Morgunblaðið - 16.01.1988, Side 64

Morgunblaðið - 16.01.1988, Side 64
juglýsinga- síminn er 2 24 80 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988 VERÐ I LAUSASOLU 55 KR. Mikil loftmeng- un undanfaríð Mengnn frá útblæstri bifreiða senni- lega meiri hérlendis en í Evrópu LOFTMENGUN, einkum vegna útblásturs bifreiða, hefur verið mik- il á höfuðborg-arsvæðinu undanfarna daga samkvæmt upplýsingum Hollustuverndar ríkisins, sem framkvæmir daglega mælingar á fíngerðu ryki í andrúmsloftinu. Loftmengun er talsvert háð veðri og veðurfar hefur verið þannig undanfarið að mengunin hefur safn- ast saman í loftinu. Astandið myndi hins vegar lagast mjög fljótlega ef snjóaði, að sögn Sigurbjargar Gísiadóttur, efnafræðings hjá Holl- ustuvernd ríkisins. „Ástandið hefur verið mjög slæmt núna í janúar samkvæmt mælingum okkar. Hér er þó ástand- ið mun betra en í borgum í Evrópu, vegna þess að hérlendis er ekki um mengun að ræða af völdum hús- hitunar. Hins vegar er mengun vegna bifreiðaumferðarinnar senni- lega meiri hér, vegna þess að bifreiðaeign er svo almenn," sagði Sigurbjörg. Hún sagði að hér væru engar sérstakar mengunarvamakröfur gerðar, hvorki varðandi útblástur bifreiða, né um að hér væri selt blýlaust bensín, eins og tíðkaðist í Bandaríkjunum, Japan og víðast hvar í Evrópu. Blýmengun í lofti væri mjög hættuleg og auk þess væri hægt að nota svonefnda hvata til þess að fullbrenna skaðleg meng- unarefni í útblæstri frá bifreiðum, ef blýlaust bensín væri notað. „Eg held það sé full ástæða til þess að setja reglur um eftirlit með bílum, bæði hvað varðar það að vélar séu rétt stilltar og um meng- unarvamabúnað," sagði Sigur- björg. Einnig þyrfti að athuga þætti eins og umferðarstjómun og hvort hægt væri að auka ferðir fólks með almenningsvögnum. Hún sagði að fólk með öndunar- færasjúkdóma, eins og astma, fyndi meira fyrir menguninni en aðrir, án þess að hún vildi fullyrða um það hvort mengunin væri hættuleg. „Síumar sem ég tek daglega niður á Miklatorgi eru kolsvartar. Þetta er það sem fólk andar að sér og það hlýtur að vera mjög óæski- legt,“ sagði Sigurbjörg Gísladóttir. Laun flugliða hækkuðu yfir 40% árið 1987 LAUNAKOSTNAÐUR flugfé- laganna vegna kjarasamninga við flugliða á siðasta ári jókst um yfir 40% á árinu 1987 saman- borið við árið 1986, að sögn Kristins Sigtryggssonar, fram- kvæmdastjóra Arnarflugs. Hann vildi ekki nefna dæmi um laun flugmanna, en sagði að þeir væru . fullsæmdir af þeim. Kristinn sagði að þrátt fyrir að flugfélögin hefðu óskað eftir við- ræðum um kjarasamninga í upphafi árs 1987 hefðu þær ekki hafíst fyrr 100% hækkun á bílastæðum BORGARRÁÐ hefur samþykkt að hækka leigu fyrir bifreiða- stæði í Kolaporti við Kalkofnsveg og á Bakkastæði við Faxaskála. Mánaðarleiga fyrir stæði í Kola- porti hækkaði 1. janúar um 2.000- krónur, úr 2.000 krónum í 4.000 krónur. Gjald fyrir hverja klukku- stund er 40 'krónur. Á Bakkastæði er mánaðarleigan 3.000 krónur, 150 krónur fyrir heil- an dag, 80 krónur fyrir hálfan dag og 30 króniír fyrir hveija klukku- stund. ' en komið var fram á sumar og samningar hefðu því ekki verið undirritaðir fyrr en eftir mitt ár og þá verið afturvirkir í nokkra mán- uði. Þessi dráttur á samningum hefði valdið flugfélögunum miklu tjóni vegna þess að talsvert væri búið að selja af farseðlum fyrirfram og skuldbinda verð og því hefði hækkun á fargjöldum ekki komið fram fyrr en í haust. Þetta hefði valdið félögunum milljóna og jafn- vel tugmilljóna tjóni. „Ég hef lýst því yfir við þessa samningaaðila að þetta sé fullkomið ábyrgðarleysi, sérstaklega gagnvart félagi eins og okkar, sem verið er að berjast fyrir að bjarga. Þetta er ekki leiðin til þess,“ sagði Kristinn. Hann sagði að fargjöld í milli- landaflugi hefðu hækkað um' 26% og launahækkun hefði því ekki gætt að fullu í fargjaldahækkum, enda útgjöld flugfélaganna samsett úr ýmsu öðru en launum. „I öðru lagi er augljóslega ekki hægt að flytja verðbólguna út og þess vegna hljótum við að þurfa að mæta hækkunum eins og þessum, sem eru úr takt við það sem er að ger- ast alls staðar annars staðar, með verði frarmiða innanlands, halla- rekstri eða sparnaði á öðrum sviðum. “ Morgunblaðið/Bjami Eiríksson Allt tilreiðu nema snjórinn SKIÐAFÆRI á þessum vetri hefur verið með lakara móti vegna snjóleysis, þótt nokkuð hafi ræst úr eftir áramótin. Flestir stærstu skíða- staðir á landinu eru tilbúnir að taka á móti skíðafólki og sums staðar vantar ekkert nema snjóinn. í Skíðheimum við ísafjörð var fremur dauft hljóðið í mönnum í gær vegna snjóleys- is og skíðasvæðið í Skálafelli var lokað af sömu ástæðum. Hins vegar var gott færi í Hlíðarfjalli við Akureyiri og fegursta veður og sömu sögu var að segja í Bláfjöllum, þar sem þessi mynd var tekin á fimmtudag. Skíða- svæðin verða öll opin nú um helgina ef snjórinn ,og veðurguðirnir leyfa. Viðskipti við Nígeríu: Samningar um breyt- ingn á skuldabréfum íslenzkir bankar eiga 87 milljónir í slíkum bréfum NÍGERÍUMENN hafa undanfarið verið að leita samninga um skuld- breytingu á skuldabréfum gefnum út af Seðlabanka Nígeríu. Upphæð bréfanna er samtals um 3,25 milljarðar dollara og eru þau komin í vanskil. íslenzkir bankar eiga um 2,4 milljónir dollara, 87,6 milljónir króna, í þessum bréfum vegna skreiðarviðskipta. Á fundi í London á fimmtudag greiddu lánadrottnar Nígeríumanna víðs vegar að úr heim- inum atkvæði um skuldbreytinguna og líkur benda til að hún hafi verið samþykkt. þessum bréfum, 'þau fóru í vanskil 1986 og við það féllu þau í verði. Nú var þess freistað að ná samning- um um lengingu þessara lána til 20 Hér er um að ræða skuldabréf, sem gefin voru út til rúmra 6 ára með almennum vöxítum. Nígeríu- menn stóðu ekki við afborganir af ára með 88 afborgunum á þriggja mánaða fresti, þeirri fyrstu í apríl næstkomandi. í atkvæðagreiðslu skuldúnauta með handauppréttingu samþykktu 248 breytinguna en 112 voru á móti. Hins vegar verður tek- ið tillit til þess hve miklar upþhæðir liggja að baki hverjum aðila og ræð- ur það vægi endanlegum úrslitum. Saltkistur sprengdar I Hafnarfirði Heimatilbúnar sprengjur notaðar til verksins UNDANFARIÐ hafa 10-11 salt- kistur verið sprengdar í loft upp í Hafnarfirði í skjóli myrk- urs og hafa skemmdarvargarn- ir notað til þess heimatilbúnar sprengjur. Svipaðar sprengjur voru teknar af unglingum í bænum á þrettándakvöld. Bæj- aryfirvöld komu saltkistunum fyrir við götur bæjarins, til að hægt sé að strá úr þeim salti á götur í hálku. Að sögn rannsóknarlögregl- unnar í Hafnarfirði hafa rörbútar verið fylltir með púðri og kraft- miklum sprengjunum verið komið fyrir í saltkistunum. Við spreng- inguna gjöreyðileggjast þær. Kistumar, sem eru úr tré, kosta um 10-11 þúsund krónur hver, svo alls hafa skemmdarverkin kostað bæinn rúmar 100 þúsund krónur. Bæjarstarfsmenn hafa undanfarið unnið við að fjarlægja ónýtu kistumar óg koma öórum fyrir í þeirra stað. Lögreglan óttast mjög að alvar- leg slys verði af sprengjum þessum. Enginn hefur verið hand- tekinn enn vegna skemmdarverk- anna, en lögreglan bjóst ekki við að þess yrði langt að bíða, því ákveðnir menn lægju undir grun. , Inni í þessu dæmi eru skuldabréf vegna skreiðarsölu að upphæð 2,4 milljónir dollara, 87,6 milljónir króna. Skreiðin, sem um er rætt, var seld fyrir 1984 og er aðeins brot af útistandandi skuldum vegna skreiðarsölu. Verði þessi skuldbreyt- ing samþykkt, má búast við því, að verðgildi bréfanna aukist að nýju. Björn Tryggvason, aðsboðarbanka- stjóri Seðlabankans, og Barði Ámason frá Landsbankanum sátu þennan fund. Bjöm sagði í samtali við Morgunblaðið, að sér virtist sem svo að ekki væri um annað að ræða fyrir okkur en sætta okkur við breyt- inguna. Þama væri hvort eð er aðeins um brot af skuldum Nígeríu- manna við okkur að ræða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.