Morgunblaðið - 16.01.1988, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANUAR 1988
, Morgunblaðið/óskar Magnússon
I kuldanum sem hefur verið unanfarna daga hefur Ölfusána lagt
að hluta.
„Mokaði“ Holtavörðu
heiði með plastskóflu
Fiskvinnslu-
námskeið á
Eyrarbakka
Eyrarbakka.
Fiskvinnslunámskeið stendur
yfir á vegum Bakkafisks hf. en
svo heitir félagið sem nú á og
rekur frystihúsið á Eyrarbakka.
Þátttakendur á námskeiðinu eru
37 og er þeim skipt í 2 hópa, og
er kennt fyrir og eftir hádegi, og
er þá sá hópurinn, sem ekki er við
nám, við vinnu í húsinu.
Hægt hefur verið á framkvæmd-
um við byggingu brúar á Ölfusár-
ósa, en undanfarið hefur efni verið
flutt undan brúnni og út í ána, við
endann þar sem hafist verður handa
með vorinu. í kuldanum undanfarna
daga hefur ána lagt, en þó rennur
nokkur hluti árinnar undir brúna.
— Óskar.
MAÐUR sem þurfti að komast
norður í Skagafjörð á fimmtudag
frá Reykjavík, komst yfir Holta-
vörðuheiði á litlum fóiksbíl þrátt
fyrir að heiðin væri aðeins sögð
opin jeppum og stærri bílum.
Hann mokaði sig í gegn um skafl-
inn sem var eini farartálminn á
leiðinni og notaði til þess litla
plastskóflu sem hann var með í
bílnum.
Vegagerðin mokar venjulega
snjó af veginum yfír Holtavörðu-
heiði tvisvar í viku. Því var það
ekki gert á fimmtudag þrátt fyrir
að vitað væri að ekki væri mikill
snjór á heiðinni. Ferðamaðurinn
þurfti að komast til Hofsóss í gær
og hélt af stað þrátt fyrir aðvaran-
ir um að heiðin væri ófær minni
bílum. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið að aðeins hefði verið
einn skafl á veginum, við pípuhliðið
norðan til í heiðinni, skammt fyrir
ofan Miklagil. Það hefði ekki tekið
sig nema 20 mínútur að moka bílinn
í gegn um skaflinn og eftir það
hefði Holtavörðuheiði verið fær öll-
um bílum.
Aðalstræti 9 - Kringlunni