Morgunblaðið - 16.01.1988, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988
61
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / KÖRFUBOLTI
§J|pf ’Xj 1 A
ktm fih íf É ' "J’-
Sigurvegararnlr í 4. flokki Hauka ásamt Bjarna Magnússyni bankastjóra (2. f.h.) og forráðamönnum Hauka.
Landsbankamót — Hauka:
Haukar sigruðu
í báðum flokkum
Landsbankamót Hauka var hald-
ið þann 29. desember síðastlið-
inn og er þetta mót nú orðið árviss
viðburður. Eins og nafnið gefur til
kynna er það útibú Landsbankans
í Breiðholti sem sér um skipulagn-
ingu þessa móts í samráði við
Hauka. Var þar fremstur í flokki
Bjami Magnússon bankastjóri,
mótstjóri var Ingvar Kristinsson.
Keppt var í tveim flokkum, 3. og
4. flokki karla. Til leiks var boðið
liðum ÍR, KR, ÍA og Hauka. En
þar sem mikil gróska er í þessum
aldursflokkum Hauka þá höfðu þeir
tveim liðum á að skipa úr hvorum
flokki. Fyrirkomulag mótsins var
mjög einfalt, ef lið tapaði sínum
fyrsta leik þá lék það um 3.-4.
sætið, en ef það hins vegar vann,
þá lék það til úrslita. Keppni í 4.
flokki hófst kl. 9. Þá áttust við
Haukar, ’73 árgangur, og ÍR.
Haukar sigruðu þann leik, 30—24.
Að þeim leik loknum léku Haukar,
’72 árgangur, við ÍA. Þeim leik lauk
með sigri Hauka, 68—38. Var þá
ljóst að Haukar voru með bæði lið-
in í úrslitum. Úrslitaleikurinn fór
fram kl. 3, Haukar ’72 höfðu yfir
allan leikinn og sigruðu því örugg-
lega 68—45. IA og ÍR spiluðu um
3.-4. sætið, IA vann þann leik með
50 stigum gegn 30. Um ellefuleytið
hófst keppni í 3. flokki. Þá áttust
við Haukar 1 og ÍR. En þar sem
ÍR tókst ekki að boða liðið í 3.
flokki, létu þeir 4. flokkinn ásamt
þjálfara sínum, sem spilar með
meistaraflokksliði ÍR, leika þennan
leik. En allt kom fyrir ekki, Haukar
unnu leikinn, 100—48. Næst áttust
við Haukar 0 og KR. Þetta var jafn
og spennandi leikur og úrslitin réð-
ust ekki fyir en eftir tvíframlengd-
an leik. Haukar sigruðu, 58—57.
Til úrslita léku því bæði lið Hauka.
Haukar 1 sigruðu þann leik, 79—45.
KR og ÍR léku um 3.-4. sætið,
KR bar sigurorð af ÍR í þeim leik,
79—62. Eftir keppnina bauð Lands-
bankinn öllum upp á veglegrar
veitingar. Þá var valið í stjömulið
og besti maður mótsins valinn.
4. flokkur, Stjörnulið
Bakvörður: Jón Þór Þórsson, ÍA.
Bakv.: Sigurður Jónsson, Haukar.
Framh.: Helgi Jakobsson, ÍA.
Framh.: Jón A. Ingvarss., Haukar.
Miðv.: Kjartan Bjamason, Haukar.
Besti maður: Jón A. Ingvarsson,
Haukar.
3. flokkur, Stjörnulið
Bakv.: Hörður Pétursson, Haukar.
Bakv.: Steing. Bjamason, Haukar.
Framh.: Hörður G. Gunnarss., KR.
Framh.: Þorst. Ragnarss., Haukar.
Miðv.: Árni Guðmundsson, KR.
Besti maður: Steingrímur Bjarna-
son, Haukar.
Landsbankinn sá um að verð-
launa þessa einstaklinga og var þar
ekkert skorið við nögl. Mótið fór
mjög vel fram og er það Ijóst að
íslenskur körfubolti þarf ekki að
kvíða framtíðinni ef uppbyggingar-
starf heldur áfram á sömu braut.
Svipmynd úr leik Hauka og ÍR í 4. flokki.
Stjörnulelkmenn mótslns voru báðir ur Haukum. í 3. flokki var Steingrím-
ur Bjamason, en í 4. flokki Jón Á. Ingvarsson.
ÍÞRÓTTASKÓLIÍK
Hér sést hluti þátttakenda í íþróttaskóla ÍK með Bimi Eiríkssyni íþróttakennara.
MorgunblaðiðA/ilmar
Mikil þátttaka í
íþróttaskóla ÍK
foreldrar fylgst með bömunum.
Jafnvel þegar við á hafa þau tekið
þátt i leikjunum með bömunum.
Umsjónarmaður unglingasíðunnar
leit inn í tfma hjá krökkunum rétt
fyrir jólin. Þar var Björn Eiríksson
kennari að lesa jólasögu fyrir böm-
in og mátti heyra saumnál detta,
því grannt fylgdust bömin með sög-
unni um tröllin og jólasveinana. Að
sögn Þóris Bergssonar íþróttakenn-
ara, sem hefur skipulagt þetta
námskeið, hefur verið gerður mjög
góður rómur að þessu námskeiði
og í ráði er að byija á öðm slíku
eftir áramótin. Við smelltum einni
mynd af krakkahópnum að hlýða á
söguna og yfirgáfum síðan hópinn
því von var á jólsveinum í heimsókn.
Ivetur hefur ÍK rekið íþrótta-
skóla í Kópavogi fyrir böm á
aldrinum 5—8 ára. Mikíl þátttaka
hefur verið í þessum skóla og eru
nú um 80 krakkar á
Vilmar þessum námskeið-
Pétursson um. Kennslan hefur
skhfar farið fram í íþrótta-
skólum Digranes-
skóla og Snælandsskóla. Þar fá
bömin tækifæri til að velja sér
íþróttagrein, t.d. knattspyrnu,
körfubolta, tennis og aðra hópleiki.
Kennarar hafa verið þau Ásdís Ól-
afsdóttir, Þór Albertsson, Björn
Eiríksson, Þórir Bergsson íþrótta-
kennarar og Guðný Eiríksdóttir
tenniskennari. Hver æfing hefur
staðið yfir í 60 minútur og margir