Morgunblaðið - 16.01.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988
37
Áburðarverksmiðja ríkisins:
Endurmat á gild-
andi öryggisreglum
STJÓRN Áburðarverksmiðju ríksins fjallaði um fyrirmæli ríkisstjórn-
arinnar á stjórnarfundi í gær, um aðgerðir í því skyni að auka og
treysta öryggi vegna ammóníaksgeymis verksmiðjunnar. Að sögn
Gunnars Guðbjartssonar stjórnarformanns var samþykkt tillaga er
varðar vinnubrögð í verksmiðjunni og stjórnendur hennar.
í tillögunni segir: „Stjórn Aburð-
arverksmiðju ríkisins samþykkir
að fela forstjóra og verksmiðjustjór
að láta nú þegar endurmeta gild-
andi öryggisreglur, sem unnið
hefur verið eftir á verksmiðjusvæð-
inu samanber 4. og 5. staflið í
bréfi félgasmálaráðherra til stjórn-
arinnar dagsettu 14. janúar 1988.“
Fjórði og fimmti liður eru svo hljóð-
andi: „4. haft verði reglubundið
eftirlit með búnaði sem notaður
er til að landa, flytja og geyma
ammóníak. Gerð verði sérstök
áætlun um slíkt eftirlit. 5._ Gerð
verði neyðaráætlun vegna Áburð-
arverksmiðjunnar í tengslum við
almannavarnaáætlun Reykjavík-
ur.“
Þá segir í tillögunni: „Jafnframt
felur stjórnin sömu aðilum að gera
áætlanir um framkvæmd sam-
kvæmt a. lið, að teknu tilliti til 1.,
2., og 3. töluliðs í bréfi félagsmála-
ráðherra og jafnframt b. lið
bréfsins með byggingu á 1000
tonna geymis í huga. Bera saman
kostnað og öryggisatriði hvors
þáttar um sig og meta einnig áhrif
kostnaðarins á verðlag í landinu."
Að sögn Gunnars Guðbjartssonar
er þarna átt við að fram faM mat
á hagkvæmi þess að byggja þró
fyrir núverandi geymi eða reisa
nýjan kældan geymi, sem yrði
1000 tonn að stærð.
Tekið er fram að athugun skuli
hraðað þannig að henni verði lokið
fyrir 25. þessa mánaðar svo stjórn-
jn geti svarað bréfi ráðherra fyrir
l.febrúar.
Söngflokkurinn The
Mamas and The
Papas til Islands
Bandaríski söngflokkurinn „The Mamas and the Papas“ er vænt-
anlegur hingað til lands í byrjun febrúar og mun skemmta ásamt
hljómsveit sinni í veitingahúsinu Broadway dagana 5. og 6. febrú-
ar næstkomandi.
Söngflokkurinn náði heims-
frægð á 7. áratugnum með lögum
eins og „Monday monday", „Cali-
fomia dreaming" „Words of love“
og „Dream al little dream of me“,
svo nokkur séu nefnd auk þess
sem liðsmenn flokksins hafa getið
sér frægðar á öðrum vettvangi.
Má þar nefna karlsöngvarana
John Philips og Scott Macenzie,
en sá síðamefndi varð heims-
frægur er hann söng lag John
Philips, „San Francisco, wear
some flowers in your hair“, sem
varð einskonar þjóðsöngur blóma-
kynslóðarinnar. John Philips
samdi flest vinsælustu lög „Mam-
as and the Papas“ auk þess sem
hann hefur samið mikið af tónlist
fyrir kvikmyndir, m.a. við kvik-
myndina „The man who fell to
eart“ sem David Bowie lék aðal-
hlutverkið í.
Dóttir hans Laura Macenzie
Philips er önnur af kvensöngvur-
um flokksins en hún er þekkt
leikkona í heimalandi sínu og lék
m.a. eitt af aðalhlutverkunum í
kvikmyndinni „American graf-
fiti“. Hin sönkonan, Spanky
Mcfarlane, kom í staðinn fyrir
söngkonuna Mama Cass, sem lést
langt um aldur fram, en Spanky
varð fyrst þekkt í Bandaríkjunum
með hljómsveit sinni „Spanky and
our gang“.
(Ur fréttatilkynningu.)
Bíllinn hvarf og
sjónvarpið með
KONA nokkur, sem tók ieigubíl
á mánudag, varð fyrir því óláni
að leigubílstjórinn ók á brott með
sjónvarpstæki, sem hún hafði
keypt. Rannsóknarlögregla ríkis-
ins óskar eftir að bílstjórinn gefi
sig fram og skili tækinu.
Konan tók leigubílinn við Fella-
garða rétt fyrir kl. 15 á mánudag
og telur hún bílinn hafa verið frá
Bæjarleiðum. Frá Fellagörðum ók
bílstjórinn að Laugavegi 39, þar
sem konan keypti lítið ferðasjón-
varpstæki. Frá Laugaveginum var
haldið að Ármúla 16 og þar brá
konan sér inn í verslun. Leigubíllinn
átti að bíða hennar og hún hafði
ekki greitt fyrir ferðina. Þegar kon-
an kom aftur út úr versluninni var
bíllinn horfínn og sjónvarpstækið
með og hefur ekkert til þess spurst
síðan.
Rannsóknarlögregla ríkisins
beinir þeim tilmælum til leigubíl-
stjórans að koma sjónvarpstækinu
góða til lögreglu.
Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson, Friðrik Ólafsson og Margeir Pétursson ásamt Þráni Guðmunds-
syni forseta Skáksambands íslands. Þeir verða allir i Kanada þar sem áskorendaeinvígin hefjast
innan skamms.
Jóhann Hjartarson lagður af stað til Kanada:
Hefur setið við rannsóknir í
áttatíma á dag í tvo mánuði
ÍSLENSKA þjóðin er þegar farin að búa sig undir skákeinvigi
Jóhanns Hjartarsonar og Viktors Kortsjnojs sem hefst í borg-
inni St. John í Kanada 24. janúar eða eftir rétta viku. Undirbún-
ingur Jóhanns hefur þó staðið mun lengur og hann segist hafa
síðan í nóvember setið við tölvuskjái og skákbækur að meðaltali
8 tíma á dag og rannsakað skákir Kortsjnojs og lagt niður fyrir
sér hvernig taflmennskunni í einviginu verði best háttað. Mar-
geir Pétursson aðstoðarmaður Jóhanns í einvíginu hefur_ ekki
lagt minni vinnu í undirbúninginn og félagar þeirra Helgi Ólafs-
son og Jón L. Árnason hafa einnig lagt hönd á plóginn. Einnig
má geta þess að Þröstur Árnason var fenginn til að safna gögn-
um fyrir rannsóknirnar og hann hafði greinilega gott af því
vegna þess að skömmu seinna varð hann Evrópumeistari ungl-
inga 16 ára og yngri í skák. Aðstoðarmaður Kortsjnojs verður
Dmítrij Gúrevitsj, sem er landflótta Sovétmaður, búsettur í
Bandaríkjunum.
Fyrirfram virðist þetta einvígi
Jóhanns og Kortsjnojs vera ójafn
leikur. Kortsjnoj er einn reyndasti
einvígaskákmaður heims, hefur
teflt á milli 15 og 20 einvígi á
sínum ferli og þar af tvö um
heimsmeistaratitilinn. Jóhann
hefur aftir á móti aldrei tekið
þátt í einvígi áður og rennir því
nokkuð blint í sjóinn. En sumir
meta það Jóhanni til tekna að
hann fær nú í fyrsta skipti tæki-
færi til að gera atlögu að stallin-
um sem Kortsjnoj hefur setið á
öll þessi ár og hefði því til að
bera þann sigurvilja sem hljóti að
hafa sljóvgast með árunum hjá
Kortsjnoj. Aðrir benda á að þess
sjáist engin merki að Kortsjnoj
sé að missa sigurviljann þrátt fyr-
ir að aldurinn segi til sín.
Vel að sér í Kortsjnoj
Jóhann og Margeir leggja af
stað í Kanadaferðina í dag klyfj-
aðir tölvubúnaði og skákbókum
og með þeim í för verður Friðrik
Ólafssyni sem verður formaður
sendinefndar Skáksambands ís-
lands á mótinu. Jóhann verður í
fréttamannaeinangrun meðan á
mótinu stendur en Morgunblaðið
ræddi við Jóhann áður en hann
fór og spurði hann hvort það
væri ekki einkennileg tilfinning
að sitja í tvo mánuði og rannsaka
skákir eins manns í 8 tíma á dag
og hvemig mynd Jóhann sæi af
Kortsjnoj eftir þetta.
„Ég var nú vel að mér í honum
áður og ég get ekki sagt að sú
mynd hafi breyst á þessum tíma,“
svaraði Jóhann. „Kortsjnoj er á
margan hátt óvenjulegur skák-
maður, er alltaf að reyna að skapa
eitthvað nýtt og hans aðalsmerki
er baráttan. En þessi undirbúing-
ur er allt öðru vísi en ég hef átt
að venjast og ég hef kafað miklu
dýpra í hlutina en áður. Einnig
hef ég ekki rannsakað eins marg-
ar byrjanir og venjulega. Maður
verður að takmarka sig alveg við
þennan eina andstæðing.
Kortsjnoj hefur þannig aðallega
treyst á franska vöm í heims-
meistaraeinvigunum. Hins vegar
er aldrei að vita hveiju hann tek-
ur upp á því hann er mjög fjöl-
hæfur í byrjunum," sagði Jóhann.
Hann sagðist ekki gera sér
grein fyrir hve margar skákir
hann hefði skoðað þessar vikur
þar sem misjafnt hefði verið hvort
hann fór yfir margar skákir á dag
eða eyddi tímanum í kafa djúpt í
einstakar skákir. Hann sagði er-
fitt að segja til um hvernig þessar
rannsóknir hafi skilað sér en hann
■hefði reynt að undirbúa sig af
kostgæfni. Þeir Margeir hefðu
farið yfir mörg atriði og hann
síðan borið ýmislegt sem honum
datt í hug undir Helga og Jón L.
Meiri skákþorsti?
Jóhann hefur ekki tekið þátt í
skákmóti síðan í lok okóber, þegar
hann keppti á móti í Júgóslavíu í
október. Margir þeirra, sem taka
þátt í áskorendeinvígunum í
Kanada, hafa hinsvegar keppt á
skákmótum nýlega, þar á meðal
Kortsjnoj sem tók þátt í móti á
Ítalíu sem lauk fyrir rúmri viku.
Telur Jóhann að þetta skipti máli
í einvíginu?
„Ég verð að viðurkenna að ég
er ekki nógu ánægður með að
hafa ekki teflt síðan í Júgóslavíu.
Ég held þó að það sé nokkuð stíft
að tefla í móti rétt fyrir einvígi
en hefði mér boðist að taka þátt
í móti í desember hefði ég, tekið
því en þá var bara ekkert að hafa.
Ég reyndi að vísu að komast á
mótið á Ítalíu en það heppnaðist
ekki.“
—Er þá skákþorstinn ekki orð-
inn meiri fyrir vikið?
„Það gæti verið og það er von-
, andi að ég verði fljótur í gang í
einvíginu."
—Einvígið við Kortsjnoj er að-
eins 6 skákir. Hvernig metur þú
það?
„Það er erfitt að segja. Sumir
segja að það sé mér í hag en ég
er ekki viss. Kortsjnoj er auðvitað
eldri maður og í lengra einvígi
ætti ég að hafa meira úthald. En
í svona stuttu einvígi ætti hann
frekar að geta notið sín.“
—Skiptir þá ekki miklu máli
hvemig fyrstu skákirnar fara?
„Það skiptir öllu máli því svona
einvígi gæti verið búið eftir fjórar
skákir, og eins og Kortsjnoj hefur
sjálfur sagt getur skipt sköpum
hver verður fyrstur til að vinna
skák. Sá hlýtur eðlilega að standa
vel að vígi.“
Leiftursókn
ekki fyrirhuguð
Jóhann vildi ekki viðurkenna
að hann hefði undirbúið sig sér-
staklega með það fyrir augum að
he§a einvígið með einhverri leift-
ursókn. Það var þá borið undir
hann að sumum hefði fundist
hann tefla óvenjulega djarft á
mótinu í Júgóslavíu og taka
óþarfa áhættu. Einnig hefði
Kortsjnoj t.d. unnið 4 skákir en
tapað þremur á mótinu á Ítalíu
og því virtist sem skákmennimir
hefðu verið að keyra meira í
síðustu mótunum fyrir einvígin.
Jóhann mótmælti þessu ekki en
vildi þó frekar kenna tímahrakinu
um útkomu sína í Júgóslavíu, sem
hefði sennilega skapast af því að
hann var ekki vel upplagður.
Kortsjnoj væri síðan auðvitað
þekktur baráttujaxl og því væri
ekkert óvenjulegt fyrir hann að
fá svipaða úikomu og á Ítalíu.
Jóhann sagðist síðan vera hæfi-
lega bjartsýnn á einvígið í
Kanada. „Það er þó kannski ekki
mikil ástæða til bjartsýni því
Kortsjnoj er fimmti stigahæsti
skákmaður heimsins og með alla
þessa reynslu, en ég hef aldrei
teflt í einvígi áður þannig að fyrir-
fram ættu menn ekki að gera sér
of miklar vonir,“ sagði Jóhann
Hjartarson.
Áskorendaeinvígin standa 24.
janúar til 5. febúar og em hluti
mikillar skákhátíðar. Tvö skák-
mót verða samtímis einvíginu og
hátíðinni lýkur 17. febrúar á
sterku hraðskákmóti þar sem
bæði Garry Kasparov heimsmeist-
ari og Anatolij Karpov verða
meðal þátttakenda. Fyrir utan
hólmgöngumennina' verða flestir
bestu skákmenn heims í St. John
á skákhátíðinnu en fyrir utan Jó-
hann og Kortsjnoj eigast við í
einvígum: Sjokolov gegn Sprag-
gett, Júsúpov gegn Ehlvest, Short
gegn Sax, Timman gegn Salov,
Portisch gegn Vaganían og
Seirawan gegn Speelman.
GSH