Morgunblaðið - 16.01.1988, Page 28

Morgunblaðið - 16.01.1988, Page 28
TET MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988 START-viðræðurnar um fækkun langdrægra kjarnorkuvopna; Bandarflgamenn faafna tillögnm Sovétmanna Genf. Reuter. Sovétmenn lögðu óvænt fram nýjar tillögur um fækkun lang- drægra kjarnavopna er samn- ingamenn risaveldanna hittust á aukafundi í Genf í gærmorgun. Bandaríkjamenn höfnuðu tillög- iinum samdægurs og sögðu tUgang þeirra að gera út af við geimvarnaráætlunina svo- nefndu. Alexei Obukhov, aðalsamninga- maður Sovétmanna, sagði tillögurn- ar fela í sér helmings fækkun langdrægra kjamorkuvopna risa- Norðurlandaráð: Finnskt tónskáld fékk verðlaunin Á FUNDI sínum í Kaupmannahöfn í gær ákvað norræna dómnefndin um úthlutun Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs (Nordisk Musik- pris) að veita finnska tónskáldinu Magnus Lindberg Tónlistarverð- laun Norðurlandaráðs árið 1988. Verðlaunin eru 125.000 dánskar krónur og eru þau veitt annað hvert ár. Þau eru að þessu sinni veitt fyrir verkið „Orka“. Magnus Lindberg í dómnefndarálitinu er eftirfarandi rökstuðningur gefinn fyrir ákvörðun- inni: „í verkinu kemur fram hugmyndaríkt sambland sinfóníu- hljómsveitar og óhefðbundinna hljóðgjafa. Með tölvutækni og elektr- . óník er grófur og fíngerður hljómur sameinaður á sannfærandi hátt. Höf- undurinn er ( verkinu á djarfan hátt opinn fyrir hljóðheimi samtímans og Argentína: Foringi upp- reisnarmanna f lýr herinn Buenos Aires, Reuter. ALDO Rico, undirofursti, hefur strokið úr stofufangelsi eftir að skriðdrekasveit hafði verið send til að flytja hann í herfangelsi. Rico stjómaði uppreisn liðsfor- ingja í apríl í fyrra til að krefjast þess að endi yrði bundinn á réttar- höld yfir liðsforingjum sem vom sakaðir um mannréttindabrot á valdatíma hersins árin 1976 til 1983. Stuðningsmenn Ricos gáfu til kynna snemma í gærmorgun að hann myndi veita viðnám ef reynt yrði að fullnægja fangelsisdóminum. Skrið- drekasveitir og brynvarðar bifreiðir voru sendar til Bella Vista, útborgar Buenos Aires, til að handtaka Rico, en þá hafði hann yfirgefið dvalarstað sinn. Eiginkona hans segir að hann hafi særst, en ekki er vitað hvort það hafi gerst á flóttanum. Yfirmaður hersins hefur fyrirskipað handtöku hans og sagt að hann verði sviptur undirofurstatign. sýnir vilja til að ná valdi á honum.“ Fyrir hönd íslands sitja Ragnar Bjömsson skólastjóri og Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri í dómnefnd- inni. Auk tónverksins „Orku“ voru lögð fram tónverk eftir eftirtalin tónskáld: Þorstein Hauksson (Að astra), Áskel Másson (Konsertþáttur fyrir litla trommu og hljómsveit), Gunnar Berg, Ib Nörholm, Einoujuhani Rautavaara, Alfred Janson, Rolf Wallin, Anders Eliasson og Miklos Maros. Tónlistarverðlaun Norðurlanda- ráðs verða afhent í Osló þann 8. mars nk. á 36. þingi Norðurlanda- ráðs. veldanna. Miðað væri við að hvort ríki ætti 6.000 sprengjuodda. Fjöll- uðu tillögumar um hvemig hægt væri að hrinda ákvörðun af þessu tagi í framkvæmd. Að sögn manna, sem nátengdir eru viðræðunefndunum, skýrði Obukhov Max Kampelmann, aðal- samningamanni Bandaríkjanna, ekki frá tillögunum er þeir snæddu hádegisverð saman í fyrradag, á fyrsta degi níundu samningalotunn- ar. Seint í fyrrakvöld óskuðu Sovétmenn hinsvegar eftir auka- fundi samninganefndanna. Varð Kampelmann að fresta fyrirhugaðri ferð til Washington í gærmorgun, þar sem hann ætlaði að gera ráða- mönnum í Hvíta húsinu grein fyrir viðræðum nefndanna á fimmtudag. Fundurinn var haldinn í sovézka sendiráðinu í gærmorgun og stóð í nær tvær stundir. Þegar Obukhov • hafði kynnt tillögumar, sem voru í einu skjali, skiptust fundarmenn á skoðunum í dijúgan tíma. Að því loknu hélt Kampelmann rakleiðis til Washington. Síðdegis í gær kom sú frétt frá Genf að Bandaríkjamenn höfnuðu nýju tillögunum. Terry Shroeder talsmaður bandarísku sendinefnd- arinnar sagði að hér væri um gamlar tillögur í nýjum búningi að ræða sem Bandaríkjamenn gætu ekki fallist á. Reuter Zakharov svarar spurningum fréttamanna á blaðamannafundi í til- efni stofnunar alþjóðlegra samtaka sem stuðla eiga að varðveislu mannlegs lífs og verðmæta. Zakharov á fundi með Gorbatsjov: Krefst lausnar 200 pólitískra fanga Hong Kong: Yfirmaður kauphallar sakaður um mútuþægni Hong Kong, Reuter. RONALD Li, fyrrum yfirmaður kauphallarinnar í Hong Kong, var í gær formlega ákærður fyrir að hafa þegið mútur frá fyrirtæki í Hong Kong, sem er í eigu jap- ansks byggingarfyrirtækis. Ronald Li var handtekinn 2. jan- úar og óháð nefnd sem berst gegn spillingu í Hong Kong kærði hann formlega á föstudag, en réttarhöld hefjast 14. apríl. Li var sakaður um að þiggja verðbréf frá fyrirtækinu Kumagai Gumi í Hong Kong, á helm- ingi lægra verði en seinna fékkst fyrir þau á verðbréfamarkaðinum. Li þarf að leggja fram tryggingu að verðmæti 46 milljóna íslenskra króna og á yfír höfði sér allt að sjö ára fangelsi, auk sektar. Moskvu, Reuter. SOVÉSKI eðlisfræðingurinn Andrej Zakharov hitti Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtoga að máli í gær og fór fram á að 200 pólit- ískum föngum yrði sleppt. Til- efni fundarins var stofnun alþjóðlegra samtaka í Moskvu sem stuðla eiga að varðveislu mannlegs lífs og verðmæta. Þijátíu vísindamenn, trúarleið- togar og iðjuhöldar víðs vegar að úr heiminum hittust í gær í Moskvu til að stofna samtökin. Tilgangur samtakanna er að útvega fé til al- þjóðlegra rannsókna á vandamálum sem ógna mannkyninu eins og mengun og tilvist kjamorkuvopna. Þau munu hafa bækistöðvar í Moskvu, Washington og Helsinki. Að sögn Jevgenís Velikovs félaga í samtökunum og tæknilegs ráð- gjafa Gorbatsjovs lagði bandaríski iðjuhöldurinn Armand Hammer fram eina milljón Bandaríkjadala sem stofnfé sjóðs samtakanna. Hammer sagði við blaðamenn að loknum fréttamannafundi í sovéska utanríkisráðuneytinu í gær að á fundi fulltrúa samtakanna með Gorbatsjov hefði ríkt „vinsemd og virðing". „Zakharov færði málefni pólitískra fanga í Sovétíkjunum í tal og afhenti lista með nöfnum 200 pólitískra fanga;“ bætti Hammer við. Þetta var fyrsti fundur Gor- batsjovs og Zakharovs sem fékk friðarverðlaun Nóbels árið 1975. Zakharov var sjö ár í útlegð í bæn- um Gorkíj á Volgubökkum en var látinn laus árið 1986 að tilhlutan Gorbatsjovs. Zakharov sem er fremstur í flokki andófsmanna í Sovétríkjunum fór jákvæðum orð- um um Sovétleiðtogann eftir fundinn í gær og sagði meðal ann- ars: „Mér finnst hann sveigjanlegur á mörgum sviðum. Ég hef mikið álit á Gorbatsjov sem leiðtoga og persónu. Ég held að hann sé fremst- ur í flokki þróunar í landi okkar á þessu andartaki sögunnar." Tillögur Sovétmanna um takmörkun hernaðarumsvifa á norðurslóðum: Hugmynd sem ber að skoða en ekki má veikja samstöðu NATO - segir Steingrímur Hermansson utanríkisráðherra STEINGRÍMUR Hermannsson utanríkisráðherra kveðst telja að líta berí á tillögur þær um samdrátt vígbúnaðar í norðurhöfum sem Nikolaj Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, kynnti i Osló á fimmtudag sem framhald af ræðu Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleið- toga í Múrmansk á síðasta ári. Steingrímur, sem nú er staddur í London þar sem fram fer þing leiðtoga frjálslyndra stjómmála- flokka, sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær að sjálfsagt væri að skoða þessar hugmyndir en þær mættu ekki verða til þess að draga úr einingu aðildarríkja Atiantshafsbandalagsins. Ryzhkov kynnti hugmyndir Sov- étstjómarinnar í Osló á fimmtu- dagskvöld og sagði ráðamenn eystra telja að banna ætti öll hem- aðarumsvif á tilteknum svæðum -á Atlantshafí og í norðurhöfúm. Kvað Ryzhkov Sovétstjómina m.a. vilja stefna að banni við ferðum kafbáta risaveldanna á svæðum í Norður- og Vestur-Atlantshafi og takmörk- um á umfangi æfinga flughers og flota í norðurhöfum. Hugmyndir þessar hafa fengið dræmar undir- tektir í Noregi og telja sérfræðingar þar að slíkt samkomulag þjónaði engan veginn öryggishagsmunum ríkja bandalagsins. Samstaða mikilvæg Steingrímur Hermannsson kvaðst hafa talið hugmyndir þær sem Gorbatsjov setti fram í Múr- mansk-ræðunni athyglisverðar og því þætti honum tilhlýðilegt að frek- ari útfærsla þeirra yrði skoðuð með opnum hug. „Hitt er svo annað mál að slíkt samkomulag verður aldrei gert, að mínu mati, nema sem þátt- ur í stærra samkomulagi milli Atlantshafsbandalagsins og Var- sjárbandalagsins," sagði utanríkis- ráðherra og bætti við að ef til vill væri athyglisverðasti liður nýjasta tilboðs Sovétmanna sá að bjóða upp á slíkar viðræður en ekki á milli Norðurlanda og Sovétríkjanna. Steingrímur sagði það ljóst vera að NATO-löndin á Norðurlöndum; Noregur, Danmörk og ísland, myndu aldrei ganga til slíkra samn- ingaviðræðna nema að höfðu samráði við önnur aðildarríki bandalagsins. „Að sjálfsögðu má þetta ekki verða til að þess að veikja samstöðu innan Atlantshafsbanda- lagsins. Ég er þeirrar skoðunar að sú samstaða sé ákaflega mikilvæg til að ná þeim árangri sem ég von- ast til að sjá í afvopnunarviðræðun- um,“ sagði Steingrímur. Beinar viðræður Steingrímur sagðist ekki telja beina hættu á því að tillögur Sovét- manna ógnuðu samstöðu aðild- arríkjanna þar sem gert væri ráð fyrir tvíhliða viðræðum ríkja Var- sjárbandalagsins og NATO. Hins vegar kvað hann það yfir allan vafa hafið að sérstakar viðræður Norð- . urlandaþjóða og Sovétríkjanna um vígbúnað á norðurslóðum treystu ekki einingu ríkja NATO. Sérfræðingar sem starfa á veg- um Atlantshafsbandalagsins hafa bent á að verði hugmyndir þessar að veruleika muni þær takmarka mjög möguleika NATO til að flytja hersveitir og birgðir yfir Atlants- hafíð' til Evrópu á óvissu- eða átakatímum. Aðspurður um þetta sagði Steingrímur að svo virtist sem tillögur Sovétmanna ættu fyrst og fremst við Eystrasalt, Barentshaf og hafsvæðið milli íslands og Nor- egs. Kvaðst utanríkisráðherra því ekki fá séð að þetta takmarkaði flutninga til þeirra ríkja sunnan íslands. „Ég held hins vegar að öllum sé ljós að ef svo illa fer að til átaka kemur þá er líklegt að samkomulag sem þetta reynist harla gagnslaust," sagði Steingrím- ur og bætti því við að hann væri tæpast nógu fróður um hina hem- aðarlegu hlið mála til að meta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.