Morgunblaðið - 15.01.1988, Page 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, stmi 83033.
Askriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 55 kr. eintakiö.
Verðbólga og
kaupmáttur
Góðæri hefur ríkt í þjóðar-
búskapnum og viðskiptum
við umheiminn um árabil. Það
hefur sett sitt mark á lífsmáta
þjóðarinnar. Frá fyrsta árs-
fjórðungi 1986 fram að fjórða
ársfjórðungi 1987 hækkuðu
laun að meðatali um 73%. A
sama tíma hækkaði verðlag um
34%. Kaupmáttur jókst því að
meðaltali um 29%, að því er
kemur fram í efnahagsspá
Vinnuveitendasambandsins.
Annað mál er að þessi kaup-
auki kom mjög misjafnlega
niður í samfélaginu.
Flest bendir hinsvegar til
þess að við séum á leið niður í
efnahagslægð. Óhjákvæmilegt
er að draga saman þorskafla.
Raunar stefnir í 7% samdrátt í
verðmæti sjávarvöru 1988,
miðað við liðið ár, og 4% sam-
drátt í verðmæti vöruútflutn-
ings. Líkur standa fremur til
verðlækkunar en verðhækkun-
ar sjávarvöru erlendis. Gengis-
þróun Bandaríkjadals er og
útflutningsframleiðslu óhag-
stæð. Á hinn bóginn gera
erlendar spár ráð fyrir því að
verð innfluttrar vöru hækki um
3,5%-4% árinu. Það stefnir því
í allnokkra kaupmáttarskerð-
ingu útflutningstékna okkar
1988. Einnig í mikinn við-
skiptahalla við umheiminn, eða
að óbreyttu í allt að níu millj-
arða halla.
Rekstrarstaða fiskvinnslu,
einkum frystihúsa, sem og út-
flutnings- og samkeppnisiðnað-
ar, hefur stórversnað. Þetta
hefur sagt til sín í taprekstri
fískvinnslunnar og lokun fyrir-
tækja í útflutningsiðnaði.
Ástæðan er þensla í þjóðfélag-
inu, innlendar kostnaðarhækk-
anir langt umfram verðþróun
útflutningsframleiðslu og er-
lend gengisþróun, óhagstæð
þjóðarbúinu. Víða má og greina
verðbólguteikn. Talsmenn að-
krepptra atvinnugreina leggja
vaxandi þunga á gengislækkun
sem leið til að rétta af rekstrar-
stöðu útflutningsframleiðslu og
sporna gegn vaxandi viðskipta-
halla.
„Það er alveg kristaltært,"
sagði Þorsteinn Pálsson forsæt-
isráðherra í viðtali við Morgun-
blaðið í gær, „að valið stendur
um það, hvort menn vilja nýtt
verðbólgutímabil — eða, hvort
víðtæk samstaða næst um það
að ná niður verðbólgu, en ég
tel ekkert annað ásættanlegt."
„Það ér skoðun okkar að eft-
ir því sem verðbólguhraðinn er
minni þeim mun meiri mögu-
leikar eru fyrir fyrirtækin að
bregðast við með framleiðn-
iaukningu og að aðlaga sig
erfíðri samkeppnisstöðu, hvað
gengið varðar", sagði Þórarinn
V. Þórarinsson framkvæmda-
stjóri VSÍ í viðtali við blaðið.
Þegar þjóðarbúið stefnir í
efnahagslægð, sem fyrirsjáan-
legt er, skiptir verulegu máli,
ekki sízt fyrir launafólk, að
halda verðbólgu niðri. Það er
því mjög mikilvægt að áherzlu-
atriði kjarasamninga, sem
framundan eru, verði að varð-
veita þann kaupmátt, sem
náðist á síðastliðnu ári, fremur
en að herða á verðbólgunni. Það
var engum kjarabót þegar verð-
bólga óx úr 35% 1978 í 130%
vorið 1983. Þvert á móti. Það
er engum ávinningur að knýja
fram verðbólgusamninga.
Áburðar-
verksmiðjan
Starfshópur á vegum félags-
málaráðuneytisins hefur
komizt að þeirri niðurstöðu, að
komi mikill leki að ammoníaks-
geymi Áburðarverksmiðju
ríkisins í Gufunesi, við vissar
veðurkringumstæður, geti það
stefnt lífí íbúa á stórum hluta
höfuðborgarsvæðisins í hættu.
Líkur á slíku slysi eru að vísu
hverfandi. Það er hinsvegar
ekki hægt að útiloka mögulei-
kann á slíku slysi með öllu.
Þessvegna verða aðilar, er
ábyrgð bera á þessu ríkisfyrir-
tæki, sem og á almannaöryggi
að þessu leyti, að bregða skjótt
við. Þegar almannahagsmunir
eru í húfí duga engin vettlinga-
tök. Það var því tímabært að
taka þetta mál upp í ríkisstjóm-
inni, eins og raunar hefur verið
gert.
Upplýsa verður almenning
um það, hvert er þjóðhagsgildi
rekstrar af þessu tagi. Hafí
reksturinn það gildi, er réttlæt-
ir hann, verður að gera þær
ráðstafanir, sem duga til að
fólki stafi ekki hætta af honum.
Með öllu er óviðunandi aðamm-
oníak skuli geymt þama við
þær aðstæður, sem lýst er í
gögnum Vinnueftirlits ríkisins
og starfshóps félagsmálaráðu-
neytisins.
Þeir biðu þess
sem verða vildi
SKÖMMU fyrir jól, laugardaginn 19. desember, var gerð í Mosfells-
bæ víðtæk leit að tveimur ungum drengjum, Arna Sigurgeirssyni, 4
ára og Magnúsi Andra Pálssyni, 3 ára. Þeir höfðu horfið frá heim-
ili foreldra Árna við Bugðutanga. Um klukkan 3 um daginn vissi
móðir Arna af þeim að leika sér úti i garði, hún leit af þeim í fáein-
ar mínútur og á meðan laumuðust félagamir í burtu og sást til
þeirra hlaupandi um hverfið á eftir hundi. Mæður strákanna fóra
strax að leita, fundu þá ekki, lögreglu var gert viðvart og innan
skamms var mikill fjöldi hjálparsveitamanna og íbúa í Mosfellsbæ
farinn að ganga um bæinn og nágrenni hans að leita. Eftir sjö tíma
leit fundust drengirnir heilir á húfi. Þeir höfðu þá komið sér fyrir
ofan í skurði og hrjúfrað sig hvor upp að öðrum. Þeir voru mjög
kaldir og máttvana, höfðu hætt sér á vit ævintýra Iangt út fyrir
nágrennið sem þeir þekktu og rötuðu um og sátu og biðu þess sem
verða vildi. „Ég vil ekki hugsa til þess að þeir hefðu ekki fundist
fyrir nóttina," sagði Sveinn Björasson yfirlögregluþjónn hjá rann-
sóknarlögreglunni í Hafnarfirði. Hann stjórnaði leitinni.
Klukkan 17 var rannsóknarlög-
reglunni gert viðvart og kallaði hún
strax út allar björgunarsveitir á
höfuðborgarsvæðinu. Sporhundar
Snorra Magnússonar í Hafnarfirði
voru fengnir til að koma leitar-
mönnum á sporið en það kom fyrir
ekki. En það voru fleiri en björgun-
arsveitamenn sem tóku þátt í leit-
inni, úr flestum húsum í nágrenninu
og hvaðanæva úr bænum gaf fólk
sig fram til aðstoðar. Leitarmenn
skiptu hundruðum og var gengið
fram og til baka um bæinn og ná-
grenni hans en þegar leið á kvöldið
voru drengirnir enn ekki fundnir.
Þennan dag var óvenju dimmt
yrfir, svartasti skammdegistíminn
og jörð alauð eftir einstæð hlýindi
framan af vetri. 5 stiga hiti var í
lofti og rigning framan af degi en
þéttur úði er líða tók á kvöidið.
Alskýjað og margir leitarmenn
kvörtuðu undan því að ekki sæist
handa skil.
Eftir víðtæka leit fundust svo
drengimir heilir á húfi klukkan
rúmlega tíu um kvöldið. Helgi Sig-
mundsson, tvítugur læknanemi,
gekk fram á þá þar sem þeir höfðu
komið sér fyrir í skurði niður við
Leirvog. Helgi og foreldrar hans
höfðu heyrt í sjónvarpinu að strák-
anna væri saknað. Þau ákváðu að
fara út og leita og gengu áleiðis
að Leirvogi. „Alls staðar í kring um
okkur var fólk að leita en það sást
illa til í myrkrinu svo við ákváðum
að fara heim og ná í betri luktir.
Að því búnu héldum við áfram að
leita." Frá veginum liggur skurður
eða ræsi um það bil 50 metra leið
niður að Leirvogi. Helgi ákvað að
ganga eftir skurðinum og lýsa þar
upp alla króka og kima. Áður fyrr
hafði hann sjálfur leikið sér á þess-
um slóðum og þá hafði skurðurinn
þótt spennandi leiksvæði. Helgi
lagði af stað frá veginum, og iýsti
til beggja handa. Eftir því sem nær
dró fjörunni varð skurðurinn
grynnri og breiðari. „Ég heyrði lág-
vært tíst eða kjökur og sá hvar
þeir sátu, þétt saman eins og til
að ylja hvor öðrum. Sennilega hafa
þeir séð geisiann frá luktinni og
verið að kalia til mín. En kjökrið
var svo lágvært að ég gat með
naumindum greint það þótt þeir
væru aðeins fáeina metra í burtu,"
sagði Helgi. „Ég tók þá í fangið
og við bárum þá heim. Þeir voru
kaldir og máttvana og virtust að
niðurlotum komnir. Ég held að ekki
hafi mátt dragast mikið lengur að
finna þá og sjálfsagt hafa hlýindin
átt mikinn þátt í að ekki fór verr.“
Strákamir voru fljótir að jafna
Morgunblaðið/BAR
Hressir og kátir og löngu búnir að jafna sig á hrakningunum. Frá
vinstri: Magnús Andri Pálsson og Árai Sigurgeirsson.
sig á volkinu og móðir Áma, Marn-
hild Kambsinni, segir að hann hafi
strax næsta morgun verið orðinn
eins og hann á að sér. „Fyrstu dag-
ana var mikið talað um þetta og
þeim fannst merkilegt hvað margir
hefðu verið að leita að þeim en ég
held að þeir séu of ungir til að
gera sér grein fyrir hvað þeir voru
hætt komnir. Á þessum aldri finnst
manni góður endir svo sjálfsagður."
Foreldrar drengjanna vildu koma
til skila innilegu þakklæti til þeirra
sem tóku þátt í leitinni, björgunar-
og hjálparsveitamanna, sem og
allra annarra.
Leiruvogur
Hérna fundust drengirnir
í skurði um kl. 22:00
500-1
m
IDrengirnir voru
að leik í húsa-
garði við Bugðu-
tanga um kl. 3:00
i Hérna sáust drengirnir
■ skömmu eftir kl. 3:00
1 Hlégaróur
VFsrw
MOSFELLSBÆR
Sex loðdýrabú starfrækt
í Borgarfjarðarsýslu
Borg í Miklaholtshreppi.
SEX loðdýrabú eru nú starfrækt hér f sýslunni og er fóðurstöð
fyrir búin í Borgarnesi á vegum Kaupfélags Borgfirðinga. Loð-
dýrabændurnir hafa sett upp stöð til að verka skinnin og er hún
staðsett á Vegamótum.
Þegar þrengdi að í hefðbundnum
búgreinum, svo sem sauðfjárrækt
og mjólkurframleiðslu, var að hálfu
ríkisvaldsins ákveðið að veija fyár-
magni til nýrra búháttabreytinga.
Kvótinn var á árunum 1979-1980
og í kjölfar þeirra breytinga átti
að skapa ný atvinnufyrirtæki í
sveitum. Jafnframt var því heitið
að bændur fengju nokkum tíma til
að aðlagast nýjum og breyttum
framleiðsluháttum. Hér í sýslu hef-
ur orðið töluverður vísir að nýjum
búgreinum, þó aðallega hér sunnan
fíalls á Snæfellsnesi.
Loðdýrabúin eru nú orðin sex,
eitt þeirra er eingöngu með mink
og annað eingöngu með refi, hin
fjögur eru bæði með refi og mink.
Fóðurstöð fyrir þessi bú er í Borg-
amesi og er hún á vegum Kaup-
félags Borgfirðinga. Þá hafa þessir
loðdýrabændur sett upp verkunar-
stöð til skinnaverkunar og er sú
stöð staðsett á Vegamótum. Em
þeir nú að verða búnir að verka
framleiðslu sína sem búin gáfu af
sér á sl. ári. Vel er vandað til verka
á skinnum, enda em þau ákjósan-
leg vara, sem fallegar og góðar
skjólflíkur í tískuvæddum heimi.
- Páll.
Frá verkunarstöðinni á Vegamótum sem loðdýrabændumir hafa sett upp.
Nú er verið að verka þá framleiðslu sem búin gáfu af sér á sl. ári.
25
AF ERLENDUM VETTVANGI
Eftir PAUL ELLMAN
Úlfaþytur vegna
herstöðva á Spáni
Fyrirhugað er að fulltrúar Spánar og Bandaríkjanna setjist á
ný að samningaborði nú í janúar til að reyna að greiða úr ágrein-
ingi varðandi framtíð bandarískra herstöðva á Spáni.
Aður höfðu fulltrúamir reiknað
með að þessi áttunda umferð
viðræðnanna, sem til þessa hafa
verið árangurslausar, hæfist 18.
desember, en þeir neyddust til að
fresta samningatilraununum þar
sem þeir sáu enga möguleika á
að unnt yrði að þokast nær sam-
kómulagi um helzta ágreiningsef-
nið - brottflutning 72 F-16
ormstuþotna bandaríska flughers-
ins.
Spánverjar höfðu tekið það
skýrt fram að brottflutningur F-16
þotnanna, sem em staðsettar í
Torrejon rétt utan við Madrid,
væri skilyrði fyrir því að þeir gætu
fallizt á gerð nýs vamarsamnings
í stað núverandi samkomulags,
sem á að falla úr gildi í maí n.k.
Það samkomulag heimilar Banda-
ríkjamönnum að hafa 12.500
manna lið í fíómm herstöðvum og
nokkmm fjarskipta- og flutninga-
miðstöðvum á Spáni.
Aukin harka færðist í þetta
taugastríð ríkjanna yfir jólin. Það
vakti reiði yfírvalda á Spáni þegar
dagblaðið Washington Post birti
frétt, sem höfð var eftir banda-
rískum heimildum í Madrid, þar
sem þvi er haidið fram að Spán-
veijar hafi slitið samningaviðræð-
um.
„Bandaríska sendiráðið hefur
bersýnilega komið þessari sögu á
framfæri til að reyna að slá okkur
út af laginu," sagði einn talsmanna
spánska utanríkisráðuneytisins.
Vemon Walters, sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum, fylgdi sögunni eftir í
viðtali við spánska fréttatímaritið
El Globo þar sem hann sagði það
„fáránlegt" að ætlast til þess að
F-16 þotumar yrðu fluttar á brott,
og hann bætti við: „Við Banda-
ríkjamenn munum ekki gleyma
fjandsamlegum aðgerðum í okkar
garð.“
Walters sendiherra, sem talar
reiprennandi spænsku, var ofursti
í starfsliði Eisenhowers Banda-
ríkja- forseta þegar fyrsti vamar-
samningurinn var gerður við
einræðisstjóm Francos heitins
hershöfðingja árið 1953. í augum
Spánverja varð það samkomulag
til þess að ijúfa þá einangrun sem
Francostjómin lenti í eftir síðari
heimsstyijöldina, og Walters virtist
vera að gera sér far um að ögra
þeim-þegar hann bar lof á stjóm
einræðisherrans fyrrverandi.
Þoturnar burt innan
fjögurraára
Yfírvöld á Spáni vilja að orrustu-
þotumar verði fluttar á brott fyrir
lok ársins 1991. Felipe Gonzalez
forsætisráðherra ríkisstjómar só-
síalista sendi bandaríska sendiráð-
inu kröfu þessa efnis 10. desember
s.l. og tók þar fram að ekki þýddi
að ræða frekar um áframhaldandi
staðsötningu F-16 á Spáni.
Gonzalez hefur engu að tapa
heima fyrir þótt hann sé ákveðinn
varðandi brottflutning F-16 þotn-
anna, sem mynda 401. flugsveit
bandaríska flughersins, en eftir-
litssvæði þeirra nær allt austur til
Tyrklands. Skoðanakannanir hafa
jafnan leitt í ljós að meirihluti
Spánveija er andvígur hemaðarað-
stöðu Bandaríkjanna í landinu.
í skoðanakönnun, sem gerð var
milli jóla og nýárs, kom fram að
42% vildu að öllum bandarískum
herstöðvum yrði lokað, og aðeins
7% vildu óbreytt ástand.
Helzti keppinautur Gonzalezar
á stjómmálasviðinu, Adolfo Suarez
fyrrum forsætisráðherra flokks
miðdemókrata, hefur lýst því yfir
að hann vilji algerlega loka fyrir
aðstöðu Bandaríkjahers. Stjórnar-
andstaða íhaldsmanna hefur einnig
lýst stuðningi við stefnu ríkis-
stjómarinnar í þessu máli, þótt
flokkur þeirra vilji bæta upp brott-
för bandaríska hersins með því að
sameina herstyrk Spánar að fullu
vamarkerfi Atlantshafsbandalags-
ins.
Gonzalez hét „verulegri fækk-
un“ í herliði Bandaríkjanna gegn
stuðningi kjósenda við áframhald-
andi aðild að NATO, sem fram kom
í skoðanakönnun er hann stóð fyr-
ir í marz 1986.
Bandarísk yfirvöld neita enn
opinberlega að verða við kröfum
Spánveija um brottflutning F-16
þotnanna. En einslega viðurkenna
opinberir aðilar að þeir geti ekki
átt von á betri iausn en að herstöð-
in í Torrejon verði smátt og smátt
lögð niður á nokkrum árum. Til
málamynda hafa fulltrúar Banda-
ríkjanna lagt til að F-16 þotumar
verði fjarlægðar frá Spáni á næstu
tíu árum, en það er^im það bil sá
tími sem áætlað er að þær þjóni
tilgangi sínum áður en þær úreld-
ast. Þessari hugmynd . hafa
Spánveijar algjörlega hafnað.
Mikil hervæðing Spán-
verja
Ýmsir opinberir aðilar í Banda-
ríkjunum, með Frank Carlucci
vamarmálaráðherra í broddi fyik-
ingar, hafa ítrekað haldið.því fram
að F-16 þotumar séu ómissandi
fyrir vamir NATO á suðurslóðum.
Sú skoðun er ekki almennt ríkjandi
meðal vestrænna bandamanna
þeirra, sem þó hafa ekki tekið
undir máistað Spánveija þar sem
þeir telja spænsk stjómvöld þurfa
að gera nákvæma grein fyrir af-
stöðunni til NATO.
Líkt og Frakkar, sem urðu fyrst-
ir Evrópuþjóða til þess árið 1966
að knýja fram lokun bandarískra
herstöðva í landinu, lúta Spán-
veijar ekki stjóm vamarkerfis
NATO, sem þeir urðu aðilar að
árið 1982. Gonzalez hefur heitið
því að hann muni ekki fela erlend-
um aðilum stjóm herafla Spánar,
en heldur því jafnframt fram að
margra milljarða dollara áætlun
um uppbyggingu heraflans geri
Spánveijum engu að síður kleift
að gegna að fullu hlutverki sínu í
vestrænu vamarsamstarfi.
Meðal þeirra vígvéla sem verið
er að kaupa má nefna 72 orrustu-
og sprengjuþotur af gerðinni
F-18A frá Bandaríkjunum og
flotadeild með flugvélamóðurskip-
ið Principe de Asturias í fylkingar-
bijósti, sem á að verða fullbúið í
apríl. Spánveijar halda því fram
að með þessari uppbyggingu her-
aflans verði þeir fyllilega færir um
að annast vamir á stóru svæði,
allt frá Baleareyjum á Miðjarðar-
hafi, um Gíbraltarsund og suður
til Kanaríeyja.
Felipe Gonzales, forsætisráð-
herra Spánar.
Veraon Walters, sendiherra
Bandaríkjanna hjá S.þ.
í öllum samningaviðræðum við
Bandaríkin hefúr Gonzalez staðið
fastur á því að brottflutningur
F-16 þotnanna breyti á engan hátt
annari aðstöðu Bandaríkjanna á
Spáni. Þar á meðal má nefna flota-
stöðina í Rota við Cadiz-flóa, sem
sjötti floti Bandaríkjanna notar að
staðaldri, og flugstöðvamar við
Saragossa á Norður-Spáni og Mor-
on, nálægt Seviila á Suður-Spáni.
Sumum bandarískum embættis-
mönnum þykir hinsvegar F-16
málið og hikandaháttur Spánveija
varðandi fulla aðild að vamarkerfi
NATO sýna ljóslega að Spánveijar
séu ekki traustir bandamenn, og
eru þessir aðilar sagðir hvetja til
algjörs brottflutnings frá Spáni og
að gripið verði til diplómatískra
refsiaðgerða gegn Spánveijum.
Benda þeir á að koma megi F-16
þotunum fyrir í öðmm löndum, svo
sem í Belgiu, Portúgal, Tyrklandi
og Marokkó.
Höfundur er blaðapiaður við
brezka blaðið The Observer.
Bandarísku flugvélamóðurskipin Nimitz og John F. Kennedy ásamt fylgiskipum á Miðjarðarhafi.