Morgunblaðið - 15.01.1988, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 15.01.1988, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988 ^ÖiLflfrO^uuigjtuitr dJ^OT®©@IRl <§t (Ste) Vesturgötu 16, sími 13280 Otvegum einnig dælu- sett meö raf-, Bensín- og Diesel vélum. SPECK Lensi-, slor-, skolp-, sjó-, vatns- og holræsa-dælur. ■ MILT FYRIR BARNIÐ MÝKINGAREFNI Milt fyrir barnið mýkingarefni er sérstaklega ætlað til mýk- ingar á barnafatnaði og á fatnaði annarra sem eru með viðkvæma húð. Tauið verður dúnmjúkt og ertir ekki húðina. Viðkvæm húð og Milt fyrir barnið eiga svo sannarlega samleið. A Rania&nsrstota FRIGG Wjk mykS ~\efn> JKÍtt tyrir í fmvKinoarJ \efni rit J aðSfynrbarnifr SAPUGHRDIN .X Lyngási 1 Carðabæ, sími 651822 SKIÐI / HEIMSBIKARINN I ALPAGREINUM Figini tryggði stöðu sína á toppnum Svissnesku stúlkurnar hafa unnið öll brunmótvetrarins MICHELA Figini frá Sviss sigr- aði í bruni kvenna í heims- bikarnum í Zinal í Sviss í gær. Þetta var fjórði sigur sviss- nesku stúlknanna í jafn mörgum brunmótum í vetur. Figini, sem er Óympíumeistari kvenna í bruni, var í nokkrum sérflokki í gær. Hún fór brautina, sem var 2870 metrar að lengd, á 1.55,16 mínútum og var einni sek- úndu á undan Karen Percy frá Kanda sem varð önnur. Petra Kron- berger frá Austurríki varð þriðja á 1.56,39 mínútum. Þetta var í fyrsta sinn sem heimsbikarmót i bruni fer fram á þessum stað. Þetta var þriðji sigur Figini í heims- bikamum í vetur og er hún nú í efsta sæti stigakeppninnar með 146 stig. Hún sigraði í keppninni sam- anlagt 1985 og 1986 og virðist vera á góðri leið með að endurtaka það núna. Landi hennar, Maria Walliser sem sigraði í heimsbikam- um samanlagt í fyrra, hefur ekki náð sér á strik í vetur og varð í 4. sæti í gær. Brunið í gær átti upphaflega að vera í Pfronten í Vestur-Þýskalandi en var fært til Zinal í Sviss vegna snjóleysis í Þýskalandi. Aftur verð- ur keppt í bruni kvenna á sama stað á laugardaginn en sú keppni átti upphaflega að vera anars stað- ar í Sviss. Svissnesku stúlkumar, Chantal Boumisse sem sigraði í bmni í síðasta mánuði og Zoe Haas, féllu báðar í keppninni í gær. Reuter Michela Flginl frá Sviss sigraði í bruni kvenna í heimsbikamum í gær. Hér er hún á fullri ferð í brautinni. Guðrún H. Krlstjánsdóttir frá Akureyri hefur bætt árangur sinn verulega á mótum erlendis að undanf- ömu. Hún er rétt við ÓL-lágmarkið sem SKÍ hefur sett fyrir Ólympíuleik- ana í Calgary. Guðrún H. til Calgary? ÍSLENSKA landsliðið í alpa- greinum er nú á keppnisferð um Evrópu. Liðið hefur tekið þátt í nokkrum mótum og hefur árangur verið misjafn. Það er helst að stúlkurnar hafi bætt sig og þá sérstaklega Guðrún H. Kristjánsdóttirfrá Akureyri sem er nú alveg við ÓL-lág- markið sem SKI setti fyrir Ólympíuleikana í Calgary. Það má því búast við að hún bætist í íslenska liðið sem tekur þátt í leikunum í Calgary ásamt Dantel Hilmarssyni og göngu- manninum Einari Óiafssyni, sem nú þegar hafa náð OL- lágmörkunum. Snjólítið hefur verið í Evrópu og hefur það komið niður á íslenska liðinu. Það hefur ekki get- að tekið þátt í eins mörgum mótum og upphaflega var gert ráð fyrir. Liðið fór utan 4. janúar og verður fram að mánaðarmótum. Stúlkurn- ar hafa tekið þátt í þremur fis- mótum frá því 4. janúar. Árangur þeirra er sem hér segir: Svig í Leogang í Austurríki 8. janúar (keppendur 110) Guðrún H. Kristjánsdóttir varð í 31. sæti á 1.52,38 mín og Anna María Malmqist í 43. sæti á 1.56,49 mínútum. Sigurvegari var Klaudia Strobdel frá Italíu á 1.41,78 mínút- um. Svig á sama stað 9. janúar (kepp- endur 110) Guðrún hafnaði í 22. sæti á 1.47,85 mínútum og Anna María í 44. sæti á 1.54,65 mínútum. Sigurvegari var Rosvita Steiner frá Austurríki á 1.37,66 mínútum. Stórsvig í Colere á Ítalíu 12. jan- úar (keppendur 96) Guðrún varð í 39. sæti á 2.35,76 mínútum, Tinna Traustadóttir varð í 56. sæti á 2.37,20 mín. og Anna María í 71. sæti á 2.39,35 mínútum. Sigurvegari var Kim Schmeedinger frá Bandaríkjunum á 2.26,53 mínútum. Karlaliðið hefur tekið þátt í tveimur mótum og var árangur þeirra eftir- farandi: Stórsvig í Ahrntal á Ítalíu 11. janúar (keppendur 140) Daníel Hilmarsson varð í 79. sæti á 2.39,76 mínútum, Ingólfur Gísla- son varð í 97. sæti á 2.43,49, Ömólfur Valdimarsson varð í 98. sæti á 2.43,77, Valdimar Valdim- arsson í 100. sæti á 2.44,03 mín. og Guðmundur Sigurjónsson í 103. sæti á 2.48,17 mínútum. Sigurveg- ari varð Itali á 2.25,60 mínútum. Svig í San Candido í Innichen á Ítalíu 12. janúar (keppendur 140) Daníel varð í 50. sæti á 2.05,80 mínútum, Örnólfur í 55. sæti á 2.08,45, Valdimar í 58. sæti á 2.10,14 mín. og Ingóflur í 68. sæti á 2.12,82 mínútum. Sigurvegari var Erikson frá Svíþjóð á 1.56,74 mínútum. Að lokum má geta þetta að fyrsta bikarmót vetrarins í alpagerinum hér á landi verður á Akureyri 30. til 31. janúar. ffoRDKA töskur á frábæru verði ÚTtLSF Landsþj álfar i í frjálsíþróttum Frjálsíþróttasamband íslands óskar eftir að ráðá landsþjálfara í hlutastarf frá og með 1. febrúar. Möguleiki á meiri vinnu yfir sumarmánuðina. Hlutverk landsþjálfara er fyrst og fremst að fylgjast með þeim einstaklingum, sem skipa landsliðið á hverjum tíma, og vera þeim til stuðnings eftir þörfum. Ferðir með landsliði og smærri úrvalshópum á vegum FRÍ munu einnig verða stór þáttur í starfinu, sömuleiðis aðstoð við okkar fremsta fólk við skipulag keppnisferða erlendis o.s.frv. Hugmyndin er einnig að landsþjálfari aðstoði einstakar nefndir FRÍ með námskeiða- haldi og ritsmíðum. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun, reynslu og annað sem skipt gæti máli, berist til skrifstofu FRÍ, Iþróttamiðstöðinni, Laugardal, 104 Reykjavík, fyrir mánudaginn 25. jan- ^ar n^- Frjálsíþróttasamband íslands. 5^ A SKÍÐI / ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.