Morgunblaðið - 24.01.1988, Side 23

Morgunblaðið - 24.01.1988, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1988 23 Hannes brennir með lasergeislanum meinsemdina burtu Eftir þetta er sjúklingurinn svæfður. Meðan á því stendur víkjum við Sverrir út með Hannesi lækni. Áður segir Fanney okkur að konunni verði rórra og hún sofni betur ef fátt fólk sé í kringum hana. Meðan við erum frammi segir Hannes okkur kosti og galla á laser- tækinu. Kostimir em þeir að af því unnið er í gegnum smásjá þá er hægt að sjá mun betur hvað verið er að gera, lasergeislinn, sem er CO 2 laser, orsakar minni skemmd- ir í vefjum í kringum skurðinn en hnífurinn gerir, bjúgmyndun verður minni í vefjunum og sárin gróa fljóct og af sjálfu sér án þess að þörf sé á að leggja á þau húð annars stað- ar af líkamanum. Einnig fær sjúklingurinn miklu minni verki eft- ir aðgerðina en ella. Allt þetta styttir mjög sjúkrahúsdvöl sjúkl- ingsins, jafnvel um helming, sem er mikill spamaður fyrir þjóðfélag- ið. Ókostimir em fáir, helst þeir að tækið er vandmeðfarið og laser- geislinn getur skaðað homhimnur í augum ef hann nær að endurkast- ast frá málmhlutum eins og fyrr sagði og svó hitt að nokkurt vanda- mál hefur verið að nota slöngu til að setja niður í barka sjúklingsins til að gefa öndunargas vegna þess að laserinn brennir upp plastslöng- ur. Til þess að vama því hefur verið brugðið á það ráð að vefja slönguna með állímbandi og hefur það gefist allvel. Einnig þarf að veija vel and- lit sjúklings fyrir bmna. Að sögn Hannesar hefur lasergeislinn reynst vel við allar aðgerðir á raddböndum og góðkynja og illkynja breytingum í slímhúð í munni og koki. Nú er sjúklingurinn sofnaður og allt að verða tilbúið fyrir aðgerðina. Við göngum inn á skurðstofuna og það er verið að þræða umtalaða slöngu niður í barka sjúklingsins. Æxlið sem numið var á brott úr tungu sjúklingsins Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Fyrir óvana er þetta heldur ógeð- felld sjón en þetta er nauðsynlegt að gera til þess að sjúklingurinn fái súrefni, glaðloft og fleira sem verð- ur að gefa í svæfingu, meðan á aðgerð stendur. Auður hjúkmnar- fræðingur hjálpar Hannesi í grænan slopp og hann segir um leið með bros i augum að þetta sé bráðnauð- synlegt til að ekki fari blóð í fötin hans. Þessi aðgerð er þó ekki líkleg til að verða mjög blóðug því laser- geislinn brennir fyrir allar smærri æðar svo það blæðir tiltölulega lítið þegar hann er að verki. Nú em lögð lök yfír sjúklinginn og andlit hans næstum hulið grisju sem vætt er í saltvatni því laser- geislinn fer ekki í gegnum vatn. Þessu næst er sett jámáhald upp í sjúklinginn til þess að halda munni hans vel öpnum og svo er settur örmjór þráður í gegnum tunguna og hún sveigð til hliðar til þess að halda henni í réttum stellingum meðan á aðgerð stendur. Sjúkling- urinn andar hægt og rótt og læknirinn fer að stilla ljós og fást við smásjána til að fá fram rétt sjónarhomið. Lasertækið er tengt við sjásjá eins og fyrr sagði og því er sjómað með fótstigi. Geislinn sjálfur er ósynilegur en bleikur stýrigeisli sem læknirinn stýrir með stjómpinna kemur frá lasertækinu gegnum smásjána á aðgerðársvæð- ið og sést einnig á sjónvarpsskerm- inum. Nú blasir æxlið við sjónum okkar sem fylgjumst með aðgerðum lækn- isins á sjónvarpsskerminum. Svo heppilega vill til að blóðið verður dökkt á lit á skerminum og það er því ekki nærri eins ógnvænlegt að horfa á aðgerðina þar eins og hina raunverulegu aðgerð sem ég sé þó alltaf út undan mér. Hannes læknir tekur nú að merkja svæðið í kring- um hin'n sjúka vef á tungunni sem brenna á burt. Hann gerir það með því að brenna depla á tunguna og það heyrast smellir í tækinu á með- an. Svartir deplar myndast og það tekur aðeins að blæða en Auður sogar blóðið upp með þar til gerðu röri. Það liðast reykur upp af tungu sjúklingsins og smátt og smátt berst æ meiri lykt af brunnu holdi fyrir vit okkar sem þama erum. Svört rönd hefur nú myndast á tungunni í kringum æxlið. Svæfing- arfólkið, þau Ragnar, Sigurður og Fanney hafa vakandi auga með sjúklingnum og fylgjast með hjarta- línuriti hans en Hannes hefur nú brennt það mikið af holdinu að æxlið er að losna frá og hann lyft- ir því upp með töng. Geislinn brennir sig æ dýpra ofan í tunguna og furðu lítið blæðir. Laserinn brennir litlu æðamar eins og fyrr sagði, en Hannes saumar snarlega fyrir þær stóm jafnóðum og þörf er á. Við erum öll þögul meðan la- sertækið suðar. Skömmu seinna sé ég að Fanney tekur fram nýja slöngu og fer að vefja hana með állímbandi, hún er þegar tekin til við að undirbúa næstu aðgerð svo þessi gengur greinilega framar öllum vonum. Æxlið er nú að mestu laust frá tungunni, það er um hálfur senti- metri að þykkt og heldur stærra um sig en krónupeningur. En þegar minnst vonum varir slekkur laser- tækið á sér. Mér er sagt að Það gerist stundum þegar tækið hefur verið lengi í gangi. Hlé verður á aðgerðinni um stund og fólkið fer að ræða saman. Einhver hefur orð á því að hann sé svangur. Nokkur stund líður og laserinn er ekki enn starfhæfur. Loks tekur Hannes af skarið og sker á þann veika streng sem enn tengir æxlið við tunguna og sjúklingurinn er þar með laus við meinvættinn. „Nú er ég rétt búinn,“ segir Hannes og það eru orð að sönnu. Aðgerðinni er lokið og sárflöturinn virðist hreinn. Mei- nið verður sent í vefjameinafræði- rannsókn sem leiðir í ljós hvort þörf er á geislameðferð líka til þess að fyrirbyggja ennþá frekar endur- myndun krabbameins. Slökkt er á lasertækinu og spottinn er tekinn - úr tungu sjúklingsins, slangan er hins vegar ekki tekin upp úr honum fyrr en hann vaknar. Grisjumar eru teknar af andliti sjúklingsins og límband af augunum hans og ekki er annað að 'sjá en allt sé í stakasta lagi. Við fömm fram og það er ekki laust við að ég sé fegin að komast úr þessu andrúmi brends holds og sterkra lyfja. Við Sverrir fylgjumst með Hannesi niður á kaffístofu þar sem hann sest niður hjá kollega sínum Einari Thoroddsen lækni og saman segja þeir mér meira frá lasertækinu. Lasergeisli er ósýnilegur geisli í infrarauðu bylgjulengdinni. Hann fer í gegnum ýmiskonar linsur í lasertæki og smásjá og brennir þá fasta vefí. Hann hefur hins vegar engin áhrif á vökva. Þetta er mjög einfölduð mynd af fyrirbærinu las- ergeisli. Lasertækið á Borgarspítal- anum kom hingað fyrst í sambandi við sýningu fyrir tveimur ámm. Það kom frá Israel þar sem það er fram- leitt. Borgarspítalinn keypti tækið sem var töluvert dýrt. Slík tæki sem þetta em mjög gagnleg við allar aðgerðir á raddböndum, mjög margar aðgerðir á slímhúðarbreyt- ingum í munni og koki, góðkynja og illkynja, við einstaka-nefaðgerð- ir og fáeinar eyranaðgerðir. Það er einnig notað við aðgerðir sem fram- kvæmdar era til hjálpar þeim sem þjást af kæfísvefni eða sjúklegum hrotum. Þá era flarlægðir hálskirtl- ar, hluti af mjúka gómnum og hluti af gómboga. Lasertækið er notað við tvær til þijár aðgerðir í viku sem gerir eitt til tvö hundrað aðgerðir á ári. - Aðgerðin var sýnd á sjónvarpsskjá Svæfingarlæknar að störfum. F.v Sigurður Páisson, Ragnar Finnsson, Fanney Jónadóttir hjúkrunarfræð- ingur heldur á slöngunni sem þrædd er ofan í barka sjúklingsins meðan á svæfingu stendur gleraugu til að vemda augun fyrir lasergeislanum sem getur reynst þeim skeinuhættur. Ef geislinn nær að endurkastast frá málmhlut í augun getur homhimnan skorist. Þannig gölluð héldum við inn á skurðstofuna og biðum komu sjúkl- ingsins ásamt hjúkranarliðinu. Viðstaddir þessa aðgerð vora auk okkar Sverris, Hannes Hjartarson læknir, sem gerði aðgerðina, Hauk- ur Eggertsson verkfræðingur sem hafði umsjón með tækinu, Ragnar Finnsson svæfíngarlæknir og að- stoðarlæknir hans Sigurður Páls- son. Þrír hjúkranarfræðingar aðstoðuðu við aðgerðina, Fanney Jónasdóttir sem er svæfíngarhjúk'r- unarfræðingur og þær Auður Jóhannesdóttir og Guðný Péturs-’ dóttir. Loks er komið með sjúklinginn. Honum er ekið inn á hjólabekk og færður yfír á skurðarborðið. Yfír borðinu er sterkt ljós og við borðið era allskyns tæki, hjartalínurit, öndunarvél, súrefniskútur, borð á hjólum hlaðin ýmiskonar áhöldum og svo lasertækið sjálft sem er nokkuð stórt, tengt við smásjá og sjónvarpsskerm þar sem hægt er að fylgjast nákvæmlega með að- gerðum skurðlæknisins. Áður en hafíst er handa við að svæfa sjúklinginn áréttar læknirinn við hann að viðstaddur sé blaða- maður ásamt ljósmyndara en getur þess jafnframt að ekki verði hægt að þekkja sjúklinginn á myndum sem til stendur að taka. Sjúklingur- inn hefur þegar veitt samþykki sitt og ítrekar það en spyr um leið hvort þetta sé svo merkileg aðgerð að hún eigi erindi i blöðin og brosir við. Sjúklingurinn er kona komin yfír miðjan aldur. Fyrir skömmu kom í ljós að hún var með flöguþekju- krabbamein í tungu og munnbotni. Meinið hafði ekki náð að sá sér út og að sögn lækna era batahorfur konunnar því góðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.