Morgunblaðið - 15.01.1988, Síða 22

Morgunblaðið - 15.01.1988, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988 * r^'l 'rí ' * Á, *s T). Gígur eftír bílasprengju Reuter Þessi 2 metra djúpi gígur myndaðist þegar bflasprengja sprakk í borginni Medellin í Kólumbíu á miðvikudag. 20 kflógrömmum af dýn- amíti var komið fyrir í bifreið sem stóð fyrir utan verslunarhús í bænum. Tveir vaktmenn létust í sprengingunni. Chiang Ching-kuo, forseti Taiwan, látinn: Taiwanbúar syrgja höf- und „efnahagsundursins“ Stjórnin í Peking hvetur til viðræðna um sameiningu landanna Taipei, Peking. Reuter. Taiwanbúar syrgja nú forseta sinn, Chiang Ching-kuo, sem lést í fyrradag 77 ára að aldri. Var hann maður vinsæll enda helsti höfundur „efnahagsundursins" á sjötta og sjöunda áratugnum og hafði unnið að því á síðustu árum að færa sljórnarfarið í lýðræðis- legra horf. Kínverska stjórnin Sovétríkin: Krefjast rýmkun- ar á ferðafrelsi Moskvu. Reuter. VIKUBLAÐIÐ Moskvutiðindibirti nokkur lesendabréf á miðvikudag- inn, þar sem kvartað er yfir takmörkuðu frelsi Sovétborgara til að ferðast til útlanda. í bréfunum, sem koma í kjölfar nýlegrar rýmkunar á frelsi til að ferð- ast til Austur-Evrópulanda, er iátin í ljós óánægja með langvinnar yfír- heyrslur yfír þeim, sem vilja ferðast. f einu bréfanna er þess krafíst, að frelsi til að ferðast til Vesturlanda verði aukið. „ Af hveiju búum við einir við þetta kerfí? Halda embættismenn, að heilu Qölskyldumar vilji endiiega verða um kyrrt í öðmm löndum, ef þær fá að ferðast þangað?" spyr M. Golos- hchekin, fulltrúi í miðstjóm kom- múnistaflokksins í Leningrad. „Ef fólk langar til að yfírgefa Sovétríkin fyrir fullt og allt, leyfum því að gera það. Fari það og veri. En hví skyldi heiðarlegu fólki ekki vera treyst?" spyr hann í bréfí sínu. Kona, sem er bamalæknir, kvartar yfír meðferð yfírvaida. Þegar hún sótti um leyfí til að fara til Austur- Þýskalands fyrir nokkm vegna atvinnu sinnar, var hún m.a. spurð um skiinað, sem hún hafði gengið í gegnum 15 ámm áður. „Hvaða til- gangi þjónar þetta? En það var samt ekki nóg fyrir flokksstjómina, sem að langmestu leyti er skipuð körlum. Þeir virðast mjög áfjáðir í vitnéskju um smáatriði," segir hún í bréfí sínu og bætir við, að hún hafi verið beðin um að leggja fram afrit af úrskurði skilnaðarréttarins. í nýju reglunum, sem gengu í gildi í tilraunaskyni 1. janúar og taka til ferða til Austur-Evrópulanda, er dregið úr skriffínnskunni, þó að umsækjendum sé enn gert að leggja fram æviágrip og meðmæli. Ætli menn að ferðast til Vestur- ianda, verður skoðunin enn ýtarlegri, og slíkar ferðir em venjulega tak- markaðar við flokksfélaga, sem taldir era hafa hreinan skjöld. hefur sent Taiwanbúum samúð- arskeyti vegna fráfalls Chiangs og hvatt til nýrra viðræðna um sameiningu landanna. Óbreyttir borgarar og embættis- menn grétu hástöfum þegar Chiangs var minnst í útvarpi og sjónvarpi en hann lést á miðvikudag af völdum hjartaáfalls. Á þjóðar- sorg að ríkja í mánuð, mannfundir verða bannaðir og opinberir emb- ættismenn klæðast sorgarbúningi. Chiang hafði átt við mikið heilsu- leysi að stríða í nokkurn tíma en hélt þó enn um stjómvölinn af sömu festu og fyrr. Eftirmaður hans, Lee Teng-hui varaforseti, hefur heitið að halda áfram á sömu braut. Kínverska stjómin sendi Taiwan- búum í gær samúðarskeyti vegna andláts Chiangs og hvatti eftir- mann hans og stjómvöld til að taka þátt í nýjum tilraunum til að sam- eina Kína og Taiwan. Kínverskir þjóðemissinnar eða Koumintang biðu ósigur fyrir kínverskum kommúnistum árið 1949 og settust þá að á Taiwan. Leiðtogi þeirra fyrmefndu, Chiang Kai-shek, og sonur hans, hinn nýlátni forseti, áttu sér þá köllun að „endurheimta meginlandið úr höndum kommún- ista“, sem þeir kölluðu „glæpa- menn“ og „valdaræningja", og kommúnistar svömðu jafnan í sömu mynt. Á síðustu ámm hefur þó slaknað mikið á spennunni milli landanna og nú þegar Chiang féll frá sýndi kínverska ríkissjónvarpið af honum Taiwanbúar með dagblöð þar sem skýrt er frá láti forsetans, Chiang Ching-kuo. myndir í fyrsta sinn. Zhao Ziyang, formaður kommúnistaflokksins, hafði einnig vinsamleg orð um hann og sagði, að Taiwanbúar væru ætt- jarðarvinir, sem þráðu sameiningu Kínveija í eitt ríki. Ekki er búist við, að fráfall Chi- angs hafí mikil áhrif á taiwanskt efnahagslíf en þó er talið, að nokk- ur óvissa muni ríkja á næstunni eða þar til stjómvöld hafa skýrt stefnu sína. Danmörk: Bretar óttast um ímynd sína 1 augum útlendinga: „Uppivöðsluseggir44 og „Ugluspeglar“ komnir í stað enska herramannsins London. Reuter. HVAÐ hefur komið fyrir Englendinginn á erlendri grund, þenn- an herramann, sem borið hefur hróður ættjarðarinnar víða um lönd og verið öðrum til fyrirmyndar um góða siðu? Þessarar spumingar hafa margir Bretar spurt að undan- fömu og breska utanríkisráðu- neytið, sem hefur ekki orð á sér fyrir fullyrðingasemi, hefur svar- að henni: „Uppivöðsluseggir", „óþokkar", „sníkjudýr", „Uglu- speglar" og eiturlytjasalar em nú þeir merkisberar breskrar menn- ingar eða ómenningar, sem mest ber á utanlands. Tim Eggar, utanríkisráðherra Breta, varaði nýlega við þessu fólki og sagði, að það væri „hættulegur minnihluti" meðal breskra ferðamanna en þó fullfær um að sverta ímynd þjóðarinnar í augum útlendinga. Skýrði hann ennfremur frá því, að breskum ræðismannsskrifstofum hefði ver- ið uppálagt að vísa burt fólki, sem ætti ekki skilið neina fyrir- greiðslu, til að unnt yrði að hjálpa betur þeim, sem hjálpar væm þurfí. Eggar sagði, að „óþokkamir" teldu, að ræðismannsskrifstofum- ar væm eins konar bankaútibú, ferðaskrifstofa eða jafnvel bama- heimili; „sníkjudýmnum" fyndist sjálfsagt, að skattgreiðendur greiddu niður flækinginn á þeim og „uppivöðsluseggimir", þar á meðal sumir áhangendur knatt- spymuliðanna, ættu ekki annað erindi úr landi en að stofna til vandræða. „Uggluspeglamir" em kallaðir svo vegna þess, að frekju- leg framkoma þeirra er svo fáránleg, að útlendingar halda jafnan, að þeir séu að gera að gamni sínu. Á Spáni og í Grikklandi, sem tóku á móti þriðjungi þeirra 27 milljón Breta, sem lögðust í ferða- lög á síðasta ári, er það almanna- í-ómur, að breskir ferðamenn séu hávaðasamir bjórsvelgir, sem eyði þó minna fé en aðrir og heimti, að dvalarstaðurinn sé einhvers konar útgáfa af átthögunum í æðra veldi. Kemur þessi liugmynd raunar heim og saman við það, sem getur að líta í opinberri hand- bók, „Bretland 1988“, en þar segir, að Meðal-Bretinn sé bjór- þyrstur sjónvarpssjúklingur, sem nærist aðallega á mat frá skyndi- bitastöðum. „Við getum ekki breytt hug- myndum útlendinga um Breta almennt," sagði Eggar í viðtali við Reuters-fréttastofuna, „en við getum gert þessum fáu óþurftar- mönnum það ljóst, að breska ríkið muni ekki liðsinna þeim í neinu." Fulltrúar breskra ferðaskrif- stofa segja, að breskir ferðamenn séu yfírleitt hvorki betri né verri en aðrir ferðamenn en Eggar sagði, að gmnsamlega mikið væri um, að Bretar tengdust eiturlyfja- sölu erlendis. Hafa Spánveijar nú tekið höndum saman við bresk yfírvöld í því skyni að koma lögum yfír breska glæpamenn, sem sest hafa að á Costa del Sol eða „Costa del Glæpur“ eins og þessi vinsæli ferðamannastaður er stundum nefndur í Bretlandi. Er þar um að ræða menn, sem hafa flúið breska réttvísi en ekki sína fyrri iðju. TR YRT. STE DV ELT AD LEGGJA! *3? n r~ TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVÍK.SÍMAR: 92-14700-92-13320. Ottastum mikilvæg- mið í Eystrasalti - vegnasamn- Inga Svía og Sovétmanna Kaupmannahöfn. Frá NJ. Bruun, frétta- rítara Morgnnbiaðsins. LARS P. Gammelgárd, sjávarút- vegsráðherra Danmerkur, hefur faríð þess á leit við starfsbróður sinn sænskan, Matts Helleström, að danskir sjómenn fái áfram að veiða þorsk og lax á þvi svæði í Eystras",i: -Svíar og Sovét- menn hafa ákveðið að skipta með sér. Hugsanlegir samningar um veið- ar á þessum mioum heyra raunar undir framkvæmdanefnd Evrópu- bandalagsins, sem annast alla fiskveiðisamninga við ríki utan þess, og Gammelgárd er því á fömm til Bmssels til að undirbúa viðræð- umar. Þykir sumum líklegt, að Svíar fari á móti fram á meiri að- gang að miðum EB-landanna í Norðursjó, Kattegat og Skagerak en við slíkri l'.röfu yrði erfitt að verða. Hefur það verið nefnt, að Svfbm iirðu boðnar einhveijar við- skiptaívilnanir en óvíst er, að þeir láti_ sér það nægja. Á vetrarvertíðinni veiða danskir sjómenn 15-20% þorsksins á um- ræddu svæði í Eystrasalti og þaðan kemur helmingur laxaflans. Em það einkum sjómenn á Borgundar- hólmi, sem stunda síðamefndu veiðamar, og því yrði lokun svæðis- ins alvarlegt áfall fyrir þá. Er það haft eftir talsmanni fiskiðnaðarins f Danmörku, að missi danskir sjó- menn þessi mið, geti þeir ekki snúið sér neitt annað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.