Morgunblaðið - 15.01.1988, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988
21
Pravda:
Gagnrýnir vestur-þýska
útvarpsstöð fyrir heim-
sókn Shevardnadzes
Moskvu, Reuter.
PRAVDA, málgagri sovéska
kommúnistaflokksins, réðist í
gær harkalega á vestur-þýsku
útvarpsstöðina Deutsche Welle,
sem sendir dagskrá sína viða um
heim. Gagnrýnin kom fram í for-
ystugrein blaðsins og er talið að
birting hennar standi í sambandi
við áætlaða heimsókn Edúards
Shevardnadzes, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, á sunnu-
dag. í greininni var útvarpsstöð-
in sökuð tun að stunda
sögufölsun og þáttur um áhrif
Sovétríkjanna í þriðja heiminum
sérstaklega nefndur f því við-
fangi.
Forystugreinin var rituð af Vse-
volod Ovtsjinníkov og sagði hann
að útvarpsstöðin, sem er ríkisrekin,
óttaðist greinilega aukin áhrif Sov-
étríkjanna í heiminum. „Sovét-
kommúnisminn hefur aðeins eitt að
bjóða þjóðfrelsissamtökum, en það
er fyrirmynd alræðis — hvemig ná
skal völdum og halda þeim,“ vitn-
aði Pravda í þáttinn og sagði að
ERLENT
jafnframt hefði því verið haldið
fram að í Asíu hefði engin þjóð
fengið sjálfstæði með fulltingi kom-
múnista.
„Fyrsta ríki verkamanna og smá-
bænda (Sovétríkin) hefur reynst
vera vonarljósgjafí allra baráttu-
manna fyrir frelsi, gegn kúgun og
félagslegri ánauð," sagði meðal
annars í greininni og var líkum að
því leitt að Vestur-Þjóðvetjar væru
skelfíngu lostnir vegna sigurgöngu
sósíalismans, sem þó ætti ekki að
koma neinum á óvart þegar litið
væri til hugmyndafræðilegra yfír-
burða hans.
„Aukin áhrif Sovétríkjanna á al-
þjóðavettvangi, aukið traust í garð
þeirra og hinn síaukni stuðningur
almennings við sókn þeirra í ut-
anríkismálum — það er þetta sem
Deutsche Welle óttast og reynir án
árangurs að lýsa heiminum eins og
eigendur stöðvarinnar vildu að hann
væri.“
Þess var ekki getið í Prövdu
hvenær útsending þáttarins hefði
átt sér stað. Að sögn Vestur-Þjóð-
veija trufla Kremlveijar sendingar
stöðvarinnar, væntanlega vegna
þýskumælandi íbúa Kazakhstan.
Hætt var að trufla sendingar BBC
og Voice ofAmerica á síðasta ári.
Gert er ráð fyrir að Shevard-
nadze hitti Helmut Kohl, kanzlara
Vestur-Þýskalands, og Hans-
Dietrich Genscher, utanríkisráð-
herra, í heimsókn sinni, en hún
kann að marka tímamót í samskipt-
um Sovétríkjanna og Vestur-Þýska-
lands.
Pravda birtir iðulega neikvæðar
greinar sem þessa skömmu fýrir
opinberar heimsóknir og éru þær
þá ætlaðar til þess að gefa til kynna
afstöðu Sovétmanna í málum, sem
þeir kjósa að reifa ekki frekar.
Gary Hart ásamt áköfum aðdá-
anda af kvenkyni.
Gefur Mitterrand kost á sér?:
Sjö skattlaus ár fyr-
ir þann sem getur rétt
París, Reuter.
FRANSKA timaritið Match hefur
heitið að greiða skatta í sjö ár
fyrir þann lesanda sem getur
rétt til um hvort Francois Mitt-
errand forseti gefur kost á sér
i kosningunum i vor eða ekki.
Fyrirætlanir Mitterrands eru
mesta leyndarmál Frakklands þessa
dagana að sögn tímaritsins Match.
Mitterrand hefur fengið viðumefnið
„sfínxinn“ vegna ósveigjanleika og
nú hefur hann ákveðið að láta ekk-
ert uppi um það hvort hann gefur
kost á sér í næstu kosningum sem
fara fram í apríl. Hann neitar jafn-
vel að gefa upp hvenær hann
tilkynni frönsku þjóðinni ákvörðun
sína. Ákvað tímaritið því að efna
til samkeppni um það hver kemst
næst því að geta upp á degi og tíma
yfirlýsingar Mitterrands og hvort
hann gefur kost á sér.
Sá sem kemst næst sannleikan-
um fær að launum fyrir getspeki
sína sjö skattlaus ár. Frestur til að
taka þátt í leiknum rennur út 20.
janúar og aðeins einn maður er
útilokaður frá þátttöku, Francois
Mitterrand Frakklandsforseti.
Bush segist hafa látið í ljós
efasemdir um vopnasöluna
Waahingtoo, Rcuter.
George Bush.
GEORGE Bush, varaforseti
Bandaríkjanna, skýrði frá þvi i
Washiugtou Post í gær að hann
hefði á sinum tima látið í ljós
efasemdir um ágæti hinnar um-
deildu vopnasölu til írans. Bush
hefur sætt nokkrum aðfinnslum
vegna vitneskju sinnar um málið,
ekki sist í ljósi þess að hann sæk-
ist nú eftir tilnefningu Repúblik-
anaflokksins sem forsetafram-
bjóðandi flokksins í komandi
kosningum vestra. „Ég hafði
áhyggjur af þvi að þriðji aðili
(ísrael) eftirlét okkur ekki fulla
stjóm aðgerðarinnar," sagði
Bush meðal annars i ýtarlegustu
yfirlýsingu sinni um málið til
þessa.
„Ég hafði líka sömu áhyggjur
og ég hef alltaf þegar þegar leyni-
legar aðgerðir eru til umræðu —
hvemig verður aðgerðin túlkuð ef
upp kemst? Mun hún kosta
mannslíf? Skaðast trúverðugleiki
okkar? Því miður reyndust þessar
efasemdir mínar á rökum reistar,"
sagði Bush.
Þetta kom fram í skriflegu svari
Bush við 17 spumingum, sem
dálkahöfundur Washington Post,
Mary McGregory, lagði fyrir vara-
forsetann.
Bush neitaði enn að segja hvort
hann hefði tjáð försetanum efa-
semdir sínar og sagði að einkasam-
ræður sínar og forsetans byggðust
vitaskuld á trúnaði þeirra.
Hann gaf þó ýmislegt í skyn og
sagði fullum fetum að hefði forset-
anum verið skýrt frá öllum mála-
vöxtum væri hann sannfærður um
að Reagan hefði ekki fallist á að-
gerðina.
Bandaríkin:
Hart fær
ríkisstyrk
tílkosninga-
baráttu
Washington, Reuter.
GARY Hart, sem gerir sér vonir
um að verða forsetaframbjóð-
andi Demókrataflokksins, fékk í
gær ríkisstyrk við kosningabar-
áttu sína, sem nemur 837.325
Bandaríkjadölum.
í Bandaríkjunum fá þeir, sem
keppa að tilnefningu til forsetaemb-
ættis, ríkisstyrki til jafns við það,
sem þeir afla sjálfír. Til þess að
njóta þessa þurfa þeir þó að hafa
safnað 100.000 dölum í kosninga-
sjóð sinn — að minnsta kosti 5.000
dölum í 20 fylkjum og ekki mega
meira en 250 dalir koma frá hveij-
um einstaklingi, sem leggur
frambjóðanda lið.
Að sögn alríkiskjörstjómarinnar,
sem fer með mál þessi, hefur 4,4
milljónum dala þegar verið ráðstaf-
að til kosningastyrkja ríkisins, en
alls er gert ráð fyrir 33,3 milljóna
framlagi til þessa í fjárlögum.
Israel:
Útgöngu-
bann og
handtökur
Tel Aviv, Reuter.
ÍSRAELAR beittu i gær útgöngu-
banni til þess að stemma stigu við
óeirðum Palestínuaraba og hand-
tóku tfu þeirra, sem taldir eru
meðal helstu hvatamanna óeirð-
anna á hernumdu svæðunum. Var
þetta gert í samræmi við það heit
stjórnvalda að binda enda á blóðs-
úthellingarnar þar.
Óljósar fregnir bárust af því að
Palestínuarabi hefði verið skotinn í
Júdeu í gær, en ekki var getið um
það hvort það mál tengdist óeirðun-
um.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti með 14 atkvæðum gegn
engu að skora á ísraelsstjóm að
draga til baka ákvörðun sína um
brottrekstur Palestínuaraba úr landi
og leyfa þeim að snúa aftur.
Marrack Goulding sérstakur
sendimaður SÞ heimsótti í gær
flóttamannabúðir á Vesturbakkanum
og mótmælti brottrekstri arabanna
fjögurra við Shimon Peres, utanríkis-
ráðherra ísraels.
ÚTSALAER H A F I
á frábcerum fatnaði frá vörumerkjum, sem gefa linuna
\Láttu
\eftir þér
aö líta inn
M4MIR mt\
Laugavegi 45 - Sími11388