Morgunblaðið - 16.01.1988, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.01.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988 31 London: Klaufskasti banka- ræningi sögunnar? Reuter Kagamibiraki - nýju ári fagnað í herklæðum Samuraia reiðir fyrrum þingmaður, Kihei Kijima, tíl höggs til að skera „nýárskök- una“ að fornum japönskum sið, athöfnin heitir kagamibiraki á japönsku. London, Reuter. í RÉTTARHÖLDUM yfir hinum 26 ára gamla bankaræningja Michael Coleman kom fram að hann væri sennilega klaufskasti bankaræningi sögunnar. Hann byijaði á því að fá lánað reiðhjól og hjólaði svo til banka nokkurs í norðurhluta Lundúnaborgar. Fyrir framan bankann var löng röð af fólki og voru menn tals- vert hissa þegar Coleman bað um að fá penna lánaðan til að skrifa kröfu sína um peninga á blað. Hann varð reyndar líka að fá hjálp hjá þeim sem lánaði pennann við að stafa orðin. Þegar Coleman var kominn inn í bankann fór hann í röðina hjá gjaldkeranum. Allir gátu þó séð að hann hafði eitthvað undarlegt í hyggju því hann hélt á leikfanga- byssu og andlit hans var að hluta hulið límböndum. Eftir nokkra bið í röðinni þreif einn viðskiptavinur bankans í Coleman og hrópaði á hjálp. Coleman missti stjóm á sér, hrifsaði 190 pund af næsta manni og hljóp á brott. Hann gáði þó ekki að því að hnífur alsettur fíngraför- um féll úr vasa hans á leiðinni út Spánn: Madríd, Reuter. BANDARÍKIN hafa samþykkt að leggja niður herstöð sína i Torrejon 20 km frá Madrid að því er Francisco Ordonez ut- anrikisráðherra Spánar sagði í gær. Hann sagði að 72 banda- rískar F-I6 orrustuþotur yrðu fjarlægðar innan þriggja ára frá undirritun nýs varnarsamnings milli landanna og bandariskum hermönnum fækkað i landinu. Líklegt þykir að nýr vamar- samningur verði undirritaður í maí á þessu ári. „Bandaríkin hafa fal- list á kröfu Spánveija um niður- skurð heraflans," sagði Ordonez við fréttamenn. Til stendur að Felipe Gonzalez Reuter bandarískt herlið yfírgefí Torrejon herstöðina og að bandarískum her- mönnum á Spáni verði fækkað um helming. 34 ára gamall vamar- samningur milli ríkjanna rennur út á þessu ári og samkvæmt honum var heimild fyrir því að Bandaríkja- menn hefðu 12.500 hermenn á Spáni. Filipe Gonzalez forsætisráð- herra lofaði spænskum kjósendum því í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildina að NATO árið 1986 að dregið yrði úr umsvifum Banda- ríkjamanna á Spáni. I viðræðum við Bandaríkjamenn gerði hann útrýmingu F-16 orrustuþotnanna úr bankanum. Reiðhjólið hans fannst svo í vegarkanti, einnig með skýrum og greinilegum fíngraför- um. Nokkrum dögum seinna kom systir Colemans með bróður sinn til lögreglunnar og sagðist vilja bjarga honum frá giötun en Cole- man er heróínsjúklingur. Lindu Stem saksóknara varð að orði við réttarhöldin að Coleman væri „ein- hver klaufskasti og vanhæfasti bankaræningi sögunnar". Coleman játaði sekt sína og fékk fímm ára fangelsisdóm. Bandaríkjamenn samþykkja að fjarlægja F-16 þoturnar að eins konar skilyrði fyrir end- umýjun vamarsamningsins. Bandaríkjamenn héldu því fram í 18 mánaða samningaþófi að F-16 þotumar væru nauðsynlegar fyrir vamir Suður-Evrópu. V egabréf aáritanir til Frakklands: Evrópuráðið hótaraðfella niðurþinghald París. Reuter. EVRÓPURÁÐIÐ ætlar að fara fram á það við frönsk stjórnvöld, að þau felli niður áritanaskyldu á vegabréf gagnvart öllum aðild- arlöndum ráðsins 21 að tölu — ella verði bundinn endir á þing- hald í aðalstöðvunum i Stras- bourg seinna i þessum mánuði, að þvi er talsmaður ráðsins sagði á miðvikudag. Frönsk stjómvöld settu á áritun- arskyldu á vegabréf eftir sprengju- árásir í París. Undanþegin vom Evrópubandalagsríkin, Sviss og Liechtenstein. Evrópuráðið telur, að þau aðild- arríkjanna, sem skylda þessi hvílir á, þ.e. ísland, Finnland, Noregur, Svíþjóð, Austurríki, Kýpur, Malta og Tyrkland, eigi einnig að vera undanþegin. Hef opnað tannlæknastofu í Þingholtsstrætl 11, Reykjavík. Viðtalstími eftir samkomulagi. Símar: 10699og 16264. Sæbjörn Guðmundsson, tannlæknir. Fundur forseta Mið-Ameríkuríkja: StJ órn Nicaragna gagn- rýnd fyrir samningsbrot San Jose, Reuter. FORSETAR Costa Rica, E1 Salvador og Honduras gagn- rýndu á fimmtudag, daginn fyrir fund forseta Mið-Ameríkuríkja í San Jose í Costa Rica, stjórn Nicaragua fyrir að hafa ekki staðið við friðarsamninginn, sem forsetar Mið-Ameríkuríkja skrif- uðu undir í ágúst í fyrra. Forseti Nicaragua, Daniel Ortega, sagði hins vegar að Bandaríkjamenn hindruðu að friðarsamningurinn kæmist í framkvæmd. Oscar Arias, forseti Costa Rica, sagði á blaðamannafundi á fimmtu- dag að Mið-Ameríkumenn þyrftu að velja milli „riffla og brauðs" og hvatti þá til að leggja niður vopnin. Arias, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels á síðasta ári fyrir að vera helsti höfundur friðarsamnings Mið-Ameríkuríkja, sagðist vonsvik- inn yfír hvemig að framkvæmd samningsins hefði verið staðið. í Reuter Oscar Arias, forseti Costa Rica, talar á blaðamannafundi á fimmtudag, daginn fyrir fund forseta Mið-Ameríkuríkja. samningnum var gert ráð fyrir að vopnahlé kæmist á í Mið-Ameríku 5. nóvember síðastliðinn, en því var frestað til 5. janúar á þessu ári og að sögn sendimanns Costa Rica er Arias hlynntur því að vopnahléinu verði frestað í 90 daga enn og þeim ríkjum verði refsað sem ekki standi við samninginn. Jose Napoleon Duarte, forseti E1 Salvador, Jose Azcona, forseti Honduras, og Arias neituðu þvi að Colio Powell, ráðgjafí Reagans í öryggismálum, hefði þrýst á um að þeir gagnrýndu Nicaragua til að auðvelda Reagan að fá þjóðþing Bandaríkjanna til að samþykkja frekari aðstoð við kontra-skæruliða. Arias sagði að ásökun Ortega, for- seta Nicaragua, um að Bandaríkja- menn hindrí að vopnahlé komist á, væri aðeins tilraun til að afsaka það að Nicaragua hefði ekki staðið við friðarsamninginn. Hef opnað læknastof u í Læknasetrinu sf., Skógarhlíð 8. Tímapantanir alla virka daga í síma 622922, kl. 13.00-18.00. Hallgrímur Guðjónsson, læknir, Sérgrein: Meltingarsjúkdómar, almennar lyflækningar. firídsskófinn IMámskeið fyrir byrjendur hefst nk. mánudagskvöld SíAustu forvöð að innrita sig Upplýsingar og innritun i sima 27316 i dag, laugardag, milli kl. 13 og 17 og á mánudag milli kl. 13 og 15.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.