Morgunblaðið - 16.01.1988, Síða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988
U ÞORBJÖRN Jensson, sem
þjálfar og leikur með Malmö í 2.
deild í handknattleik í Svíþjóð,
kemur að öllum líkindum heim að
loknu þessu keppnistímabili. Tvö
íslensk félög hafa sett sig í sam-
band við hann. Þorbjörn vill ekki
gefa upp hvaða félög það eru - á
þessu stigi málsins.
■ BJARNI Bessason, hand-
~*JP*knattleiksmaður úr IR, er á förum
* til Noregs. Brottför Bjarna er mik-
il blóðtaka fyrir hið unga ÍR-lið,
sem hefur staðið sig svo vel í 1.
deildarkeppninni. Eiginkona
Bjarna er að fara til náms í Nor-
egi. Þau halda út um miðjan
ferbrúar. „Það er alltaf slæmt að
missa reynda leikmenn," segir Guð-
mundur Þórðarson, þjálfari ÍR-
liðsins.
■ GUÐMUNDUR Þórðarson
tognaði illa á ökkla á dögunum og
—*/arð að nota hækjur um tíma. Guð-
mundur byijaði að æfa aftur á
miðvikudaginn. Það er óvíst hvort
að hann geti leikið með ÍR gegn
íslandsmeisturum Víkings 24. jan-
úar - í 1. deildarkeppninni.
■ DAVID OLeary, miðvörður
Arsenal, sagði í blaðaviðtali í gær,
að það hafí verið mistök hjá félag-
inu að láta Lee Chapmann fara.
„Chapmann var ekki notaður rétt
hjá okkur. Hann var notaður meira
sem miðvallarspilari heldur en mið-
herji. Stöðuna sem hann leikur best.
Chapmann er bestur inn í vítateig
andstæðinganna," sagði OLeary.
Arsenal seldi Chapmann til Sund-
erland og þaðan lá leið hans til
>Sheff. Wed.
■ MORTON í Skotlandi hefur
fengið tvo danska leikmenn til við-
bótar. Fimm Danir æfa nú hjá
félaginu, sem var þekkt á árum
áður fyrir að hafa danska leikmenn
í herbúðum sínum. Danski knatt-
spymumaðurinn Kjell Johanns-
son, sem lék með Glasgow
Rangers á árum áður, hefur sér
um að útvega Morton dönsku leik-
mennina.
■ BRAGI Björnsson hefur
ákveðið að leika áfram með ÍR í
2. deildinni í knattspyrnu. Mörg
félög hafa verið á eftir Braga m.a.
Leiftur og Þróttur.
I LOS Angeles Lakers tapaði
*ínjög óvænt fyrir nágrönnum sínum
Los Angeles Clippers 109:110.
Þessi úrslit koma mjög á óvart því
Lakers var búið að vinna 14 leiki
í röð, en Clippers búið að tapa 11
leikjum í röð. Þetta er í fyrsta sinn
í mörg ár sem Clippers sigrar þessa
frægu nágranna.
■ ERIC „Sleepy “ Floyd var í
gær dæmdur í 5.000 dala sekt fyr-
ir framkomu sína í leik Phoenix
Suns gegn Houston Rockets.
Gífurleg ólæti brutust út meðal leik-
manna og stóðu í þijár lotur! Floyd
fékk hæstu sektina, en margir leik-
menn fengu 1.500 dala sekt fyrir
slagsmál. Phoenix sigraði í leikn-
um, 117:106.
■ GUÐMUNDUR Hreiðarsson,
knattspymumarkvörður úr Val,
hefur gengið til liðs við Víkinga.
Áður hafa Stefán Halldórsson,
Atli Einarsson og Hlynur Stef-
'ánsson gengið til liðs við Víking.
HANDKNATTLEIKUR
Reykjavflcurúrvalid
ekki til Parísar
Boðið til HKRR hefur verið dregið til baka
ALLT bendir til að Reykjavík-
urúrvalið í handknattleik taki
ekki þátt í höfuðborgakeppni
í Parfs í aprfl, ásamt Parísar-
úrvali og úrvaisliðum frá
Bukarest og A-Berlín, eins og
fyrirhugað var. Boðið til
Reykjavíkurúrvalsins hefur
verið dregið til baka.
Við erum afar óhressir með
framkomu forráðamanna
höfuðborgarkeppninnar í í París.
Þeir voru búnir að bjóða
Reykjavíkurúrvalinu til að taka
þátt í keppninni og allt var klapp-
að og klárt. Nú höfum við fengið
fréf frá þeim, þar sem sagt er að
þeir séu búnir að draga boðið til
baka,“ sagði Þórarinn Einarsson,
varaformaður Handknattleiksráðs
Reykjavíkur.
Þórarinn sagði að forráðamenn
keppninnar hafi sagt frá því í
bréfínu - að upphaflega hafí þeir
verið búnir að bjóða úrvalsliði
Seoul frá S-Kóreu. Þegar svar
hafi ekki borist frá S-Kóreumönn-
um, var sent boð til HKRR. Nú
væri aftur á móti komið jákvætt
svar frá S-Kóreumönnum og því
hafi verið ákveðið að draga boðið
til HKRR til baka.
„Við. erum ekki ánægðir með
þessa framkomu og og erum ekki
búnir að segja okkar síðasta orð
í þessu máli,“ sagði Þórarinn.
HANDKNATTLEIKUR
Guðmundur ÞórAarson
Guðmundur
til Banda-
ríkjanna?
Jóhann Ingi
Gunnarsson
á heim-
leið frá
„Það er nokkuð Ijóst að ég verð ekki lengur hér
í Essen - eftir þetta keppnistímabil. Tími er kom-
inn til að breyta til. Essen hefur náð toppnum og
er á niðurleið. Leikmenn liðsins eru ekki eins áhug-
asamir og áður - margir þeirra hafa fengið sig
fullsadda af handknattleik, enda álagið búið að
vera mikið á leikmönnum Essen undanfarin ár,“
sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, handknattleiks-
þjálfari, í viðtali við Morgunblaðið í gær.
Er Jóhann Ingi á heimleið, eftir mörg góð ár hjá Kiel
og Essen í V-Þýskalandi? „Það getur eins farið svo
að ég komi heim. Félög heima hafa haft samband við
mig og spurt hvort ég sé á heimleið. Ég þarf að setja
búslóð mína í gám hér í Essen. Það er enn óljóst í hvaða
átt gámurinn verður sendur - hvort hann verði fluttur
á milli borga hér í V-Þýskalandi, eða fari sjóleiðina heim
til íslands," sagði Jóhann Ingi, sem er ekki enn búinn
að gera upp hug sinn. „Ég tek fljótlega ákvörðun
um hvað ég geri.“
■ JÓHANN Ingi Gunn-
arsson, þjálfarinn góð-
kunni. Verður hann í
sviðsljósinu á íslandi næsta
keppnistímabil?
Það er ljóst að ég verð ekki þjálf-
ari ÍR-liðsins næsta keppn-
istímabil. Hvort ég fari til
Bandaríkjana eða gerist þjálfari hjá
öðru félagi er enn óljóst,“ sagði
Guðmundur'Þórðarson, handknatt-
leiksþjálfari, sem hefur náð mjög
góðum árangri með hið unga ÍR-lið.
Guðmundur sagði að kona hans
Sigfríður Björnsdóttir væri nú við
nám í tónlistasögu í Bandaríkjunum
og hún yrði tvö ár til viðbótar við
nám vestra. „Ef ég fer til Banda-
ríkjana þá mun ég annað hvort fara
í nám eða að vinna.“
Guðmundur sagði að það hafí verið
ljóst fyrir keppnistímabilið að hann
yrði ekki áfram með ÍR-liðið. „Ég
er búinn að þjálfa strákana sam-
fleitt í fímm ár. Það er því kominn
tími til að nýr þjálfari taki við
þeim,“ sagði Guðmundur.
Lillehammer
sækir um
OL1994
Norski bærinn Lille-
hammer var fyrst
allra til að sækja um að fá
að halda Vetrar-Olympíu-
leikana 1994. Lillehammer
sótti einnig um að fá leik-
ana 1992 en franski
bærinn Albertville varð fyr-
ir valinu.
Talið er að Lausanne í
Sviss, Anchorage í Banda-
ríkjunum, Sofía í Búlgaríu
og Östersund í Svíþjóð
muni einnig sækja um leik-
ana 1994.
SKÍÐI / VETRAR-ÓLYMPÍULEIKARNIR
350 þús. aðgöngumiðar
eru óseldir í Calgary
Vetrar-Olympíuleikarnir vérða settir 14. febrúar
KORFUBOLTI
Sigur hjá
IRog
Keflavík
Keflavíkurstúlkurnar unnu
sigur, 45:30, yfír Njarðvík-
urstúlkunum í 1. deildarkeppni
í körfuknattleik á fimmtudags-
kvöldið. Kristín Blöndal skoraði
12 stig fyrir Keflavík og Anna
María Sveinsdóttir, 11. Sigríður
Guðbjömsdóttir skoraði 10 stig
fyrir Njarðvík og ólöf Einars-
dóttir sjö.
Þá vann ÍR sigur, 49:47, yfír
ÍS. ÍR hefur fjögurra stiga for-
skot á Keflavík í deildinni, en
hefur leikið tveimur leikjum
meira en Keflavík.
NÚ þegartæplega mánuður er
þangað til Ólympíuleikarnir í
Calgary í Kanda verða settir
eru 350 þúsund aðgöngumiðar
enn óseldir. Framkvæmda-
stjórn leikanna vonast til að
aðgöngumiðarnir seljist upp á
næstu vikum.
Vetrar-Ólympíuleikarnir verða
settir 14. febrúar í kanadísku
borginni Calgary. Ólympíueldurinn
verður þá tendraður á 700 feta
háum sjónvarpsturni í miðborginni.
Allt er nú tilbúið fyrir leikana nema
þá helst að það vanti meiri snjó.
Gleymt að kynna leikana
Áhugi á Vetrarleikunum virðist
ekki vera eins mikill og ætla mætti.
Hóteleigendur kenna mótshöldur-
um um hvernig komið er. „Þeir
hafa sýnt styrktaraðilum og boðs-
gestum of mikla athygli og gleymt
að kynna leikana fyrir hinum al-
menna ferðamanni," sagði einn
hóteleigandanna í Calgary.
MikiA um afpantanir
Ferðaskrifstofur víðsvegar um heim
höfðu pantað upp allt gistirými í
Calgary fyrir ári síðan. Nú hefur
komið í ljós að það er auðveldara
að fá gistingu í dag en fyrir ári því
mikið hefur verið um afþantanir
hjá ferðaskrifstofum.