Morgunblaðið - 16.01.1988, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra:
Steingrímur hefur
tekið af öll tvímæli
ÞORSTEINN Pálsson forsætisráðherra segist fagna því að
Steingrimur Hermannsson utanrikisráðherra hafi tekið af öll tvímæli,
með ræðu sinni á fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur á fimmtu-
dag, um að Framsóknarflokkurinn standi með þeirri stefnumörkun
sem lögð hafi verið af ríkisstjóminni og að líkur séu á meiri sam-
stöðu i stjóminni en áður eftir þessa ræðu.
„Það hefur verið svolítill óróleiki Hann sagði ljóst að þær aðgerðir
yfir Framsóknarflokknum að und- sem gripið var til í desember á §ár-
anfomu og menn hafa verið að
geta sér til um það hversu fastir
þeir væru í stjómarsamstarfinu, en
ég tel að með þessari ræðu hafi
formaður Framsóknarflokksins tek-
ið af öll tvímæli um að þeir standi
með þeirri stefnumörkun sem lögð
hefiir verið í efnahagsmálum og við
höfum boðað að undanfömu," sagði
Þorsteinn Pálsson. við Morgunblað-
ið.
magnsmarkaðnum hafí skilað
árangri. Ekki væru tillögur um það
af hálfu Framsóknarflokksins að
hverfa til baka og breyta núverandi
bankalöggjöf. Framsóknarmenn
tækju undir það sjónarmið með
sjálfstæðismönnum að vextir þyrftu
að lækka en þeir legðu ekki til að
horfið yrði frá þeirri gmndvallar-
skipan sem nú ríkti um vaxta-
ákvarðanir.
„Æpti upp er þriðji
Benzinn birtist“
„ÉG VAR búin að skafa af flest-
um reitunum og var komin með
myndir af tveimur Benzum. Svo
skóf ég af einum reit í viðbót og
sá þá strax að þar var þriðji
Benzinn að birtast og æpti upp
yfir mig,“ sagði Elinborg Sigurð-
ardóttir, 17 ára stúlka, sem vann
Mercedes Benz í Lukkutriói
Hjálparsveita skáta i gær.
Elínborg keypti lukkumiðann í
sölutumi við Suðurlandsbraut. „Það
var eiginlega algjör tilviljun að ég
fór þama inn,“ sagði hún. „Ég var
að koma úr skólanum með vinkonu
minni og ætlaði að hitta kunningja
mína í húsi við Suðurlandsbraut.
Þeir voru ekki við og þá fórum við
inn í sjoppuna. Ég keypti tvo miða
og skóf af þeim á staðnum. A seinni
miðanum birtust fyrst tveir Benzar
og svo sá ég að sá þriðji kom í ljós
og þar með hafði ég hlotið vinning.
Ég æpti upp og sagði vinkonu minni
að ég hefði unnið Benz. Okkur varð
svo mikið um að við vissum ekkert
hvemig við áttum að láta og við
flissuðum bara og hlógum. Ég
hringdi í mömmu, en hún trúði mér
ekki. Þá talaði vinkona mín við
hana, en það var ekki fyrr en af-
greiðslukonan talaði við hana sem
hún trúði þessu. Systkini mín trúðu
þessu fyrst þegar ég sýndi þeim
kvittun frá Hjálparsveitunum."
Elínborg, sem er frá Grundar-
firði, stundar nám við Fjölbrauta-
• -f
•'rty.í ■’ *■
Elínborg Sigurðardóttir með
kvittun frá Landssambandi
Hjálparsveita skáta, þar sem
kemur fram að hún vann Merce-
des Benz í Lukkutríói.
skólann við Ármúla og hefur haft
bílpróf frá því í maí á síðasta ári.
Hún sagði að liklega myndi hún
ekki eiga Benzinn, heldur selja hann
og fá sér einhvem minni og ódýr-
ari. „Þá peninga, sem ég fæ á
milli, langar mig meðal annars að
nota til að heimsækja systur mína,
sem býr í Bandaríkjunum," sagði
EKnborg.
„Steingrímur tekur síðan mjög
eindregið undir að komið verði fram
þeirri löggjöf sem nú er í smíðum
og hefur verið til umræðu innan
ríkisstjórnarinnar, þar sem setja á
fyllri ákvæði um fyrirtæki á fjár-
magnsmarkaðnum í samræmi við
það sem almennt er með öðrum
þjóðum. Það eru engar hugmyndir
um að hefta starfsemi þessara nýju
fyrirtækja að öðru leyti enda hafa
þær verið mjög mikilvæg upp-
spretta nýjunga í íslensku atvinnu-
lífi. Fjárfesting í t.d. hótelum, eins
og Steingrímur nefnir, kann að
hafa átt sér stað en þau lán hafa
öll verið samkvæmt pólitískum ák-
vörðunum gegnum sjóði sem ríkis-
valdið ræður yfir.
Steingrímur tekur jafnframt
undir það, sem ég hef sagt að und-
anfömu, að stefna verður að
þríhliða lausn á þeim höfuðverkefn-
um sem framundan eru: að tryggja
rekstrargrundvöll útflutningsfram-
leiðslunnar og leysa þann vanda
sem er í kjarasamningunum. Við
höfum þegar átt viðræður við for-
ustumenn fiskvinnslunnar og ég
vona að grundvöllur skapist fyrir
víðtækari viðræður á vinnumarkaði
á næstunni.
Með þessu tel ég að Steingrímur
hafi ótvírætt eytt þeirri óvissu sem
kannski hefur verið hjá ýmsum um
þátttöku Framsóknarflokksins í
framkvæmd stjómarstefnunnar og
fagna þess vegna þessari. ræðu,“
sagði Þorsteinn.
Hann sagði síðan að önnur atriði
í ræðu Steingríms orkuðu tvímælis,
eins og hugmyndir um skerðingu á
sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga
varðandi framkvæmdir. Aldrei
kæmi til greina að ríkisstjóm sem
Sjálfstæðisflokkurinn ætti aðild að
stæði að slfku og raunar ætti hann
ekki von á að framsóknarmenn
flyttu um það tillögu. Þorsteinn
sagði síðan að samgöngumálin
væm mikilvægasti þáttur í fram-
kvæmd byggðastefnunnar og þessi
ríkisstjóm myndi því ekki skerða
framlög til vegamála eins og
Steingrímur sagði koma til greina.
„Framsóknarflokkurinn hefur held-
ur ekki flutt neina tillögu þar um
og ég á ekki von á að formaður
flokksins flytji slíka tillögu í ríkis-
stjóminni þó að hann hafí látið að
þvi liggja á þessum fundi," sagði
Þorsteinn Pálsson.
Sjá ennfremur á bls. 27.
Jón Adolf Guðjónsson bankastjóri Búnaðarbanka íslands t.v. og
Ingimundur Sigfússon, forstjóri Heklu hf., við tölvu fyrirtækis-
ins sem tengd er bankalínu Búnaðarbankans.
Bankalína Búnaðarbanka íslands:
Viðskiptin beint
í gegnum tölvuna
VIÐSKIPTAVINIR Búnaðarbanka íslands eiga þess nú kost að
sinna viðskiptum sínum við bankann i gegnum tölvu. Eitt fyrir-
tæki, Hekla hf., hefur þegar tengst tölvu Búnaðarbankans og
er fyrst íslenskra fyrirtælga til að nýta sér slíka þjónustu.
Bankalínan var kynnt blaða-
mönnum á fundi í Búnaðarbank-
anum í gær. Þar kom fram að
bankalínan hentaði fyrst og
fremst fyrirtækjum, en í framtíð-
inni verður eigendum nýrra
reikninga, Gullreikninga, einnig
boðin þessi þjónusta.
Bankalínan byggist á því að
viðskiptavinir komast í beint sam-
band við IBM/36-tölvu bankans í
gegnum sína eigin PC-tölvu.
Þannig geta þeir spurst fyrir um
stöðu eigin reikninga, fært á milli
reikninga, séð yfirlit yfir inn-
borganir á gíróseðlum, sent
fyrirmæli til bankans, til dæmis
varðandi pöntun á tékkheftum,
yfirlitum o.fl. Einnig er hægt að
kalla upp gjaldskrá og vaxtatöflur
Búnaðarbankans, gengisskrán-
ingu Seðlabankans og töflur yfir
helstu vfsitölur auk þess að gera
greiðsluspá vegna skuldabréfa-
lána.
í náinni framtíð hyggst bank-
inn koma upp öflugum upplýs-
ingabanka. En þar sem fjöldi
símalína sem tengjast tölvu bank-
ans er takmarkaður verður fyrst
um sinn að takmarka þann fjölda
viðskiptavina sem nýtir sér banka-
línuna.
Notendur bankalínunnar greiða
sérstakt áskriftargjald, sem enn
hefur ekki verið ákveðið. Síðan
verður skrefatalning í gangi og
miðast verð þá við þann tíma sem
viðskiptavinur er í sambandi við
tölvu bankans. Á fundinum kom
fram að bankalínan hentaði fyrst
og fremst þeim, sem eiga víðtæk
viðskipti við bankann, til dæmis
fyrirtækjum.
Eldeyjar-Boði á
veiðar í gærkvöldi
Keflavík.
Útgerðarfélagið Eldey hf.
keypti Boða GK 24 seinnipartinn
í gær og tveim tímum síðar var
báturinn farinn á línuveiðar und-
ir nafninu Eldeyjar-Boði KE 132.
Eigandi Boða GK var Garðar
Rannsóknir á framburði:
Norðlenska og skaft-
fellska á undanhaldi
Flámæli skýtur upp kollinum á ný
NORÐLENSKUR og skaftfellskur framburður er á hröðu undan-
haldi hjá ungu fólki, samkvæmt rannsóknum þeirra Kristjáns
Árnasonar og Höskuldar Þráinssonar. Óskýrmæli af ýmsu tagi
er ívið algengara meðal ungs fólks en þess sem eldra er, og flá-
mæli virðist vera að færast aftur í aukana meðal unglinga, þó
það sé langalgengast hjá fólki yfir sjötugt. Þetta kom fram í
erindi sem þeir Kristján og Höskuldur fluttu í gær á ráðstefnu
um rannsóknir á móðurmáli í skólastarfi.
Rannsóknir þeirra Kristjáns og
Höskuldar hafa staðið yfir síðan
1980, og felast í athugunum á
ákveðnum framburðareinkennum
hjá mismunandi aldurshópum.
Fólki er gefin einkunn á bilinu
100-200 eftir því hve sterk við-
komandi framburðareinkenni eru
hjá þeim, og meðaltalseinkunn
sfðan reiknuð út frá því.
Athuganir á framburði í Skaga-
firði leiddu í ljós að mjög mikið
hefur dregið úr rödduðum fram-
burði — röddun á m og n á undan
p, t, k fær meðaleinkunnina 190
hjá fólki yfír sjötugt, en aðeins
um 115 hjá unglingum undir
tvítugu — en mun minna hefur
dregið úr harðmæli, úr 185 í 160.
ífv-framburður í Skaftafells-
sýslu fær einkunnin^l95 hjá fólki
yfir sjötugt, en um 135 hjá fólki
undir tvítugu. Hv-framburður í
Reykjavík fær einkunnina 150 hjá
körlum, og 133 hjá konum 71 árs
og eldri, en minnkar jafnt og þétt
Morgunblaöið/Ámi Sæberg
Forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir, var tneðal gesta á ráð-
stefnu Rannsóknastofnunar uppeldismála um rannsóknir á
móðurmáli í skólastarfi í gær. Vigdísi á vinstri hönd er Birgir
ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, sem setti ráðstefn-
hjá yngra fólki og þekkist varla
hjá unglingum 12-20 ára.
Flámæli er mjög algengt hjá
Reykvíkingum 71 árs og eldri, en
mjög lítið er um það í næsta ald-
urshóp fyrir neðan, 56-70 ára.
Flámæli er nær óþekkt hjá aldurs-
hópnum 21-45 ára, en 12-20 ára
gömlum Reykvíkingum hættir til
að segja u í stað ö — þannig flá-
mæli fær meðaleinkunnina 112 —
og i í stað e, með meðaleinkunn
107.
Óskýrmæli ýmiskonar, svo sem
brottfall atkvæða, nefhljóða og
önghljóða, er heldur útbreiddara
meðal yngsta aldurshópsins en á
meðal þeirra sem eldri eru: Meðal-
einkunnin hjá 12-20 ára Reyk-
víkingum í þessu sambandi er um
135, en um 125 hjá fólki yfír sjö-
tugt, sem er skýrmæltast allra.
Magnússon útgerðarmaður í
Ytri-Njarðvík og fjölskylda hans.
Kaupverðið var 48 milljónir.
Garðar Magnússon sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hann
vildi gefa yngri mönnum tæki-
færi til að spreyta sig á útgerð.
„Fjölskyldan rekur hraðfrysti-
hús í Vogunum sem við ætlum
að láta okkur nægja að sinni,“
sagði Garðar Magnússon sem
hefur stundað útgerð síðan 1963.
Nú þykir fullvist að Eldey hf.
kaupi Vött SU 3 frá Eskifirði og
verður hann væntanlega afhentur
fljótlega. Ákveðið hefur verið að
Vöttur, sem er 170 tonna stálbát-
ur, smíðaður árið 1968, fái nafnið
Eldeyjar-Hjalti. Boði GK 24 er 208
tonna stálbátur smíðaður í Austur-
Þýskalandi árið 1965 og hét þá
Guðrún Guðleifsdóttir frá Hnífsdal.
Garðar keypti bátinn 1982 sem þá
var gerður út fra Keflavík og hét
þá Boði KE.
Jón Norðfjörð stjómarformaður
Eldeyjar hf. sagði í samtali við
Morgunblaðið að tilboð hefði verið
gert í Eini HF úr Hafnarfirði og
væru menn hæfilega bjartsýnir á
að því yrði tekið. Einir, sem er 238
tonna stálbátur, hét áður Helgi S
og var gerður út frá Keflavík. Jón
sagði ennfremur að nú hefðu safn-
ast um 100 milljónir í hlutafé.
Samþykkt væri um að auka það í
150 milljónir og stefnt væri að að
ljúka þeirri hlutafjársöfnun fyrir 11.
maí næstkomandi.
BB