Morgunblaðið - 16.01.1988, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988
47
Þorgerður Odds-
dóttir - Minning
Fædd 3. desember 1918
Dáin 9. janúar 1988
Það kemur yfir okkur öll að við
hugleiðum tilgang lífsins og sjálf-
sagt aldrei meir en þegar sjúk-
dómslegan hefur verið löng og
ströng er dauðinn knýr á dyr. Þá
skynjum við hversu smá við erum
fyrir augliti skapara okkar og í
huganum vantar svör við svo ótal
mörgu. Þannig var er móðir mín
hringdi og sagði. „Hún Gerða dó í
nótt.“ Þrátt fyrir það, að öllum er
til þekktu væri vel kunnugt um að
Gerða hefði átt við mikil veikindi
að stríða síðastliðin ár, er vinar-
skilnaður alltaf viðkvæm stund.
Þorgerður fæddist á Suðureyri
við Súgandafjörð 3. desember 1918,
eitt níu bama foreldra sinna, Guð-
bjargar Bjamadóttur og Odds V.
Hallbjarnarsonar, sem þar bjuggu
til 1929 og síðan fluttu til Akra-
ness. Lengst af bjuggu þau á
Vesturgötu 59 (Arnarstað) og bjó
Gerða á neðri hæð hússins í góðu
nábýli við þau.
Mestalla starfsævi sína vann hún
við verslunarstörf, fyrst hjá afa
mínum, Þórði Ásmundssjmi, og
síðan hjá Sláturfélagi Suðurlands.
í öllum sínum störfum þótti hún
mjög traustur starfsmaður sem
mikið orð fór af vegna nákvæmni
og samviskusemi.
Gerðu auðnaðist mikil hamingja
er hún eignaðist Guðbjörgu 10. júlí
1944. Ég veit að Gugga hefur ver-
ið henni góð dóttir og eins að
miklir kærleikar hafa verið með
þeim alla tíð. Hún og maður henn-
ar, Jóhann Ársælsson skipasmiður,
byggðu hús í túnfætinum á Amar-
stað, þar sem Gerða hefur séð
bamabörn sín fjögur vaxa úr grasi.
Það hefur örugglega veríð mikill
styrkur fyrir hana á lífsleiðinni og
eins í veikindum hennar, hversu
samhent fjölskylda hennar er.
Hugur minn hvarflar til bemsku-
áranna heima, þá rifjast upp
minningar um Gerðu því hún var
okkar besti heimilisvinur. Tryggð
hennar við fjölskylduna á Sóleyjar-
götu 4 var slík að oft fannst manni
eitthvað vanta ef Gerða var ekki
mætt. í mörg ár kvaddi hún gamla
árið og fagnaði því nýja með okk-
ur, og ég held að oft höfum við
krakkamir litið á hana sem eina
af okkur. Þegar árin liðu eignuðust
systir mín og mágur efri hæðina á
Amarstað, svo enn var vinskapur
treystur. Dótturdóttir Gerðu og
dóttir systur minnar urðu miklar
vinkonur og oft sér maður móður
mína og Gerðu í þeim. Til Spánar
fór Gerða með foreldrum mínum í
heimsókn til eldri systur minnar.
Þar eignaðist hún góðan vin í syni
hennar, sem og í öllum börnum
okkar systkinanna.
Margt fleira væri hægt að rifja
upp, en með þessum línum erum
við fjölskyldan á Sóló einungis að
þakka ógleymanlega samfylgd og
þá sérstaklega foreldrar mínir. Við
vottum Guggu, Jóa, bömunum og
öðmm vandamönnum öllum inni-
lega samúð.
Guð blessi minningu Þorgerðar
Oddsdóttur.
Þórður Björgvinsson
Minning:
Auður Hannesdóttír
Fædd 12. ágúst 1916
Dáin 8. janúar 1988
Auður móðursystir mín er dáin.
Ég trúi því varla þó ég vissi að hún
átti við vanheilsu að stríða síðastlið-
ið ár. Hún var elst fjögurra bama
hjónanna Svövu Þorsteinsdóttur og
Hannesar Ólafssonar frá Eiríks-
stöðum, Svartárdal, A-Hún., og
ólst hún þar upp. Systkini hennar
eru Sigurgeir, búsettúr í Steklq'ar-
dal, Torfhildur, búsett í Reykjavík,
og Jóhann, búsettur í Reykjavík.
Auja, eins og hún var kölluð,
gifti sig 1942 Sigurði Hjálmars-
syni, miklum ágætismanni, og
bjuggu þau í Langagerði 66, Rvk.,
frá 1954. Mann sinn missti Auja
1981.
Auja og Sigurður eignuðust sex
böm, Hannes 1943, Hjálmar 1945,
Svavar 1947, Öm 1951, Þorstein
1952 og Ósk 1955. Einnig ólst upp
hjá þeim að mestu leyti dótturdótt-
ir hennar, Auður Jónsdóttir, 1957.
Það var mikið og gott samband
milli Auju og bama hennar. í veik-
indum móður sinnar flutti dóttir
hennar, Ósk, heim og hélt heimili
fyrir móður sína og var mjög náið
samband með þeim.
Dóttir átti Auja fyrir hjónaband,
Iðunni Björk Ragnarsdóttur, f.
1939, en hún lést af slysforum í
SvQijóð 1973. Var það mikið áfall
fyrir Ayju, en hún tók því eins og
öllu með miklum dugnaði og sálar-
styrk sem hún átti í svo ríkum
mæli. Aldrei heyrðust kvartanir frá
Auju. Hugur minn hvarflar til
nöfnu hennar, dóttur Iðunnar, sem
má sjá á bak ömmu sinni á af-
mælisdegi sínum.
Alltaf var gaman að koma í
heimsókn í Langagerði og borða
góðu kökumar hennar Auju og
leika við krakkana hennar. Eru þær
stundir ógleymanlegar. Bömum
hennar, tengdabömum, bamaböm-
um og bamabamabami sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Elsku frænku þakka ég fyrir allt.
Svava Agústsdóttir,
Danmörku.
ORÐSENDING TIL NEYTENDA
FRÁ VERSLUNINNI PFAFF
Við
PFAFF saumavélar
ÓBREYTT VERÐ
CANDY heimilistæki
ÓBREYTT VERÐ
Munu hækka um 17,5%
sjáum af lestri blaða síðustu daga að
neytendur og seljendur varnings eru ruglaðir
í ríminu vegna tolla- og vörugjaldsbreytinga.
Hjá okkur er stefnan einföld
Ennþá hefur engin vörutegund hækkað hjá
okkur. Við eigum allar gerðir af PFAFF sauma-
vélum á „gamla, góða verðinu", þ.e. við
munum ekki hækka verðið um boðuð 17,5%
fyrr en þessar birgðir eru búnar.
Ennfremur tókst okkur að ná stærri sendingu
af CANDY þvottavélum, kæliskápum og upp-
þvottavélum og seljum þetta að sjálfsögðu
allt á gamla verðinu.
Lækkum aðrar vörur strax
Flestir neytendur vita að minni rafmagnstæki
lækka og við höfum þegar lækkað allan lager
okkar frá 5-45%.
Dæmi: Fullkomnasta BRAUN rafmagnsrakvél-
in, sem áður kostaði 8.980, kostar nú aðeins
4.980. Hárblásari, sem áður kostaði 2.280,
kostar nú aðeins 1.380.
Vi
ið fögnum því að geta nú selt ýmis smærri
tæki á sama eða lægra verði en þau kosta er-
lendis. Við hörmum um leið þá skammsýni
stjórnvalda að hækka álögur á stærri heimilis-
tæki.
Verslunin
BRAUN VÖRUR
STÓRLÆKKUN
PFAFF
Kringlunni-s. 689150og Borgartúni 20-s. 26788
BETRI HEILSA A NYJU ARI
NÝTT VÍSINDA
Verðlækkun
AFREK
HÖFUÐVERK
Frönsk/
Svissnesk
uppfinning
vekur
heimsathygli
6.900,-
NEISTARINN
SJÁLFSMEÐFERÐ VIÐ VERKJUM OG ÞRAUTUM
KYNNING I
KRINGLUNNI
____laugardag 16.janúar
Guðríður Ragn-
arsdóttirsvæða-
nuddari kynnir
tækið á vegum
Heilsuhússins.
Heilsuhúsið
KRINGLUNNI S. 689266
Einkaumboð:
KRISTIN, INNFLUTNINGSVERSLUN
SKÓLABRAUT 1, SÍMI 91-611659,
BOX 290, 172 SELTJARNARNES