á bug tillögum um söluskatt á matvæli, dagblöð og bamaföt. I skoðanakönnun, sem birt var í gær, kemur fram, að kjósendur flokkanna beggja hafa nú minni áhuga á að kjósa þá sameinaða en þeir höfðu fyrst eftir síðustu kosning- ar. Aðeins 2% töldu, að Robert Maclennan, formaður Jafnaðar- jnannáflokksins, væri líklegur til stórræða í nýjum, sameinuðum flokki, .27% nefndu David Steel og 25% ftefndu David Owen, forvera Maclennans, en hann er hins vegar andvígur sameiningunni. Norðmenn vænta mikils af heimsókn Ryzhkovs Búist við tillögum varðandi skiptingu Barentshafs NIKOLAJ Ryzhkov forsætisráð- herra Sovétríkjanna lauk i gær árangursríkri heimsókn sinni í Svíþjóð og hélt til Noregs. Þar bíða hans ekki síður mikilsverð verkefni, að útkljá deilu ríkjanna um skiptingu efna- hagslögsögu í Barentshafi. Thorvald Stoltenberg utanrikis- ráðherra Noregs hefur reynt að draga nokkuð úr eftirvænt- ingu Norðmanna vegna heim- sóknar sovéska forsætisráð- herrans en ráðherrann og Gro Harlem Brundtland forsætis- ráðherra hafa þó lýst ánægju sinni með að Barentshafsmálið skuli nú mæta skilningi hjá æðstu valdamönnum í Sovétríkj- iinnm Eftirvænting Norðmanna nú er ekki með öllu tilefnislaus. Bæði Mfkhafl Gorbatsjov Sovétleiðtogi og Eduard Shevardnadze utanríkis- ráðherra hafa gefíð í skyn að lausn 15 ára deilu þjóðanna sé f aðsigi. Er avo komið að mati blaðamanns Aftenposten að takist ekki að semja um Barentshafíð nú þá verði von- brigðin slfk í Noregi að það muni hindra samstarf ríkjanna á öðrum sviðum en yfírlýstur tilgangur heimsóknar Ryzhkovs er alhliða bætt samskipti ríkjanna. Sovét- mönnum er eflaust mjög í mun að samskipti rflqanna batni. Þeir hafa fylgst grannt með áhyggjum Norð- manna undanfama mánuði vegna teikna um aukin flotaumsvif Sovét- manna á norðurslóðum en hafíð útaf Múrmansk er vettvangur mestu flotaumsvifa í heimi. Sovét- menn hafa sagt að þeir séu einungis að endumýja gömul skip auk þess sem Ryzhkov flutti þann boðskap í Stokkhólmi að dregið yrði úr flotaumsvifum þeirra á norðurslóðum. Gráa svæðið En um hvað snýst hafréttardeila Sovétmanna og Norðmanna? Um- deilda svæðið f Barentshafí milli Svalbarða og Novaja Zemlja er 155.000 ferkílómetrar að stærð. Norðmenn vilja að miðlína ráði. Það myndi hafa f för með sér að svo til allt svæðið félli Norðmönn- um f skaut. Miðlínureglan réð þegar Noregur, Bretland og Danmörk skiptu Norðursjónum á milli sín á 7. áratugnum. Sovétmenn á hinn bóginn vilja draga línu eftir iengd- arbaug frá norðurpólnum og að landamærum ríkjanna norður af Finnlandi. Samkvæmt þeirri skipan fengju Sovétmenn yfírráð vfír nær öllu svæðinu. Ríkin sömdu árið 1977 um sam- eiginlega nýtingu fiskimiða á á hinu svokallaða „gráa svæði“. En þar er meira í húfí en fískurinn í sjónum. Talið er að á hafsbotni þess sé að finna einhveijar mestu ónýttar olíulindir á norðurhveli jarðar. Ekki má heldur gleyma hemaðarlegu mikilvægi Barents- hafsins en Sovétmönnum er skilj- anlega mjög áfram um að eiga greiða leið fyrir fley sín að Atlants- hafinu. Um þriðjungur „gráa svæðisins" er reyndar óumdeilan- lega á norsku eða sovésku yfirráða- svæði hvort sem miðað er við miðlfnu eða lengdarbaug. Frá árinu 1974 hafa verið haldnir 9 árangurs- lausir samningafundir milli ríkjanna um skiptingu svæðisins alls. Ekki hefur verið litið á „gráa svæðið" sem annað en bráða- birgðalausn til að rfkin tvö gætu án árekstra nýtt sér gjöful fískimið. Ryzhkov snýr heim á laugardag og er búist við að áður muni ríkin undirrita þijá tvfhliða samninga, meðal annars um að Norðmenn fái svo skjótt sem auðið er upplýsingar um slys í sovéskum kjamorkuver- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.